Þjóðviljinn - 25.08.1967, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 25.08.1967, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJIÓÐVTWINN — Föstudiagur 25. ágiúst 1967. Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu ■ — Sósíalistaflokk- urinn. : Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingástj.: Sigurður T. Sigurðsson. : • Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, áfgreiðsía,' aúglýsingar, prentsmiðja Skólavörðustíg 19. Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuði.; — Lausasöluverð krónur 7.00. t-------------------------------------------------------- Kast/jós að nátttröllum gtraumsvíkurdeilan hefur orðið til þess að Beina skörpu ljósi að viðleitni 'Vinnuyeitendasam- bandsins svonefnda til bandalags við. erfend stór- fyrirtæki og auðhringa. Alþýðublaðið hefur í for- ystugrein tekið kröftulega undir ádeilu Þjóðvilj- ans á þessu fyrirbæri, og segir m.a._ í, fyrxgdag: „Vinnuveitendur verða að-gera sér ljóst,'að verka- lýðshreyfingin. og verkalýðsflokkar muiiu ekki samþykkja starfsemi erlendra aðila-hér á landi, ef þeir eiga að styrkja atvinnurekendasamtökin á kostnað verkalýðshreyfingarinnar. Það er ■’ekki ætlunin að erlent fjármagn og erlendir verktakar raski á þann hátt jafnvægi íslenzks þjóðfélags.“ Alþýðublaðið beinir einnig harðri ádéilu til Vinnu- veitendasambandsins fyrir framkomu þess í Straumsvíkurdeilunni. „Ef Straumsvíkurdeilan verður til áhrifa á allt efnahagskerfi þjóðarinnar, verður það vegna þess, að Vinnuveitendasamband- ið hefur sett málið á það svið“, segir Alþýðublaðið í forystugrein og bætir við: „Það var. vinnufriður við Búrfell og í Straumsvík, þar til Vinnuveit- endasambandið komst í málið“. J viðtali við Þjóðviljann i gær koam svipað fram hjá Eðvarð Sigurðssyni, formanni Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar, sem fordæmdi hinar fárán- legu yfirlýsingar Vinnuveitendasambandsins um Straumsvíkurdeiluna, og staðfesti það sem Verkamannafélagið Hlíf lýsti yfir, að samningarn- ir sem gerðir voru við Vinnuveitendasambandið og Fosskraft um vinnu við Búrfellsvirkjunina eru í meginatriðum hinir sömu og Hlíf gerði í vor við hina þýzku verktaka í Straumsvík, — en Vinnu- veitendasambandið segir nú um þá samninga að þeir hafi verið „tilræði við íslenzkt atvinnulíf“! Jafnframt er látið líta svo út, sem Sameignarfélag- ið Fosskraft sé Vinnuveitendasambandinu alger- lega óviðkomandi, enda þótt skýrt hafi verið frá því í blaði sambandsins að Fosskraft hafi gengið í Vinnuveitendasambandið á sl. ári! Eðvarð minn- ir á hve samningsgerðin við Búrfell hafi dregizt óhæfilega vegna hinnar neikvæðu afstöðu Vinnu- veitendasambandsins, svo loks varð að gera sér- stakt samkomulag við verktakann Fosskraft, eins og gert var við hina þýzku verktaka í Straumsvík um framkvæmd kaupgjaldsákvæða. Á báðum stöð- um virðist hin staðnaða, neikvæða afstaða Vinnu- veitendasambandsins hafa stefnt málum í algjört óefni, 'svo árangurinn gæti orðið endalausar vinnu- stöðvanir ef nátttröll Vinnuveitendasambandsins væru látin ráða. Ofstæki þessara samtaka gagm- vart hverjum sanngjörnum kröfum verkalýðsfé- laganna er farið að ganga út 1 slíkar öfgar, — sam- anber yfirlýsingar þess um Straumsvíkurdeiluna, að ekki verður jafnað til annars en algjörs ábyrgð- arleysis og tillitsleysis um allt — nema þá „hug- sjón“ forystumanna saimbandsins að berjast gegn verkalýðshreyfingunni, leggjast af alefli gegn hverri kiarabót og réttarbót vinnandi fólks á Is- landi. — s. Síberíu í MOSKVA APN — Saga Síber- íu er nýkómin út í Moáfcvu í fimm bindum. Þetta er fyrsta ítarlega' vcrkið .um sögu Síber- íu og háfa 130 ' sérfræðingar: lagt í púkkið. 1 : , I fyrsía binöi er fjalláð úm Síberiú 'frá eldri ’steinölö og fram á 16du öld. '1 öðru 'bindi er fjáKláð um tímabilið 'frá 16. öld og Jfrám'’ til' þess -ér 'átth'agá-' fjötrar vöru; afnumdir 1861 og þriðja’ bindið nær fram" tij 1917.: 1 fjörða bindi ér- fjalíað Utn baráttuna-fyrir-sigr-i-þyltingar- innar og uppbyggingu sósíal- ismans í Síberíu. Það er sagt frá baráttu síberskra verka- manna og bænda undir for- ustu bolsévika endurreisn at- vinnuveganna og iðnvæðingu, framkvæmd samyrkjubúskap- arhugmynda Leníns og menn- ingarbyltingu. Þá er skýrt frá þýðingu Síberíu i stríðinu gegn fasismanum og hinu mikia hlutverki siberskra hermanna i fremstu víglínu í