Þjóðviljinn - 22.03.1967, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 22.03.1967, Qupperneq 7
I Miðvikudagur 22. marz 1967 — ÞJÓÐVTLJTNN — SÍÐA 'J \ SARTRE □ Innan skamms kemur saman til starfa stríðsglæpadómstóll sá sem myndaður hefur verið að frumkvæði brezka heimspekingsins Bertrands Russells til að rannsaka hvort og með hverjum, hætti hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna' í Vietnam brjóti í bága við ríkjandi alþjóðalög. Russ- ell verður sjálfur heiðursforseti dómsins, en franski rithöfundurinn Jean-Paul Sartre verður starfandi forseti hans. — í eftirfarandi grein svamr hann ýmislegri gagnrýni sem aðstandendur dómstólsins hafa orð- ið fyrir og skýrir frá því, hvers vegna hann tsekur þátt í störfum hans. Verður stríðsglæpadómstóll- inn skopstæling á réttarfari? Mepn segja að stríðsglæpa- dómstöll Bertrands Russells verði skopstæling á réttlæti. I honum verða menn sem haía haft afskipti af stjórnmálum og eru andstæðingar stefnu Banda- ríkjanna. Það er hægt að vita það fyrirfram, segja menn, hvaða dóm þeir muni fella. Leyfið mér því að gera grein fyrir því hver er tilgangur þessara stríðsglæparéttarhalda og hverjum takmörkunum þau eru háð. Það verður ekki í verkahring dómstólsins að kveða á um það, hve ill stefna Bandaríkjanna í Vietriam er. Flestir okkar eru varla í miklum vafa um það. Verkefni hans ei? að kveða á um hvort hægt sé samkvæmt alþjóða-lögum að lita á þessa stefnu sem vopnaða árás, cg hvort stríðsglæpir hafi verið framdir. í þessu samhengi skiptir ekki . míklu máli siðferðileg fordæm- ing á árásum bandarískrar heimsvaldastefnu á land í hin- um svonefnda þriðja heimi, sem vill vera laus við banda- rísk yfirráð. Heimsvaldastefna er söguleg staðreynd. Hún er utan þess sviðs sem siðferðileg fordæming nær til. Það, sem menn geta gert, er að berjast við hana: menn geta beitt greind sinni til að skilgreina hvemig hún vinnur, menn geta tekið upp pólitíska baráttu gegn ýmsum talsmönnum henn- ar og birtingarformum — með vopn í hönd ef þörf krefur. Eins og allir aðrir meðlimir dófnstólsins er ég yfirlýst- ur andstæðingur heimsvalda- stefnu; ég tek mér stöðu við hlið alira þeirra, sem berjast gegn henni. Á slíkum forsend- um geta menn að sjálfsögðu hatað stéttaróvininn, en það er ekki þar með sagt að menn dæmi hann samkvæmt venju- legum réttaraðferðum. Við viljum aðcins benda á hugsanlegt brot á gildandi alþjóðalögum, skcra úr um það, hver beri ábyrgð á þessum brotum og hafl þar með gcrt slg seka um stríðsglæpi............ I einum formála að „Kapital" skrifar Karl Marx, að við verð- um sízt allra sakaðir fyrir að fordæma borgarastéttina, þar eð við lítum svo á að fram- koma hennar eigi sér forsendur í þróun auðmagnsins og stétta- baráttu og sé því eðlilegur á- vöxtur þessarar baráttu. En það kemur einnig fyrir að borgarastéttin brýtur lög sem hún hefur sjálf sett. • Og í dag mætum við þeim vanda að gera okkur ljóst í hverjum mæli heimsvaldastefn- an hefur farið yfir takmörkin. brotið leikreglumar. Þegar Talleyrand sagði: