Þjóðviljinn - 04.04.1967, Síða 9
Þriðjudagur 4. aprfl 1067 — ÞJÖÐVTLJTNN — SÍDA 0
Fiskinál
EYamhald af 4. síðu.
um í Nexö var samþykkt á-
skorun á danska fiskifélagið
um að hafa milligöngu um
það hvort hsegt mundi að kippa
þessum mélum í lag í Noregi
og jafnframt hvort þeir mundu
mega leggja aflann á land i
Færeyjum. Þá var innt eftir
fyrirgreiðslu fiskifélagsins um
útvegun á móðurskipi handa
hinum borgundarhólmska lax-
veiðiflota þar sem hægt væri
að hraðfrysta laxinn um borð.
Flýgur fiskisagan
Mörg erlend blöð sem skrifa
um sjávarútvegsmál birtu ag
hafa verið að birta fréttina um
sölumet togarans Maí frá Hafn-
arfirði í Þýzkalandi nýlega,,
þegar hann seldi þar ísvarinn
karfa sem veiddur var á Græn-
landsmiðum. Norska blaðið
Fiskaren telur að hér muni
vera um algjört heimsmet að
ræða í sölu á óunnum karfa.
Eyðilegging
fiskimiða
Útgerðarsamtök í Bretlandi,
Svfþjóð og víðar í vestur Evr-
ópu hafa nú af þvi miklar á-
hyggjur, að góð fiskimið i
Norðursjó verði eyðilögð vegna
þess að netaflækjum og öðru
drasli hefur verið kastað þar
fyrir borð í stórum stíl á síð-
ustu árum. Sérstaklega er talið
að net eða netahlutar úr gervi-
þræði sem ekki fúna og liggia
því iangtímum saman á hafs-
botninum fæli fiskinn burt af
slíkum miðum. Þetta þykir
hafa sannazt á þeim fiskimið-
um þar sem mikið hefur orðið
vart við slíkt drasl úr gervi-
þræði á botninum.
Skora því þessar þjóðir á
sína sjómenn að hætta algjör-
lega að kasta slíkum netadræs-
um fyrir borð, en skipa þeim
heldur á iand, þegar komið er
til hafnar úr veiðiferð. Þegar
ég las um þetta, þá varð mér
hugsað til miðanna hér • við
Suður og Vesturlandið, þar sem
margar heilar þorskanetatross-
ur úr gerviþræði tapast og
verða eftir á botni árlega, án
þess nokkuð sé gert til þess að
hreinsa botninn að aflokinni
vertíð, eða kanna ástandið. Á-
standið á þessu sviði er áreið-
anlega hættulegast i þessu efni
innan landhelginnar hér á okk-
ar miðum.
Utan landhelginnar er al-
gengt að togarar fái slíka
netahnúta í vörpur sínar og
þarf nú að brýna fyrir togveiði-
skipstjórum að kasta ekki slík-
um netadræsum aftur í hafið
komi þær í vörpuna heldur
flytja allt slíkt drasl til hafn-
ar. Sjómenn hér hafa gert sér
vonir um, að netin yrðu óskað-
leg ef þau legðust á botninn og
því var það ráð upptekið að
hafa ekki kúluhankana úr
gerviþræði, heldur „sísalþræði“
sem fúnar í sundur að ákveðn-
um tíma liðnum. En eftir þeim
rannsóknum sem menn hafa
gert í Norðursjónum, þá er
ekki nóg að netin hætti að
veiða þegar þau leggjast á
botninn, heldur er sjálft efmð
i þeim þess valdandi að fiskur
fælist miðin séu þau þar liggj-
andi.
Framhald af 12. síðu.
í öðrum löndum og að senda
fulltrúa á ráðstefnu norrænna
prentara, sem haldin verður í
Danmörku í sumar.
