Þjóðviljinn - 07.09.1967, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 07.09.1967, Blaðsíða 9
Fimmtudaigur 7. september 1967 — ÞJÖÐVILJXNN SlÐA 9 Ódýrasta kennslan er sú sem sparar þér tíma. — Talaðu við okkur — það sparar þér mikla fyrirhöfn. AAálaskólinn MÍMIR Brautarholt 4 og Hafnarstræti 15. sími 1 000 4 og 216 55 (kl. 1-7). Toyota Corona Glæsilegur og traustur einkabíll. TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA. Japanska bifreiðasalan hf. Ármúla 7 — Sími 34470. RADI®NETTE tækin eru byggð fyrir hin erfiðustu skilyrði ÁRS ÁBYRGÐ / Radionette-verzlunin Aðaistræti 18 sími 16995 Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2. Bátabylgjur Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu. GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Meðalholti 13, fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 8. þ.m. og hefst kl. 10.30. — Afhöfninni verður útvarpað. Sigríður Guðmundsdóttir. Sólveig Guðmundsdóttir. Óskar GUðmundsson. Jón Rafn Guðmundsson. Ólafur Guðmundsson. Kristrún Guðmundsdóttir. Guðrún Guðmundsdóttir. Vaidimar Kristjánsson. Aðalbjörg Gunnlaugsdóttir. Kristín Jóhannsdóttir. Erna Arngrímsdóttir. Engiibert Sigurðsson. og barnaböm. Innilegustu þakkir færum við öllum þeim. er sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns og föður okkar KRISTINS SIGURÐSSONAR. Fjóla Jónasdóttir, dætur og fósturdaetur hins látna. Sigurþór Árnasou Framhald af 7. síðu. in öíl fengi að njóta kímni- gáfu hans?“ Slík bók verður aldrei skrifuð, einungis vegna þess, að þú munt verða ófáan- legur til að ljóstra nokkru upp, sem viðkemur sjálfum þér. Ég vona að þú reiðist mér ekki, þótt ég geri það að litlu leyti nú, í þessu opna bréfi til þín. Allt vildi ég fremur en falla í ónáð hjá þér. Ég er þvi feg- inn, að aldrei verður skráð ævi- saga þín, því ef svt> færi, mundu allar hinar dásamlegu minningar, sem frændur þínir og vinir eiga um þig, frá liðn- um samvistarárum, missa gildi sitt sem einkaeign fyrir okkur. Jæja frændi saéll, 'ég er ekki viss um, að Þjóðviljinn kæri sig um, að ég leggi allt blaðið undir mig i dag og þess vegna verða þessar línur ekki öllu fleiri- Sennilega hefur aldrei birzt neitt um þig á opinberum vettvangi áður —, nema hvað nafnið þitt hefur að sjálfsögðu árlega komíð fram í skatt- skránni. En ég vona samt að þú leggir það ekki á verri veg en tilefnið leyfir, því að þessar línur eiga aðeins að leggja aukna áherzlu á þær hjartan- legu hamingjuóskir, sem ég og mínir nánustu sendum þér í dag, á þessum merku tímamót- um lífs þíns. Um leið sendum við Höllu frá Fossi alúðarþakk- ir. fyrir allt sem hún hefur fyrir þig gert á liðnum árum. Eftir því sem ég hef bezt vit á, hefur hún bæði reynzt þér sem góð móðir. og systir í senn. Að endingu ein vísa, líkt og í gamla daga: Sextugur ertu Sigurþór, sæii nú vertu maftur. Þó aft oft sértu þurftamjór, þiggftu nú tertu glaftur. Já, gerðu það nú einhvem dafeinn. En þú verður að neyta hennar heima hjá okkur í Keflavík og endilega