Russellnefnd var stofnuð í Noregi I Noregi hefur verið mynd- grundvelli — og e.t.v. að til- að ráð til stuðnings við stríðs- nefna einnig áheymarfulltrúa giæparéttarhöld Russells. f fyrir Norðurlönd á fundi dóm- bréfi sem meðlimir þess hafa stólsins. sent frá sér segir m.a. á þessa Norska Russell-ráðið er ó- leið: háð ölkim opinberum eða Undirritaðir hafa, þrátt fyr- hálfopinberum samtökum og ir ólíkar stjórnmálaskoðanir, cr stofnað í því skyni að tekið sig saman um að mynda koma staðreyndum um stríðið norskt Bertrand Russcll-ráð. í Vietnam á framfæri við sem Tilgangur þess skal vera að allra flesta. koma á samvinnu við hlið- Alls undirrita 22 þetta á- stæðar nefndir í öðrum Norð- varp. Þeirra meðal eru rit- urlöndum um að dreifa vitn- höfundarnir Jens Bjömeboe, eskju um starf dómstólsins, Johan Borgen og Siguvd Ev- koma greinargerðum hans á ensmo og formaður norska framfæri og meta niðurstöður sósialíska þjóðflokksins, Finn hans á frjálsum og óháðum Gustavsen. I „Þetta er glappaskot og þvi verra en glæpur“ afhjúpaði hann það, hvemig menn hafa litíð á pólitískar aðgerðir lengst af — þær var hægt að fram- kværna á klaufalegan hátt eða með góðum árangri, en þær sluppu alltaf við réttarmeðferð. Pólitíkin varð aldrei saknæm. Hugtakið „pólitískur glæpur" varð síðan fypst til í Núrn- berg árið 1945. Að sjálfsögðu skaut upp þeim grun að mcð málaferlunum væri áformað að þröngva lögum sigurvegaranna upp á hinn sigraða. Réttarhöld- in f Núrnberg gátu því aðeins haft þýðingu, að með þeim væri slegið föstu að hver sú stjórn sem bryti þær grundvall- arreglur sem dregnar vom upp í Núrnberg, mætti draga fyrir svipaðan dómstól. Dómstóll okkar mun aðeins stilla kapítalistísku þjóðfélagi upp andspænis þeim lögum sem það hefur sjáft sett.. Og auk Númberglaga eru til sem kunnugt er Briand-Kellogsátt- málinn, Genfarsamþykktin og aðrir alþjóðlegir samningar. Því er það ekki mest atriða í þeim réttarhöldum sem nú eru í vændum að dæma stjórn- málastefnu í nafni sögunnar né heldur að ganga úr skugga um það, að hve miklu leyti hún sé andstæð eða ekki andstæð hagsmunum mannkynsins. Höfuðatriðið er miklu frem- ur fólgið í því að benda á það að hve miklu leyti þessi stefna þessi pólitik, kemur f bága vi(T gildandi lög. Menn geta til dæmis gagn- rýnt þá stefnu sem frönsk yfir- völd fylgja um þessar mundir, geta verið f fullkominni and- stöðu við hana eins og til að mynda ég sjálfur; en menn geta ekki kallað hana glæpsamlega. Sú staðhæfing gat aftur á móti staðizt á tfmum Alsírstríðsins. Pyntingar, fangabúðir, hefndar- 4> aðgerðir gegn óbreyttum borg- urum, aftökur án dóms og laga — allt voru þetta ótíðindi sem mátti líkja við ' ýmsan þann verknað sem íordæmdur var i Númberg. Hefðu einhverjir menn tekið sig saman um það að koma upp hliðstæðum dómstóli þá, hefði ég að sjálfsögðu einnig viljað vera með. Og sú staðreynd að slfkum dómstóli var þá ekki stefnt gégn frönskum stjórn- völdum er ekki röksemd gegn þvf að þeim bandarísku verði stefnt fyrir rétt nú. Með því að það eru lögin