Þjóðviljinn - 15.04.1967, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 15.04.1967, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVHJXNN — kaugardagur 15. aprfl 1961. Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýdu — Sósfalistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Siguröur Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Augíýsingastj.: Siguröur T. Sigurðsson. Framkvstj-: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólaivörðust 19. Sími 17500 (5 linur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 7.00- Dýríin, dýrðin J^ðlilegar stjórnmálaumræður eru í því fólgnar að vandamálin séu lögð fyrir almenning á raun- sæjan og heiðarlegan hátt, greint í senn frá því sem vel sé ástatt um og hinu sem miður fari, lögð fram úrræði og skírskotað til dómgreindar al- mennings. Þannig ber stjórnarvöldum að hegða sér þegar þau ganga til þeirrar úttektar á þjóðar- búinu sem felst í almennum kosningum. En mál- íflutningur viðreisnarmanna í útvarpsumræðunum var sannarlega ekki af þessu tagi. Ræður þeirra allra áttu einn samnefnara: á íslandi eru ekki nein vandamál, allt hefur verið leyst á þann bezta hátt sem hugsanlegur er, viðreisnarstjómin er eins og guð almáttugur þegar hann leit yfir sköpunarverk sitt og sá að það var harla gott. Hverskonar gagn- rýni var hafnað á skilyrðislausan hátt, og þegar orð voru ekki talin hrökkva til tók Jóhann Hafstein að berja húsgögn alþingis til þess að sýna þykkju sína í garð þeirra vanþakklátu manna sem neituðu að dásama hina skuggalausu glansmynd. J>að skal dregið í efa að jafn bamalegur málflutn- ingur tíðkist annarsstaðar á byggðu bóli.um þessar mundir, og það er til marks um pólitíska dóongreind almennings hvor't þvílíkur boðskapur er tekinn gildur. Öll þjóðin veit að vandamálin eru mikil og stórfelld, þeir sem stutt hafa stjóm- arflokkana ekki síður en aðrir. Meginhluti fram- leiðsluatvinnuveganna er á opinberu framfæri; uppbætur, niðurgreiðslur og styrkir jafngilda hátt í tveimur miljörðum króna á ári; tvöfalt eða þre- falt örari verðbólga en í nágrannalöndunum hefur enn á ný grafið undan verðgildi og gengi íslenzku krónunnar; atvinnuöryggið hefur verið mjög valt að undanförnu; íslendingar eru eftirbátar ann- arra í að tryggja eðlilegt samhengi milli þjóðar- tekna annarsvegar og vinnutíma og kaupgjalds hins vegar; lausung og spákaupmennska eru al- varlegar og vaxandi þjóðfélagsmeinsemdir. Allt eru þetta staðreyndir sem hver maður hlýtur að við- urkenna, hverjar svo sem stjórnmálaskoðanir hans eru og hvaða úrræði sem hann kann að aðhyllast. En hvað á að segja um forustumenn sem neita að viðurkenna staðreyndir? Eru þeir menn líklegir til að leysa vandamál sem engin vandamál þykj- ast sjá? Eða er aðferð þeirra ef til vill sú að reyna enn að blekkja kjósendur með marklausu skrumi til að afhenda þeim völd, en hagnýta síðan völd- in eftir kosningar til þess að framkvæma úrræði sem ekki er talið þorandi að kynna nú? jgú var tíð að æði margir íslenzkir kjósendur fylgdu leiðtogum sínum í blindni og litu aðeins á stjórnmálaumræður sem skemmtiatriði, eins- konar íþróttamót. En þessi tími er liðinn. Æ fleiri kjósendur eru að efla með sér sjálfstæða dóm- greind; þeir vilja fá að kynnast vandamálunum, rökræða um lausn þeirra og móta síðan niðurstöð- ur sínar. Þeir pólitíkusar sem halda áfram að syngja dýrðin, dýrðin, án þess að eiga hinn hreina tón lóunnar, munu fá að kynnast því að æ færri nenna að hlusta á þá. — m. Brýr á Eldvatn hjá Ásum, Jök- ulsá á Sólheimasandi og víðar Eins og getið hefur verið í ið venulegur farartálmi um hjá Ásum árið 1965. Var sii Við könnun á þykkt hraum fróttnm licfcmr mi fvrir ÁIViineH 1.onX ca -i i n x •« Eins og getið hefur verið i fréttum, liggur nú fyrir Alþingi tillaga ríkisstjómarinnar til þingsályktunar um endurskoð- un vegaáætlunar fyrir árin 1967 og 1968. í þessari