Þjóðviljinn - 18.05.1967, Side 3
t
Fimmtudagur 18. maí 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA J
r
De Gaulle vírðist staðráðinn
að hindra aðildBreta að EBE
Mun beita sér fyrir því á afmælisfundi bandalagsins
að þeim verði sett skilyrði sem teljast óaðgengileg
PARÍS og LONDON 17/5 — Þegar stjórnarleiðtogar aðild-
arríkja Efnahagsbandalags Evrópu koma saman á fund í
Róm 1 lok mánaðarins til að minnast tíu ára afmælis Róm_
' arsamningsins mun de Gaulle leggja fast að þeini að við-
urkenna það sjónarmið að Bretar eigi enn ekkert erindi
inn í bandalagið.
Stúdentar í Madrid
slást við lögreglu
MADRID 17/5 — Stúdentar við háskólann í Madrid rifu
í dag í tætlur, hræktu á og brenndu myndir af Franco
einvaldsherra þegar þeir efndu til mótmæla vegna hand-
töku leiðtoga sinna.
Fréttaritari Reuters í París
hefur þetta eftir mönnum sem
eru nákunnugir de Gaulle. Hann
segir að de Gaulle telji að leið-
togar annarra EBE-ríkja» a.m.k.
Frakklands og Italíu, séu sam-
mála honum um þá skoðun, sem
hann lót í Ijós á blaðamanna-
fundi sínum í gær, að enn sé
Bretum ekki kleift að taka á sig
þær skuldbindingar sem aðild að
EBE hefur í för með sér. Hins
vegar telji hann tilgangslaust að
reyna að fá þá til að fallast á
að hafna öllum samningaviðræð-
um við Breta á þessu stigi máls-
ins.
Hann gerir sér vonir um að
honum muni tákast að fá stjóm-
ir annarra EBE-ríkja til að
slaka ekkert á þeim kröfum sem
bandalagið gerir til nýrra að-
ildarríkja- Hann muni á fundin-
um í 'Róm, sem hefst 29. maí,
beita sér fyrir því að samdar
verði nýjar reglur um aukaaðild
og verði Bretum, og þá öðrúm
EFTA-ríkjum, gefinn kostur á
henni samkvæmt þeim, Það tel-
ur hann mundu verða heppileg-
ustu lausnina.
Á fundi sínum með blaða-
mönnum í París í gær sagði de
Gaulle að leysa mætti vanda-
málið um tengsl Breta við EBE
á þrjá vegu:
1. Veita Bretum aðild með
þeim skilyrðum sem þeir eru
reiðubúnir að fallast á. Af því
myndi leiða að byggja yrði
bandalagið upp alveg að nýju.
2. Aukaaðild Bretlands og
annarra EFTA-ríkja.
3. Fresta lausn málsins þar til
skapazt hefði aðsitæður fyrir
eðlilegri aðild Breta að EBE.
De Gaulle sem ræddi { tuttugu
mínútur um þetta mál á blaða-
mannafundi sínum rakti fjölda
vandamála, efnahagslegra, fjár-
hagslegra og pólitískra, sem
leysa þyrfti til að Bretar gætu
orðið fullgildur aðili að. EBE.
Hann fór ekki dvlt með að litl-
ar sem engar líkur væru á því
að hægt yrði að leysa þessi
vandamál á einu ári eða tveim-
ur. Hann sagði að óskaplegar
tálmanir væru í vegi fyrir
brezkri aðild og nefndi hin sér-
stöku tengsl Breta' við sam-
veldislöndin og Bandaríkin og
þá staðreynd að Bretar væru
ekki meginlandsþjóð.
Frbnska fréttastofan AFP seg-
ir að forkólfar fransks atvinnu-
lífs séu að mestu leyti sammála
de Gaulle um þetta mál. Þeir
óttist að ef Bretar fái aðild að
EBE muni eðli bandalagsins
breytast smám saman svo að
það verði að fríverzlunarsvæði
landanna beggja vegna Atlanz-
hafs en það yrði Evrópuþjóðum
eldci til hagsbóta, sízt af öllu
Frökkum.
Tíu miljónir
í verkfalli
PARlS 17/5 — Um tíu miljónir
verkamanna og starfsmanna
lögðu niður vinnu i dag og er
þetta • víðtækasta vinnustöðvun
sem orðið hefur í Frakklandi í
30 ár. Verkfallið var boðað af
öllum þremur stóru verklýðs-
samböndunum til að mótmæla
þeirri fyrirætlun ríkissitjórnar-
innar að fá þingið til að veita
sér heimild til að gera sérstakar
ráðstafanir í atvinnumálum með
tilskipunum. Frumvarp um slík
heimildarlög verður lagt fyrir
þingið á morgun.
--------------r, -- 1
Aðsúgur gegn
sendiráði
Bretuí Kinu
PEKING 17/5 — Enn í dag létu
þúsundir Pekingbúa í Ijós andúð
sína á framferði brezku nýlendu-
stjórnarinnar í Hongkong með
þvi að ganga fram hjá og safn-
ast saman við sendiráð Breta í
Peking. Þessi mótmæli hófust á
mánudagskvöld pg gizkað er á
að í gær hafi um 400.000 manna
tekið þátt í móitmælagöngum
framhjá sendiráðinu og enn fleiri
munu hafa verið á ferðinni í
dag.
