Þjóðviljinn - 15.08.1967, Síða 3
Þriðjudagur 15. ágúst 1967 — ÞJÓÐVIUINN — SlÐA 3
Hvað er að gerast í Kína?
Dagblað alþýbunnar segir
vopnuð átök yf irvof andi
Skuldinni skellt á Líú Sjaosí og jafnframt er
kínverskum borgurum bannað að beita vopnavaldi
Bandaríkin auka enn
stríðsaðgerðir sínar
Leiðtogar beggja flokka á Bandaríkjaþingi gagnrýna
þessar nýju aðgerðir harðlega og óttast afleiðingar
PEKING, HONGKONG 14/8 — Fréttaritari AFP
í Peking skýrir frá því að Dagblað alþýðunnar,
sem er málgagn kínverska kommúnistaflokksins,
hafi í dag sagt að nú væri að draga til óveðurs
vopnaðra átaka í mörgum héruðum Kína. Blaðið
skellir skuldinni á Liu Sjaosí og fylgismenn hans.
Þá bir’tir blaðið í annað sinn yfirlýsingu sem bylt-
ingarráðið í Peking sendi frá sér 14. maí en þar
er kínverskum borguruim bannað að beita ofbeldi.
Fréttastofan Nýja Kína skýrði einnig frá því í dag,
að andstæðingar Maos í átta héruðum landsins
reyni nú að ná völdum. Héruðin eru m.a. Hupei,
Hunan, Kaingsi, Setchuan, Innri-Mongólía og Che-
kiang.
í
LjósiB er hraðast!
MOSKVU 9/8 —■ í APN-frétt frá Moskvu segir,
að sovézikir visindamenn hafi fundið skýringu á
furðulegu fyrirbæri sem gerðist í rannsóknarstofu
Nikolaœ Basovs ekki alls fyrir löngu, en þar hafði
mælzt hraði á lasergeisla sem var níu sinnum
\meiri en hraði ljóssins.
Fyrirbrigðið hefur nú verið skýrt. Þegar l'jós-
magnið eykst breytist. það í krystöllunum sem það
fer í gegnum. Fótonurnar í krystöllunum hreyfast
á hraða ljóssins, en lasergeislinn fer fram úr ein-
stökum fótónum. Það er haegt að hugsa sér fljót,
þar sem vindurinn rekur öldumar í sömu átt og
straumurinn rennur, en hraðar. Það er hægt að
líkja vatnsstraumnum við fótónustrauminn og las-
ergeislanum við bylgjurnar. Á þennan hátt er ekki
hróflað við kenningum Einsteins. sem gerði ráð
fyrir Ijóshraðanum (300.000 km. á sekúndu) sem
mesta hugsanlega hraða. En skýringin á þessu
furðulega fyrirbæri og frekari tilraunir sýna að nú
er hægt að magnýt lasergeisla mun meira en áður
hefur þekkst.
Heimsókn Titos til araba:
Ekki von um skjóta lausn í
deilumáli araba og Israels
DAMASKUS 14/8 — Heimsókn Titos forseta Júgó-
slavíu til höfuðborga arabaríkja mun varla verða
til þess, að ágreiningur araba og ísraelsmanna
verði jafnaður í bráð, segir NTB að haft sé eft-
ir góðum heimildum í Damaskus í kvöld.
1 forystugrein í Dagblaði alþýð-
urinar í dag, sem heitir Allir eiga
að snúast gegn notkun vopna,
segir að hægt sé að fyrirgefa al-
múga, sem leiddur hafi verið á
viilligötur gegn því að menn snúi
aftur til stefnu Maos, fordæmi
notkun vopna og gangi úr sam-
tökum sem hvetja til vbpnaðrar
baráttu.
Útvarpsstöðvar í Kína skýra
frá því að víða hafi komið til
bardaga milli fylgismanna og
andstæðinga Maos-
Útvarpið í Tringtao, en það
er borg með um miljón íbúum
og stendur í Shantung héraði,
skýrði frá því að hundruð
verkamanna vopnaðir hnífum,
öxum og jámstöngum hafi lent í
blóðugum óeirðum.
í fréttinni var ekkert frá því
skýrt hvenær þessar óeirðir hafi
orðið, en það er sagt að miklar
truflanir hafi orðið á framileiðsi-
unni vegna uppbotanna.