áætlun er gert ráð fyrir smíði nokkurra stórbrúa, sem ekki hafa verið áður á áætluninni og er gerð svofelld grein fyrir þörf þessara fram- kvæmda í greinargerðinni sem tillögunni fylgir. Gljúfurholtsá og Bakka- holtsá í ölfusi Endurbygging þessara brúa var ekki áður í vegaáætlun, en talið er óhjákvæmilegt að end- urbyggja þær í ár vegna flutn- inga á þungum vélahlutum að Búrfellsvirkjun, en brýr þessar eru 41 árs gamlar og hafa ver- ið venulegur farartálmi um langt skeið. Verða brýr þessar byggðar með tveim akreinum og munu falla inn £ framtíðarvegalínu milli Hveragerðis og Selfoss. Er áætlað að byggja báðar brýmar í ár, en að Lands- virkjun muni aðstoða við greiðslu á helmingi kostnaðar til næsta árs. Um brýr nr. 10—23 er að- eins um endurskoðun á áætlun- um að ræða vegna breytts verð- lags. Það á þó ekki við um brú á Húseyjarkvísl á sýsluvegi i Skagafirði. Engin áætlun lá fyrir um þá brú, þegar vegaá- ætlun var samin og því aðeins um byrjunarfjárveitingu að ræða. Brú á Eldvatnið hjá Ásum. Ný brú var byggð, á Eldvatn hjá Ásum árið 1965. Var sú brú 54 metra löng og kom i stað 24 m langrar jámbitabrú- ar með timburgólfi, sem byggð var árið 1910. Þessi nýja brú var byggð við hhðina á gömlj brúnni sem var svo rifin. Þessi nýja brú átti einnig að leysa af hólmi jámgrindabrú frá 1930 hjá Stóra-Hvammi og veg- inum austur í Eldhraun breytt í samræmi við það. 1 hlaupi sem kom í Skaptá x lok nóvember 1966, sópaðist burtu klettur í miðri ánni, sem gamla brúin hafði staðið á og einn af millistöplum nýju brú- arinnar einnig. Við þetta seig brúin mikið og varð ófær til umferðar. 1 flóðinu lækkaði far- vegur árinnar um 5 metra og foss, sem verið hafði nokkuð neðan við brúnna, færðist upp fyrir hana. -------------------------------- Rætt við Jakob Hallgrímsson Að æfa skalann í öllum tóntegundum Á árshátið Sósíalistafélags Reykjavíkur sem verður hald- in í Tjarnarbúð í kvöld er m. a. á dagskrá einleikur Jakobs Hallgrímssonar á fiðlu við und- irleik Jónasar Ingimundarson- ar, nemanda í Tónlistarskólan- um. Þjóðviljinn ræddi stuttlega við Jakob af þessu tilefni. — Á árshátíðinni ætla ég að leika tvö verk eftir gamla meistara í útsetningu Kreislers, sagði Jakob. — Verkin eru Preludium og allegro eftir Pug- Verkfall lyfja- fræðinga áfram Verkfall lyfjafræðinga sem hófst á mánudaginn stendur enn og hefur ekki verið boðað til nýs sáttafundar með deiluaðilum: lyfjafræðingum og apótekurum Þeir héld-u sem kunnugt er fund með Torfa Hjartarsyni, sátta- semjara á sunnudaginn, en án ái-angurs. Blaðiö hafði í gær tal af Axel Sigurðssyni, formanni Lyfjafræð- ingafélags Islands, en ekki vildi hann gefa miklar upplýsingar. Kvað hann enga kvöldvörzlu vera í apótekum og næturvörzl- una að Stórholti 1 vera lokaða. Mun þó vera hægt að fá lyf af- greidd í neyðartilfellum og þá í samráði við lækni. Lausn frá 1. júlí 1 fréttatilkynningu frá ráðu- neytinu um lausn Kristjáns Kristjánssonar, yfirborgarfógeta, frá embætti, féll niður að geta þess, að honum er veitt lausn frá 1. júlí n.k., og gegnir hann því embættinu til þess tíma. (F’rá dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu 13. apríl 1967.) Seðlabankastjóri Dr. Gylfi Þ. Gíslason, við- skiptamálaráðheira, hefur í dag að fengnum_ tillögum bankaráðs Seðlabanka íslands, skipað Davíð Ölafsson, fiskimálastjóra, banka- stjóra Seðlabanka Islands frá 1. ágúst 1967 að telja. (Frá viðskiptamálaráðuneytinu) nani og Variationir yfir tema eftir Corelli, eftir Tartini og Kreisler. Jakob leikur annars með Sinfóníuhljómsveitinni og kenn- ir við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og við Tónlistar- skólann í Hafnarfirði. Hann byrjaði snemma að læra fiðlu- leik og segir hér á eftir frá námi sinu. — Ég mun hafa verið fyrsti nemandi Sigursveins D. Krist- inssonar er ég hóf nám í fiðlu- leik 7 ára gamall. Tólf ára að aldri fór ég í Tónlistarskólann