Þjóðviljinn - 27.04.1967, Page 3
Fknmtuidagur 23. aprfl 1967 — ÞJÓEmUH® — SÍDA J
Ástandið í Grikklandi
Annar geimfari búinn tiJ flugs er slysið varð?
Jarðarför Komaroh gerð í Kóngur lofar þingræði, Pap-
gær- þjóiarsorg í Moskvu andreií sakaður um landráð
MOSKVIJ 26/4 — Jar'ðneskum leifum geimfarans Komarofs
var í dag komið fyrir í Kremlarmúmum við Rauðatorgið
í Moskvu, en þar hafa margir ágætustu menn Sovétríkj-
arrna verið lagðir til hinztu hvíldar. Mikið fjölmenrii var
við útförina og ber fréttamönnum saman um að hún hafi
borið svip einlægrar þjóðarsorgar.
AÞENU 26/4 — Konstaritín Grikkjakonungur tók þátt í
fundi herforingjastjórnarinnar í dag og lét í ljós von um
að komið verði á aftur þingræði í landinu. — Andreas
Papandreú, þekktur foringi frjálslyndra afla í Grikklandi
hefúr verið ákærður um landráð.
Mjög hefur verið deilt um að- | Hann sagði t.d. að Grikkland
ild koriungs að 'valdaráni hersins, hafi orðið fyrir erfiðri reynslu
og ummæli hans á stjómarfundi að undanförnu, grafið hafi ver-
í dag voru mjög þokukennd. ; ið undan lýðræðisstofnunum,
Svetlana Sta/ínsdóttir: faðir
minn bar ekki ábyrgð einn
Krukkan með jarðneskum leif-
um Komarofs var færð frá húsi
Rauða hersins og var líkfylgdin
kilómetri á lengd og tugþús-
undir Moskvubúa fylgdust með
af gangstéttum og svölum húsa.
Á Rauða torginu sjálfu var mik-
i31 mannfjöldi, voru þar m.a.
helztu leiðtogar Sovétríkjanna,
vísindamenn og starfsbræður
Komarofs. Ritari kommúnista-
flokksins, Súslof, flutti ræðu og
sagði m.a. að Komarof vhefði dá-
Framhald af 1. síðu.
vanda SÞ, geri það hið skjótasta.
Ráðherrarnir voru sammála
um, að það væri mjög þýðingar-
mikið, að 18 ríkja nefndin nái
einingu um samning um tak-
mörkun á dreifingu kjarnorku-
vopna, þegar hún hefur störf að
nýju í Genf hinn 9. maí. Þeir
lýstu þeirri von sinni, að sá
samvinnuvilji, sem nauðsynleg-
ur er, yrði sýndur af öllum aðil-
um, þannig að sem flestar þjóð-
ir yrðu aðilar að samningnum.
Slíkur samningur myndi stuðla
að bættum horfum á árangri á
sviði annarra afvopnunarmála.
Undirstrikað var mikilvægi al-
mennrar beitingar öryggisreglna
Alþjóðakj arnorkumáílastofnunaT-
innar í sambandi við eftirlit með
banni gegn útbreiðslu kjarn-
orkúvoþna.
Ráðherramir kynntu sér
skýrslu hinnar norrænu tækni-
og vísindanefndar á sviði jarð-
skjálftafræðilegra athugana og
voru sammála um, að áfram
skyldi haldið starfinu í þá átt
að kanna möguleikana á fram-
lagi. Norðurlanda til lausnar á
eftirlitsvandamálinu. Yrði það
gert í tengslum við ráðgerðan
samning um algert bann við
kjamorkutilraunum, með því að
setja á stofn á Norðurlöndum at-
hugunarstöðvar með neðanjarð-
arhræringum. Með tilliti til þess
var samþykkt að koma á fót
nýrri nefnd, sem í væru embætt-
ismenn og sérfræðingar í tækni
og vísindum, er ganga skal frá
>ameiginlegu'áliti til ríkisstjórna
Norðurlanda um hinar ýmsu hlið-
ar málsins.
Við umræður um ástandið í
Suður-Afríku var einkum fjall-
að um vandamál Suðvestur-
Afríku, en þau eru nú til með-
ferðar á 5. aukaþingi allsherjar-
þings SÞ, og um vandamálið
varðandi Suður-Rhodesíu.
Lögð var áherzla á að mjög
mikilvægt væri að halda í horf-
inu þeirri almennu einingu, sem
fram kom í samþykkt 21. alls-
herjarþings SÞ um Suðvestur-
Afríku málið Ráðherrarnir urðu
sammála um þýðingu þess að
varðveita samheldni Norðurlanda
í málinu og að þau hefðu jafn-
Skyndiverkföl!
