Þjóðviljinn - 17.08.1967, Blaðsíða 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fíirantudagur 17. ágúst 1967.
!
H
!
Manntal í dýraríkinu
Hve mörg dýr lifa á jörð-
inni í dag? Það vitum
við að sjálfsögðu ekki, því
dýr fylla ekki spumingaskrár
og það er ógjörningur að
hlaupa um hnöttinn allan og
merkja við hvert og eitt.
En við höfum ndkkra hug-
mynd um það hve margar
dýrategundir eru til á jörð-
inni. Hvenær sem dýrafræð-
ingur uppgötvar nýja tegund
Jýsir hann henni í ritsmíð og
finnur henni nafn. Með þessu
mióti hafa menn þegar fundið
um 900 þúsund dýrategundir.
Að sjálfsögðu gctur eng-
inn dýrafræðingur kynnt sér
allan þann fjölda, ekki einu
sinni svo sem af afspum, og
það er því auðskilið að dýra-
fræðingar verða að sérhæfa
sig — skordýrafræðingar,
skriðdýrafræðingar o.s.frv.
Skordýr eru langsamlegast
stærsti dýraflokkurinn — af
þeim eru til miklu fleiri teg-
undir en af öllum öðrum dýr-
um samanlögðum, og þótt
plöntutegundunum væri öll-
um bætt við. Þegar hefur
verið lýst á milli sex og sjö
hundruð þúsimd skordýrateg-
undum, og nýjar koma íleit-
imar á degi hverjum. Það
er gert ráð fyrir því að á ári
hverju finnist um 6000 nýj-
ar tegundir skordýra. Það
er ekki gott að vita, hveiengi
slíku getur haldið áfram, en
til eru menn sem álíta að
skordýrafræðingar hafi ekki
lokið verki sínu fyrr enþeir
hafa lýst þrem miljónum
skordýrategunda. Það verður
víst ekki atvinnuleysi í þeirri
grein í bráð.
Það er því ekki nema rétt
að við lifum á öld skordýr-
anna. — Maðurinn er aðeins
ein tegund af 3500 spendýra-
tegundum. Spendýrafræðing-
ar hafa fyrir löngu mátthorf-
ast í augu við það, að það er
næsta lítið eftir af óuppgötv-
uðum spendýrum — það sem
eftir er eru smámunir af
músarstærð.
□
Me
Tenn þefckja 8600 fugla-
tegundta'. Suður-Amenka
er það svæði sem helzt má
teljast paradis fuglafræðinga.
— Þar eru um 2500 tegundir.
I Evrópu eru hinsvegar um
600 tegundir og í Afríku rúm-
lega 1500. Af æðri dýrum —
spendýrum, fuglum, skrið-
dýrum, fiskum. eru til 45 þús.
tegundir. Þessi hópur saman-
lagður er í öðru sæti í dýra-
ríkinu.
í fyrsta sæti er að sjálf-
sögðu sú fylking sem skor-
dýrin tilheyra — hún kallast
liðdýr, og þar undir falla,
auk skordýra, krabbar, köngu-
lær, þúsundfætlur og fleira
af því tagi. Að öllu saman-
lögðu eru 722 þúsund tegund-
ir í liðdýraflokfcnum. Fram
að þessu hafa menn fundið
og lýst um 30 þúsund teg-
undum af örsmáum einfrym-
ingum — frumdýrum.
Gott og vel geta mennsagt,
þetta er tegundafjöldinn —
en hafa menn enga hugmynd
um það hve margir einstak-
lingar eru til af hverri teg-
und? Víst er svo — en oft-
ast er þá um að ræða dýr,
sem af ýmsum ástæðum (og
maðurinn er þá venjulega
höfuðástæðan) eru orðin svo
fá, að það er tiiltölulega auð-
velt að fá yfirsýn yfir fjölda
þeirra. Það eru varla til 1
dag mikið yfir íimmtíu Java-
nashyrningar á .iörðinni, að-
eins 44 trorrpettrönur og í
mesta lagi 60 kaliforníukon-
dórar.
□
Menn hafa einnig nokkuð
nákvæmar tölur um
ýmsar fuglategundir,. sem eru
miklu stærri en þær dýra-
tegundir sem nú voru nefnd-
ar, og er hér átt við fugla
sor.n verpa á stöðum þar sem
ciuðvelt er að telja þá. Það
eru til um það bil 300 þús.
sJlur á jörðinni og fimmtán
miljónir lunda (hér er, vel á
minnzt, komið að framilagi Is-
Cenöinga til manntails í dýra-
rlkinu). Að því er varðar
samanlagt fuglasafn hnattar-
ins telur enski fuglafræðing-
urinn James Fischer, að þeir
séu um hundrað miljónir
talsins — en telur að það
geti skeikað um tíu miljónir
til eða frá.
