Þjóðviljinn - 27.04.1967, Page 12
Greinargerð frá AAálm- og skipasmiðasambandi íslands:
i
Rangfærslur forstjóra Landssmiðjunnar
am kaup járniBnaðarmanna hraktar
□ í gær barst Þjóðviljan-
um eftirfarandi greinargerð
frá Málm- og skipasmiðasam-
bandi íslands þar sem leið-
réttar eru rangfærslur varð-
andi samanburð á kaupi ís-
lenzkra og erlendra jámiðn-
aðarmanna, sem forstjóri
Landssmiðjunnar fór með í
blaðaviðtölum við Þjóðvilj-
ann og Morgunblaðið. Var
þegar á það bent af hálfu
Þjóðviljans í viðtalinu að
upplýsingar forstjórans um
kaup vesturþýzk'ra jámiðn-
aðarmanna gætu ekki stað-
izt, en engu að síður lét
hann, Morgunblaðið hafa eft-
ir sér sömu tölur athuga-
semdalaust daginn eftir.
„Vegna' blaðaviðtala við hr.
Gunnlaug Hjörleifsson, forstjóra
—"í---------------------
Alþýðubandalags-
fólk í Hafnarfirði
Rabbfundur verður í Góð-
templarahúsinu (uppi) í kvöld
kl. 20.30. — Fjölmennið.
STJÓRNIN.
Askenazi kemur
um
Askenazi
Aðfaranótt laugardagsins kem-
ur sovézki píanóleikarinn Asken-
azi til Reykjavikur frá Mexíkó.
Kemur hann hingað á vegum
Péturs Péturssonar og mun halda
eina tónleika í Þjóðleikhúsinu —
og hefjast þeir klukkan 8.30 á
þriðjudagskvöldið.
Undanfarið héfur Askenazi
verið í hljómleikaferð um Banda-
ríkin og birtust ummseli nokk-
urra gagnrýnenda þar vestra um
píanóleik hans í Þjóðviljanum
fyrir skömmu.
Á tónleikunum á þriðjudaginn
leikur Askenazi sónötu í B-dúr
K-576 eftir Mozart, sónötu eftir
Prokofieff op. 84 og 4 scherzi eft-
ir Chopin. Uppselt er á tónleik-
ana.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorrgeir Steingrímsson.
a b c d e t g n
Landssmiðjunnar og formann
Meistarafél. járniðnaðarmanna,
sem birtust í Þjóðviljanum og
Morgunblaðinu varðandi saman-
burð á kaupi íslenzkra og er-
lendra jámiðnaðarmanna vill
Málm- og skipasmiðasamband ís-
lands upplýsa eftirfarandi:
Samningsbundið kaup ís-
lenzkra jámiðnaðarmanna er nú
lægst kr. 2.410,00 á viku eða
kr. 54,76 á klst. og hæst kr.
2792,00 á viku eða kr. 63,48
á klst. Það er því ekki rétt sem
forstjóri Landssmiðjunnar segir
í nefndum viðtölum að kaup ís-
lenzkra járniðnaðarmanna sé
tæpar kr. 70,00 á klst.
Samkvæmt upplýsingum, sem
M.S.Í fékk frá höfuðstöðyum
vestur-þýzka málmiðnaðarsam-
bandsins í Frankfurt í dag (26/4)
var meðalkaup starfsmanna í
vestur-þýzkum skipasmíðastöðv-
um í október s.l. 4,70 v-þýzk
mörk á klst. eða ísl. kr. 50,76,
en ekki 4,00 mörk eins og for-
stjórinn lét hafa eftir sér: Þessi
mismunur á kaupi islenzkra og
vestur-þýzkra jámiðnaðarmanna
(fagmanna) er þó mun minni,
þar sem í meðalkaupinu 4,70 v-
þýzk mörk er tekið með kaup
ófaglærðra manna og lærlinga
í vestur-þýzkum skipasmíða-
stöðvum.
Af þessu má sjá að kaup ís-
lenzkra járniðnaðarmanna getur
ekki verið ástæðan fyrir þeim
mismuri, sem var á tilboðum ís-
lenzkra jámiðnaðarfjfrirtækja
og þess tilboðs, sem vestur-þýzka
fyrirtækið gerði í viðgerð á
Bjarma II.
Þá má og bæta því við að
megnið af þeim viðgerðum á ís-
lenzkum skipúm, sem fram-
Framhald á 3. síðu.
