Þjóðviljinn - 25.08.1967, Síða 1
Föstudagur 25. ágúst 1967 — 32. argangur — 189. tölublað.
Fyrsia lending Gullfaxa á Ak ureyri
Á tuttugu mín. frá Ak-
ureyri til Kefiavíkur
Sovézkir og Bandaríkjamenn sammála um
Uppkast samnings um bann
við dreifingu kjarnavopna
GENF 24/8 — Fulltrúar Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna á afvopnunarráðstefnunni í Genf, þeir
Foster og Rosjín, lögðu fram í dag samhljóða upp-
kast að samningi um bann við útbreiðslu kjarna-
vopna. Er þetta árangur flókinna viðræðna milli
þessara stórvelda sem staðið hafa í tvö ár.
sagt að ekki skipti mestu hverj-
ir réðu fyrir kjamavopnum
heldur hitt að menn vildu eitt-
hvað á sig leggja til að illt á-
stand versnaði ekki. Brezka og
sænska stjómin hafa og lýst
ánægju sinni. Franska stjórnin
hefur ekki fulltrúa á Genfarráð-
stefnunni og virðir ekki ákvæði
hennar.
Við komu Gullfaxa til Akureyrar. Fremst á myndinni sjást talið frá hægri: Birgir Kjaran, förm.
stjórnar F.Í., Ingólfur Jónsson samgöngumálaráðherra, Magnús Jónsson fjármálaráðherra, Kristján
Kristjánsson, einn af stofnendum F.í. og Óttar Möller forstjóri Fimskipafélags íslands. Lengst til
vinstri á myndinni er Bjarni Einarsson bæjarstjóri á Akureyri. — (Ljósm. Þjóðv. Hj. G.).
=<S>
Á kost á
kjötinu í
heildsölu
Togarasjómenn hjá Bæj-
arútgerð Reykjavíkur telja
eins og getið var hér í blað-
inu í gær, að fullrar hag-
sýni sé ekki ætíð gætt í
rekstrinum og benda m.a.
á, að kosturinn sé að veru-
iegu leyti keyptur í smá-
sölu með margfaldri á-
lagningu.
Innkaupastjóri BÚR vill
ekki kannast við þetta og
telur hann, að kosturinn sé
yfirleitt keyptur í heild-
sölu og stendur þarna stað-
hæfing á móti staðhæf-
ingu. En er hægt að kaupa
kjöt í heildsölu?
Guðjón Guðjónsson, ior-
stöðumaður hjá Afurða-
deild SÍS, sagði í viðtali
við Þjóðviljann i gær, að
BÚR ætti kost á því að
kaupa kjöt hjá þeim i
heildsölu.
Það segir Vigfús Tóm-
asson, sölustjóri hjá Slát-
urfélagi Suðurlands, enn-
fremur og BÚR hafi ætíð
fengið kjöt hjá sér á heild-
söluverði, en þau viðskipti
hafi verið ákaflega lítil á
undanförnum árum, —
hafi þeir örsjaldan hlaup-
ið í skarðið með útvegun
á kjöti að því er virðist,
þegar það var ekki fyrir
hendi hjá aðalviðskiptaað-
ilanum, Kjötbúðinni Borg.
Þúsundir Akureyringa íögnuðu komu Gullfaxa,
hinnar nýju þotu Flugfélags íslands, er hann lenti
í fyrsta sinn á Akureyrarflugvelli í fyrrakvöld.
GuIIfaxi flaug þaðan á 20 mínútum til Keflavík-
urflugvallar, en farþegar voru ekki komnir til
Reykjavíkur fyrr en tæpum tveim tímum eftir að
lagt var af stað frá Akureyri.
Samkvæmt uppkastinu er^
kj arnorkuveldum bannað að
láta af hendi kjarnavopn við
önnur ríki eða fá þeim í hend-
ur eftirlit með slíkum vopnum,
og kjarnavopnalausum löndum
er bannað að kaupa slik vopn
eða framleiða þau.
Stórveldin tvö hafa ekki kom-
ið sér saman um það með hvaða
hætti beri að hafa eftirlit með
framfylgd slíks sammngs — er
enn eyða fyrir ákvæði um þá
hluti og verður að leysa það
á ráðstefnunni. Sovétríkin eru
sögð vilja að alþjóðlegu kjarn-
orkumálastofnuninni í Vín verði
falið að annast allumsvifamikið
eftirlit.
★
í uppkastinu segir að öll lönd
sem undirrita samninginn hafi
rétt til rannsókna á og hagnýt-
ingar kjarnorku í friðsamlegum
tilgangi. Kjarnorkuveldin og
þau 25 ríki sem sæti eiga í
stjórn alþjóðlegu kjarnorku-
málaskrifstofunnar fá neitunar-
vald að því er varðar breyting-
ar á væntanlegum samningi. Þá
er kveðið svo á að samningurinn
verði á ný tekinn til meðferðar
í Genf að liðnum fimm árum
frá samþjdíkt hans.
Johnson forseti hefur lýst
ánægju sinni yfir uppkastinu og
Verkfall yfir-
hjá SAS
KAUPMANNAHÖFN 24/8 —
Verkfail vofir nú yfir SAS-flug-
félaginu og er ástæðan megn ó-
ánægja meðal flugfreyja og
flugþjóna með vinnuskilyrði og
ýmislegt fleira. Það hefur til að
mynda orðið mikið gremjuefni
að japanskar fllugfreyjur hjá
SAS fá aðeins fjórðung þeirra
launa sem starfssystur þeirra
norrænar fá og hafa þar að
auki engin ákvæði um vinnu-
tíma og hvíld.
II verklýðsfélög opna skríf-
stofur á morgun á nýjum stað
Húseiguin að Skólavörðustíg 16.