Eftir fund um 1.500 stúdenta
við þjóðfélagsvísindadeild há- j
skólans ruddust margir þeirra
,inn í skrifstofu deildarforsetans,
brutu þar gluggarúður, fleygðu
til húsmunum og rifu niður
mynd af Franco sem á veggnum
hékik og hræktu á hana. Síðan
héldu þeir fyilktu liði til skrif-
stofu hástólarektors' og kröfðust
þess hástöfum að það lögreglulið
sem safnazt hafði saman á há-
skólalóðinni yrði flutt þaðan.
Stúdentar gerðu sig líklegatil
að fara mótmælagöngu um göt-
ur borgarinnar en þá réðust
hundruð lögreglumanna, sumir á
Kviknaði í íbnðar-
húsi á Akureyri
Um kvöldmatarleytið í gær-
kvöld var slökkviliðið á Akur-
eyri kallgð að Strandgötu 39,
sem er 3gja hæða timburhús.
Þegar slökkviliðið kom þar að
voru allir íbúar hússins komnir
út og var eldurinn slökktur á
fclukkubíma.
hestum, gegn þeim og beittu þeir
j kylfum sínum óspart gegn bverj-
um sem lá ved við höggi.
Arabar — ísrael
Framhald af 1. eíðu.
sem Egyptar hafi aflað sér bendi
hins vegar til þess að Israel á-
fbrmi refsiaðgerðir gegn Sýr-
>*ndi.
Blöð í Israel segja að liðsflutn-
ingar Egypta í Sinai-eyðimörk
séu leikur að eldi. Það eitt að
svo miklu liði hafi verið safnað
þar saman geti leitt til árekstra.
Blöðm saka jafnframt Sovétrík-
in um að standa að baki Egypt-
um; þau hafi gefið þeim fulla
heimild til hemaðaraðgerða.
Málgagn sovétstjómarinnar,
„Isvestía" sakaði hins vegar í
dag Israelsmenn um að hafa með
samsæri við Bretland og Banda-
ríkin gert áform um að reyna
að steypa stjóm Sýrlands. Ráða-
menn í ísrael, segir blaðið, fara
ekki dult með að fyrir þeim vak-
ir að fara i herleiðangur til
Damaskus.
Blóðugir bardagar í
Houston í Texas
HOUSTON 17/5 — Lögreglumaður var skotinn tH bana í
nótt og 488 stúdentar voru handteknir á lóð háskóla blökku-
manna í Houston, þess stærsta í Texas, eftir óeirðir sem
staðið höfðu klukkustundum saman.
Nokkrir menn særðust í þess-
um ótökum, meðal þeirra tveir
lögreglumenn. Fjórar sprengjur
sprungu meðan á róstunum stóð
og lögreglan lagði hald á tvo
rif®a og eina skammbyssu, þeg-
ar hún hafði brotizt inn í svefn-
sal stúdenta, þar sem hún hafði
grun uim að leyniskyttúr hefðu
búið um sig.
Óeirðimar hófust á þriðjudags-
kvöld þegar stúdentar efndu til
mótmæla vegna þess að lögreiglu-
menn höfðu verið sendir inn á
háskólalóðina tiil þesS að fylgj-
ast þar með blysför sem stúd-
entar ætluðu að lleggja í til sorp-
hauga í borginni. Blökkumenn
sem eiga heima í nágrenni sorp-
hauganna hafa krafizt þess, að
þeir verði ffluttir þaðan, en þeim
kröfum hefur elcki verið sinnt.
TILKYNNING frú Spurisjóði vélstjóru:
Frá og með 19. maí n.k. verður afgreiðslutími sparisjóðsins svo-
hljóðandi:
Opið verður frá kl. 13.30 til 17,30 alla virka daga, nema föstu-
daga, en þá verður opið frá kl. 13.30 til JL8.30. — Sparisjóðurinn
verður lokaður á laugardögum^ til 1. október n.k.
Enn er burizt
hurt nyrzt i
S- Vietnum
SAIGON 17/5 — Hinir hörðu
bardagar sem nú hafa staðið
nær látlaust vikum saman í
hæðadrögunum rétt fyrir sunnan
friðlýsta svæðið á mörkum vi-
etnömsku landshlutanna halda
enn áfram. Vopnaviðskipti hóf-
ust þar aftur í ■ dag og segjast
Bandaríkjamenn hafa fellt 96
„Norður-Vietnama“, en misst
sjálfir 18 fallna, og 83 særða.
SKIPAUTGCRÐ KIKISINS
M,S, ESJA
fer vestur um land til ísafjarð-
ar 24. þ.m. Vörumóttaka
fimmtudag, föstudag og árdeg-
is á laugardag til Patreksfjarð-
ar, Tálknafjarðar, Bíldudals,
Þingeyrar, Flateyrar, Súganda-
fjarðar og ísafjarðar. — Far-
seðlar seldir á þriðjudag.
M.S. BLUfUR
fer vestur um land í hringferð
27. þ.m. Vörumóttaka á mónu-
dag og þriðjudag, til Bolungar-
víkur, Ingólfsfjarðar, Norður-
fjarðar, Djúpavíkur, Holma-
víkur, Hvammstanga, Blöndu-
óss, Skagastrandar, Sauðár-
króks, Siglufjarðar, Ólafsfjarð-
ar, Akureyrar, Húsavíkur,
Raufarhafnar, Þórshafnar og
Vopnafjarðar. — Farseðlar
seldir 26. þ.m.
SOVIETSK
KVIKMYNDA-
KYNNING
MAI
VENJULEGUR FASISMI
ÁNAUÐUGA LEIKKONAN
GRANSTEINA ARMBANDIÐ
SÍÐASTA BLÓÐHEFNDIN
MAYA PLISETSKAYA
REIKAÐ UM MOSKVU
BYLURINN