Þjóðviljinn - 04.06.1967, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.06.1967, Blaðsíða 5
SunwujctegiiU’ 4. júní 1967 — J»JÓÐVILJINN — SlÐA J alþýðuheimilanna þvi verið meiri, ekki sízt vegna þess að all- ir vinnufærir menn í fjölskyldunni, fjölskyldufaðir, kona hans og börn, gátu haft vinnu. Vegna þessa góða atvinnuástands hef- ur einnig vígstaða verkalýðshreyfingarinnar verið betri. Nú er þetta að breytast. Samdráttareinkenni eru víða eins og margrakið hefur verið og erfiðleikar með atvinnu hafa í vetur og vor verið meiri en við höfum þekkt í mörg ár. Eins og Þjóð- viljinn hefur skýrt frá er enginn efi á að skólafólk mun eiga í miklum erfiðleikum að komast í vinnu í sumar og örlað hef- ur á atvinnuleysi hjá mönnum í ýmsum greinum. ★ Við sjáum fyrir okkur nú — fyrir kosningar — ýmsa kreppu- boða. Hvað mim þá verða eftir kosningar ef sömu menn verða við völd? Allir vita að hin svokallaða verðstöðvun var aðeins frestur á miklum vandamálum. Til þess að halda henni áfram þarf gífurlegt fjármagn. Verðstöðvunin sjálf gildir ekki nema til 1. október. Margir telja að við blasi eitt af tvennu: Enn ein geng- isfellingin eða ný fjáröflun með gífurlegum skattaálögum á þjóðina. Hver verður látinn borga? Verður enn reynt að láta launþegana taka á sig alla byrði nýrrar gengisfellingar eða nýjar skattaálögur sem nema myndu hundruðum miljóna? Svar við þeim spurningum fæst við úrslit kosninganna. ★ í þessum kosningum þarf fólkið í launþegasamtökunum að efla stjórnmálasamtök sín — Alþýðubandalagið. Það þarf að efla samstöðu sína í stjórnmálum eins og samstöðuna í verka- lýðsfélögunum. Ein meginkrafa verkalýðshreyfingarinnar nú er að hér verði næg atvinna. Við kjósum nú mennina sem ráða fjárveitingavaldinu, pen- ingamálunum og innflutningnum, en með stjóm á þessum þáttum er ákveðið hvort hér er næg atvinna eða atvinnuleysi. Launþegasamtökin þurfa að verja það sem áunnizt hefur í kjaramálunum og bæta kjörin stig af stigi og þá fyrst með því að hækka dagvinnukaupið svo sæmilegum tekjum verði náð án hins langa vinnudags og vinnuþrælkunar. ★ Með kjörseðilinn að vopni geta launþegar tryggt stöðu sína í hagsmunabaráttunni. Þennan einfalda sannleika þurfum við að túlka fyrir öllu launafólki fram að kosningunum. Stjórnmálasamstaða um Alþýðubandalagið, um G-listann, er launafólki nú hin mesta nauðsyn, hagsmunaleg nauðsyn. Jafnframt verðum við að gera fólki ljóst, að fylgi við klofn- ingslistann hér í Reykjavík þýðir ekki einungis pólitíska sundr- ungu heldur sennilega einnig hættulegri sundrungu verkalýðs- hreyfingarinnar en okkur getur nú órað fyrir. Notum því tímann vel og vinnum ötullega að sigrl G-Iistans. Dagsbrúnarfundur í verkfallinu 1961. — Ríkisstjórn Sjálfstæðisflo kksins og Alþýðuflokksins svaraði því verkfalli með tilefnislausri og ósvífinni gengislækkun til að ræna verkamenn ávinningnum. Austur-Evrópa og Alþýöubandalagiö í grein sem Jón Baldvin Hannibalsson skrifar í þriðja tölublað „Nýja Alþýðubanda- Iagsblaðsins“ og nefnist „Menn eða málefni", er m.a. spurt á þá leið hvort enginn pólitískur á- greiningur sé fyrir hendi inn- an Alþýðubandalagsins, sem geti verið raunhæf réttlæting sérstaks framboðs Hannibals í Reykjavík. Svarað er með svofelldum orðum: „Sá ágrein- ingur er lýðum ljós. Og það er djúpstæður pólitískur skoðana- ágreiningur um sjálft eðli, hlutverk og starfsaðferðir Al- þýðubandalagsins, um framtíð- armarkmið þess og leiðir í þjóðfélagsmálum: um afstöð- una til Sovétríkjanna og A- Evrópu og þar