Þjóðviljinn - 15.04.1967, Side 1

Þjóðviljinn - 15.04.1967, Side 1
Laugardagur 15. apríl 1967 — 32. árgangur — 85. tölublað. Framhaldsaðalfundur Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík að Hótel Sögu á mónudaginn klukkan 20.30 □ Framhaldsaðalfundur Alþýð ubandalagsins í Reykjavík verð- ur haldinn í Súlnasal Hótel Sögu n.k. mánudagskvöld og hefst hann klukkan 20.30. Frumvarp þriggja þingmanna AlþýSubandalagsins: A tvinnuleysis tryggingasjóður luni verkafólki til íbúSahúsabygginga Aðgang að lánum þessum hafi þeir félagsmenn verkalýðsfélaganna, sem ekki eiga rétt til byggingarlána úr neinum lífeyrissjóðum Þjóðviljinn morgun jr ö ★ Á morgun, sunnudag, er Þjóðviljinn 16 síður, efnið mikið og fjölbreytt. Með- al annars: ★ Samskipti Sovétríkjanna og Kína. — Nokkur atriði til glöggvunar eftir Ás- mund Sigurjónsson. ★ Meira Og Minna Sundur- laust — spjall frá Kaup- mannahöfn. ★ Hann fann gull Spánar- konungs. Frásögn af múr- aranum sem var heppn- astur gullgrafara. -k Parísarpistill, Eins og roskin hefðarfrú sem kann að halda sér til, — eftir Hlöðver Sigurðsson. ★ Moskvubréf: Landar í heimsókn. — eftir Ingi- björgu Haraldsdóttur. Listahátíðin Noregi — í í Björgvin í vor. Íþróttasíða: Sagt er frá heimsmethafanum í há- stökki, Brumel, og viðtöl eru við fyrirliða FH og Fram í handknattleik, en þessi lið keppa til úrslita í 1. deild í dag. Utan úr heimi — síða. Skákþáttur. — hom. — Fréttir. haldssaga og fleira efni. mjmda- Föndur- — Fram- sitthvað ■ ★ Loks er að geta þess að birtar verða myndir af frambjóðendum Alþýðu- j bandalagsins í Reykjavik ! við alþingiskosningamar • í sumar. ! «■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■«■■•■■■■■■ □ Þrír þingmenn Alþýðubandalagsins, þeir Eðvarð Sigurðsson, Einar Olgeirsson og Geir Gunnarsson, hafa lagt fram frumvarp sem miðar að því að tryggja þeim verkamönnum og öðrum félagsmönnum verkalýðsfélaganna, sem ekki hafa rétt til iána úr lífeyrissjóðum aðgang að lánum til íbúðabygginga úr atvinnuleysistryggingasjóði. Eðvarð Sigurðsson flutti fram- söguræðu sína um málið á þing- fundi seint í gærkvöld og verður sagt frá henni í blaðinu síðar, en lagafrumvarpið er í þrem greinum og er efni þeirra sem hér segir: 1. gr. — Þeir félagsmenn verkalýðsfélaga, sem eigi hafa rétt til lána úr lífeyrissjóðnum, skulu eiga rétt á að fá að láni úr atvinnuleysistryggingasjóði af sérreikningi verkalýðsfélags síns í sjóðnum 125 þús. kr. Skulu þeir og hafa þennan rétt, þótt þeir fái lán frá húsnæðis- málastjórn og aukalán þau, sem úthlutað er til efnalítilla með- lima verkalýðsfélaga samkv. lög- um nr. 97 22. des 1965, sbr. lög nr. 19 10. maí 1965, um Hús- næðismálastofnun ríkisins, 7. gr. B-Iið. Stjórn viðkomandi verkalýðs- félags úthlutar Iánunum, en stjórn atvinnuleysistrygginga- sjóðs ávísar þeim síðan til hús- næðismálastjórnar, er sér um af- greiðslu þeirra og síðar um inn- heimtu. Lán þessi skulu vera til 33 ára og greiðast með jöfnum afborg- unum á 30 árum, en vera af- borgunarlaus fyrstu þrjú árin. Vextir skulu vera 4%. Tryggja skal greiðslu lánanna með 1. eða 2. veðrétti í viðkomandi íbúð. 2. gr. — Stjórn verkalýðsfélags má og veita jafnhátt lán og það, sem um ræðir í 1. gr., úr sérreikningi verkalýðsfélags í Árshútíð Sósíalistafélags Reykjavíkur verður í kvöld Ár&hátíð Sósíalistafélag Reykja- víkur veröur haldin í Tjamar- búð í kvöld, laugardag, og hefet hún með borðhaWi klukkan sjö. DAGSKRA: L Avarp: Páll Bergþórsson, formaður félagsins. 