Framhald af 12. síðu.
kvæmdar eru erlendis, fara fram
á Norðurlöndum, en þar er kaup
jámiðnaðarmanna hærra en hér.
Samkvæmt upplýsingum frá
danska málmiðnaðarsambandinu,
þá var meðal tímakaup járniðn-
aðarmanna í Danmörku í okió-
ber danskar kr. 13,07 eða ís-
'lenzkar kr. 81,20.
Af framansögðu er augljóst að
kaup íslenzkra járniðnaðar-
manna er ekki orsök þess að
islenzk járniðnaðarfyrirtæki eru
ekki samkeppnisfær við erlend,
éins og forstjórinn heldur fram“.
ið sem „stoltur örn“, þá fluttu
þeir og ræður Keldisj, forseti
Vísindaakademíunnar og fyrsti ■
geimfarinn, Júrí Gagarín.
Kosygín forsætisráðherra, Pod-
gorní forseti og aðrir sovétleið-
togar báru ösku Komarofs hinzta
spölinn en Súslof kom henni
fyrir í Kremlarmúrnum.
Blaðamaður Komsomolskaja
Pravda, sem fylgdist með geim-
ferðinni, skrifar í blað sitt í
dag, að síðast hefði heyrzt til
an samráð sín á milli.
Ráðherrarnir bentu á, að mik-
ill fjöldi rikja, þar með talin
Norðurlöndin öll, hefðu gert
ráðstafanir til að breyta eftir
ákvörðuninni í samþykkt örygg-
isráðsins frá 16. desember 1966
um bindandi éfnahagslegar að-
gerðir gegn Suð^r-Rhodesíu.
Jafnframt lögðu ráðherrarnir á-
herzlu á mikilvægi þess, að öll
ríki beittu að fullu viðskipta-
banninu gagnvart Suður-Rhod-
esíu, sem SÞ samþykktu, og
hörmuðu þann skort á sam-
vinnuvilja, sem viss ríki hefðu
hingað til sýnt í því tilliti.
Varðandi afnám vegabréfsárit-
ana ákváðu ráðherramir að
auka norræna viðleitni til skjótr-
ar lausnar málsins.
Ráðherrarnir ræddu aðild Fær-
eyja að Norðurlandaráði og urðu
sammála um framhaldsmeðferð
þess máls.
Á fundinum var lögð. fram af
íslands hálfu tillaga til lausn-
ar á málinu um lendingarrétt
Loftleiða á Norðurlöndum, og
ráðherrarnir voru sammála um
að leggja þá tillögu fyrir við-
komandi ríkisstjómir til skjótr-
ar meðferðar.
Fundinn sátu: Frá Danmörku
Hans Sölvhöj ráðherra án sér-
stakrar stjórnardeildar; frá Finn-
landi Ahti Karjalainen utanrík-
isráðherra, frá íslandi Emil
Jónsson utanríkisráðherra; frá
Noregi John Ljmg utanríkisráð-
herra og frá Svíþjóð Torsten
Nilsson utanríkisráðherra.
Samkvæmt boði utanríkisráð-
herra Finnlands verður næsti
fundur utanríkisráðherra Norð-
urlanda haldinn í ‘Finnlandi 22.
til 23. ágúst 1967.
Utanríkisráðuneytið,
Rvík, 26. apríl 1967.
> Framboó
Framhald af 1. síðu.
kjörnum í öðru hvoru kjördæm-
inu. En til þess þarf formlega
að stofna flokk. Hefur honum
verið valið heitið Lýðræðisflokk-
urinn, og helzta baráttumálið
verður að fá mildan dómsmála-
ráðherra. — Málgagn hins nýja
flokks verður Nýr Stormur.
í gær bar Þjóðviljinn þessa
frétt um væntanlegt framboð
undir Ólaf Thordersen, og neit-
aði hann því ekki að þetta væri
á döfinni, en varðist allra frétta.
Menn hafa leikið sér að hug-
myndinni, sagði Ólafur, en allt
er óákveðið og í lausp lofti enn-
þá, Væntanlega skýrast línurn-
ar næstu daga. Þegar Ólafur
var spurður að því hver væri
helzta ástæða fyrir því að þetta
framboð kæmi fram, svaraði
hann að það væri fyrst og
fremst óánægja með stjómar-
stefnuna í landinu.
Þess skal að lokum getið að
framboðsfrestur rennur út 1L
maí.
