Þjóðviljinn - 07.09.1967, Síða 2
/
2 SlÐA — Þ JÓÐVILJINN — Firmntudagur 7. september 1067.
ÍR-ingar náðu aEfgóðum árangri í
frjálsíþróttakeppni á Bislet, Osló
ÍR-ingar, sem hafa verið á
keppnisferðalagi um Norður-
lönd að undanförnu, kepptu á
Bislet-leikvangi í Osló 31. ág.
og 1. september. Var það fyrsta
keppni þeirra í ferðinni og er
óhætt að segja að þeir hafi
byrjað vel.
Á fimmtudaginn kepptu ÍR-
ingarnir í stangarstökki, kúlu-
varpi, 800 m hlaupi, kringlu-
kasti og l^ngstökki.
Valbjöm Þorláksson sigraði i
stangarstökki, og stökk 4,20 m.
en annar varð Norðmaður,
stökk 4 metra.'
1 kringHukasti • sigraði norski
methafinn Sten Haugen og
kastaði 52,42 metra. Erlendur
Valdimarsson varð í fjórða æti
með 47,38 m.
Langstökkið fór fram um
leið og stangarstökkið og missti
Valbjöm því af keppninni í A-
riðli, en hann var skráður þétt-
takandi þar. Hann fékk hins-
vegar að stökkva með B-riðils
mönnum og stökk þá 6,94
metra og átti ógilt stökk um
7.20 m, sem hefði dugað til að
vinna langstökkskeppnina, en
hún vannst á 7,02 m.
í kúluvarpinu sigraði Erlend-
ur Valdimarsson eftir harða
keppni og skemmtilega vð fyrr-
verandi norskan methafa Stein
Haugen, sem bezt á 16.30 m.
Erlendur varpaði kúlunni 15,05
metra, en Haugen 14,92 m.
Þórarinn Arnórsson keppti í
800 metra hlaupi, en þar vom
þátttakendur 30 talsins. Varð
Þórarinn 11. í röðinni.
Voru iR-ingar ónaegðir með
árangurinn fyrsta keppnisdag-
inn.
Veður var mjög gott í Osló
1. september, sólskin og hiti og
keppnisveður í alla staði gotr.
Keppnin var mjög skemmti-
leg í ýmsum greinum og þá
sérstaklega 1 5000 metra hlaup-
inu, en þar hljóp í fyrsta skipti
einn efnilegasti millivega-
Björk Ingímundardóttir setti
nýtt met í fímmtarþrautmni
Ólafur Guðmundsson Íslandsmeistari í tugþraut
□ íslandsmeistaramótinu í
frjálsíþróttum lauk um síð-
ustu helgi. Keppt var í fimmt-
arþraut kveniia og 10 km
hlaupi, 4x800 m boðhlaupi og
tugþraut karla.
í fimmtarþraut setti Björk
Ingimundardóttir UMSB, nýtt
! íslandsmet, hlaut 3547 stig. —
AJLlPÝDJJ !
BANDALAGIÐ j
I REYKJAVÍK ;
Alþýðubandalagið í Rvík ■
hefur nú opnað skrifstofn ■
sína reglulega á nýjan leik. :
Verður skrifstofan opin frá :
kl. 2—7 síðdegis, frá mánu- j
degi til föstudags. Skrifstof- *
an er að Miklubraut 34, j
síminn er 180 81. Guðrún j
Guðvarðardóttir hcfur ver- j
, ið ráðin starfsmaður AI- j
þýðubandalagsins i Reykja- :
vík. Eru félagsmenn og aðr- j
ir Alþýðubandalagsmenn j
hvattir til að hafa samband j
við skrifstofuna.
&■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■<
Gamla metið átti Sigríður Sig-
urðardóttir, ÍR, 3532 stig, sett
1964. •
Afrek Bjarkar í einstökum
greinum voru sem hér segir:
, 80 m grindahlaup 14,4 sek.,
kúluvarp 8,55 m, hástökk 1,40
m, langstökk 5,36 m og 200
m hlaup 27,1 sek. Afrekið í
langstökki er 4 cm betra en ís’-
landsmetið, en ekki er enn
vitað hvort það verður stað-
fest, þar sem meðvindur var,
nokkur. Tíminn í 200 m hlaupi
er sá sami og íslandsmetið, sem
Björk ásamt Kristínu Jóns-
dóttur, UMSK og Þuríði Jóns-
dóttur, HSK.
