Þjóðviljinn - 20.08.1967, Síða 12
Síðastliðinn miðvikudag mátti sjá
lítinn flokk manna og farartækja
fara hljóðlega á vettvang í Öskju-
hlíðinni til þess að setja niður hina
frægu og umdeildu myndastyttu
Vatnsberann eftir Ásmund Svein-
son.
Síðastliðið vor var miklum kassa
skipað upp á hafnarbakkanum í
Reykjavík og var skráður sendandi
Kristjania Bronz Stöberi í höfuðborg
Norðmanna, — hefur hann legið í
vöruskemmu í sumar.
OVörubifreið siiast upp afleggjarann hjá gamla Golfskálanum með störan kassa á pallin-
um, Iagði síðan hikandi út á troðninga þarna í móunum í Litluhlíð, hentist til á ójöfnum
og menn hlupu í kringum bílinn patandi höndum mcð Iífið í lúkunum yfir hinum dýr-
mæta farmi. Fast á eftir fylgdi lyftikrani og borvél og loks náð áfangastað. Hvað cr í kassanum?
: '
©Það er tekið til að rífa utan af kassanum og fólk kem-
ur á vettvang. Forvitnin kviknar, og maður spyr mann:
Hvað er í kassanum? Enginn vcit neitt og Hafliði Jónsson
stendur upp á þúfubarði, dulur og leyndardómsfullur og and-
rúmsloftið er hlaðið spcnnu cins og þegar pakkar eru opnaðir.
En varlega er gengið til verks.
; ÁAyndir og
texti g.m.
Styttunni var komið
fyrir undir leiðsögn
Hafliða Jónssonar og
átti að fara fram með
mikilli leynd. Hér fer
hinsvegar á eftir mynd-
frásögn af þessum við-
burði í menningarlííi
borgarinnar.
Kassahliðarnar falla sundur og eitthvað eins og svcipað hvítu meyjarlíni blasir við aug-
um viðstaddra. Kafliði hlcypur ofan af þúfubarðinu og er þegar kominn í námunda við
hið leyndardómsfulla. Maðurinn með hattinn. Ö, —• jcsús minn segir lítil stúlka upp á
steini. Er þetta guð?
OSólin stirnir á eiraf-
steypu af höggmynd,
er plastinu hefur ver-
ið svipt frá leyndardómnum,
bandi er slcgið á styttuna og
kraninn lyftir her.ni hægt upp
af bílpallinum og þarna svíf-
ur hún út yfir klöppina í móan-
um í Litluhiíð. — Fyrir neð-
an blasir við endalaus bíla-
straumurinn eftir Reykjanes-
brautinni út úr borginni til
Kópavogs eða Hafnarfjarðar og
aðrir bílar stefna til borgarinn-
~r úr gagnstæðri átt.
Seljum á morgun og næstu daga
ENSKA KVENSKÓ
fyrir kr. 398.
Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100
Útsala á karlmannaskóm
Margar tegundir seldar fyrir kr. 298 og kr. 398
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100
Hvað er þetta? Er þetta óvinafagnaður? Ætla þeir þá að hengja Vatnsberann eftir allt
saman. Nei, góðir hálsar. Hcr er hann i snertipunkti og féll síðan ofan á stálskrúfur í
kiöppinni og síðan var hann skrúfaður fastur í grágrýtið.
ÖTSALA Á KVENTÖFLUM
Seljum ítalskar kventöflur á kr. 198.
KJÖRGARÐUR, Skódeild
A