með um stjórn- arhætti í sósíalísku þjóðfélagi“. Ég ætla mér ekki þá dul að ræða hér um „sjálft eðli, hlut- verk“ Alþýðubandalagsins; mér finnst hinsvegar ástæða til að nema staðar við síðari orð setningarinnar, sem lúta að því að sá klofningur sem nú hefur orðið meðal þeirra sem að Al- þýðubandalaginu hafa staðið eigi að verulegu leyti rætur í ágreiningi um Sovétríkin, stjórnarhætti í Austur-Evrópu. Þetta er stórmerkileg full- yrðing. Bæði skal ég játa að ég hef ekki haft miklar frétt- ir af slíkum ágreiningi á síð- ari misserum, og svo ekki hvað sízt verður hún merkileg i ljósi greinar sem sami höf- undur, Jón Baldvin Hannibals- son, skrifaði í Alþýðuband«- lagsblaðið i fyrra, fyrir borg- arstjórnarkosningarnar. Þar segir meðal annars: Heimskulegt og Ábyrgðarlaust „Og þá er komið að loka- spurningunni: Er þessi póli- tíska sundrung verkalýðshreyf- ingarinnar og annarra laun- þega óumflýj anleg, varanleg eða réttlætanleg? Svarið er stútt og laggott: Nei. Það sem olli flokkadrátt- um í verkalýðshreyfingunni hér á landi sem annars staðar, og lamaði baráttuþrek henn- ar um langt skeið, var einkum afstaðan til Sovétríkjanna og stalínismans á 3. og 4. tug aldarinnar. Sú þræta áttj sér sínar sögulegu forsendur. En þessar forsendur eru löngu úr gildi fallnar. Þrætubók kreppu- áranna í þessu efni á ekkert erindi til svokallaðra nútíma- manna. Afstaðan til Sovétríkj- anna er eins steindautt póli- tískt vandamál og nokkuð get- ur verið. . .. Mönnum er þess vegna ekki láandi þótt þeim gangi illa að skilja nauðsyn þess að verkalýðshreyfing og vinstrimenn uppi á íslandi þurfi að standa uppi marg- klofnir og pólitískt vanmegna út af nákvæmlega ekki nokkrum sköpuðum hlut, sem hægt er að koma auga á. Það virðist ekki einasta vera óréttlætanlegt, heldur frámunalega heimskulegt og ábyrgðarlaust". Sem sagt: það vandamál sem i fyrra var „ekki hægt að koma auga á“ og var „frámunalega heimskulegt og ábyrgðarlaust“ að gera að klofningsatriði, það er í ár orðið að þeim stóratrið- um sem falla undir grundvall- aratriði. Uppvakningur Ekki treysti ég mér til að skýra þessa fróðlegu stökk- breytingu í pólitiskri vitund greinarhöfundar eða til að gefa henni þær einkunnir, sem hann leggur sjálfur til. Hitt er jafn- víst, að sá Jón Baldvin sem skrifaði grein í fyrra, var í jafnmiklu samræmi við þróun mála í sósíalískri hreyfingu í okkar heimshluta sem hann er í reynd andstæður henni nú. Því það er ekki nema satt og rétt, að þeim hefur nú fækkað stórlega á vinsfra armi stjórn- mála í Vestur-Evrópu sem hafa nokkra löngun til að klofna i hópa eða flokka um afstöðu til sósíalískra landa. Það mál er sannarlega að hverfa af dagskrá og þar með glósur kalda stríðsins um „fjarstýrð" öfl og „óþjóðleg" ellegar þá „svikara" og þar fram eftir götum; þeirra í stað hafa smátt og smátt komið frjórri umræður um sósíalískar úr- lausnir á grundvelli aðstæðna á hverjum stað. .Kommúnista- grýla kalda stríðsins virðist svo óralangt í burtu að meira að segja íslenzkir borgaraflokkar hafa ekki beitt kellu fyrir sig um alllangt skeið. Þeim mun furðulegra er að sjá hana spóka sig á siðum Nýja Al- þýðubandalagsblaðsins og skyldra málgagna eins og ekk- ert hefði í skorizt — og þá að því er bezt verður séð í þeim gamalkunna tilgangi að gera þá menn tortryggilega til pólitísks samstarfs sem ekki hafa „sveiað Rússum“ með fyr- irgangi, fordæmt stjórnarfar í A-Evrópu — þaðan er jafnan stutt í staðhæfingar um að sósíalistar, sem það ekki for- dæma eindregið, breyti svo