Lilja Sigurðardóttir, HSÞ,
varð önnur, hlaut 3541 stig,
sem einnig er betra en gamla
íslandsmetið.
Árangur Lilju í einstökum
greinum var þessi: 80 m gr.-
hlaup 12,3 sek., kúluvarp 7,16
m, hástökk 1,40 m, langstökk
5,05 m 200 m hlaup 27,5 sek.
Tíminn í 80 m grindahlaupinu
er 4/10 úr sek. betri en ís-
landsmetið, sem Lilja á sjálf,
en meðvindur var nokkur eins
og í langstökkinu.
Hrefna Sigurjónsdóttir, ÍR,
varð þriðja, hlaut 2582 Stig.
Einstök afrek: 15,2 sek., 6,55
m, 1,15 m, 4,21 m, 29,5 sek.
Ólafur Guðmundsson varð
sigurvegari í tugþraut
Ólafur Guðmundsson, KR,
varð íslandsmeistari í tugþraut,
en keppnin fór fram um helg-
ina. — Hann hlaut samtals
6673 stig. Árángur í' einstök-
um greinum var sem hér seg-
ir: 109 m hlaup 11 sek. réttar,
langstökk 7,08 m, kúluvarp
11 m, hástökk 1,75 m 400 m
hlaup 52,1 sek., llo, m grinda-
hlaup 16,9 sek., kringlukast
34,82 m, stangarstökk 3,52 m,
spjótkast ■ 52,39 m og 1500 m
hlaup á 4 mín. 34,4 sek. Ólaf-
ur hefur einu sinni náð betri
árangri.
Annar varð Páll Eiriksson,
KR, hann hlaut 5831 stig, sem
er hans bezti árangur.
Halldór Guðbjörnsson, KR,
varð íslandsmeistari í 10 km
hlaupi, hljóp á 34:11,9 sek. —
Sveit KR varð íslandsmeistari
í 4x800 m boðhlaupi, hljóp á 8
mín. og 50,9 sek, Loks var
keppt i 1500 m hindrunarhl.
Unglingameistaramóts íslands.
Ólafur Þorsteinsson varð sig-
urvegari, hljóp á 5:30,6 sek.
lengdahlaupari Norðmanna um
þessar mundir. Sigraði hahr.,
hijóp vegalengdina á 14.00,6
mín.
Jón-Þ. Ólafsson sigraði nokk-
uð örugglega í hástökki, stökk 2
metra. A.nnar varð Arne Holm
með 1,93 m. Erlendur Valdi-
marsson keppti í hástökkinu og
stökk 1,80 m.
I 110 m grindahlaupi átti
Valbjöm við ramman reip að
draga, en þar var meðai kepp-
enda Kjellfred Weum, nýþak-
aður Norðurlandamethafi í
greininni (13,7 sek.). Sigraði
hann ,á 14.1 sek. en VaBbjörn
varð fjórði á 15,1 sek.
Þórarinn Arnórsson hljóp
400 metrana á 50,7 sek. sem er
langt frá bezta árangri hans.
Virtist hann dálítið þúngur í
hlaupinu. Sigurvegari varð Pól-
verji, hljóp á 47,1 sek.
1 einni grein enn kepptu Is-
lendingarnir á Bislet og það
var í spjótkasti, þar sem Willi
Rassmussen sigraði með 76,04
metra kasti, sem er hans
lengsta kast í sumar. Valbjörn
varð frékar aftarlega með 56.33
metra.
(Or bréfi frá Karli Hólm).
17 síldveiðiskip
með 2245 lesfir
Veður var gott á miðunum f
fyrrinótt og gærmorgun. Veiði-
svæðið var á svipuðum slóðum
og undanfama daga. Fannst
allmikið af síld, en hún stóð
djúpt og var stygg og gekk því
illa að ná henni. Einstaka skip
fékk góða veiði, en önnur litið
og ekki neitt.