áð hdfa Höllu með þér, ef þú getur. Beztu kveðjur og framtíðar- óskir, frá bróðursyni þínum í Kefiavík. ABalfundur Æskulýðssam- bands kirkjunnar i Hólastifti Jón T rausti Framhald af 7. síðu. smalapiltsins, sem hún tók bók- staflega á arma sína, og hins vegar um viðureign hennar við bróður sinn, Pál lögmann á Hlíðarenda, sem vildi í lengstu lög meina henni áð eiga jafn- ættsmáan mann og fátækan sem Hjalti var. Samt gerðist að lokum sá hlutur, er stefndi lögmanni til fullra sátta við systur sína og ástmann hennar. Urðu þau Hjalti kynsæl mjög og á margt merkra manna ætt sína að rekja til þeirra. Eins og segir í fbrmála fyrir bókinni má þetta teljast sjáif- kjörið söguefni, ekki hvað sízt fyrir höfund- á borð við Jón Trausta, sem kann vel til þeirrar listar að skipa dramatískum viðburðum á stórt svið og lýsa á spennandi hátt viðureign einstaklingsins við stórbrotna og ósvikna náttúru. Á sömu lund er höfðingsskap- ur, hugrekki og reisn höfundin- um mjög að skapi, hvort sem þeir eiginleikar birtast í fari tiginborinna fyrirmanna eða fá- tækra „ættleysingja11. 1 sögunni koma fyrir margar slíkar per- sónugerðir, en stærst þeirra er söguhetjan, Anna frá Stóruborg. Vafalaust hefur hún í raun ver- ið glæsileg kona og mikils hátt- ar, jafnt í ástríðum sem þótta, en varla hefur hún smækkað til muna i meðferð Jóns Trausta svo vel sem hann kunni því að skapa þróttmiklar og skapheit- ar kvenpersónur. Anna frá Stóruborg er 208 blaðsíður, prentuð í Odda h.f. og bundin í Sveinabókbandinu. Tómas Guðmundsson hefur rit- að formála fyrir bókinni, þar sem dregin eru saman i stuttu máli helztu æviatriði höfundar- ins- (Frá AB, — stytt). Áttundi aðalfundur Æsku- lýðssambands kirkjunnar í Hólastifti verður haldinn um næstu helgi á Hvammstanga og hefst hann laugardaginn 9. september ki. 4 e.h. í hinu nýja félagsheimili þar á staðnum. Flutt verður skýrsla stjórn- arinnar og hinna ýmsu starfs- greina innan æskulýðssam- bandsins. Þá mun frú Dóm-®* hildur Jónsdóttir flytja stutt erindi um föndur og sýndir verða ýmsir munir, sem ung- Iingar hafa sjálfir unnið. Kl. 8.30 síðdegis verður kirkjukvöld í Hvammstanga- kirkju fyrir' safnaðarfólk og þátttakendur fundarins. Séra Bolli Gústafsson prestur í Lauf- ási flytur framsöguerindi um mál fundarins: Skemmtanir og kristin trú. Gylfi Jónsson stud- theol, sumarbúðastjóri sýnir litskuggamyndir af starfi sum- arbúðanna við Vestmannsvatn, sem starfa á vegum sambands- ins. Þá verða einnig fluttir í mynd og máli ýmsir þættir af æskulýðsstarfi kirknanna. Kirkjukór Hvammstangakirkju syngur og þá verður almenn- ur söngur. Séra Jón Bjarman æskulýðsfulltrúi flytur ávarp, en kvöldvakan endar með al- mennri altarisgöngu. Ávarp í upphafi flytur séra Gísli Kol- beins prestur að Melstað, og stjórnar hann kirkjukvöldinu. Sunnudaginn 10. sept. flytur séra Kári Valsson prestur í Hrísey morgunbæn, og þá taka umræðuhópar til starfa og skila áliti. Kosið verður í ráð og nefndir og í stjóm og fund- inum slitið um hádegi. KI. 