Hagur félagsins má teljastgóð-
ur. Eignir þess eru bókfærðar á
kr. 4.163.229,52, og eru þó fast-
eignir félagsins aðeins taldar á
kaupverði. Félagið á húseign að
Hverfisgötu 21 í Reykjavík og
jörðina Miðdal í Daugardal þar
sem reist var orlofsheimili árið
1960. Auk þess hafa verið reisc-
ir þar 28 sumarbústaðir í eigu
prentara.
Styrkir til félagsmanna og að-
standenda þeirra námu á árinu
kr. 219.502,25.
Félagið var stofnað 4. april
1897 og heldur uppá 70 ára af-
mælið með hófi að Hótel Borg
laugardaginn 8. apríl.
Stjóm félagsins verður stödd í
félagsheimilinu eftir kL 3 í dag.
Mörg innbrot
Framhald af 1. síðu.
izt til skila, skjöl og bækur fé-
lagsins. Að Tryggvagötu 4 brut-
ust þeir einnig inn í fleiri skrif-
stofur, en fundu fátt fémætt, ut-
an háglabýssu, sem þeir hirtu.
Þá var einnig um helgina brot-
izt inn í Kennaraskólann nýja,
en litlu stolið, í söluturninn í
Austurstræti þar sem teknar
voru tóbaksvörur og í geymslu-
skúr Vöruflutningamiðstöðvar-
innar, en ekki hefur komið í ljós
hvort einhverju hefur verið stol-
ið þar.
Maðurinn minn, faðir okkar og afi
BJÖRN JÓNSSON prentari
Hliðarvegi 147,
andaðist í Landspítalanum 3. apríl
Anna Einarsdóttir Long
Guðbjörg Björnsdóttir
Gunnar Björnsson
Anna Birna Watts.
Móðir mín, tengdamóðir og amma
GUÐNV GÍSLADÓTTIR, Hlíðargerði 15,
Reykjavík,
lézt í sjúkrahúsi Hvítabandsins 2. apríl.
Agnete Simson. Magnús Guðmundsson.
Guðný Magnúsdóttir. Guðmundur Magnússon.
Una Þóra Magnúsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
BENEDIKT JAKOBSSON, íþróttakennari,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6.
þ.m. kl. 13,39. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim
sem vildu minnast hins látna er bent á Minningarsjóð
Erlendar Ó. Péturssonar.
Gyða Erlendsdóttir.
Börn, tengda- og bamabörn.
Síminn
Framhald af 1. síðu.
tími, með aðeins 2 símstöðvar
en nú eru þær 5. Og næsta
„työfalda tímabil‘‘ Bæjarsímans
má lauslega áætla, samkvæmt
fyrri áratuga reynslu, að sé um
15—18 ár, þ.e-a.s. að númera-
fjöldinn verði þá kominn upp í
60000, eða um tvöfalt fleiri
símanúmer en eru í dag, eða
tvöfalt meira en, frá upphafi
Bæjarsímans rétt eftir s.l. alda-
mót. Eftirspurnin eftir nýjum
símum minnkar ekki þó síma-
hörgull sé, en kemur í þess
stærri stökkum, þegar stækkun
á sér stað.
Þess skal getið að afgreiðslu-
tími á sjálfvirkum stöðvum er-
lendis er um 14 til 16 mán-
uðir og eru nú í undirbúningi
kaup á allt að 3000 símanúm-
erum til viðbótar fyrir næstu
árin. Ætti því að vera hægt að
fujlnægja eftirspurn eftir nýj-
um símum í framtíðinni. Þó gæti
verið um tímabimdnar tafir að
ræða vegna línuskorts í ein-
stökum bæjarhverfum.
Til fróðleiks má geta þess
að ísland er númer 4 í röðinni
af Evrópuþjóðum um fjölda
síma á hvern íbúa næst á eft-
ir Svíþjóð, Sviss og Danmörku,
en Noregur er/nr. 5. Ef númera-
fjöldínn væfi tekinri sem mæli-
kvarði væri Island enn hærra
í röðinni.