2. Einleikur á fiðlu: Jakob Hallgrímsson. Undirleik annast Jónas Ingimundarson. 3- Sverrir Kristjánsson, Ies upp. 4. DANS. Aðgöngumiðar fást á skrifstofu Sósialistafélagsins í Tjamsrg. 20. Skemmitnefndin. atvinnuleysistryggingasjóði, og með þeim kjörum og kvöðum, sem þar er fyrir mælt, til fé- lagsmanna verkalýðsfélaga, sem ekki eiga rétt á láni úr Iífeyris- sjóði, til endurbygginga á íbúð eða kaupa á eldri íbúð, enaa fullnægi slík íbúð kröfum heil- brigðisyfirvalda og byggingar- samþykkta. 3. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi. Skal úthlutað sam- kvæmt þeim í fyrsta sinn á ár- inu 1967 til viðbótar þeim lán- um, er húsnæðismálastjórn þá veitir, eða út á þær umsóknir, sem húsnæðismálastjórn hefur tekið gildar til lánveitinga á því ári, en eigi getað sinnt að sinni vegna lánsf járskorts. f greinargerð segja flutnings- menn: — Frumvarp þetta er flutt til þess að tryggja þeím verkamönnum og öðrum með- limum verkalýðsfélaga, sem eigi hafa rétt til lána úr lífeyris- sjóðum, rétt til aukalána í íbúð- arhúsabyggingar. Er hugmynd- in sú að tryggja með þessu móti, að atvinnuleysistryggingasjóður, Framhald á 3. síðu. Líðan Adenauers svipuð og í gær BONN 14/4 — Líðan Adenauers, fyrrum forsætisráðherra Vestur- Þýzkalands, sem nú liggur alv- arlega sjúkur á heimili sínu í Rhoendorf, var að mestu ó- breytt í dag, hálfum sólar- hring eftir að tilkynnt var að líf hans væri í hættu. Sonur Adenauers, Georg, sagði í dag, að faðir sinn væri enn þungt haldinn, en hann hefði átt góða nótt og sofið vel. Þing var rofið í Grikklandi AÞENU 14/4 — Panojotis Kan- ellopoulos, forsætisráðh. Grikk- lands, rauf í dag þing rétt áður en greiða átti atkvæði um van- trauststillögu á stjóm hans, sem aðeins hefur setið í ellefu daga. Kanellopoulos naut fylgis að- eins 101 þingmanns af 300 og vissi að stjórnin mundi falla við atkvæðagreiðsluna. — Stjórnar- kreppur hafa verið mjög tíðar í Grikklandi á síðustu árum. Sverrir Kristjánsson Norskir sérfræðingar staðfesta að háski sé af olíustöðinni Mótmæli íbúanna á Hvaleyrarholti gegn benzíntönkunum báru árangur □ Brunavarnareftirlit ríkisins hefur nú lagt bann við því að Olíustöðin í Hafnarfirði fái að reisa fleiri benzíntanka í birgðastöð sinni á Hvaleyrar- holti, en framkvæmdir voru þegar hafnar þar á staðnum að fengnu leyfi bæjaryfirvalda í Hafnar- firði. Bannið fræðinga. er byggt á umsögn norskra sér- Eítiis og áður hefur verið sagt frá í Þjóðviljanum sendu íbúar á HvialeynaPholtí í Hafnarfirði nýlega áskorun til bæjarstjómar Hafnarfjarðar um að Olíufélag- inu h.f. verði synjað um leyfi til að reisa fleiri benzíngeyma í birgðastöð sinni, á Hvaleyrar- holtí. Bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar sinntu í éngu þessari áskomn sem var undirritað atf nær öll- um fbúum á Hvaleyrarholti, og leyfði fyrir sitt leyti að þama í hyggðinni miðri fengi Olíufélag- ið að reisa tvo stóra benzín- tanka tfl viðbótar sex sem fyrir væru. Nú hefur það hins vegar gerzt a>ð BrunavaTnareftirlit rikisins hefur bannað að þessir tankar verði reistir. Að því er Bárður Daníelsson, forstöðumaður bruna- vamaeftirlitsins sagði Þjóðviljan- um í gær var leitað eftir umsögn