Komarofs er geimfar hans, Soj-
ús 1. var yfir Aíríku þá sagði
hann: „Allt gengur vel, mér líður
vel“. Komarof hafði þá skotið
hemlaeldflaugum og sagði, að
það hefði tekizt með eðlilegum
hætti að draga úr ferð geimfars-
ins, en skömmu síðar hafði slys-
ið ger^t, ekkert heyrðist frá
geimfarinu. Geimferðastöðin i
Bækonúr hafði gefið Komarof
fyrirmæli um að lenda í nítj-
ándu umferð umhverfis hnöttinn,
og allt hafði fram að því gengið
samkvæmt áætlun, segir blaða-
maðurinn. — Ég var á staðnum
og heyrði allt sem fór á milli
Komarofs og stjórnenda geim-
ferðarinnar.
í NTB-frétt segir að í öðrum
blöðum séu frásagnir sem gefi
til kynna að erfiðleikar hafi gert
vart við sig fyrr — þannig hafi
einn af höfundum geimskipsins
svarað hamingjuóskum blaða-
manns með því að það væri enn
of snemmt að óska til hamingju
með vel heppnaða geimferð. Þá
gengur sá orðrómur í Moskvu,
að geimfarinn Bykovskí, sem tók
þátt í geimferð 1963, hafi verið
reiðubúinn að leggja af stað í
öðru geimfari þegar Sojús 1.
hrapaði til jarðar, en getum
hafði verið að þvi leitt, að Sov-
étmenn ætluðu að gera tilraun
með nokkur geimför samtímis.
NEW YORK 26/4 — Dóttir Stal-
íns, Svetlana, sagði á blaða-
mannafundi í dag, að faðir henn-
ar væri ekki einn ábyrgur á
þeim „skelfingum“ sem gengu yf-
ir Sovétríkin í stjórnartíð hans.
Svetlana sagði á þessum fyrsta
blaðamannafundi sínum, að hún
væri andvíg mörgu sem þá gerð-
ist. Hún sagði að margir með-
limir miðstjórnar flokksins bæru
sinn hluta ábyrgðar á þeim
skelfingum sem þá gengu yfir.
Svetlana kvaðst ekki ætla að
gefa sig neitt að stjórnmálum í
Bandaríkjunum, væri eina ósk
sín að geta haldið áfram rit-
störfum. Hún vinnur nú að því
að þýða endurminningar sínar,
og sagði að í þeim mætti fá
skýringu á mörgu því sem hún
gæti ekki svarað á fáum mínút-
um. Spumingu um ástæður .fyr-
ir því að hún fór frá Sovétríkj-
unum svaraði Svetlana með því,
að á síðustu 15 árum hefði fólk
í ættlandi sínu orðið gagnrýnna
en fyrr, þar eð það hefði fengið
meiri möguleika á að ræða og
dæma um atburði og fyrirbæri.
Um guðstrú sína sagði hún:
— Guð er lífskraftur og réttlæti,
mennirnir ættu ekki að deila,
held’sr starfa í þágu hins góða
— þ»ð er þetta sem ég á við
þegar ég nefni guð.
þjóðin, konungdæmið, herinn,
réttvisin hefdu orðið fyrir árás-
um og virðist þessum orðum beint
gegn vinstri öflunum í landrón
Við þetta bætti konungur, að
hann væri viss um að með hjálp
þjóðarinnar og stjómarinniar
mætti koma á „réttlátu og heil-
brigðu“ lýðræði í náinni fram-
tíð og þingræði tekið upp sem
fyrst.
«
Andreas
Andreas Papandreú var hand-
tekinn eftir valdarán hersins í
fyrri vifcu. Hann er sonur Ge-
orgs Papandreú, foringja hins
öfluga Miðbandalags, og svarinn
andstæðingur Konstantíns kon-
ungs og íhaldsaflanna. Papan-
dreú var í nóvember sl. ákærð-
ur fyrir aðild að Aspida, leyni-
samtökum vinstrimanna í hem-
um, en nokkrir liðsforingjar hafa
verið dæmdir í allt að átján ára
fangelsi fyrir aðild að þeim.
Ekki er víst að mál Andreasar
komi fyrir dómstól fyrr en um
næstu helgi.
Um hádegið í gær var lögregl-
an kölluð að Grundarstíg 15b.
Þar hafði ölvaður utanbæjarmað-
ur dottið á húströppum. Hann
var fluttur á Slysavarðstofuna
en ekki er kunnugt um hve alv-
arleg meiðslin voru.
„ Hver stund með Camel
. léttir lund!“
Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar
af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði.
BEZTA TÓBAKIÐ GEF'JR BEZTA REYKINN
Ein mest selda sígarettan í heiminum.
MADE iU USS..
Utanríkisráðherrafundur