Þjóðviljinn - 01.07.1967, Qupperneq 6
g SÍDA — ÞJÖÐVXL.JINN — Laugardagur 1. Jdlí 1967.
i
lCjSaimal
Cabinet
Fiskíðjuver Seyðisfjarðar
er til sölu, eða eftir atvikum leigu, ef um
semst.
Upplýsingiar í Fjármálaráðuneytinu.
Rauða Krossinum berast stórgjafir
Myndin var tckin við blóðsöfnunarbifreiðina, þegar afhcntar voru
peningagjafir til blóðsöfnunar U. K. I. Til vinstri cr ilr. Jón Sig-
urðsson og George Landau til hægri.
® Náttúrufræðing-
urinn, nýtt hefti
• I nýjasta hefti Náttúrufræð-
ingsins, tímariti Hins íslenzka
náttúrufræðifélags, er m. a.
minningargrein um Tómas
Tryggvason jarðfræðing eftir
Þorleif Einarsson, Sturla Frið-
riksson ritar greinina „Hug-
myndir um uppruna lífsins",
Guðmundur Kjartansson: Nokkr-
ar .nýjar C14-aldursákvarðanir.
Örnólfur Thorlacius ritar grein
um blóð, Ingólfur Davíðsson
um nokkra fundarstaði jurta
1965 o. fl. og Sturla Friðriks-
son um melgresi í Surtsey.
• Um 20 prestar
sóttu guðfræði-
ráðstefnu
• Guðfræðiráðstefna á vegum
þjóðkirkjunnar og Lútherska
heimssambandsins hófst í Rvík
22. júní að aflokinni presta-
stefnu- Er þetta önnur ráðstefn-
an, sem haldin er hér á vegum
þessara aðilja. Hin fyrri var
haldin fyrir tveinrur árum. Um-
ræðuefni að þessu sinni var:
Ráðsmenn Guðsgjafa. Hefur
þetta efni verið mjög á dag-
skrá meðal ýmissa lútherskra
kinkjudeilda á undanfömum ár-
um. Það hefur verið rannsak-
að fræðilega af guðfræðingum
og rætt á ráðstefnum presta
og leikmanna- Hafa þessar um-
ræður haft veruleg áhrif á
starfshætti kirkjunnar í ýmsum
löndum. — Um 20 prestar sátu
ráðstefnuna, auk tveggja guð-
fræðinga, sem hingað komu á
vegum Lútherska heimssam-
bandsins, þeirra dr. Helge
Brattgárds, dómprófasts í Lin-
kjöping, og síra Gunnars öst-
enstads, sem er framkvæmda-
stjóri þ’eirrar deildar heims-
sambandsins. sem fjallar ijm
þessi málefni. Fluttu þeir báðir
fyrirlestra, en almennar umræð-
ur urðu um erindi þeirra. Ráð-
stefnan stóð í þrjá daga.
• Peningagjöf til
Krabbameins-
félags Islands
• Nýlega barst Krabbameins-
félagi Islands peningagjöf að
upphæð kr. 4.600.00 til minning-
ar um Guðbjörgu Helgu Elín-
mundardóttur Ijósmóður Stöðv-
arfirði, frá vinkonum hennar
úr nágrenni Stöðvarfjarðar.
Samkvæmt ósk, verða þessir
peningar látnir renna í sjóð,
sem stofnaður var fyrir ári
til styrktar krabbameins-
sjúklingum, er þurfa að leita
sér lækninga erlendis.
Krabbameinsfélag Islands þakk-
ar þessa góðu gjöf.
Nýlega afhenti George Land-
au, cinn af forstjórum The
Intcrnational Life Insurance Co.
(UK)., Rauöa Krossi íslands tvö
þúsund dollara (kr. 86.000,00) að
gjöf frá félaginu til starfsemi
Itlóðsöfnunar It,K.f.
Líítryggi n garfélag þetta, sem
starfað hefur hérlendis frá ár-
inu 1965, leggur á ári hverju fé
til hliðar ti(l sérstakrar stofnun-
ar, sem ver því til stuðnings
ýmsum mannúöarmálum. Hefur
stofnunin einu sinni áður lagt
frpm, lé til stuðnings sMkum
málum á Islandi. Var það á s.l.
ári er Barnaspítalasjóði Hrings-
ins voru afihentar 1.000,00 dolil-
arar (43.000,00) Umboð félagsins
á Islandi hefur Alþjóða Líf-
tryggingarfélagið h.f., í Reykja-
vík.
Einn forstöðumanna stofnun-
arinnar er Fred Burroughs, sem
starfað hefur mikið ,fyrir Al-
þjóða Rauða krossinn. Burr-
oughs þekkir ve(l til starfa
Rauða Krcss Islands, og hversu
oft og vel íslendingar hafa
brugðizt við hjálpaiibeiðnum frá
Alþjóða Rauða Krossinum. Er
hann frétti um hið mikla verk-
efni R.K.Í. í sambandi við
Blóðbankann, beitti hann sér
fyrir því, að stofnunin legði
fram áðurgreinda upphæð að
gjöf til starfsemi Blóðsöfnunar
R.K.Í. Burroughs hefur heimsótt
Island á vegum Rauða Kross-
ins, og einnig hefur hann rit-.
að í „Heilbrigt líf“, tímariti R.