sem við byggjum á verðum við vafalaust spurðir að þvf, með hvaða lögfræðilegum rétti við dubbum okkur til dómara, sem við erum reyndar ekki. Menn munu segja, að eftir grundvall- arreglum Bertrands Russells geti hver sem er sett sig í dómarasæti yfir hverjum sem er. En mai-kmið okkar er ekki að fella dóm. Og ég á reyndar erfitt með að ímynda mér sjálf- an mig dæma Jöhnson forseta til dauða. Tilgangur okkar er annar. Hann er sá að rannsaka það efni sem rannsóknarnefndin hefur safnað saman, hlýða á öll vitni t hvort sem þau eru vietnömsk eða bandarísk, til þess að kveða síðan á um það, hvort vissar aðgerðir falli inn í ramma þeirra laga sem ég hef nefnt. Við ætlum heldur ekki að reyna að setja ný lög eða regl- ur í formúlu. Við viljum aðeins benda á hugsanleg brot á gild- andi alþjóðalögum og sam- þykktum, skera úr um það, hver beri ábyrgð á þéssum bixítum og hafi þar með gert sig sekan um stríðsglæpi. Hér er því ekki um heiðarlega reiði nokkurra manna aT> ræða, held- ur um lögfræðilegan mæli- kvarða á pólitískar aðgerðir. Menn geta að sjálfsögðu bor- ið fram þá spumingú hvort það sé yfirleitt hægt að heyja heimsvaldastyrjöld án þess að brjóta alþjóðalög. En það er ekki okkar höfuðverkur. Sem venjulegur borgari, sem heim- spekingur og marxisti hef ég að sjálfsögðu rétt.tiil að halda, ttð þess háttar stríð hafi alltaf f för með sér pyntingar, fanga- búðir o.s.frv. En sem meðlimur í dómstóli Bertrands Russells hef ég ekki áhuga á slíku. Mitt verkefni er að komast að því hvort lög séu brotin. Það er rétt að taka það fram, að þótt við sem einstaklingar tökum þátt í baráttunni gegn heimsvaldastefnunni er ekki • þar þar með sagt að við höf- um fyrirfram fellt úrskurðokk- ar. Ég endurtek: með því að greiða atkvæði vinn ég gegn stjóm de Gaulles án þess að halda því fram um leið að stefna gaullista sé glæpsamleg. Það er annað sem um er að ræða þegar dæma skal vissar hernaðaraðgerðir Bandaríkja- manna í Vietnam — tiltekna loftárás. ákveðna aðgerð sam- kvæmt skipunum frá æðstu mönnum. Við mundum haga okkur sem skýjaglópar ef við vildum koma á fót raunveru- legum dómstól, sem sendi frá sér raunverulega dóma. En við höfum rétt til að koma saman sem borgarar í þvf skyni að gefa hugtakinu stríðsglæpir nýjan þrótt og tiil að sýna fram á það, að ynnt sé og nauðsyn- legt að dæma um alla pólitík innan ramma þeirra lögfræði- legu matsreglna sem til eru. Sumir ásaka okkúr fyrir að hafa ekki ákært Vietnama einnig og halda þvf fram að allt bendi til þess að báðir hafi framið stríðsglæpi. Ég fæst ekki til þess að telja aðgerðir fátækra og ofsóttra bænda, sem neyddir eru til að halda uppi jámaga í sínum röðum, sama eðlis og aðgerðir sem framdar ei-u af gríðar- miklum her með háþróað iðn- aðarveldi að baki. Auk þess eru það ekki Viet- namar sem hafa ráðizt inn í RUSSELL Bandaríkin og spýtt eldhafi yf- ir framandi þjóð. Meðan á Al- sírstríðinu stóð neitaði ég jafn- an að bera saman hermdarverk þjóðfrelsishreyfingarinnar og fjöldamorð þau, sem ríkur hálfrar miljónar manna inn- rásarher