og var kennari minn þar Björn Ólafsson. Ég lauk prófi þaðan fyrir tveimur órum og hélt þá til Moskvu þar sem ég komst að sem gestur við Konservat- oríið eftir að hafa tekið inn- tökupróf. Þetta er afskaplega strangur skóli, ég var þar í tvö ár og fyrra árið fór mest- megnis í að reyna að ná þeirra stíl, rússneska stílnum, sem kenndur er þar í fiðluleik. Ég þurfti að æfa skalann í öllum tóntegundum þennan vetur og fór því eiginlega lítið fyrir músíkinni! Á síðara vetrinum fór að koma í ljós árangurinn af skala- stúdíinu og þá var tekið til að æfa tónverk sem miðuðust við hina og þessa tækni á fiðl- una sem nauðsynlegt var að ná. Þetta var strangt nám, en Rúss- um nýtist miklu betur tíminn en i skólum sem ég þekki til á Vesturlöndum, þeir eru í skóla 10 mánuði ársins, taka aðeins 2 vikur í vetrarfrí og stutt sumarfrí. Við Konseivatoríið höfðum við aðeins 2 tíma fasta í viku, en kennararnir höfðu nægan tíma og ef þeir fundu að það þurfti að aðstoða nem- enduma kenndu þeir lengur, tíminn skipti ekki höfuðmáli. Ég bjó á stúdentagarði, við annan mann í herbergi. Fyrri veturinn var ég í herbergi með arabískum fiðlara, sem æfði sig og hlustaði á Heifetz til skiptis. Seinni veturinn var ég í herbergi með túrkúmensku tónskáldi sem fór alltaf ofan kl. 6 á morgnana og kópíerað Bartók. (Mikrokosmos). *— Svo að við víkjum að öðru, hva: spilaðir þú fyrst opin-1 .Tnlcnh? I JaJkob Hallgrímsson — Þú mátt segja að ég hafi spilað 8 ára á barnaskemmtun í Austurbæjarskólanum, síðan hef ég gutlað hingað og þangað. — Er næg atvinna fyrir tón- listarmenn á íslandi? — Músíkant hér hefur yfir- drifið nóg að gera, ekki sizt ef hann hefur áhuga á fleinx í músík en að vera virtuos, þar eru þrengstu möguleikarnir. — RH Við könnun á þykkt hraun- hellunnar, sem er austan við ána, kom í Ijós, að hún er 15 metra þykk, en undir hennior 7 m þykkt lag af jarðvegi. Hef- ur sá jarðvegur verið fyrir, þeg- ar hraunið rann fram með Skaftártungu 1789. Engin leið var að sjá þetta fyrir, þar sem hvergi í gJjúfrinu var annað að sjá þama en heila klöpp. 1 lok janúar hrundi annar millistöpull brúarinnar. Ráðgert er að endurbyggja brúna á sama stað, en lengja hana um 10 m austur í hraunið, en nota stöpl- ana að vestan. Er kostnaðurvið þetta áætlaður 3 milj. kr. Brú á Jökulsá á Sólheima- sandi. Brúin á Jökulsá á Sólheima- sandi var byggð á árunum 1921 til 1922 og var þá höfð 200 m löng vegna jökulhlaupa, sem komu í ána. Farvegur árinnar er mjög grýttur á brúarstæðum, og þegar brúin var byggð voru engin tök á að grafa djúptfyrir stöplum, þar sem beita varð eingöngu handverkfærum. Að þessum sökum hefur áin grafið undan stöplunum nokkr- um sinnum. Árið 1945 lokaðist brúin á aðra viku af þessum sökvm, og seig þá landstöpuil að austan um 1 metra. Haustið 1965 hrundi vestari landstöpull brúarinnar og var hún þástytt um eitt haf eða 20 metra. í janúar s.l. gróf enn á ný und- an einum millistöpli með þeim afleiðingum að öll umferð teppt-. ist á aðra viku. Þar sem brúin á Jökulsá *»r eina samgönguleiðin fjTir alta hyggðina í Vestur-Skaftafélls- sýslu, þá er óhjákvæmilegt að endurbyggja brúna þegar á þessu ári, því að í nýju flóði gæti hæglega farið svo, að brú- in hryndi alveg, og það gæti tekið marga mánuði að koma upp bráðabirgðabrú. Er nú ráðgert að endurbyggja brúna nokkuð neðan við gömlu brúna, þar sem reka má staura undir stöpla. Er kostnaður við þessa bnxargerð áætlaður um 12 miljónir kr. ÞRJÁR NÝJAR BJCKUR FRÁ HCIMSKRINCLU Jórvík ljóðabók eftir Þorstein írá Hamri. Verð ób. kr. 250,00 — ib. kr. 300,00. Jóhann Kristófer IX — X eftir Romain Rolland. Sigfús Daðason þýddi. — Lokabindi verksins. Verð ób. kr. 330,00 — ib. kr. 420,00 — skinnb. kr. 520,0. Sagan af Serjoza eftir Veru Panovu. Geir Kristjánsson þýddi. Verð ób. kr. 230,00 — ib. kr. 280,00. HEIMSK-RINGLA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.