Þjóðviljinn - 07.09.1967, Side 3
Fimmtudagur 7. septemiber 1967 — I*JÓÐVTLJINN — SÍÐA J
* Ef til vill mín þýðingarmesta ferð
De Gaulle forseti hlaut kon-
unglegar móttökur í Varsjá
VARSJÁ 6/9 — 'Hálf miljón Pólverja heilsaði de Gaulle
Frakklandsforseta er hann kom í opinbera heimsókn sem
stendur í viku til Varsjár í dag. Sungu menn „Hann lifi í
100 ár“ og stráðu blómum yfir bílalestina er hún ók um
götur höfuðborgarinnar.
De Gaulle hafði sjálfur lagt
sitt af mörkum þegar á flug-
vellinum er hann heilsaði heið-
ursverði á pólsku. Bæði þar og
á götunum bar mikið á spjöldum
þar sem lofuð var pólsk-frönsk
vinátta. Ungir og gamlir stóðu
tugþúsundum saman við götur,
fylltu svalir og glugga eða héngu
uppi í ljósastaurum til að sjá
betur til. Hrifningin var gífur-
leg og meiri en áður hefur sézt
í Varsjá'við heimsókn erlends
þjóðhöfðingja, enda hafa Pól-
verjar lengi haft mætur á
Frökkum, tengt við þá öðrum
fremur vonir sínar í erfiðri
sjálfstæðisbaráttu fyrr á tímum.
Og de Gaulle komst sjálfur svo
að orði áður en hann fór að
heiman, að þessi heimsókn væri
ef til vill þýðingarmest allra
sinna ferða. Eru þau orð túlk-
uð svo, að de Gaulle líti á
Pólland sem einhvern þýðing-
armesta hornstein þeirrar Evr-
ópu sem hann vill skapa.
I ræðu á flugveDlinum sagði
forsetinn að ferð sín væri gerð
til að efla samskipti Frakka og
Pólverja og einnig í þágu sam-
eiginlegs átaks þeirra til örygg-
is' og friðar Ochab. forseti Pól-
lands. sagði i ræðu sinni við
móttökuna. að afstaða de Gaulle
til friðar- og öryggismála hefði
tryggt honum virðingu Pólverja.
Óvíst er hvort fundum de
Gaulle og æðsta manns kaþólsku
kirkjunnar, Wyszinskys kardín-
ála, muni bera saman, Kardín-
álinn hefur ekki þegið boð um
að koma til veizlu er forsetinn
heldur og er sagður kjósa það
Veit fólkið hverþ
þaS er aS kjósa?
Sjónarvottur bregður upp svipmynd frá
hinum umdeildu kosnirigum í S-Vietnam.
Hún gekk fram hjá hópi
víetnamskra hermanna,
leit undrandi á óteljandi flögg
og spjöld um allt musterið.
Hún gekk hægt inn, hrjúfar
hendurnar fitiluðu við mann-
talskortið. Einhver varð til
þess að ýta henni inn í rétta
biðröð. „
Ung stúlka rétti henni kjör-
seðlana ehefu og umslagið —
hún kannaðist við „yfirskegg-
ið“ — kjörseðillinn með
myndunum af Ky og Thieu.
Hinir seðlarnir féllu á gólf-
ið. Stúlkan tók í bandlegg
gömlu konunnar og vísaði
henni inn í klefanh bak við
forhengið og skemmti séryfir
fátinu sem á konunni var.
Umslagið datt niður í gulmál-
aða trékassann — hún hafði
gefið hershöfðingjunum at-
kvæði sitt. Hafði hún nokkra
hugmynd um það hverjir hin-
ir kjósendurnir voru? Haíði
hreppstjórinn sagt henni að
kjósa * hershöfðingjana? Eða
var hún kannski ánægð með
stjórnina?
Síðan tók hún sér stöðu i
næstu biðröð, nú átti hún að
leggja sex af um það bil 40
seðlum í umslagið og kjósa
með því móti 48 ööldungar-
deildarþingmenn. Hún beið
eftir þvi að röðin kæmi að
sér. Klefamir þrír voru upp-
teknir. Neðan við forhengið
sáust aðeins naktir fætur og
svarta’r silkibuxur. 1 tveim af
klefunum voru fjórir fætur.