stríðinu. * I fimmta og síðasta bindinu er nákvæmlega skýrt frá eftir- stríðsárunum sem hafa verið mestu breytingaárin í sögu Sí- beríu, er orkuver hafa verið reist, þungaiðnaður byggður upp, efnaiðnaður, námugröftur o.s.frv. Þar er sagt frá notkun óhemjumikilla náttúruauðlinda, ræktun, og framförum í land- búnaði og upphafi nýrra mið- stöðva vísinda og lista. A TÆGUNNI. — Sí og æ fjölgar nýjum vegum, iðjuver eru reist, byggðahverfi og borgir, en alltaf eru jarðfræðingar og landmælingamenn fyrstir á ferð. Aukið starf SÍSE heima og erlendis Þíng íslenzkra stúdenta hald- ii í fyrsta sinn þetta haust skólakennari, hefur verið skip- uð til þess að hafa yfirumsjón með þessum kynningum að hálfu SÍSE Bent var á, að vegna hins mikla fjármagns og tíma, sem slíkar kynningar kréfjasf væri eðlilegt að komið yrði á fót námskynningarstofnun, er annaðist framkvæmd' þessara mála í samráði við stúdenta og væri kostuð af því opin- bera. ■ í fréttatilkynningu sem blaðinu hefur borizt um aðal- fund SÍSE, Sambands íslenzkra stúdenta erlendis, kem- ur fram m.a. að í byrjun september verður í fyrsta sinn efnt til íslenzks stúdentaþings. Á þinginu munu sitja full- trúar SÍSE og SHÍ og er þar kominn vísir að skipulags- bundnu samstarfi allra íslenzkra stúdenta. Aðalfundur SÍSE var hald- inn 16. og 17. ágúst sl. og sátu hann um 25 fulltrúar frá 10 'þjóðlöndum auk áheyrn- arfulltrúa frá SHÍ, Stúdenta- ráði Háskóla íslands. Kjörin var ný stjóm: Þorvaldur Búason formaður, Sven Þ. Sigurðsson varaform, Þórður Vigfússon ritari, Þorvaldur Ólafsson og Stefán Glúmsson meðstjómandi. Stúdentaþing Á fundinum voru gerðar samþykktir um aukið starf SÍSE heima og erlendis. Út- gáfu SÍSE-blaðsins, sem hófst á síðastliðnum vetri verður haldið áfram í vetur. Ritstjóri var skipaður fráfarandi for- maður, Gylfi fsaksson, verk- fræðingur. Einnig voru sam- þykktar ályktanir um sam- starf SÍSE og SHÍ, einkum með tilliti til stúdentaþings, sem haldið verður í byrjun september. Á þinginu_ munu sitja fulltrúar frá SÍSE og' SHÍ, og er þar kominn vísir að skipulaggbundnu samstarfi ' allra íslenzkra stúdenta, sem stefnt hefur verið að undan- ■ farin ár. Viðbótarlánasjóður Hagsmunamál stúdenta voru mikið rædd. Fagnað var lög- um um námslán og styrki, sem samþykkt voru á Alþingi á s.l. vori, sérstaklega ýmsum nýmælum, svo sem afnámi déildaskiptinga milli náms- manna heima og erlendis og kandidatsstyrkjum. Hins veg- ar var harmað, að ekki eru í lögunum tímamörk um það, hvenær markmiði laganna skyldi náð, þ.e. að opinber aðstoð við námsmenn nægi hverjum námsmanni til að standa straum af árlegum námskostnaði, þegar eðlilegt tillit er tekið til aðstöðu hans til fjáröflunar. Lögð var áherzla á, að í væntanlegri könnun á námskostnaði stúdenta komi fram raunveruleg fjárþörf þeirra svo og að kannað verði, hversu margir stúdentar hætta námi erlendis eða hefja aldrei nám vegna fjárskorts. Samþykkt var ályktun um að stofna bæri strax viðbót- arlánasjóður, þar sem náms- menn, sem eru illa staddir fjárhagslega, gætu fengið lán með venjulegum bankavöxt- um til viðbótar við opinber lán og styrki. Einnig að tek- in verði upp ríkisábyrgð á lánum námsmanna. Bent var á, að enda þótt þriðjungur allra námsmanna væri nú giftur, er ekkert til- lit tekið til þessara manna í núgildandi lögum, og gerðar voru ýmsar fleiri ályktanir um hagsmunamál. Hilmar Ólafsson, arkitekt, hefur ver- ið skipaður fulltrúi SÍSE um þessi. mál í vetur, Námskynningrar- stofnun SÍSE hefur í samráði við SHÍ skipulagt námskynningar á undanförnum árum. Sam- þykkt var að halda þessu starfi áfram. Þó var ákveðið að fella niður námskynningu þá, sem haldin hefur verið í ágústmánuði, þar sem hún hefur ekki gefið mjög góða raun, en aukin áherzla lögð á námskynningarnar að vor- lagi. Elín Ólafsdóttir, mennta- SÍSE rekur nú sameiginlega skrifstofu með Stúdentaráði Háskóla íslands. Sameigínleg- ur framkvæmdastjóri er Birg- ir Ásgeirsson. Þar eru veittar almennar upplýsingar um nám erlendis. Skrifstofan er í Há- skóla íslands og verður opin á laugardögum eftir að kennslá hefst í háskólanum. Sími er 15959. MARS TRADING CO LAUGAVEG 103 SIMI 17373 KENNARAR No'kkrar kennarastöður eru lausar við Barnaskól- ann. og Gagnfræðaskólann í Keflavík. Upplýsingar gefa.skýlastjórarnir. . . Fræðsluráð Keflavíkur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.