Þjóðviljinn - 24.08.1967, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 24. ágúst 1967 — ÞJÖÐVIL.IINN — SÍÐA ^
Byltingarmaðurinn
REGIS DEBRAY
Þegar tvö jafn ósættanleg stórmenni og de
Gaulle Frakklandsforseti og Jean Paul Sartre
heimspekingur beita sér báðir hlýtur málið að
vera óvenjulega stórbrotið. Þegar fólk eins og
Fidel Castro, Feltrinelli, Moravia, Mauriac o.fl.
láta ein örlög og eitt nafn skipta sig mestu máli
mánuðum saman hlýtur tilefnið að vera einstakt.
Regis Debray er einstakur maður.
Hvorki de Gaulle né Sartre
hafa séð nokkurn árangur af á-
skorunum sínum til einræðis-
stjórnarinnar í Suður-Ameríku,
-........... .......... <
Vaknaði upp við
vondan draum!
Fyrir skömmu fannst maður
nokkur á sundi í náttfötum
einum saman á Eystrasalti.
Honum vildi það til happs að
sovézka fiskimenn bar þar að
og björguðu þeir honum. Mað-
ur þessi var farþegi á skipi að
nafni Marieboot. Hann dreymdi
að skipið væri að sökkva,
hrökk upp með andfælum og
stökk fyrir borð án þess að
gera sér grein fyrir aðstæð-
um. Hafði hann síðan svamlað
í sjónum klukkustund áður en
honum var bjargað.
sem hefur Debray í haldi.
Hvorki ógnanir né bænir frá
Bandaríkjunum og Evrópu hafa
getað létt aðstæður fangans.
Regis Debray situr í herfang-
elsinu í Camiri í Bolivíu.
Ákæran, eins og hernaðaryfir-
völd hafa sett hana fram hljóð-
ar upp á hvatningu til öeirða.
Dómurinn hefur þegar verið
kveðinn upp í blöðunum, sem
stjómin hefur á valdi sínu:
Skotinn til bana.
Forseti Bolivíu, Rene Barien-
tos hefur sagt: „Regis Debray
er ævintýramaður sem kom til
Bólivíu til að dreifa sorg í bóli-
viskum fjölskyldum. Við viljum
binda endi á ævintýri hans.“
En hver er Regis Debray?
Byltingarmaður
Þessi 26 ára gamli Frakki var
svo til óþekktur utan þröngra
hringja vinstrisinna, þegar yfir-
völdin í Bólivíu skýrðu frá þvi
fyrir nokkrum mánuðum, að
Debray hefði verið tekinn til
fanga hinn 20. apríl síðastliðinn
í hernaðaraðgerðum gegn skæru
liðum í suðausturhluta Bóliviu.
Það var vitað. að hann hafði
skrifað rit um byltingarkenn-
ingu — „Byltingin í bylting-
unni.“ Það var vitað að hann
var aðdáandi Che Guevara og
vinur Fidels Caströ og hann
hélt fyrirlestra reglulega við
Háskólann í Havana.
En Regis Debray er ekki
venjulegur ferðalangur í bylt-
ingu- Róttækar skoðanir hans
er árangur af margra ára námi,
fyrst í Ecole Normale Superie-
ure og þvi næst í Sorbonne. Það
var lestur — en ekki fátækt
— sem sannfærði hann, og hann
hikaði ekki við að hefjast handa
i samræmi við skoðanir sínar.
Þar með varð hann tákn
nýrrar kynslóðat' efnum búinna
ungmenna, sem sýna samhug
sinn með fjöldanum í hinum
þriðja heimi í verki. Þess vegna
var hann miklu hættulegri en
þeir menntamenn, sem reka á-
róður fyrir byltingunni í fburð-
armiklum sölum sínum.
1 bókinni Byltingin í bylt-
ingunni setur Debray fram
skoðanir sem eru mjög svipað-
ar skoðunum Castros og Gue-
vara. Hann vísar hinum hefð-
bundnu aðferðum kommúnista-
flokka í Suður-Ameríku á bug
Regis Debray.
GISLI H. ERLENDSSON
Skálda skapið þyrst
skorti ei orða val,
áttir ungur vist
inni í lista sal.
Skáldagyðjan gaf
góðan morgunskatí,
skilnings töfratraf
traust að enni batt.
Ungan þekkti ég þig
þú varst gáfað barn.
Yfir auðnustig
út á lífsins hjarn
virtist lögð þín leið
lífs í ólgusjó.
Stundum stjarna heið
starfs þér gleði bjó.
Lilja Björnsdóttir og Gísli H. Erlendsson.