Á árinu 1966 voru töluð um
120 miljón samtalaskref um all-
ar sjálfvirkar stöðvair á Islandi.
Það eru fáir, sem gera sér ljóst,
að það tæki einn mann með
sólarhringsvinnu, 900—1000 ár að
anna slíkri afgreiðslu.
Síminn er orðinn ómissandi
tæki í okkar þjóðfélagi og senni-
lega eiga íslendingar heimsmet
í notkun hans.
Að lokum skal þess getið að
við umræddar stækkanir hefur
verkfræðingur og tæknimenn á
vegum L. M. Ericsson auk ís-
lenzkra tæknimanna unnið.
Iþrótiir
Framhald af 5. síðu.
Bezti maður þeirra var Egon
Juul Andersen, Emst Jensen og
Ame Petersen.
Þeir sem skoruðu stigin fynr
Island voru: Þórir Magnússon
14, Kristinn Stefánsson 10,
Birgir Jakobsson og Gunnar
Gunnarsson 8 hvor, Jón Jón-
asson og Hjörtur Hansson 6
hvor, Agnar Friðriksson 3,
Birgir Ö. Birgis, Guttormur Öl-
afsson og Kolbeinn Pálsson 2
hver.
Fyrir Danmörku skoruðu Eg-
on Juul Andersen 16, Ame Pet-
ersen 14, Emst Jensen 13, Birg-
er Fiala 5, Flemming Wich 3 og
Trolle Staun 2.
Dómarar voru Dan Christen-
sen frá Danmörku og Guðm.
Þorsteinsson frá Islandi.
Dæmdu þeir yfirleitt vel, og
voru þeir sannarlega ekki öf-
undsverðir að dæma eigin lið,
en það er mikill spamaður að
því að fá ekki menn frá öðrum
löndum. Frímann.
Grein Kára B.
Framhald af 2. síðu.
með mér til að fletta ofan af
þessari svívirðingu.
Ég hef orðið að þola að sjá
þennan mann sundurtæta efna-
hag minn án þess að ég fái
rönd við reist og því miður
hef ég ekki getað fengið þá
hjálp sem skyldi hjá þeim
sem ég hef leitað aðstoðar hjá
til að ná rétti mínum, vegna
hræðslu þeirra við að komast
í ónáð hjá fógeta.
Er ég sá eini, sem orðið hef
fyrir rangri málsmeðferð? —
eða eru það ekki fleiri einstak-
lingar eða fyrirtæki sem hafa
svipaða sögu að segja og ég?
Það er sárt til þess að vita,
að einstaklingar og fyrirtæki
sem eiga eignir langt fram-
yfir skuldir en eiga í tíma-
bundnum greiðsluvandræðum
og lenda í höndum lögfræðinga
sem reka menn til borgar-
fógetaembættisins þar sem allt
er tætt af þeim og þeir standa
eftir öreigar.
2. apríl 1967,
Kári B. Helgason.
AB-bækur
Framhald af 7. síðu.
breytingum, sem koma heyrn
ekkert við“. Þannig getur lang-
varandi og óslitinn hávaði af
miðlungshljóðstyrk á breiðu
tíðnisviði valdið sjóntruflunum
og jafnvel raski á efnaskiptum
líkamaris. í þessu efni standa
frumstæðar þjóðir betur að
vígi. Sérfræðileg rannsókn á
Mabaanmönnum, sem lifa kyrr-
látu steinaldarlífi við landa-
mæn Súdans og Eþíópíu, leiddi
í ljós, að heyrn þeirra dofnar
ekki með aldrinum, og svo til
hver maður „gat heyrt lágt
muldur þvert yfir rjóður á
stærð við knattspyrnuvöll".
Um allt þetta er Hljóð og
heyrn náma af fróðleik, og eins
og Örnólfur Thorlacius tekur
fram er þar að finna „athygl-
isvert yfirlit um helztu gerðir
heyrnarkvilla, orsakir þeirra og
afleiðingar. og aðferðir til
lækningar, ef þekktar eru.