Fjöldasamtök hafa tekið mik-
inn þátt i óeirðunum og beita
þau ofbeldi, virða leiðbeiningar
Maos einskis né lög ríkisins og
láta fyrirskipanir kommúnista-
floklcsins sig engu skipta, segir í
fréttinni.
Pekingútvarpið hafði áður
skýrt frá því að andstæðingar
Maos hefðu beðið lægri hlut í
Shantung héraði.
Einnig hafa borizt fréttir af
óeirðum í Cheking héraði á aust-
urströnd Kína. Útvarpið í hérað-
inu skýrði frá þvi að verkamenn
hefðu gert árás á Mao-sinna.
SAIGON, WASHINGTON 14/8 — í dag gerðu
bandarískar flugvélar annan daginn í röð miklar
loftárásir á skotmörk í Norður-Vietnam sem eru
í aðeins 16 km. fjarlægð frá landamærum Kína.
Árásimar voru gerðar á samgönguleiðir til Kína.
Leiðtogar þeggja flokka á Bandaríkjaþingj halda
því fram að þetta séu auknar stríðsaðgerðir og
mjög hættulegt skref
i
Loftárásirnar voru gerðar á
skotmörk sem voru um 30 km.
nær landamærum Kína en
nokkur skotmörk hafa áður ver-
ið í Norður-Vietnam síðan loft-
árásir voru hafnar 16. febrúar
1965.
Bandacíkjamenn segja að árás-
irnar í dag hafi verið gerðar á
brýr ekki fjarri þeim stöðum
sem sprengjum var varpað á um
helgina.
Brýrnar sem voru sprengdar
upp í dag höfðu mikla þýðingu
fyrir járnbrautarsamgöngur til
Kína.
Utan við strönd Norður-Viet-
nam hafa áströlsk og bandarísk
orustuskip sökkt 35 norður-viet-
nömskum flutningaskipum og
skaddað 28 önnur.
Á blaðamannafundi í Hvíta-
húsinu í dag varði’ talsmaður
Johnsons þessar aðgerðir og
sagði, að loftárásimar á Norður-
Vietnam væm þýðingarmikill lið-
ur i skuldbindingum Bandaríkj-
anna gagnvart Suður-Vietnam.
Hann hélt því fram að árás-
Landsleikurinn í gœrkvöld
Tító fór í kvöld frá Damask-
us til Bagdad til viðræðna við
þarlenda ráðamenn, en hann
hefur rætt ástandið*í löndunum
fyrir botni Miðjarðarhafs við
forseta Sýrlands, Nureddin E1
Atassi.
í sameiginlegri yfirlýsingu eft-
ir viðræðurnar segir, að þær
hafi verið nýtt framlag tveggja
vinveittra ríkja til að treysta
hinar sameiginlegu tilraunir til
að eyða árangrinum af árás
ísraelsmanna á arabalönd.
Á miðvikudag heldur Tito aft-
ur til Kairo til frekari viðræðna
við Nasser forseta.
a
BRAZZAVILLE 14/8 — Fjöldi
manns réðist í dag inn í sendiráð
Belgíu i Ki nshasa og grýtti hvíta
menn á götum borgarinnar.
Fréttaritari AFP í Amman
skýrir frá því að Hussein kon-
ungur hafi i dag skýrt frá því,
að innan skamms muni hann
fara í stuttar heimsóknir til
Saudi-Arabíu, Kuwait, írak, ír-
an, Tyrklands og Libanon.
Um helgina ræddi konungur
við Arif forseta íraks, sem hélt
í kvöld aftur til Bagdad skömmu
áður en Tito kom þangað.
Fréttaritara í Amman telja
að Hussein muni nú eftir við-
ræður sínar við Arif, sem tal-
inn er í hópi róttækra leiðtoga
araba reyna að afla stuðnings
við sameiginlega stefnu araba
hjá hinum afturhaldssamari rík-
isstjómum í arabalöndum, auk
nágrannaríkjanna Tyrklands og
írans.
í öllum þeim löndum sem
Hussein' ætlar að sækja heim
sitja íhaldsstjómir.
Framhald af 12. síðu.