17 skip tilkynntu um afla,
2.245 lestir alls. Skipin voru
þessi:
Pétur Thorsteinsen BA 115
Oddgeir ÞH 150
Guðbjörg GK 40
Guðrún Jónsdóttir ÍS 80
íslenfur IV. VE 80
Búðaklettur GK 200
Gullver NS • 220
Margrét Sl 100
Jón Kjartansson SU 230>
Elliði GK 150
Björg NK 100
Sléttanes ÍS 320
Valafell II. SH 90
Hamravík KE 90
Skarðsvik SH 90
Jigurðúr Jónss. SU 110
Ásþór RE 80
!■■■■■■■■■■■■■•■■■•■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■•■■■•■■•■ ■•■■■■■■■■■ •***•••■■■•■
ó-
ræk
sonnun
Morgunblaðið reynir í gær
að vefengja þau ummæli
Þjóðviljans að sjávarútveg-
urinn hafi reynzt íslending-
um arðsöm atvinnugréin og
að sveiflur í honum séu ekki
meiri en í þeim atvinnugrein-
um öðrum sem beztar eru
taldar í veröldinni. Um þau
atriði er óþarfi að déila;
hagskýrslurnar eru óræk
sönnun Síðan íslendingar
fengu fullveldi og tóku sjálf-
ir við stjórn atvinnumála
sinna hefur hagþróun hér-
lendis verið mjög ör og mun
örari en hjá flestum þjóðum
öðrum. Það má meðal ann-
ars marka af því að fyrir fá-
einum mánuðum gumuðu
stjórnarblöðin af því, með í-
vitnunum í alþjóðlegar hag-
skýrslur, að íslendingar væru
nú komnir í þriðju eða fjórðu
röð meðal þjóða heims að því
er varðar þjóðartekjur á
mann — franh úr ýmsum há-
þróuðum iðnaðarþjóðum.
Þessi auðlegð er fyrst og
fremst árangur sjávarútvegs-
ins; hann hefur reynzt okk-
ur einhver arðbærasta at-
vinnugrein sem um igetur i
víðri veröld. Auðvitað hafa
orðið sveiflur margsinnis á
þessu tímabili, bæði á afla-
magni og verðlagi, en heild-
arárangurinn sannar að þaer
sveiflur hafa verið sízt meiri
en hliðstæð vandamál sem
aðrar atvinnui*reinar eiga við
að etja, einnig stóriðjan.
Það er úrelt viðhorf að
telja sjávarútveg gersamlega
háðan veðurfari og svoköll-
uðum duttlungum sjávardýra.
Umtalið um duttlungana staí-
ar frá þeim tíma þegar þekk-
ing manna var ákaflega tak-
mörkuð; hún hefur stórauk-
izt á undanförnum áratugum
og mun halda áfram að auk-
ast, e'n• öll slík vitneskja ger-
ir fískveiðar bæði öruggari og
auðveldari. Ekki er veðurfar-
ið heldur nándar nærri sama
vandamál og áður fyrr; því
valda ný og traust skip og
gerbreytt tækni. Það er eins
með fiskveiðar og annað, að
verkefni manna er að stand-
ast náttúruöflin og ná valdi
á þeim með vísindum og
tækni. Á þeim vettvangi hafa
orðið miklar framfarir hér-
lendis í sambandi við fisk-
veiðar, og það er .gersamlega
ástæðulaust að tala um okkur
sem einhver varnarlítil fóm-
arlömb óskiljanlegra náttúru-
afla eins og Morgunblaðið
gerir þessa ,dagana.
Engu að síður er fjarska
mikið ógert í þesum aðalat-
vinnuvegi íslendinga. Þar ber
hæst þá staðreynd að fisk-
iðnaður er á frumstigi hér-
lendis; við höfum lagt aðal-
áherzlu á aflamagn, en selj-
um síðan aflann að verulegu
leytl sem hráefni handa öðr-
um þjóðum. Fyrir fáeinum
árum greindi Davíð Ólafsson,
þáyerandi fiskimálastjóri, svo
frá að ef fiskiðnaður stæði
hér á svipuðu stigi og í Vest-
ur-Þýzkalandi væri hægt að
tvöfalda verðmæti útflutn-
ingsins, auka útflutningstekj-
urnar semsé um fimm til sex
miljarða á ári miðað við á-
standið nú. Slíkur fiskiðnaður
myndi að sjálfsögðu draga
úr sveiflum í sjávarútvegi;
aflamagnið yrði þá ekki jafn
mikið úrslitaatriði og nú, og
verð á fullunnum vamingi er
ævinlega stöðugra en á hrá-
efnum. Þarna er sú þróunar-
braut sem augljóslega blasir
við íslendingum, ef menn
hugsa rökrétt. En til þess að
velja þá braut þurfa menn
að hafa trú á íslenzku fram-
taki, í stað þess að fórna
höndum og kalla á erlenda
forsjá ef eitthvað bjátar á.