framdi. Það sama á við um Vietnam. Að líkindum munu málaferl- in verða ,til þess að efla andstöðuna gegn stefnu Banda- rikjamanna í Vietnam. En það verður aðeins ein af afleiðing- um þeirra. Á grundvelli þess grangurs sem rannsókn okkar mun leiða til — ef henni lýk- ur með fordæmingu á aðgerð- um Bandaríkjamanna — mun verða unnt að skipuleggja kröfugöngur, fundi, mótmæla- ' göngur og undirskriftasafnanir. Fyrsta verkefni okkar verð- ur því uppeldislegs eðlis og svo að veita upplýsingar, því allir fundir og yfirheyrslúr verða að sjálfsögðu öllum opin. Við höfum einnig verið sak- aðir um smáborgaralega trú á lagabókstaf, satt er það. Ég . viðurkenni að hér hafa menri nokkuð til síns máls. Eri hverjir eru það, sem við reyn- um að fá.til að skipta um skoð- un? Þeir sem hafa tekið upp baráttu við kapítalisma og eru nú þegar sannfærðir um nauð- synina á að berjast við heims- valdastefnu þar til yfir lýkur — hvort sem stríðsglæpir verða sannaðir eða ekki? Eða hinar fjölmennu millistgttir, sem enn vita ekki í hvom fótinn þær eiga að stíga? Það eru einmitt smáborgar- amir sem þarf að ýta við £ dag, vekja af værum blundi. Og það er einmitt með slíkum trúnaði við laganna bókstaf að augu þeirra verða opnuð. Sjóstangaveiðifélagið hefur nú mörg járn í eldinum Aðalfundur félagsins var haldinn 3. des- sl. Fóru fram venjuleg aðalfundarstörf og stjómin gaf skýrslu um starfið á hinu liðna ári. Eftirtaldir menn voru kjörnir í stjórn: Magnús Valdimarsson, for- maður, Hákon Jóhannsson, varaform., Bolli Gunnarsson, ritari, Jón B. Þórðarson, gjald- keri og Egill Snprrason, með- stjórnandi. Stjómin hefur að undanfömu unnið að undirbúningi á sum- arstarfinu, og hafa eftirtalin mót verið ákveðin: Alþjóðamót í Vestmanna- eyjum 13.-15. maí. Flogið verður til Vestmanna- eyja 13. maí og mótið sett um kvöldið. 14. maí — sunnudag- inn — verður fiskað við Surts- ey frá klukkan 9 til 6 e.h. 15. maí — mánudaginn — verður fiskað frá klukkan 9 til klukk- an 5. Um kvöldið verður loka- hóf og verðlaunaafhending. Gist verður á Hótel H. B- og mun Ferðaskrifstofan Saga sjá um undirbúning og taka á móti þátttökutilkynningum. Bæjarkeppni í Keflavík 10.-11. júnl. Helgina 10. og 11- júní fer fram bæjar- og firmakeppni frá Keflavík. Verður mót þettai nánar auglýst síðar. Hákarlaveiði við Gíbraltar 21.-24. apríl. "* Ef einhverjir félagsmenn hafa áhuga fyrir þessu móti, getur stjómin gefið nánari upplýs- ingar. V erzlunarmannahelgin 6. ágúst. Eins og undanfarin ár hefur félagið tryggt sér allt hótelið í Grundarfirði þessa helgi og verður fiskað í hinum fengsæla Breiðafirði. Evrópumeistaramótið á Ir- Iandi 9.-16- september. 1 þetta sinn verður Evrópu- meistaramótið haddið í Oobh á suðurströnd Irlands. Ef þátt- taka reynist nægileg mun Ferðaskrifstofan Saga geta út- búið hópferð. með lægri gjöld- um. Verður það auglýst nánar siðar. Akurcyri 2.-3- september. Sjóstangaveiðifélag Akureyr- ar hefur ákveðið mót í haust eins og undanfarin ár og mun Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.