2 e.h. á sunnudaginn verða svo guðsþjónustur á sex kirkjum í sambandi við fund- inn, sem prestar og æskulýðs- felagar munu annast. Messað verður á 1 eftirtöldum kirkjum: Efra-Núpskirkju, Melstaðar- kirkju. ' Hvammstangakirkjú, Staðarbakkakirkju, Tjarnar- kirkju og Víðidalstungukirkju, sem eru í Húnavatnsprófasts- dæmi. Brunarústir Framhald af 1. síðu. „vöru“, verkamenn sem unnu við hreinsunina og svo aðsjálf- sögðu forvitnir áhorfendur. Síðast en ekki sízt voru þar þeir þrír menn sem dómkvaddir voru til að fylgjast með og á- kvarða hvað af vöruleifunum er ónýtt og hafa yfirumsjón með hverju skuli haldið til haga. Hitti fréttamaður Þjóðviljans einn þeirra að máli, Sigurgest Guð- jónsson bifvélavirkja, en aðrir i þessari mikilvægu nefnd eru kaupmaður, Björgvin Jónsson og byggingarmeistari, Einar Sveins- son. — Það er flljótsagt, að mjög iitið er nýtilegt, sagði Sigurgest- ur, og enn logar í þessu, þótt það sé að verða vika síðan eld- urinn kviknaði. Hér er unnið með vélskóflum og tólf menn róta til í rústunum til að að- gæta hvort eitthvað væri nýti- legt, og við nefndarmennimir fylgjumst með. Þetta er mikið verk, og hreinsuninni ekkinærri lokið. Það sem kynni að vera nýti- legt er tekið til hliðar og athúg- að betur síðan, en það er ekki nema örlítið, þetta er svo iila farið og mest allt er flutt beint á sorphaugana þar sem mokað er yfir jafnóðum. ötthi sem heit- ir matvara er skilyrðislaust hent, en það er helzt járnvaran sem einihver slægur er f,, sagði Sig- urgestur, og var þar með þotinn til að huga að einhverju í rúst- unum. Það þarf áreiðanlega enginn að búast við að það verði brunaút- sala á varningnum sem var í vöruskemmum Eimskips. Fundinn sækja prestar og assskulýðsfélaga af Norður- landi og var sambandið tstofn- að árið 1959. Er hér um að ræða frjáls samtök presta og ungs fólks til eflingar kristni og kirkju í stiftinu. (Fréttatilkynning frá Æskulýðssambandi kirkj- unnar í Hólastifti). BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannar gæðin. B.RI DGESTONE veitir aukið öryggi í akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggiandi. GÓÐ ÞJÓNUSTÁ Verzlun og viðgerðir Gúmmbarðinn h.f. Braufarholti 8 Sími 17-9-84 Sigiirjón Bjömsson sálfræðingur Viðtöl skv. umtali. Símatími virka daga kl. 9—10 f.h. Dragavegi 7 Sími 81964 Sængurfatnaður • Hvítur og tiiislitúr — ÆÐARDÚNSSÆNGUR GÆSADÚNSSÆNGUR DRALONSÆNGUR SÆNGURVER LÖK KODDAVER tniði* Skólavörðustíg 21. Smurt brauð Snittur við Oðinstorg — Sími 20-4-90. ÞÚ LÆRIR MÁLIÐ I MÍMI Laugavegi 38. Útsölunni lýkur í þessari viku. □ Ennþá getið þér gert kjarakaup á margskonar fatnaði. □ Komið sem fyrst, því nú fer að verða hver síðastur. ÖNNIIMST fliLA HJBLBARDAÞJdNUSIU, FLJÓTT 06 VEL, MED NÝTlZKU TJEKJBM WTNÆG BÍLASTÆÐI OPID ALLA DAGA FRÁ kl. 7.30-24.00 " 1 \--— HJDLBARÐflVIBGERÐ KÓPflVOES Kársnesbraut 1 - Sími 40093 ikr og skartgripir iKORNELÍUS JÓNSSON skólavordust 1 g 8 iVB lR 'ViJ'X+u+r&r óejzr khbki t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.