Þjóðviljinn - 18.05.1967, Síða 4
<£ SfDA ÞJÖÐVELJITTO — FiramitodagUir 18. mal ÍSGZ.
Otgefandi: Sameiningarfloickur alþýdu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurdur Suðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T, Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust 19.
Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00.
/ GÍSUNGU
JHsti sá sem Hannibal Valdimarsson ber fram í
Reykjavík gegn Alþýðubandalaginu hefur nú
verið úrskurðaður utan flokka. Sá úrskurður var
kveðinn upp einróma af þeiim aðila sem lögum
samkvæmt fer með endanlegt vald á því sviði,
yfirkjörstjórninni í Reykjavík, og hún hefur birt
auglýsingar og samið kjörgögn í samræmi við úr-
skurð sinn. Hefur ráðuneytisstjóri dómsmálaráðu-
neytisins staðfest það í viðtali við ríkisútvarpið
að þessum úrskurði yfirkjörstjórnar verði ekki
hnekkt. 1
J sambandi við úrskurð yfirkjörstjórnar gerðus't
tíðindi sem vakið hafa almenna furðu og hafa
sízt aukið virðingu manna fyrir réttsýni sumra
lögfræðinga. Landskjörstjórn gerði fyrst tilraun
til að seilast út fyrir verksvið sitt, en þegar það
mistókst lýsti formaður hennar yfir því í útvarpi,
að því er virtist upp á sitt eindæmi, að við úthluf--
un uppbótarsæta myndi nefndin hafa forsendur
kosninganna að engu en f jalla um lista Hannibals
Valdimarssonar eins og hann væri listi Alþýðu-
bandalagsins. Engum getur dulizt að hér er verið
að setja á svið pólitískan skollaleik í því skyni einu
að villa um fyrir vinstrimönnum og reyna að
sundra röðum þeirra.
JJins vegar þarf enginn að, vera í vafa um hvað
hér er í raun og veru að gerast. Með þeim á-
greiningi um lagaskýringar sem hér hefur verið
settur á svið hefur það verið tryggt að það verður
ekki landskjörstjórn sem tekur ákvörðun um upp-
bótarsæti, heldur alþingi sjálft eftir kosningam-
ar. Stjómarblöðin kveða upp úr um þetta fagn-
andi í gær. Morgunblaðið segir 1 fomstugrein:
„Hitt er nauðsynlegt að menn geri sér skýra grein
jfyrir að Alþingi sjálft mun endanlega fella úr-
skurð um úthlutun uppbótarsætanna“. Alþýðublað-
ið segir í forustugrein: „Alþýðublaðið skal engan
dóm á það leggja, hvor aðilinn hafi rétt fyrir sér.
Alþingi sjálft fellir úrskurð um það á sínum tíma“.
Hér hefUr semsé það eitt gerzt að andstæðinga-
flokkar Alþýðubandalagsins hafa tryggt sér rétt
til þess að ráðstafa að eigin geðþótta þeim a'tkvæð-
um sem Hannibal Valdimarsson kann að safna.
Sá úrskurður fer ekki eftir vilja Hannibals Valdi-
marssonar, þaðan af síður eftir hagsmunum Al-
þýðubandalagsins, heldur einvörðungu eftir pólit-
ískum hagsmunum hemámsflokkanna þriggja.
Þeir hafa með lagakrókum sínum hneppt Hanni-
bal Valdimarsson í pólitíska gíslingu og ætla að
geyma atkvæði hans eins og birgðir í frystikistu
til notkunar að eigin geðþótta eftir kosningar.
Jjegar framboðslisti Hannibals Valdimarssonar var
úrskurðaður utan flokka bar honum að sjálf-
sögðu siðferðileg skylda til að afturkalla framboð
sitt. Þau áform andstæðingaflokkanna að geyma
hann í pólitískri gíslingu gera þau viðbrögð ennþá
óhjákvæmilegri, ef einhver hugur hefur fylgt máli
þegar Hannibal var fyrirfram að réttlæta fram-
boð sitt. — m.
Lúðrasveitin, sem nú teiur 40 manns, leikur á Austurvelli.
Lúðrasveit Reykjavíkur
heUur afmælistónleika
Lúðrasveit Reykjaivíkur verö-
ur 45 ára 7. maí næsftonnandi
og efnir í því tilefni til tón-
leika í Háskólabíói sunnudag-
inn 21. xnsaí M. 3 e.h,
Bfnisskrá tónleiitanna verður
mjög fjölbreytt og með nýstér-
legra sniði en venja er til hér-
lendis. Verða þar ýmis verk
fyrir stærri híljóðfæraskipan en
áður og auk marsa eitt .sean
skrifað er sérstaklega fyrir
lúörasveit, Pageant eftir Vinc-
ent Persichetti. \
Einnig verður flrumfluittur
mars eftir Áma Bjömsson, í út-
setningu höfundar, en þessi
mars hilaut fyrsto verðlaun í
göngulagasamkeppni Samibands
íslenzka lúðrasveita í fyrra.
Einleiirari á trompett í laginu
Heijre Kate verður Lárus
Sveinssom.