af þeim sökum að þeir vilji sjálf- ir koma á svipuðum stjómar- háttum hér o.s.frv. o.s.frv.... Samskipti En með þvi þetta mál þer á góma væri ekki úr vegi að nefna nokkrar ástæður sem valda því að afstaða til stjórn- arhátta í sósíalískum ríkjum er í reynd ekki það vandamál sem áður var — hvorki sósíalistum né öðrum, og svo því að kraf- an um fordæmingu (eða bless- un) virðist æ meir út í hött. 1). — Álfa okkar er ekki klofin í tvennt af allþéttu járntjaldi sem fyrr, margföld- uð samskipti austurs og vest- urs hafa eytt mörgum for- dómum. afstaða manna í Vest- ur-Evrópu til sósíalískra ríkja er ekki jafnhlaðin tilfinninga- legum ofstopa og fyrr, þau eru miklu síður en áður fagurt fordæmi eða holdtekja hins illa í vitund manna, áhugi á þeim er hlutlægari. Stækkun heimsins 2) . — Mönnum hefur skil- izt að einhliða fordæming á Austur-Evrópuríkjum sakir þess að þar sé ekki vestrænt lýðræði, þingræði, er að veru- legu leyti reist á hæpnum for- sendum. Vandamál nýfrjálsra ríkja hafa eflt skilning á því að það lýðræði, sem við búum við í litlum hluta heims, er ekki sjálfsagður hlutur, heldur ávöxtur langrar þróunar. Þau ríki standa andspænis vanda — sem sósíalísk ríki Evrópu hafa flest glímt við — að hefj- ast úr fullkominni fátækt og menntunarskorti á sem stytzt- um tíma. Þessi ríki fara ýms- ar leiðir, mörg reyna sósíal- ísk úrræði. og það dettur æ færri í hug að dæma þessa við- leitni eftir því fyrst og fremst hvort byrjað var á því að koma þar á þingræði og margra flokka kerfi með vesturevr- ópsku sniði: evrópusentrísk hugsun er á undanhaldi um leið og menn kynnast vanda- málum þjóða sem byggja á 'annarri fortíð en við. 3) — Um leið hefur sjálf þróun þjóðfélagsins opnað augu róttækra manna fyrir því, að þótt vestrænt lýðræði og þingræði hafi marga góða kosti þá felur það ekki í sér endanleg svör við öllum vanda. Mörgum hefur skilizt að það hefur ákveðnar hættur í för með sér að einblína á þing- ræðisformið eitt og vanrækja vandamál eins og lýðræði á vinnustöðum, alþýðustjóm á fyrirtækjum. Með tilraunum og umræðum um þessa hluti sem eiga sér stað í ríkjum sem byggj a á ólíkum grundvelli ■— eins og t.d. Svíþjóð annarsveg- ar og Júgóslavíu hinsvegar, er ef til vill að skapast nýr grund- völlur fyrir samskipti milli sósíalískra afla, sem gætu haft góð áhrif á þróun og útfærslu lýðræðisforma. Heimurinn breytist 4) . — Sósíalísk ríki Evrópu hafa á skömmum tíma iðn- væðzt og komið sér upp virku fræðslukerfi; efnahagslegar og félagslegar framfarir þeirra hafa hlotið verðskuldaða við- urkenningu. Um leið verða færð sterk rök að því að þró- un lýðræðis í þessum löndum hafi haltrað á eftir menning- ar- og efnahagsþróun, enn vant- ar mikið á að stjórnarhættir séu í samræmi við sósíalískar hugsjónir um jafnrétti og þátt- töku almennings í hverskyns stjómarstörfum. En á hitt er og að líta, að þróunin er já- kvæð í þessum löndum: um leið og við höfum rétt til að ávarpa forystulið þeirra með orðum Schillers: Gefið þér orðið frjálst! — megum við vita að raunhæft frelsi hefur eflzt þar að miklum mun á undan- fömum árum. Vilji einhverjir menn leyfa sér þann munað að slíta pólitískum samskipt- um vegna tiltekins ástands í Austur-Evrópu í dag getur rás viðburða gert þeim þann grikk að gjörbreyta ástandinu, sjálfri forsendu ágreiningsins, á til- tölulega skammri stundu — gott ef ekki útrýma henni með öllu. Margbreytileiki 5) . — Kommúnistagrýlan sótti allmikinn styrk í það á Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.