Þjóðviljinn - 15.04.1967, Qupperneq 2
2 SfÐA — ÞJÓÐVnJINN — Ijaugardagur 15. apríl 1967.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast 1 niðurrif og brottflutning á Baðhúsi
Reykjavíkur við Kirkjustræti hér í borg.
Útboðsskilmálar eru afhentir í skrifstofu vorri. og
verða tilboðin opnuð þar föstudaginn 21. apríl
kl. 11 f.h.
Húsið verður til sýnis væntanlegum bjóðendum
þriðjudaginn 18. apríl n.k. frá kl. 1—7 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTl 8 - SÍMI 18800
PADlfiÍNE.TrE
henta þar sem erfið skilyrði
eru. — Byggð fyrir fjalllendi
Noregs.
Sérhæfðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
þjónustuna af þe.kkingu.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími 16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
Stofnfundur
Hjarta- og æðaverndarfélags Kópavogs
verður haldinn laugardaginn 15. þ.m. klukkan 14,00
í Félagsheimili Kópavogs.
Á fundinum mætir prófessor Sigurður Samúels-
son og flytur erindi um hjartavemdarmál.
í undirbúningsnefnd eru:
Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri,
Kjartan Jóhannsson, héraðslæknir,
Guðmundur Benediktsson, læknir
Axel Jónsson, alþingismaður,
Þórður Magnússon.
Undirskriftarlistar liggja frammi í Sparisjóði
Kópavogs, Sjúkrasamlagi Kópavogs og Apóteki
Kópavogs.
QRÐSENDMG
frá Kassagerð Reykjavíkur hf.
Fyrirtækið verður lokað vegna sumarleyfa
frá og með 13. júlí til 7. ágúst n.k.
Pantanir, sem eiga að afgreiðast fyrir sum-
arleyfi verða að hafa borizt verksmiðjunni
eigi síðar en 20. maí n.k.
Kassagerð Reykjavíkur
Kleppsvegi 33 — sími 38383.
Bjarni
formaður
Sú tíð er liðin að reynt sé
að heyja kosningabaráttu ís-
lendinga á Volgubökkum, enda
torvelt að tala mikið um rauðu
hættuna á sama tíma og
sendimenn rauðliða eru sér-
stakir heiðursgestir stjórnar-
valdanna, bornir á höndum
og ávarpaðir í virðulegum
forustugreinum í málgögnum
forsætisráðherra og utanrík-
isráðherra. Því er nú reynt
að flytja sig um set austur
á bakka Gulár, og láta samlita
hættu grúfa sig yfir íslend-
inga; Morgunblaðið segir i
gær að Maó formaður hafi
ráðið úrslitum um framboðs-
lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík.
Málflutningur af slíku tagi
er til marks um þá einkenni-
legu taugaveiklun, í ætt við
geðbilun, sem gagntekur suma
stjómmálarithöfunda þegar
líður að kosningum. Hins veg-
ar er unnt að þenda á nokkr-
ar næsta athyglisverðar hlið-
stæður milli kínverskra at-
burða og íslenzkra að undan-
förnu. Maó formaður er mik-
ið fyrir það gefinn að láta
syngja sér lof á almannafæri.
Bjarni formaður er eins gerð-
ur; hann hefur látið Morgun-
blaðið birta eina lofgreinina
af annarri um vitsmuni sína,
þekkingu og ræðusnilld. Maó
formaður á erfitt með að þola
hið næsta sér nokkra sjálf-
stæða leiðtoga og hefur að
undanförnu unnið að því að
stjaka þeim út í yztu myrk-
ur. Bjami formaður telur það
sjálfgefið að allir umhverfis
hann segi já og amen við
hverri speki leiðtogans, og
honum tókst að senda í útlegð
til Kaupmannahafnar helzta
keppinaut sinn innan flokks-
ins. Maó formaður vill ráða
því hver sé forseti Kína.
Bjami formaður vill ráða þvi
hver sé forseti íslands. Maó
formaður hefur látið birta
greinar um það í Kína hvað
hann sé snjall sundmaður.
Bjami formaður hefur látið
birta frásagnir af því á ís-
landi hvað hann sé mikill
göngugarpur. Maó formaður
hefur látið gefa út ræður
og greinar í sérstakri bók sem
öllum flokksbræðrum hans er
skylt að kaupa. Bjami for-
maður lét Almenna bókafélag-
ið gefa út ræður sínar og
greinar í bók sem allir Sjálf-
stæðisflokksmenn voru neydd-
ir til að kaupa. En auðvitað
eru þessar hliðstæður og aðr-
ar ekki til marks um neitt
annarlegt samband formann-
anna, heldur aðeins sönnun
þess að hjörtum mannanna
svipar víðar saman en í Súd-
an og Grímsnesinu.