Bandarískur skordýrafræð-
ingur hefur reynt að reikna
út hve naörg skordýr lifi á
móður jörð. Að loknum flókn-
um útreikningum komst hann
að þeirri niðurstöðu að þau
væru svona 1.000.000.000.000.-
000.000 — átján núll! Við get-
um getið þess til samanburð-
ar, að síðan frummaður sá
sem kallaður hefur veríð
Pekingmaðurinn var uppi
hafa liðið aðeins 10.000.000,-
000.000 — (Iþrettán núlil) sek-
úndur!
!
!
!
Ráðgátur fornra
byggingameitsara
Við margar fornar bygging-
ar — musteri, virki, kastala,
. eru tengdar ýmsar þjóðsögur.
um leyndardómsfulla tilorðn-
ingu þeirra og um höfunda
þeirra, sem áttu að búa yfir
' dularfullri þekkingu.
Sumar þessara bygginga eru
fræðimönnum nokkur ráðgáta
enn þann dag í dag. Þannig
hafa byggingameistarar til að
mynda fyrir löngu tekið eftir
þvi að hringstigar næstum því
allra kastala í Evrópu hafa
eitt einkenni: þrep þeirra eru
lögð réttsælis. Það er tiltölu-
lega skammt síðan að það tókst
að leysa þessa gátu.
Þegar til bardaga kom, eins
og oft vildi verða í mið-
aldakastölum voru hinir
þröngu hringstigar frábær
vamarvirki. Aðeins einn mað-
ur I einu gat farið upp stig-
ann og einn vamarmaður gat
að ofan varizt mörgum árás-
armönnum. Ekki nóg með það.
Þar eð stiginn snerist til hægri.
gátu árásarmenn sem að neð-
an komu ekki notað hægri
höndina eins frjálslega os
þeir sem vörðust að ofan.
Þessa lausn gátunnar stað-
festir merkileg undantekning
frá reglunni. Hringstigar í
sumum skozkum köstulum
snúa rangsælis, en ekki rétt-
sælis. En svo er mál með vexti
að höfðingjar af hinni vold-
ugu Kerætt, sem áttu þessa
kastala, voru vel flestir örv-
hentir.
Fomleifafundir sýna að elztu
byggingaméistarar sem vita af
vissu hvemig átti að treysta
byggingar með grind. Á fjórðu
öld f. Kr. kunnu byggingari
menn í, IViesópótamíu að
styrkja leirkofa, sem fátækir
menn byggðu yfir sig,
með sefköðlum eða sefneti.
Byggingar sem treystar voru
með slíkri grind standa enn
þann dag í dag.
Fomir byggingameistarar
þekktu líka merkilegar formúl-
ur fyrir byggingarefni. Efna-
fræðingar hafa til að mynda
ekki enn ráðið gátu „róm-
verska maltsins" en svo nefn-
ist steinlímstegund. Menn vita
að Rómverjar hinir fornu settu
í steinlímið sjaldgæfar leirteg-
undir og múrsteinsduft — en
heldur ekki meir. Eftir margar
aldir eru múrsteinar í fomum
rómverskum byggingum að
molna niður. Þeir veðrast að
vísu hægar en nútímamúr-
steinar, en þeir eru ekki eilíf-
ir. En það er hins vegar engu
líkara en að steinlím það sem
festir þá saman ætli að verða
eilíft. Engin sementsblanda
jafnast á við það að styrk-
leika. Að vísu hafa bandarískir
efnafræðingar komizt að því
að það er hægt að herða sem-
ent með því að bæta í það
sykri, en sú aðferð er of dýr
til að hafa raunhæft gildi.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja 4. áfanga Vogaskóla hér
í borg, sem í eru fimleikasalir, kennslustofur o.fl.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, gegn
5.000,00 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
°8. september n.k. kl. 11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
'Ý': ' '«. w
Henri og Yvone — Pólitíkin er npphaf allra aðgerða byltingarflokks. — Yvonne: Ég skil ekki
Godard gerir mynd um Maó-
istakommúnu í Parísarborg
Hinn þekkti franski kvik-
myndamaður Jean-Luc Godard
er nú að vinna að kvikinynd
sem margir bíða eftir með
mikilli forvitni — og þá ekki
sízt starísmenn kínverska
sendiráðsins í París. Godard
beinir kvikmyndavélinni að
pólitískum stórmálum: mynd
hans fjailar um þrjá unga
menn og tvær stúlkur sem búa
saman í íbúð einni í París og
reyna að lifa í samræmi við
kenningar Maó Tse-tungs.