norskrá sérfræðinga um þetta mál. Var úrskurður þeirra sá að bcnzínstöð af þessari stærð mundi hvergi vera leyfð svo nálægt byggð, og á þessari niðurstöðu hinna norsku sér- fræðinga er synjunin byggð. Með þessum úrskurði hinna norsku sérfræðinga og neitun brunavai-naeftirlitsins um að leyfa stækkun stöðvarinnar hafa íbúamir á Hvaleyrariholti unnið sigur f baráttu sinni gegn bæjar- yfirvöldunum í Hafnarfirði í þessti máli, en þau höfðu fyrir sitt lejnti leyft stsdckun stöðvar- innar, eins og áður segir. Er ekki að efa að einungis fyrir órofa samstöðu íbúanna í þessu framhjá því sem þar kom fram. Hins vegar gerðu bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- flokksins sér sérstakt far um að reyna að hæða Gisla fyrir for- göngu hans í þessu máli, er mót- mælin voru lögð þar fram. Eins og rakið hefur verið í Þjóðviljanum áður fékk Oliustöð- in h-f. á sinum tíma að reisa birgðastöð á Hvaleyrarholtí. Var þá lítil sem engin byggð þar í holtinu, en samt sem áður var mikil andstaða gegn því að reist- ir yrðu benzíngeymar svo nærri bænum, og sériræðingar um brunamál töldu það mjög var- hugavert. Nú er hins vegar ris- in byggð allt í kringum stöðina, þar sem eru sex stórir benzín- tankar t>g að miklum hluta geymt þar flugvélabenzfn. Br þvi naumast umdeilanlegt lengur að af olíustöðdnni stafar stórkostleg hætta fyrir fbúana þarna, og sýnist þeim ekki þurfa erlenda sérfræðinga til að sjá þá augljósu staðreynd að þama get- Framhald á 3. síðu. Stórt olíuskip innan við hafnargarð í Hafnarfirði að lesta benzín á tankana í Olíustöðinni í Hafnar- firði. Það þekkist hvergi f heiminum annars staðar að stór olíuskip hlaðin benzíni leggist að bryggju inni í höfmim. — Þetta er einn háski sem Hafnfirðingum stafar af olíustöðinni. máli hefur sá sigur unnizt. Því að ástæða er til að halda að Olíufélagið hafi áður talið sig vera búið að tryggja það að Ieyfi fcngizt bæði hjá bæjaryfirvöld- um og brunatryggingareftk iiti, þar sem framkvæmdir við stækk- unina voru þegar hafnar. Margir íbúar í grennd við olíu- stöðina hafa beðið Þjóðviljann að koma á framfæri þökkum til Gísla Jónssonar fyrrverandi slökkviliðsstjóra, sem hafði for- göngu urn mótmæli íbúanna þar, og samdi mjög ítarlega greinar- gerð um málið sem fylgdi með ákærunni til bæjarstjórnar. Þar var bent á svo sterk rök fyr- ir þvi að stórkostleg hætta staf- ar af olíustöðirmi, að brunavarn- areftirlitið gat ekki Afengissala jókst um 21,8% á fyrsta fjórðungi þessa árs Þjóðviljanum hefur borizt yf- irlit um áfengissöluna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Heildar- salan á öllu landinu nam kr. 110.760.338,00 en var á sama tímabili í fyrra kr. 95.046.975,00. Áfengissalan hefur því aukizt um 20,7 miljónir króna eða um 21,8% á þessu tímabili. Salan á einstökum útsölustöð- um var sem hér segir: Reykjavík 93.7 milj. kr. (80l4) Akureyri 9>.9 milj. kr. ( 8.0) ísafjörður 3.3 milj. kr. ( 2.8) Siglufjörður 1.9 milj. kr. ( 1.6) Seyðisfjörður 2.1 milj. kr. ( 2.2) Keflavík 2.7 milj. kr. Vestm.eyjar 2.2 milj. kr. Áfengisútsalan í Keflavík var opnuð 24. febrúar sl. og útsalan í Vestmannaeyjum ekki fyrr en 10. marz svo að ljóst er af þess- um tölum að verzlunin hefur ver- ið allfjörug á báðum þessum stöðum þennan fyrsta tíma eft- ir opnunina.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.