Lúðrasveit Reykjavíkur skipa
nú 40 manns, og stjómandi er
Páll Pampichler Pálsson en
hann hefur verið stjómandi
sveitarinnar síðan 1949. Núver-
andi formaður er ‘Halidór Ein-
arsson.
Aðgöngumiðar að tónleitoum-
um verða seldir í Háskólabíói.
Sexfugur f dag
ðskar Stefánsson
iðnverkamaður
Sextugur er í dag Óskar
Stefánsson iðnverkamaður
Rauðumýri 6 á Alkureyri.
Hann er fæddur í Ólafsfirði
18. rtiaí 1907 og voru foreldrar
hans Guðrún Hafliðadóttir og
Stefán Pétursson. Óskar flutt-
ist með íoreldrum sínum til
Akureyrar árið 1910 og þar
hefur hann átt heima síðan.
Fyrst eftir að Óskar hafði siit-
ið bamsskónum var hann til
sjós, einkum á sumrin, en lagði
síðan. fyrir sig alla almenna
verkamannavinnu á Akureyri
þar til fyrir átta árum, er hann
hóf störf við skóverksmiðjuna
Iðunni þar í bæ.
Kona Óskars er Vigdís Guð-
mundsdóttir og hafa bau eign-
azt 8 böm sem öll em upp-
komin, en auk þess ólu þau upp
eitt bam frá fæðingu. Þau Ósk-
ar og Vigdís hófu búskap ár-
ið 1930, þegar kreppan var í
algleymingi og ýmsir erfiðleik-
ar steðjuðu að- Voru kjör þeirra
oft kröpp á fyrstu búskaparár-
unum og fjárhagsörðugleikar
miklir. .
Óskar Stefánsson hefur alla
tið þótt einstaklega dugmikill
verkamaður, ósérhlífinn og
vandvirkur og eftirsóttur verk-
maður. Hann hefur alla tíð
skipað sér í fylkingu hinnar
róttæku alþýðuhreyfingar og
verið nýtur stuðningsmaður
stjómmálasamtaka allþýðunnar.
Hinir mörgu vinir Óskairs
Stefánssonar munu hugsa hlýtt
heim til hans að Rauðumýri
6 á þessum merkisdegi og
senda honum hugheilar ámað-
aróskir og kveðjur. 3.
Laust embætti
er forseti Islands veitir
Héraðslæknisembættið í Þórshafnarhéraði
er laust til umsóknar. Laun samkvæmt hinu
almenna launakerfi opinberra starfsmanna
og staðaruppbót samkv. 6. gr. læknaskip-
unarlaga. — Umsóknarfrestur til 20. júní
1967. — Veitist frá 1. júlí 1967.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
17. maí 1967.
Frá innheimtu
Landssímans
Innheimtan verður lokuð á laugardögum í
suimar, frá og með 20. maí til 30. september.
ISLENDINGASPJALL
HALLDÓRS LAXNESS
Vor
og
sumarbókin
Frá fyrstu tíð hefir
Halldór Laxness tek-
izt á hendur meiri á-
byrgð gagnvart til-
veru þjóðar sinnar og
stríðandi lífi mannkynsins, en flestir aðrir höfund-
ar. I Islendingaspjalli drepur hann með óviðjafn-
anlegri markvísi á höfuðpunkta í lífsreynslu sinni,
sem íslendingur. Hann hefur líka öllum fremur
rétt til að tala við þjóð sína kunnuglega án langra
útlistana. Allir Íslendíngar vita að hann er slíkur
snillingur á hið viðkvæma hljóðfæri tungunnar að
lengra verður vart komizt. Samt væri það annað-
hvort hrapallegur misskilningur eða kveifarleg
undanbrögð að halda þvi fram, að við læsum bæk-
ur skáldsins aðallega vegna málsnilldar hans og
íþróttar, en gengjum á snið við þann djúpa og ein-
att óþægilega sannleika, sem hann hefir fram að
bera við þ'jóð sína og heiminn^
Helgafellsbók’.
1967
Ritsafn Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi
Öll ljóðasöfn skáldsins, skáldsögur, ritgerð-
ir og leikrit í 7 fögrum bindum, ósfcast send
og gréiðast með afborgunum.
NAFN ...............................
HEIMILI ............................
Helgafell, Box 156.
Póstnfgreiðslnstarf
Póst- og símstöðin í Kópavogi vill ráða
mann til póstafgreiðslustarfa. — Upplýs-
ingar í síma 41225.
Stöðvarstjórinn.
Skrifstofa rikisféhirðis
í sumar verður skrifstofa ríkisféhirðis lok-
uð á laugardögum. Aðra virka daga verður
afgreiðslan opin kl. 10—12 og 13—15.30.
Ríkisféhirðir.
Auglýslng
um afgreiðslutíma
Gjaldheimtunnar í Reykjavík
Á tímabilinu frá 15. maí til 30. sept. 1967
verður Gjaldheimtan lokuð á laugardögum.
Afgreiðslutími er óbreyttur að öðru leyti
og er vakin athygli á, að bpið er um hádegi
á virkum dögum og frá kl. 5—7 á föstu-
dögufm.
Reykjavík, 17. mað 1967.
Gjaldheimtustjórinn.
1