Fimmmenningamir koma
hver úr sinni áttinni. Veroniq-
ue er heimspekistúdent oghef-
ur mestan áhuga á siðferðileg-
um hliðum maóisma. Guilla-
ume er rithöfundur og er að
reyna að skapa sannsósíalískt
leikhús. Henri er fuhtrúi vfs-
indanna, ungur efnafræðingur.
KirlcÆ er málari og er aðleita
að formúlunni að hinum sanna
sósíalreaíisma. Yvonne er
sveitastúlka sem hefur flækzt
í vændi í höfuðiborginni en
sagt skilið við það með að-
stoð félaga sinna.
Fimmmenningarnir lifa ein-
földu og munaðarlitlu lífi, rök-
ræða, lesa Maó og máligögn
franskra vinstrikommúnista og
sélja þau á götum, fordæma
franska kommúnistaflokkinn
svo og þann sovézka, einnig
friðsamlega sambúð. Þau eru
ung og ofstopafull og heimta
athöfn (því ekki að sprengja í
loft upp Svartaskóla og Com-
édie Francaise?) þau vilja
byltingu og hana tafarlaust.
Godard segist sjálfur hafa
samúð með ýmsum viðhorfum
þessara persóna sinna — af-
stöðunni til Vietnams, fjand-
skap þeirra í garð heimsvalda-
sinna — hinsvegar taki hann
ekki afstöðu til deilna um póli-
tískar hemaðaraðferðir í vinstri
arminum, ekki í þessari mynd.
Myndin er enn í sköpun —
þó er vitað að harðar deilur
innan hópsins um hermdarverk
verða hans banabiti: Henri er
andvígur sprengjutilræðum og
er rekinn úr samfélaginu sem
„endurskoðunarsinni", Veron-
ique reynir að drepa sovézkan
ráðherra í heimsókn í París og
fleiri stórtíðindi gerast áðuren
hessi mynd endar.
★
Mynd Godards heitir ,,Kín-
verska stúlkan" og myndin
verður væntanlega sýndáikvik-
myndahátíðinrri í Feneyjum.
Málaliðar og
Tsjombesinnar
mynda stjérn
BUJUMBURA 10/8 — Monga
ofursti, yfirmaður hermanna frá
Katanga sem hafa slegizt í lið
rp?ð hvítum málaliðum og herr
tekið borgina Bukavu austast í
Kongó, hefur hvatt Mobutu for-
seta til að segja af sér. Kveðst
hann sjálfur hafa sett- á stofn
stjóm sem muni binda endi á
borgarastyrjöld í Kongó.
Monga segir Bukavu bráða-
birgðahöfuðborg sína en eíðan
muni hann „frelsa“ önnur hér-
uð landsins. Yfirmaður hvitu
málaliðanna, Belginn Schramme,
hafði áður krafizt þess að sam-
bandsstjómin í Kinshasa tæki
Tsjomhe aftur í stjóm sína, en
Tsjombe, áður leppur Belga í
Katanga og síðar forsætisráð-
i herra í Kongó. er nú fangi í
1 Alsír.
Mobutu forseti sambands-
stjórnarinnar, hefur neitað að
i „leggjast svo lágt að semja við
i þessa stigamenn" eins og segir
í yfirlýsingu hans.
fsrael mun halda
teknum svæðum
JERUSALEM 14/8 — Israelsmenn
ætla sér ekki að kasta frá sér
þeirri aðstöðu, sem beir unnu
sér í stríðinu á dögunum. Þeir
munu halda beim landsvæðum,
sem þeir tóku af aröbum, þar
til hægt verður að gera fullnægj-
andi friðarsamninga, sagði utan-
ríkisráðherra Israél, Abba Eban
á blaðamannafundi í kvöld.
ÆF
Helgarferð ÆFR
N. k. iaugardag ieggur
Æ.F.R. upp í síðustu helg-
arferðina á þessu umri.
Farið verður á HVERA-
VELLI og síðan ekið lengra
norður Kjöi. Pétur Páls-
son verður með gítarinn \
ferðinni.
Tryggið ykkur far, skrá-
ið ykkur sem fyrst í síma
17513, milli ki. 4 og 7.
V