Þjóðviljinn - 15.08.1967, Blaðsíða 5
Þridjudagar 15. ágúst lð©7 — ÞJÓÐVZLJINN — SlöA §
■ífc;
í Hvalfiröi og
Borgarfiröi
■ Skipsmenn á varðskipimi
Óðni stóðu heiðursvörð og
heilsuðu hátíðlega þegar far-
þegar stigu um borð á laugar-
dagsmorgjun, enda voru gest-
irnir að Jþessu sinni Haraldur
krónprins Noregs, forseti, for-
sætisráðherra, dómsmálaráð-
herra og fleiri fyrirmenn.
Jón Jónsson skipherra og
aðrir yfirmenn skipsins tóku
á móti prinsinum og fylgdar-
liði hans og buðu til hádegis-
verðar meðan siglt var til
Hvalfjarðar í rysjóttu veðri. í
Hvalfirði hellirigndi þegar
krónprinsinn 'steig á land við
hvalstöðina, þar sem saman
var kominn hópur manna til
að fagna honum. Loftur Bjarna-
son framkvæmdastjóri ann-
aðist hina opinberu mót-
töku, en varð þó seinni á sér
en tvær telpur amerískar sem
hlupu fram á bryggjusporðinn
Og urðu fyrstar til að taka í
hönd hinum tigna gesti.
Hvalur sem veiðzt hafði
tveim dögum fyrr beið í fjör-
unni og fylgdust gestir með
því er hann var dreginn upp
á planið og skorinn þar í
stykki. Ekki þótti lyktin sem
bezt, en ríkisarfinn þraukaði
og þá síðan veitingar gestgjafa.
Úr Hvalfirði var haldið til
Reykholts og ekinn Dragháls.
Hafði þá stýtt upp og var sól-
skin það sem eftir var dagsins.
í Reykholti tóku á móti rík-
isarfanum heimamennimir sr.
Einar Guðnason prófastur, Jón-
as Ámason alþingismaður og
Vilhjálmur Einarsson skóla-
stjóri auk fulltrúa sýslumanns,
hreppstjóra og fleiri. Hópur
prúðbúinna telpna úr sumar-
búðum þjóðkirkjunnar fögnuðu
prinsinum á hlaðinu og fjöldi
manns var kominn að Reyk-
holti til að sjá gestinn. Einar
prófastur og prófessor Sigurður
Nordal fræddu Harald ríkis-
arfa um sögu staðarins og
leiddu hann að Snorralaug, inn
í göngin og að styttu Snorra
Sturlusonar, gjöf norsku þjóð- j
arinnar. Að síðustu sat prins-
inn kaffiboð á heimili séra
Einars. )
Krónprinsinn virtist þreyttur
og skoðaði það sem íslenzkir
sýndu honum alvarlegur í 1
bragði, — þó svöruðu norskir
blaðamenn kollegum sínum ís-
lenzkum að hann hefði brosað
mun meira opniberlega hér á
nokkrum dögum en hann gerði
mánuðum saman heima fyrir.
Vafalaust hefur líka hymað
yfir krónprinsinum um kvöld-
ið er hann komst til veiða í
beztu á landsins, Haffjarðará.
og fékk þar ekki færri en
fimm laxa. Með honum við lax-
veiðamar vom forsætisráð-
herra, sem dró jafnmarga, og
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson
forstjóri.
Myndirnar:
JL Við styttu Snorra
\J Sturlusonar í Reyk-
V holti. Með Haraldi rik-
isarfa á myndinni eru forseti
tslands og forsætisráðherra og
systumar Anna Bjarnadóttir
prófastsfrú (til vinstri) og
Kristín Bjarnadóttir. Fyrir
neðan sjást krónprinsinn og
próf Sigurður Nordal koma
út úr göngunum, en neðst
heilsar Jón Jónsson skipherra
á Óðni Haraldi. á milli þeirra
sjást Pétur Sigurðsson land-
helgisforstjóri og Jóhann Haf-
stein dómsmálaráðhcvra.
Efst eru telpurnar sem A
fögnuðu Haraldi s
hlaðinu i Reykholti
þá er mynd tekin við Snorra-
laug, sú þriðja þegar Einar
prófastur (í miðju) sýnir
kirkjugarðinn og neðst sjás'
krónprinsinn os fylgdarli?
virða fyrir sér hvalskurð i
Hvolfirði (Ljósm. Þjóðv. vh)
i
i
Í
k