K.I.
Þá hefur Ingunn Sveinsdóttir,
Akranesi, afhent Rauða Krossi
Islands minningargjöf um mann
sinn, Harald BöðVarsson út-
gerðarmann, Akranesi, að upp-
hæð kr. 30.000. Stjórn R.K.I.
færir Ingunni kærar þakkir fyr-
ir þessa rausnarlegu gjöf, og
þakkar mikilsvirt starf fyrir
Rauða Krossinn fyrr og síðar,
en frú Ingunn er virkur þótt-
takandi í starfi félagsins.
Fyrír skömmu afhenti Konráð
Axeflsson, stórkaupm., fyrir
hönd Kiwanisklúbbsins Kötlu,
kr. 20.000,00, sem félagar í
Kötlu gefa til aukningar starf-
semi Blóðsöfnunar R.K.Í.
Einnig hafa borizt 2 gjafir
til R.K.I. nýverið, L.S. gaf tíu
þúsund krónur, og N.N. 5 þús-
und
Rauði Kross Islands þakkar
kærlega fyrir þessar stórhöfð-
inglegu gjafir.
(Frá R.K.Í.)
útvarpið
13.00 Öskalög sjúklinga. Sigríð-
ur Sigurðardóttir kynnir.
14.30 Tónleikar og þættir um
útilíf, ferðalög, umferðarmál
og slíkt. Kynntir af Jónasi
Jónassyni.
16 35 Dóra Ingvadóttir og Pétur
Steingrímsson kynna nýjustu
dægurlögin.
17.05 Árni Reynisson verzlunar-
fulltrúi velur sér plötur.
18.00 Andrew-systur syngja
nokkur lög.
19.30 Karin Juel o- fl. syngja og
leika-
20.00 Daglegt líf Ámi Gunnars-
son fréttamaður sér um
þáttinn.
20.30 Harmonikuleikur í út-
varpssal. John Mollinari frá
Kaliforníu leikur í hálfa klst.
21.00 Gróandi þjóðlíf. Frétta-
menn: Böðvar Guömundsson
og Sverrir Hólmarsson.
/21.15 Staldrað við í Vín. Guð-
mundur Jónsson segir frá
dvöl sinni þar í borg og
kynnir tónlist þaðan.
22,05 Járnbrautarslys, smásaga
eftir Thomas Mann- Ingólfur
Pálmason íslenzkaði.
Bjami Steingrímsson leikari
les-
22.35 Danslög-
24.00 Dagskrárlok.
-<♦>
z
m\m
liifl
vESr
Tilboð óskast í smíði og uppsetningu loft-
ræstikerfis í hús Handritastofnunar og
Háskóla íslands.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
gegn kr. 1.000,00 skilatryggingu.
Bólstrað húsgögn
SEL Á VERKSTÆÐISVERÐl: Sófasett, Svefn-
bekki. — Tek klæðningar.
Bólstrunin,
Baldursgötu 8
POLARPANE
EIIMKAUMBOD
Látið stilla bílinn
Önnumst hjóla-, ljósa og mótorstillingu. um kerti, platínur, l'jósasamlokur. Örugg Skiptum þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, sími 13100.
Bifreiðaeigendur
Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar s'jálfir. Við
sköpum aðstöðuna Þvoum og bónum ef óskað er.
Meðalbraut 18, Kópavogi.
Sími 4-19-24.
Bílaþjónusta
Höfðatúni 8. — Sími 17184.
FERÐIST MEÐ LANDSYN.
Landsýn býður upp á alla hugsanlega ferða-
þjónustu innan lands og ufan, með flugvélum,
skipum, járnbrautum og bifreiðum smáum sem
stórum, — sér um útvegun hófela og leigubif-
reiða hvort heldur er rrleð eða án bílstjóra, —
útvegar leiðsögumenn fil lengri eða skemmri
ferða-, úfvegar vegabréfsáritun og sækir um
gjaldeyri svo nokkuð sé nefnt.
Landsýn býður upp á lægra verðlag méð hverju
ári og hagkvæm kjör, svo sem lánakjör Loftleiða
— „Flogið strax — fargjald greitf síðar“.
Takið ekki ákvörðun um ferðina án þess að leita
upplýsinga fyrst hjá Landsýn.
Ccdolj
_ o ®
FtEISEBURO
cm ©
Æ\H[S(o)[^[L<2)iU*
Intourist
LAND5HN ^
FiERÐASKRIFSTOFA
LAUGAVEG 54 - $ÍMAR 22890 & 22875 -BOX 465
*
i
I
I
1