Láfni mágur minn,
minnast vil ég þín.
Svanasöngur þinn
sæll í minning skín.
Ljóð og myndrænt mál
aneta kunnir þú.
Vit og viðkvæm sál
vermdist ást og trú.
Þegar birtan brást,
blasti húmið við,
en að elska og þjást
innri sviptur frið
var um allmörg ár
einmitt hlutur þinn,
blæddu sjúkdóms sár
sífellt dýpra inn.
Lokið lífi hér,
ljómar guðdóms skart.
Lengi lýsi þér
ljósið vonar bjart,
bið þér blessunar
brautum nýjum á,
vegir vizku þar
vaxtar mátt þér ljá.
Lilja Björnsdóttir.
og skorar á leiðtoga þeirra að
halda til fjalla, sameinast
skæruliðum og hefja baráttu
gegn borgunum.
„Það er ekki hægt að láta
baráttuna víkja fyrir aðgerðum
á sviði stjórnmála. Baráttan er
hernaðarlegs eðlis og það er að-
eins í eldi hennar sem hægt er
að mynda stiómmálaflokk.“
Uppeldi
Regis Debray er fæddur í
mjög hægrisinnaðri fjölskyldu
í París- Móðir hans var um
fjöldamörg ár fulltrúi hægri
manna í borgarstjórn og í æsku
vakti Regis ekki á sér neina
sérstaka athygli fyrir öfga-
kenndan lifsmáta eða byltingar-
sinnaða rómantík — aðeins fyr-<
ir það, hvað hann var óvenju-
lega greindur.
Hvörfin í lífi hans urðu í
júlí 1962 þegar hann fór til
Venezuela og hitti Elizabeth
Burges, sem var byltingarsinni
úr hópnum um Douglas Bravo.
Elizabeth fylgdi honum til Par-
ísar, síðan til Havana þar sem
Debray komst i kynni við leið-
toga byltingarinnar.
Elizabeth hvarf en Regis
hafði verið leiddur á sporið að
því sem virtist verða ævibraut
hans og yfirvofandi dauði:
byltingin.
Bók hans hefur verið seld í
200 000 eintökum á spænsku og
franska útgáfan er metsölubók.
Hann var með hana á sér
þegar sérdeild úr bólivíska
hernum tók hann í úthverfi
þorps eins sem skæruliðar
höfðu verið að gera árás á. Hún
er álitin úrslita sönnunargagn
gegn honum.
Sjálfur heldur Regis Debray
þvi fram að hann hafi tekið
þátt í skæruliðaferðinni sem
blaðamaður — fréttamaður
mexikanska tímaritsins Suceros.
Ritstjórn þess hefur viðurkennt
að svo væri og haldið því fram
við bólivísk yfirvöld en án ár-
angurs.
Réttarhöld
Eftir fjögurra mánaða ‘ ein-
angrun er Debray nú leiddur
fyrir rétt — fölur eftir dvöl
sína í fangaklefanum og magur
eftir hungurverkfall, sem hann
fór í til að mótmæla því að
honum hafði verið fenginn bóli-
vískur verjandi sem hann vildi
ekki hafa.
Nokkur af bréfum hans úr
fangelsinu hafa verið birt £ Le
Figaro Litterare. Þar kemur í
ljós dvínandi trú hans á bóli-
vísku réttarkerfi og fullvissa
hans um það að ákvörðun í máli
hans hafi verið tekin fyrirfram
og hann fái þyngstu refsingu.
Nöfn umsækienda
verða ekki birt
Mörgum er forvitni á að vita
hverjir voru umsækjendur um
starf forstjóra Norræna húss-
ins, sem veitt var um síðustu
helgi, og þá sérstaklega hverj-
ir vora hinir fjórir íslenzku
umsækjendur.
Þjóðviljinn spurðist því fyrir
um þetta hjá Ármanni Snæv-
. arr, form. stjórnar Norræna
hússins, en fékk þær upplýs-
ingar einar að stjórnin hefði
ókveðið á fundi þegar i apríl
að ekki yrði birt opinberlega
hverjir umsækjendur væru.
HELSINKI 23/8 — í frétt u.m
íund utanríkisráðherra Norður-
landa í Helsinki, sem iauk i
dag, segir m.a. að rætt hafi
vex-ið um lendingarrétt Loft-
leiða á Norðui'löndunum. Hafi
í'áðheri’amir komið sér saman
um að efna til í'áðherrafundar
um málið í Kaupmannahöfn í
næsta mánuði í þvl augnamiði
að leysa þennan vanda sem
fyrst.