■ Skrifstofur ellefu verkalýðsfélaga eru þessa dagana
að flytja milli húsa hér í borginni og eiga þau öll sam-
merkt að hafa áður verið til húsa að Skipholti 19 hér í bæ.
■ Á morgun, laugardag, opna þessi verkalýðsfélög skrif-
stofur sínar að Skólavörðustíg 16. Hefur verið gengið þar
frá innréttingum á öllum skrifstofum.
I nóvember 1966 var gengið
frá kaupsamningi á húseigninni
að Skólavörðustíg 16 millli níu
Agnar Kofoed Hansen, flug- ^
málastjóri minnti á það í lok
hinnar fyrstu ferðar þotunnar
til A'kureyrar, að hann hefðifyr-
ir 30 árum skilað fanþegum milli
Akureyrar og Reykjavíkur á 2
mínútum skemmri tíma en þot-
an nú. „Svo eru menn að tala
um framfarir", sagði þá IngólE-
ur Jónsson samgöngumálaráð-
herra, en Magnús Jónsson fjár-
málaráðherra, sem einnig var
með í ferðinni, lagði ekkert til
málanna.
Sem kunnugt er var ríkisá-
byrgð vegna kaupanna bundin
því skilyrði að vélin lenti ekKi
á Reykjavíkurflugvelli og hefur
engin viðhlítandi skýring verið
gefin á því. Flugfélagsmönnum
er að sjálfsögðu áhugi á að fá
þessu banni aflétt, og Jóhannes
Snorrason flugstjóri sýndi mönn-
um það ljóslega í fýrrakvöld að
ekki þarf þotan lengri flug-
brautir en aðrar fiugvélar, nema
síður sé. Vakti það miklahrifn-
ingu er hann stöðvaði Gullfaxa
framan við fiugstöðvarbygging-
una og ' hafði þá notað aðeins
hálfa brautina til lendingar.
Framhald á 7. síðu.
Sjávarútvegsnefnd tilkynnir:
Tilraunir verða nú hafnar
mei flutninga á fersksíld
■ Síldarútvegsnefnd hefur nú á'kveðið að hafa forgöngu
um að gerðar verði ýmsar tilraunir í sambandi við flutn-
ing á fersksíld af fjarlægum miðum til söltunar eða fryst-
ingar í landi.
Á sunnudaginn vakti Þjóðvilj'-
inn athygli á því, hvernig ríkis-
stjórnin hefði svikið fyrirheit
sín til Siglfirðinga um fyrir-
greiðslu vegna síldarflutninga í
sumar. Tveim dögum síðar gerði
síldarútvegsnefnd svofellda ein-
róma samþykkt á fundi sínum:
„Síldarflutningar á fersksíld
frá fjarlægum miðum til sölt-
unar eða frystingar í landi eru
svo sem kunnugt er ýmsum
annmörkum háðir.
Ekki liggur enn sem komið
er ljóst fyrir hvaða leið er hent-
ugust til þess að koma síldinni
til verkunar í sem beztu ásig-
komulagi og með sem minnstum
kostnaði á hverja smálest síldar.
Síldarútvegsnefnd telur nauð-
synlegt, að áður en ákveðin leið
sé valin í þessu skyni séu gerðar
Semja Nasser og Feisal frið í Jemen?
Sjá 0 síðu
tilraunir um mismunandi að-
ferðir við flutning síldarinnar
og meðferð áður en hún kemur
í land. T.d. þarf að gera við-
tækan samanburð á því að salta
síldina um borð í veiðiskipun-
um í tunnur a venjulegan hátt,
eða ísa hana í veiðiskipunum
eða varðveita hana á annan hátt
eða umskipa henni og ísa í stium
eða kössum um borð í flutninga-
skipum eða setja síldina haus-
aða eða óhausaða í pækilkör eða
pækiltanka eða kældan sjó um
borð í sérstöku flutningaskipi
eða tankskipi eða fara einhverj-
ar aðrar leiðir til hagnýtingar
síldar á fjarlægum miðum, svo
sem Norðmenn gera um borð
í m/s Kosmos IV.
Síldarútvegsnefnd samþykkir
að fela framkvæmdastjórnm
nefndarinnar, Gunnari Flóvenz
og Jóni Stefánssyni, að hafa
Framhiald á 7 síðu.
verkalýðsfólaga og Ásbjörns Ól-
afssonar og keyptu þessi verka-
lýðsfélög húseignina fyrir 13
miljlónir króna.
Áður höfðu verkalýðsfélögin
fengið 12 rniljón króna lán úr
Atvinnuleysistryggingasjóði til
15 ára á 6 prósent vöxtum til
þessara kaupa.
Stærstu hluti í húsinu eiga
Iðja, félag verksmiðjufólks 43
prósent, Félag jámiðnaðarmanna
30% og Félag bifvélavirkja 10
prósent. Aðrir eigendur eru Fé-
lag ísH.' kjötiðnaðarmanna, Málm-
og skipasmíðasamband íslands,
Framhald á 7. síðu.
New York greið-
ir atkvoði um
Vietnamstríðið
NEW YORK 24/8 — Friðar-
nefndin í Fimmta stræti í New
York hefur nú þegar safnað 52
þúsund undirskriftum undir
kröfu um almenna atkvæða-
greiðslu um styrjöldina í Viet-
nam sem fari fram um leið og
kosninga ýmissa embættis-
manna.
Ekki þarf nema 200 undir-
skriftir til að kref jast slíkrar at-
kvæðagreiðslu samhliða almenn-
umkosningum í borginni. Nefnd-
in berst fyrir því að Bandarikja-
menn hætti þátttöku í styrjöld-
inni og verði á brott með her
sinn frá Vietnam.