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
Sl. Dg4 •
Nato bannar landsleikinn gegn A-Þýzkalandi
Form. KSÍ segir keppni við
A-Þjóðverja vera hneyksli
□ „Tugþrautarkeppni íslendinga og Austur-Þjóð-
ver'ja sem fram fór á Laugardalsvellinum í fyrrasum-
ar, var hneyksli og vandræðamál, og þeir sem báru á
því ábyrgð fengu vítur fyrir“. — Þetta voru ummæli
Björgvins Schram, formanns Knattspymusambands ís-
lands, á fundi með blaðamönnum í gær.
Eins og áður hefur verið
sagt frá í Þjóðviljanum
verður ekkert af fyrirhuguð-
um landsleik fslendinga og
Austur-Þjóðverja í knatt-
spymu, sem fram átti að fara
hér í Reykjavík í sumar. Á-
stæðá fyrir þessu er fyrst og
fremst undirlægjuháttur is-
lenzkra stjórnarvaída gagn-
vart NATO, sem hefur skip-
að svo fyrir að aðildarríki
bandalagsins megi ekki leyfa
-Austur-Þj óðverjum að koma
inn í landið nema til komi
sérstök áritun frá yfirvöldun-
um í Vestur-Berlín. Einnig
bannar NATO að þjóðsöngur
Austúr-Þjóðverja sé leikinn
eða fáni þeirra dreginn að
hún. Að sjálfsögðu hafa Aust-
ur-Þjóðverjar ekki gengizt
undir að hlíta þessum afar-
kostum, og hlýðni íslenzkra
stjómarvalda gagnvart þess-
um fyrirskipunum frá hern-
aðarbandalaginu NATO jafn-
gildir neituri á öllum sam-
skiptum við Austur-Þj óðverj a,
en áður hafði komizt á mjög
ánægjulegt samstarf við þá
i íþróttum sérstaklega.
Mál þetta bar á góma á
fundi sem stjórn Knatt-
spyrnusambands íslands boð-
aði með blaðamönnum í gær
til að skýra frá fyrirhugúð-
um landsleikjum í sumar.
Björgvin Schram, form. KSÍ,
skýrði frá því að ekkert yrði
úr því að þessi landsleikur
færi fram vegna óvæntrar
kröfu Austur-Þjóðverja um að
fá að koma hingað til lands-
ins án þess að þurfa að hlíta
þessum skilyrðum NATO.
Blaðamaður Þjóðviljans
spurði Björgvin hvort þeir
forráðamenn KSÍ, sem staðið
hefðu í samningum við Aust-
ur-Þjóðverja um landsleik-
inn, hefðu- ekki strax gert sér
grein fyrir afstöðu þeirra í
þessu máli, að ekki yrði af
þessari heimsókn ef þeir
fengju ekki að koma hingað
eins og hver önnur fullvalda
þjóð. Einnig var minnt á að
Frjálsíþróttasamband íslands
hefði ekki anzað þessum ó-
svífnu og niðurlægjandi fyr-
irskipunum hernaðarbanda-
lagsins NATO í fyrrasumar,
er austur-þýzku tugþrautar-
mennimir komu hingað til
keppni, og þjóðsöngur þeirra
var leikinn og fáni þeirra
blakti við hún á Laugardals-
vellinum
Björgvin Schram svaraði þá,
að sú heimsókn hefði ver-
ið hneyksli og vandræðamál
og þeir sem á því bæru á-
byrgð hefðu hlotið vítur. Einn
stjómarmanna í FRÍ sem
þama var viðstaddur mót-
mælti þessum ummælum for-
manns KSÍ og sagði FRÍ eng-
ar vítur hafa fengið. Baðst
þá Björgvin eindregið undan
því að mál þetta yrði frekar
rætt á fundinum.
Stjórn KSÍ er að vísu
nokkur vorkuun í þessu máli
vegna undirlægjuháttar ís-
lenzkra stjórnarvalda gagn-
vart hernaðarbandalaginu
NATO, en þó hefði hún get-
að sýnt meiri reisn í þessu
máli eins og FRÍ gerði í
fyrrasumar, og það er Iág-
markskrafa að stjórn KSÍ geri
nánari grein fyrir þessu máli
opinberlega.
Nýtt kvennablað að
hefja göngu sína
Nýtt íslenzkt kvennablað,
HRUND, kemur út í dag, stórt
og vandað að öllum frágangi.
Ctgefandi er Handbækur h.f.,
framkvæmdastjóri Einar Sveins-
son, en ritstjóri Margrét Bjama-
son blaðamaður á Morgunblað-
inu. Er ætlunin að blaðið komi
út mánaðarlega í stóm upplagi.