Einnig er greint frá uppeldis-
aðferðum, sem beitt er við
heyrnarlaus börn til að minnka
það bil sem óhjákvæmilega
skilur þau frá heyrandi jafn-
öldrum sínum“.
Skipin eru tólfta bók Al-
fræðasafnsins og eru höfund-
ar hennar þeir próf. Edward
V. Lewis og Robert O’Brien,
sem einnig var annar aðalhöf-
undur að Veðrinu, en hún var
sjötta Alfræðasafnsbókin. Segja
má, að þessi bók hafi að geyma
í máli og myndum áhrifamik-
inn þverskurð af þróunarferli
alls mannkyns frá fyrstu tíð og
fram á vora daga. Skip hafa
frá öndverðu leyst hina djúp-
stæðu útþrá einstaklinga og
þjóða úr læðingi, þau hafa
staðið undir landafundum og
viðskiptum og komið stórveld-
um á legg á sama tíma og aðr-
ar þjóðir glötuðu frelsi sínu
fyrir vanrækslu eigin skipa-
stóls. Fyrir því ætti hverjum
manni að þykja slík bók sem
þessi harla forvitnileg og þá
ekki hvað sízt íslendingum,
sem á öllum öldum hafa átt
sjóinn að meginfarleið og
forðabúri. Pétur Sigurðsson
kveðst í formála „treysta því,
að þéssi bók, sem fjallar um
skipið og sögu þess, allt frá
frumstæðustu eintrjáningum
grárrar forneskju til risastórra
hafskipa nútímans, þar sem allt
stórt og smátt, hlýðir hnit-
miðun vísindalegrar nákvæmni,
muni verða mörgum fróðleiks-
fúsum löndum mínum til yndis
og ánægju, og það því fremur
sem hinir kunnáttusömu höf-
undar hennar hafa einstakt lag
á að miðla mikilli þekkingu í
óvenjuskýrri og skemmtilegri
frásögn“.
S Æ N G U R
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar, eigum dún- og fið-
urheld ver og gæsadúns-
sængur og kodda af ýms-
um stærðuro
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Simi 18740
(örfá skref frá Laugavegi)
Viðgerðir
á skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð þjónusta
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Bröttugötu 3 B
Sími 24-6-78.
Gerið við bílana
ykkar sjálf
— Við sköpum aðstöðuna
Bílaþjónustan
Auðbrek' 53. Simi 40145.
Kópavogi
Hamborgarar
Franskar kartöflur
Bacon og egg
Smurt brauð og
snittur
SMÁRAKAFFI
Laugavegi 178.
Sími 34780.
tsulofunap
HRINGIR
Halldór Kristinsson
gullsmiður. Óðinsgötu 4
Simi 16979.
Nýja
þvottahúsið
Sími: 22916.
Ránargötu 50.
20% afsláttur af öllu
taui — miðast við 30
stykki.
Smurt brauð
Snittur
brauð bcer
við Óðinstorg.
Sími 20-4-90.
HÖGNI JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Skólavörðustig 16.
Sími 13036.
heima 17739.
Sængrurfatnaður
— Hvítur og mislitur —
ÆÐARDUNSSÆNGUR
GÆSADÚNSSÆNGUR
DRALONSÆNGUR
•*
SÆNGURVER
LÖK
KODDAVER
txiðU
fur
Laugavegi 38.
Skólavörðustíg 13
Snorrabraut 38.
KÆRKOMIN
FERMINGARGJÖF
Skólavörðustíg 21.
BRl DGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannargæðin.
B: R I DGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRIDGESTONE
ávallt fyrirliggiandi’.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
:',}■« 4\fþör 6ut%wmso>,
Skólavar&ustíg 36
Símí 23970.
INNHESMTA
CÖOPXMGfiSTðfíF
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
V ’d [R oez?
—J-J- Ll—
khrkj