Mæli-
kvarðinn
Ekkert er eðlilegra í lýð-
ræðislegum samtökum en á-
greiningur um menn til trún-
aðarstarfa; samtök þar sem
slíkur ágreiningur lætur ekki á
sér kræla eru annarleg —
Frjáls þjóð myndi trúlega
kalla þau „stalinistísk". Á-
greiningur af þessu tagi hefur
oft verið innan Alþýðubanda-
lagsins, m.a. fyrir alþingis-
kosningamar 1963. Þá var
skipan 4ða sætisins mönnum
slíkur ásteytingarsteinn að hún
fékkst ekki samþykkt á fjöl-
mennum fundi í Sósíalistafé-
lagi Reykjavíkur, þótt samn-
ingamönnum væri eftirlátið
að ganga frá listanum, en þá
voru ekki til nein lýðræðisleg
heildarsamtök til þess að taka
ákvarðanir um þvílíkan á-
greining. En hvað gerðist síð-
an? Lýsti einhver forustu-
maður Sósialistaflokksins yfir
því að hann óttaðist að sam-
starfsmennirnir hefðu gengið
af Alþýðubandalaginu dauðu?
Því fór mjög fjarri; vþeir
beittu sér allir af alefli fyrir
gengi listans. Hélt Sósíalista-
félag Reykjavíkur áfram
þykkju sinni eftir að ákvörð-
un hafði verið tekin? Síður en
svo; viðbrögð félagsins vom
þau að boða almennan fund í
Austurbæjarbíói þar sem
menn voru hvattir til ötullar
baráttu fyrir gengi listans í
kosningunum. Boðuðu ein-
hverjir þeir sem töldu á „sinn
hlut“ gengið sérstakan fund
út af þessum ágreiningi til
þess að ræða „um sameiginleg
viðbrögð . . . við síðustu við-
brögðum"? Engan veginn.
Það sem sker úr um gengi
eðlilegra stjórnmálasamtaka
er trúnaður við málefni og
hugsjónir. Líti menn tilgang
og málstað slíkra samtaka
stómm augum hljóta ágrein-
ingsmál um fyrirkomulagsat-
riði aevinlega að þoka um set
hversu heitt sem kann að
hafa verið í kringum þau. Og
raunar eru viðbrögð einstak-
linga við slíkum atburðum
býsna lærdómsríkur mæli-
kvarði á almenn viðhorf
þeirra. — Austri.
Cabinet
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT SÍÐAR
SÍÐAR V/
oo
pANMORK OG
ÍA-ÞÝZKALAND^%
Eystrasaltsvikan
i
I
5.-26. júlí. 1967. Verð kr. 13.500,60.
Fararstjóri: Magnús Magnússon, kennari.
Ferðaáætlun: 5. júlí. Flogið til Kaupmannahafnar
og dvalið þar til 8. júlí. Farið með lest til Wame-
munde og dvalið á Eystrasaltsviku til 17. júlí.
Lagt af stað í 9 daga ferð til Berlínar. Magdeburg.
Erfurt, Leipzig. Dresden og Wittenberg og farið 25.
júlí með næturlest til Kaupmannahafnar og flogið
26. júli til Reykjavíkur.
Innifalið fullt fæði nema morgunmatur i Kaup-
mannahöfn. flugfar. járnbrautir og langferðabílar.
leiðsögumaður, hótel. aðgangur að söfnum, dans-
leikjum o.fl. Baðströnd á Eystrasaltsvikunni. Ein
ódýrasta ferð sumarsins. Þátttaka takmörkuð og
þegar búið að panta í ferðina. Hafið samband við
skrifstofuna sem fyrst
L/\N □ S 9 N T
FERÐASKRIFSTOFA
Laugavegi 54.
SÍMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK
Toyota Corona Statíon
Toyota Crown Station
Traustur og ódýr.
TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7. — Sími 34470.
TOYOTASÝNINe
í Háskólabíói í dag eftir hádegi.
Japanska bifreiðasalan hf.
Bifreiðaeigendur
Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar s'jálfir. Við
sköpum aðstöðuna. Þvoum og bónum ef óskað er.
Meðalbraut 18, Kópavogi.
Sími 4-19-24.