Maður nokkur í gráumbux-
um, gljáskóm og hvítri
'skýftu gekk ftarri og aftur um
góHfið. Hann veitti þessum
kjörstað forystu. Fyrst leit
hann tortrygginn til okkar, en
það hýrnaði heldur yfir hon-
um þegar hann heyrði að við
töluðum frönsku. Nei, hann
var ekki Súður-Vietnammað-
ur, hann hafði alizt uþp í
Hanoi og spurði hvort við
hefðum komið þangað. Þegar
hann komst að því að við
höfðum komið til Hanoi fyrir
skömmu færðist líf í hann og
hann spurði fyrst af öllu:
— Þekkið þið HoChiMinh’
Ekki varð hjá því komiz
að taka eftir því að hann
bar nafnið fram með aðdá-
un. En það þurfti til dæmir
ekki að þýða að hann ky.si
ekki Ky í kcsningum dags
ins. Jafnvel þeir sem sýna
stjórninni í Suður-Vietnam
hollustu geta dáð Ho Ohi Minh
manna mest. i
Hann hélt áfram að talaum
starf sitt. Já, það var hann
sem átti að telja atkvæðin og
fara síðan með atkvæðakass
* ana til helztu borgar sýslunn
ar á skelllinöðru sinni og af
henda þá sjálfur, en að sjálf
sögðu í hermannafylgd. Með
an við töluðum saman sá ég
allt í einu við kjörkassana
andlit sem ég þekkti aftui
Fyrir um það bil tíu mínútun
hafði ég séð hana láta umslag
í kassa. Þetta var sem sag
umslag númer tvö . . .
fremur að de Gaulle sæki sig
heim, en það mundu pólsk
stjórnarvöld . líta hornauga.
NEW YORK S/9 — Utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, Grom-
yko ög utanríkisráðherrar átta
annarra sósíalískra ríkja fóru
þess á leit í dag, að allsherjar-
þing SÞ kalli herlið samtakanna
á brott frá Kóreu. Segir í yfir-
lýsingu ráðherranna að nær-
vera bandaríkjaihers undir fána
SÞ í Kóreu sé ein helzta for-
senda viðsjárverðs ástands í
Austurlöndum fjær og leggja
þeir til að næsta allsherjarþing
taki málið á dagskrá.
Efnahagsstefnu Bretastjórnar mótmælt
Nýr ósigur Wilsons á þingi.
brezku verklýðsfélaganna
BRIGHTON 6/9 — Stjórn Wilsons og formælendur henn-
ar í verbalýðsfélögunum biðu í ánnað sinn á stuttum tíma
mikinn ósigur á þingi brezka verklýðssambandsins í Brigh-
ton er þingið samþykkti með miklum meirihluta gagnrýni
á efnahagsráðstöfunum stjórnarinnar, sem nú hafa m.a.
leitt til þess að í landinu eru meira en hálf milión atvinnu-
leysingja.
Gagnrýni bæði vinstrisinnaðra
og „hófsamra“ verkalýðsfélaga
bendir til þess að Wilson for-
sætisráðherra megi búast við
miklum erfiðleikum é bingi
Verkamannaflokksins í næsta
mánuði og á bingi í haust.
Miðstjóm verklýðsfélaganna
Erl. sjálfboðaliðar
til N-Vietnam?
MANOI 6/9 —• Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í
Hanoi í dag, að stjórn Norður-Vietnams muni ef til vill
taka á móti erlendum sjálfboðaliðum ef stigmögnun stríðs-
ins heldur áfram. Talið er að ef til þessa kæmi mundi tek-
ið við sjálfboðaliðum í flugherinn.
hafði hvatt þingfuliltrúa til að
láta tillöguna um efnahagsmál
ekki koma til atkvæða. Full-
trúar hlýddu ekki frekar en í
gær er þeir samþykktu vítur á
afstöðu stjórnar Wilsons til
hernaðar Bandaríkjanna í Viet-
nam. Var tillagan síðan sam-
þykkt með 4,8 miljónum at-
kvæða gegn 3,5 milj. og hefði
meirihlutinn orðið enn meiri ef
Carron lávarður, fráfarandi for-
maður Amalgamted Engineering
Union hefði ekki fengið fulltrúa
sína, sem ráða yfir miljón at-
kvæða, tiil að snúast gegn gagn-
rýni á Wilsonstjómina.
Urslit atkvæðagreiðslunnar eru
túlkuð sem aukin óánægja með
þriggja ára stjórn Wilsons, sem
enn hefur ekki tekizt að skapa
blómaskeið í brezku efnahags-
lífi. í ályktuninni segir að þing-
ið harmi dýrtíðarráðstafanir •
stjómarinnar, sem hafi þegar
gert 508 þúsund manns atvinnu-
lausa. Þin-gið mótmælir afskipt-
um stjómarinnar af launadeilum
og krefst aukinnar þjóðnýtingar
á brezkum iðnaði. Þá var og lát-
in í Ijós óánægja með síðustu
breytingar á stjóm Wilsons.