Þetta fyrsta tölublað Hrundar
er óvenju glæsilegt útlits miðað
við íslenzk blöð almennt, enda
notaðar við gerð þess nýstárleg-
ar vinnuaðferðir í prentun: það
er filmusett og offsetprentað, en
sú aðferð gefur rnikla möguleika
hvað snertir uppsetningu og út-
lit. Það er Lithopren'; h.f. sem
prentar blaðið úg er þetta fyrsta
íslenzka blaðið sem þannig er
unnið.
Efni blaðsins er ekki óáþekkt
því sem gerist í er’endum
kvennablöðum, en þó að sjálf-
sögðu sniðið við íslenzkar að-
stæður og skiptist á íslenzkt efni
og erlent og myndir eru margar
og vel prentaðar, m.a. 6 mynda-
síður frá Pressuballinu 1967- Af
efni má annars nefna viðtal við
Kristínu Bjömsdóttur sem var í
fangabúðum fasista á Italíu á
stríðsárunum, greinar um Viktor- j
íu Englandsdrottningu, Rodolf
Nureyev og Francoise Hardy,
smásögur, stjömuspá, tízkumynd-
ir og fleira.
Auk ritstjóra munu skrifa
reglulega í blaðið Vigdís Jóns-
dóttir skólastjóri, sem sér um
fræðsluþátt um heimilishald og
Bára Magnúsdóttir sem skrifar
um líkamsrækt. Tvær aðrar kon-
ur hafa unnið við fyrsta blað-
ið: Silja Aðalsteinsdóttir og Ás-
laug Ragnars bg útliti blaðsins
hefur Peter Behrens hjá Aug-
lýsingaþjónustun ni róðið.
Fimmtudagur 27. apríl 1967 — 32. árgangur — 94. tölúblað.
Þakplötur fuku af
skála vð Búrfell
Um helgina vildi það til að
þak fauk af skrifstofubyggingu
Landsvirkjunar við Búrfell. Þjóð-
viljinn náði tali af Jóhanni Má
Maríussyni, en hann er einn af
eftirlitsmönnununi hjá Lands-
virkjun.
Jóhann sagði svo frá að undir
Sámsstaðamúla væru tvær skrif-
stofubyggingar; Landsvirkjunar
og Fosskraft. 1 rokinu á sunnu-
daginn fauk rúða inn £ fyrr-
nefnda skrifstofuhúsið og þá
myndaðist yfirþrýstingur svo að
þakplötur fuku af húsinu.
Einn maður var inni í húsinu,
sem er ein hæð og ris, þegar
þetta gerðist og leit hann á vind-
mæli sem þar var og sá þar
mældust 13-14 vindstig!
Hér er um sænskt bráðabirgða-
hús að ræða og er nú verið að
gera við þakið af miklum krafti
en eftirlitsmennirnir 12 sem
unnu í húsinu hafa fengið inni
í skrifstofúbyggingu Fosskraft á
meðan'. Maðurinn sem var inni í
húsinu þegar þakplöturnar fuku,
náði strax í fólk sem aðstoðaði
hann við að breiða segl yfir hús-
ið og björguðust þannig verð-
mæt skjöl og ótal margt annað.
— Við sluppum vel, miðað við
aðstæður, sagði Jóhann að end-
ingu.
Landsleikur í Rvík
31 maí við Spán
Forsíðumynd Hrundar er af Kol-
brúnu Einarsdóttur, feguröar-
drottningu 1966, — í kjól frá
Parísartízkunni.
Nýjung í dreifingu í sambandi
við útkomu þessa blaðs hefur
vakið nokkra athygli, en útgef-
endur hafa hringt í rúmlega tíu
þúsund konur í Reykjavík og
víðar og boðið þeim, fyrsta blað-
ið ókeypis til kynningar, en ætl-
unin er svo að hringja aftur í
þessar konur til að fá álit þeirra
á blaðinu, hvað snertir efnisval
og annað, — og væntanlega einn-
ig áskriftir ef þeim hefur líkað
blaðið, því eftir því sem útgef-
andi sagði blaðamönnum í gær,
vei'ður blaðið fyrst og fremst
selt áskrifendum en lítið í lausa-
söbi.
Fyrsti landsleikur íslendinga í
sumar verður gegn Spánverjum
hér á Laugardalsvellinum 31.
maí. Er þetta leikur í undan-
keppni Olympíuleikanna.