— Austri.
Nýtt íslenzkt drengjamet /
400 m hlaupi á Hafnarmótí
Eins og frá hefur verið skýrt
í blöðum tóku átta reykvískir
unglingar þátt í íþróttamóti í
Kaupmannahöfn dagana 30. ág-
úst til 1- september sl.
Mót þetta var einn liður í
hátíðahöldum í sambandi við
800 ára afmæli Kaupmanna-
hafnarborgar. — Þátttakendur
vom hátt á þriðja þúsund víðs-
vegar að úr heiminum. Kaup-
mannahafnarborg bauð íslenzka
hópnum frítt uppi'hald í Dan-
mörku í hálfan mánuð, svo og
margar kynnisferðir um landið.
Reykjavikurborg greiddi ferða-
kostnað unglinganna til t>g frá
Kau pmann ahöf n.
Auk frjálsra íþrótta var
keppt í sundi, leikfimi, knatt-
spyrnu, handknattleik, körfu-
knattleik, glímu o. fl. íþróttum.
Var þetta hið veglegasta mót,
enda oft kallað Litlu-Olympíu-
leikamir. - *
Mótið tókst mjög vel og mót-
tökur af hálfu Dana voru á-
gætar. Árangur íslenzku ungl-
inganna var sem hér segir:
Snorri Asgeirsson var nr. 3 i
110 m grindahl. á 16,8 sek. —
(Keppendur voru 8).
Friðrik Öskarsson var nr. 5 i
þrístökki, stökk 12,99 m. (Kepp-
endur voru 8).
Finnbjöm Finnbjörnsson var
nr. 5 í spjótkasti, kastaði 46,04.
(Keppendur vom 10).
Rudólf Adolfsson var nr. 6 í
400 m hl., hljóp á 53,9 sek., sem
er nýtt íslenzkt drengjamet- —
(Keppendur voru 10).
Bergþóra Jónsdóttir var nr.
10 í 200 m hlaupi á 27,4 sek.
(Keppendur voru 18).
Hún tók einnig þátt í 100 m
h'laupi þar' sem hún fékk tím-
ann 13,1 sek. og komst í milli-
riðil. Bergþóra varð í tíunda
sæti. (Keppendur voru 18).
Ingunn Vilhjálmsdóttir var
nr. nr. 7 í hástökki, stökk 1,36.
(Keppendur vom 9).
Eygló Hauksdóttir var nr. 8 i
spjótkasti, kastaði 25,76. (Kepp-
endur voru 10).
Guðný Eiriksdóttir var nr. 14
í langstökki, stökk 4,31. (Kepp-
endur voru 15).
Auglýslng
Vegna malbikunarframkvæmda á Bæjar-
hálsi og Höfðabákka, verða þær götur lok-
aðar frá og með fimmtudeginum 7. sept.,
um óákveðinn tíma.
Á meðan verður Rofabærinn opnaður fyr-
ir gegnumakstur frá Vesturlandsvegi á
Suðurlandsveg.
Ökumenn eru áminntir um að gæta sér-
stakrar varúðar, er þeir aka um Rofabæ-
inn, vegna gangandi fólks og skólabarna.
GATNAMÁLASTJÓRINN í
REYKJAVÍK.
T
■
ÚTSÖLUNNI
lýkur á föstudag
Ó. L. Traðarkotssundi 3
(móti Þjóðleikhúsinu). Sími 23169.
<§itífnenlal
Útvegum eftir beiðni
flestar stærðir hjólbarða
á jarðvinnslutæki
••
Onnumst ísuður og
viðgerðir á flestum stærðum
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholti 35 — Sími 30688
og 31055
/
A