Þá er það tekið fram að allir
sjálfboðaliðar erlendir mundu
verða undir yfirstjórn Norður-
Vietnammanna og þar með gef-
ið til kynna að þeir vilji sjálfir'
halda fullurri yfirráðum yfir öllu
sínu landi og bera fulla ábyrgð
á öllum hernaðaraðgerðum. Mál-
ið mun á athugunarstigi, en þó
viðurkennt að óhjákvæmilegt
verði að gera slíkar ráðstafanir
ef Bandaríkjamenn haldi áfram
útfærslu stríðsins.
Fréttaskýrendur telja, að ef
erlendir sjálfboðaliðar verði
teknir í flugherinn muni þeir
valdin frá sem flestum sósíal-
ískum ríkjum til að Norður-Viet-
namstjórn komist hjá að raska
sambúð sinni við þau.
Til harðra bardaga kom í dag
í borginni Tam Ky í norður-
hluta Suður-Vietnams. Gerði
sveit skæruliða árás á borgina
til að reyna að frelsa úr haldi
590 pólitíska fanga en varð fyr-
ir miklu mannfalli að sögn og
varð frá að hverfa. Skærulið-
arnir eru sagðir hafa veriö barn-
ungir sumir hverjir. Skærulið-
ar hafa gert velheppnaðar árás-
ir á fangelsi að undanförnu.
Stórtap ffyrir
Svíiint í bridjge
í annarri og þriðju umferð
Evrópumeistaramótsins í bridge
sem haldið var í Dýflini á ír-
landi, töpuðu íslendingar fyrir
ítölum og Svíum. Tapið gegn
ftölum var 3—5, en 0—8 gegn
Svíum.
Eins og áður hefur verið get-
ið í fréttum töpuðu íslendingar
fyrir írum í 1. umferðinni 3—5.
íslendingar eru því í hópi neðstu
liða að þrem umferðum loknum
með 6 Btig, Svíar eru í efsta
sæti með 23 stig.
fslenzka bridgesveitin er skip-
uð þessum mönnum: Eggerti
Benónýssyni, Stefáni Guðjohn-
sen, Halli Simonarsyni, Þóri Sig-
urðssyni, Símoni Símonarsyni og
Þorgeiri Sigurðssyni. Fyrirliði
án spilamennsku er Þórður Jóns-
son, sem jafnframt situr þíng
Evrópusambands bridgemanna.
Lögtök
Eftir kröfu bæjarritarans í Keflavík og samkvæmt
úrskurði fógetaréttar Keflavikur, 4. sept. 1967,
verða ógreidd útsvör, aðstöðugjöld og fasteigna-
gjöld ársins 1967 til bæjarsjóðs Keflavíkur tekin
lögtaki á kostnað gjaldenda en á ábyrgð bæjar-
sjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsirigiar.
Keflavík, 4. september 1967.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Verkfall hjá Ford
DETROIT 6/9 — Fastlega var
búizt við því að verkfall hæfist
um miðnætti í nótt hjá Ford-
bílaverksmiðjunum, því samn-
ingsaðilar bjuggust ekki við
neinum árangri af fundi sem
halda skyldi í kvöld.
Samband verkamanna í bíla-
iðnaðinum hefur um tveggja
mánaða skeið reynt að semja
við risafyrirtækin þrjú, Ford,
Chrysler og General Motors og
hefur valið Ford til verkfalls
með það fyrir augum að nota
samninga sem þar nást sem
fyrirmynd að samningum við
hina aðilana.
Verkfallið mun ná til 160 þús.
þeirra 204 þús verkamanna sem
nú vinna hjá Ford. Meðaltima-
kaup þeirra er að öllu saman-
lögðu 4,70 dalir á klst. og hef-
ur Ford boðið 34 sent kaup-
hækkun, en verkamenn vilja
sýnu meira.
BIKARKEPPNIN
AAelavöllur
f dag: (fimmudag) kl. 6.30 leika:
Þróttur (a) — Akranes (b)
Kemst GULLALDARLIÐ Akumesinga í
aðalkeppnina?
MÓTANEFND.
Bótagreiðslur
almannatrygginga í Reykjavík.
Greiðsla ellilífeyris hefst þegar fimmtu-
daginn 7. september.
Aðrar bætur verða greiddar á venjuleguon
tíma. s
Athygli skal vakin á að stofnunin er lok-
uð á laugardögum til september-loka.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS.
Aðeins ógallaðar vörur-enginn útsöluvarningur
Álnavörumarkaðurinn Góðtemplarahúsinu
I
i