Þjóðviljinn - 20.09.1967, Side 4

Þjóðviljinn - 20.09.1967, Side 4
t 4 St&A — 5>sJÖÐV®iíIílíN —Msðvifcudagur 2©. sepbeMQfoer 1960. Otgefandi: Sameiningarflokfcur alþýðu — SósíaKstaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Sk,ólavörðustíg 19. Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuöi. — Lausasöluverð krónur 7.00. t- Gúmmívíxill OJ J tíð viðreisnarinnar hefur verðbólga vaxið hér margfalt örar en í viðskiptalöndum okkar. Á velgengnisárunum þegar aflamagn jókst í sífellu og verðlag hækkaði stöðugt á afurðum okkar er- lendis var stefna stjórnarvaldanna sú að leyfa þeim sem hagnast á verðbólgunni að magna hana; sú kenning hefur meira að segja sézt í stjórnar- blöðunum að verðbólgan væri mikið þarfaþing, hún væri aðferðin til þess að dreifa síldargróðan- um til þjóðarinnar allrar — og er sannarlega ekki að undra þótt illa færi fyrst þvílík viðhorf voru höfð að leiðarljósi. Verðbólgan hefur sem kunn- ugt er leitt til þess að útflutningsatvinnuvegir þjóðarinnar komus't í þrot; einmitt þegar afurða- verðið var hvað hagstæðast varð ríkisstjómin að auka styrki bg uppbætur um hundruð oniljóna króna og hrökk þó ekki til; flótti brast í lið þeirra atvinnurekenda sein starfað höfðu í bátaútgerð, togaraútgerð og fiskiðnaði. Á hliðstæðan hátt lenti innlendur iðnaður í sívaxandi vanda, verð- bólgan gerði honum æ torveldara fyrir að keppa við vaming sem fluttur var inn fra löndum þar sem venðbólguþróun hafði verið mun hægari, og þar hefur hið sama gerzt og í sjávarútvegi, fjöl- mörg fyrirtækiv hafa gefizt upp og önnur æru í úlfakreppu. ^egja mátti að þessi þróun væri að leiða til alls- herjar hruns fyrir einu ári, en þá venti ríkis- stjórnin kvæði sínu í kross og tók upp svokallaða verðstöðvunarstefnu. Ástæðan var að sjálfsögðu kosningarnar framundan; þess skyldi freistað að fela staðreyndimar um ástand efnahagsmála þar til að kosningum loknum. Verðstöðvun þessi var hins vegar sýndarmennska; hún gróf ekki fyrir rætur nokkurra meina. Framkvæmdin he'fur í rauninni aðeins verið sú að ríkisstjórnin hefur greitt niður verð á nokkruim vörutegundum, sem hafa mikil áhrif í vísitölugrundvellinum, til þess að halda framfærsluvísitölu og kaupgjaldsvísitölu í skef jum. Niðurgreiðslur þessar hafa í sífellu ver- ið auknar um meira en eins árs skeið og nú síðast í byrjun september. Niðurgreiðslurnar nema nú hvorki meira né minna en 28 vísitölustigum. Hin opinbera vísitala framfærslukostnaðar er 195 stig, en ætti að vera 14-15% hærri eða 223 stig ef eng- ar niðurgreiðslur kæmu til. Kostnaðurinn við að greiða niður 28 vísitölustig nemur 950 miljónum króna á ári — eða svo sem 5.000 kr á hvert manns- bam í landinu — en það eru langmestu niður- greiðslur sem sögur fara af hérlendis, framkvæmd- ar af ríkisstjórn sem 1 upphafi hafði það stefnu- mark að binda endi á niðurgreiðslur! Þar við bæt- ist að ríkisstjórnin hefur ekki aflað fjár til þess að standa undir þessum sýndarráðstöfunum, held- ur fleytt sér að undanfömu með skuldasöfnun hjá Seðlabankanum. Verðstöðvun hennar er gúmmí- víxill sem senn fellur á þjóðina. — m. / BUNDGÖTUNNI Aftur hefur formoður lands- prófsnefndar kvatt sér hljóðs í dagblöðunum og í þetta sinn til að „árétta“ fyrri staðhæf- ingar.. Eftir þessa „áréttingu" verð- ur ekki hjá því komizt að vekja athygli á málsmeðferð hans, sem hann telur