Nú hefur rætzt úr með samn-
inga við Spánverja um leikina
í undankeppni fyrir Olympíu-
leikina, og verður fyrri leikur-
inn hér í Reykjavík 31. maí en
síðari leikurinn í Madrid 22.
júní. Spænska landsliðið sem
hingað kemur hefur nýlega unn-
ið bæði ítali og Frakka í keppni
landsliða í Evrópu.
Stjórn KSÍ skýrði frá þessu
á fundi með blaðamönnum í gær,
en nú hefur endanlega verið á-
kveðið um landsleiki í sumar.
Dagana 3., 4. og 5. júlí fer fram
hér í Reykjavík þriggja landa
keppni unglinga undir 24 ára
aldri, og eru þátttakendur Svíar,
Norðmenn og fslendingar. Ung-
lingalandsliðið fer til Finnlands
og tefeun þátt í móti Norður-
landa og Pólverja fyrir unglinga
18 ára og yngri, dagana 8. til
16. júlí.
B-landslið okkar leikur gegn
Færeyingum hér í Reykjavík 20.
júlí, og 14. ágúst kemur hingað
enskt landslið áhúgamanna. —
Seinasti landsleikur okkar á
sumrinu verður svo gegn Dön-
um í Kaupmannahöfn 23. ágúst.
Reynir Karlsson þjálfari og
Sæmundur Gíslason form. lands-
liðsnefndar hafa annazt undir-
búning fyrir landsleikina, og
Alfreð Þorsteinsson og Guðmund-
ur Jónsson þjálfari hafa annazt
undirbúning * unglingalandsliðs-
ins.
A þessum sama furidi með
fréttamönnum afhenti Björgvin
Schram form. KSÍ Hannesi Sig-
urðssyni dómara viðurkenning-
armerki frá Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu fyrir að hafa dæmt
tvo landsleiki A-liða, en Hánn-
es dæmdi nýlega landsleik Aust-
ur-Þjóðverja og Hollendinga, sem
fram fór í Leipzig. Sagði Hannes
frá leiknum, sem lauk með sigri
V-Þjóðverja 4:3, og kvað hann
bæði liðin hafa sýnt mjög góða
knattspymu, og rómaði mjög
móttökur og alla fyrirgreiðslu
Austur-Þjóðverj a. Hannes hefur
verið knattspyrnudómari hér í
20 ár og er óefað einn af okk-
ar allrabeztu dómurum og sá
sem hlotið hefur mesta viður-
kenningu erlendis.
Ferðaráðstefna
Ferðamálaráðstefnan 1967
verður haldin að Hótel Borg,
fimmtudaginn 27. og föstudag-
inn 28. þ.m. Ráðstefnan hefst
kl. 10. f.h. Á ráðstefnunni verða
ræddir ýmsir málaflokkar, sem
fjalla um ferðamál og skyld efni,
t.d. náttúruvernd, móttöku er-
lendra ferðamanna, samgöngu-
mál og möguleika íslands sem
ferðamannalands.
FRÉTTIR FRÁ
BORGARRÁÐI
Brunatjónið met-
ið nær 19 milj.
Á borgarráðsfundi í fyrna-
dag var lögð fram matsgerð
dómkivaddra matsimanna,
þeirra Gunnars Magnússonar
húsgagnaarkitekts og Þor-
steins Hjáilmarssonar hús-
gagnasmídameistara, yfir
brunatjón Iðnaðarbankahúss-
ins. Matsgerðin hljóðaði upp á
18 miljónir 996 þúsund krón-
ur. Heildar brunabótamat
hússins nam hins vegar 27
miljónum króna þannig að
tjónið er metið um 68% ef
brunabótamati hússins. Borg-
arráð ákvað að. skjótfe maits-
gerðinni til yfirmats.
Samíð við Stang-
veiðifélagið
Á sama fundi samiþyktoti
borgarráð að heimila samn-
inga við Stangveiðifélag Rivík-
ur um rekstur kiliak- og eldis-
stöðvar við EMiðaár. Raf-
magnsveita Reykjavikur hef-
ur rekið eldisstöðina fram að
þessu og mieð miMum árleg-
um rekstrarhalla.
Leyfð afnot af
skólauppdrætti
Þá var á fundinum lögð
fram beiðni fræðsluráðs Hafn-
arfjarðar um að mega nota
uppdrætti þeirra arkitektenna
Sigurjóns Sveinssonar og Þor-
valdar Kristmundssonar að
barnaskóla í Árbæjarhverfi
við byggingu skólahúss í
Hafnarfirði. Samþykkti borg-
amáð fyrir sitt leyti að verða
vrið þessai'i ósk