LIÐIN
I heild var brezka liðið betra
liðið þótt það væri engan veginn
skemmtilegt, né leikur þeirra við-
felldinn. Liðið var jafnt og var
bezti maður þess h. bakvörður
Gambelin. Vinstri bakv. Powell
var einnig góður. Framherjamir
náðu oft laglega saman, en þó
var samleikur vamarinnar mun
meiri, því þar héldu þeir knett-
um langtímum saman. Swanell
í markinu var greinilega góður
þó að á hann reyndi ekki sér-
lega.
Báðir útherjarnir voru hreyf-
anlegir og fóru vítt yfir, en það
kom ekki að sök því alltaf var
maður kominn í þeirra stað, og
var svipað um marga aðra leik-
menn að segja. Fáir voru þar
sem maður veitti verulega at-
hygli-
Meðan vonin um sigur var
nærstæð lék íslenzka liðið vel,
og má nefna sem beztu menn
þá Jón StefánsSon, Sigurð Dags-
son, Eyleif og Guðna Jónsson, og
enda Hermann, en það er ofætl-
un að gera ráð fyrir þvi að einn
maður í framlínu geti eitthvað
gert þegar búið er að senda alla
aðra í vöm, en lið nær fuilskip-
að vamarmönnum hefur eðlilega
þá hneigð að vera aftarlega.
I framtíðinni hlýtur það að
verða sóknarleikurinn sem leggja
verður áherzlu á. Guðni Kjart-
ansson, Kári, Þórður Jónsson og
Bjöm sem þó átti við og við góð-
ar „rispur“, sluppu ekki vel frá
þessum landsleik.
Dómari var Curt Liedberg frá
Bvíþjóð og dæmdi vel- Áhorfend-
ur vom um fjögur þúsund og
veður hið bezta.
Frímann.
irnar rétt við landamæri Kína
væm í samræmi við margendur-
teknar yfirlýsingar Johnsons, að
Bandaríkin vildu ekki auka
stríðsaðgerðir í Vietnam.
Leiðtogi Demókrata í öldunga-
deild Bandáríkjaþings, Mike
Mansfield sagði í dag að árásirn-
ar táknuðu mjög hættulega
aukningu hernaðaraðgerða og
færðu Bandaríkin miklu nær
þeim voða að lenda í beinum á-
tökum við Kínverja.
John Shermann Cooper þing-
maður Republikana hélt því
fram að Bandaríkin ættu miklu
heldur að draga úr hernaðarað-
gerðum sínum smám saman og
reyna jafnframt að komast að
samningum i stað þess að auka
hernaðarðgerðir.
Formaður utanríkisnefndar öld-
úngadeildarinnar William Ful-
bright sagði að árásirnar væru
stórhættulegar og hið mesta
glapræði.
Mansfield öldungadeildanþing-
maður sagði að árás sem gerð
væm í aðeins einnar mínútu flug-
tíma fjarlægð frá Kína gætu auk-
ið bá möguleika að Kinverjar
hættu innbyrðis erjum og sam-
einuðust.
Hann sagði að einnig hefðu
komið fram tillögur um það að
leggja sprengjur í höfnina í Hai-
phong, en það rriundi geta leitt
til þess að Bandaríkin lentu í á-
tökum við Sovétríkin, sem gætu
gripið til gagnráðstafana í Kóreu,
Berlín og annars staðar. a
-------ii
SEUL 14/8 — Fjórir Kóreumenn
og þrír suður-kóreanskir her-
menn týndu lífi í átökum við
landamæri ríkjanna á Kóreu-
skaga í gærmorgun. j
Smdhag Vestmbæjar
Tilkynning frá Sundlaug Vesturbæjar. Laugin
verður lokuð um óákveðinn tíma frá og með þriðju-
deginum 15. ágúst vegna lagfæringa og viðgerða.
KAUPMENN
- KAUPFÉLÖG
- FISKSALAR
Sólþurrkaður saltfiskur,
heill og niðurskorinn.
BÆJARÚTGERÐ REYKJAVÍKUR.
Búlgaríuferö
BAÐSTRANDARUF
Af sérstökum ástæðum eru 4 sæti laus í hina
mjög ódýru skemmtiferð okkar til Búlgaríu,
hinn 21. ágúst n.k.
Hafið samband við skrifstofu félagsins að
Laufásvegi 8, símar 14689 og 15429.
TRÉSMÍÐAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
* *
m
r
4
1