sérstak- lega málefnalega. Þrátt fyrir næg tækifæri til þess að rétta sig af heldur hann áfram að þyrla upp reyk- skýjúm, að okkur virðist, ti'l að hylja kjama deilunnar. Upphaf málsins er, að kæra er send honum og afrit til menntamálaráðherra um mis- munun á prófverkefnum í dönsku. Tiltekin atriði eru dregin from og krafizt viður- laga. Hlutaðeigandi prófnefnd- armaður svarar, og formaður sendir það til kærenda. En þetta mega allir sjá, að er til- raun til að berja í augljósa bresti. Hann bendir m.a. á, að hluta úr hinum umdeildu sam- settu orðum sé að finna á víð og dreif í textabók H.M. og E.S. og augljósar séu prentvillur í orðalista, þ.e., að því er virðist allt í lagi þótt nemendur verði að lesa f málið. Þótt svar hr. Ágústs Sigurðs- sonar sé næsta óbeysið er það í alla staði málefnalegt, en gef- ur tilefni til frekari rannsókn- ar. En þá genast þau furðu- legu tíðindi, að formaður lándsprófsnefndar veður fram fyrir skjöldu og tekur að ræða hugsanlcgar aflciðingar af á- deildum prófháttum. Að sjálfsögðu sáum við strax inn í hverskonar blindgötu hann var kominn. Við gerðum tilraun til að rétta hann af með því að birta í blöðum bréf okk- ar, en alilt kom fyrir ekki. Það verður því ekki dregið lengur, að bgnda á með berum crðum, hverskonar vinnubrögð hr. fór- maðurinn notar. I stað þess að beita sér fyrir fræðilegri rannsókn á hvort meint misferli sé til staðar, og að þeirri rannsókn lokinni láta málið hafa eðlilegan gang til sektar eða sýknu hins ákærða, rýkur hann upp tií handa og fóta, að láta, að því er virðist, rannsaka, hvort tjón hafi af hlotizt, kemst að þeirri niður- stöðu á furðulegan hátt, að svo hafi ekki verið, og gefur út sýknudóm á ákærða en áfellis- dóm á okkur fyrir rakalausa ákæru! Það er erfitt að þurfa -------------------------------- Nýr ambassador Sendiherra Portúgala, herra António Pinto de Mesquita, af- henti í dag forseta íslands trún- aðarbréf sitt sem ambassadcr Portúgala á IsTandi með aðsetri 1 Osló við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, að viðstöddum dr. Gylfa Þ. Gíslasyni, menntamála- ráðherra, sem gegnir störfum Emils Jónssonar, utanrlkisráð- herra i fjarveru hans. (Frá skrifstofu forseta Islands). að kyngja því, að maður í á- byrgðarstöðu skuli ekki kunna grundvallaratriði máflsmeðferð- ar í réttarríki. Þetta væri hliðstætt því.- ef maður væri ákærður fyrir að kveikja í húsi, annaðhvort vilj- andi eða af vítaverðri vangá, en slökkviliðið hefði bjargað húsinu. Dómarinn reyndi ekki til að rannsaka, hvort hann væri sekur eða sýkn, en beitti allri sinni orku i að rannsaka, hvort tjón hefði hlotizt af. Síð- an kvæði hann upp sýknudóm yfir manninum á þeim grund- velli, að ekkert tjón hefði orð- ið! Auðvitað er Ijóst öllum, sem vilja, hversu fráleitt væri hegð- un slíks dómara, en svona er rauði þráðurinn í gerðum hr. formannsins í þessu áminnta deilumáli. Þar að auki er það auðvitað ekki hann, sem á að kveða upp neinn dóm, heldur hlutlausir kunnáttumenn, sem til væru kvaddir af réttum að- úlum. Nú hefur bætzt við í þess- um „rannsóknum'* hr. for- mannsins eða þeirra, sem hann hlýfcur að hafa þar til kvatt, að gífurlegur munur er á einkunn- um í lesna textanum líka, og alls óeðlilegur, ef um hliðstæða þyngd texta væri að ræða. Er það, að sjálfsögðu, skylt rann- sóknarefni ásamt hinu. Er nú krafa um það borin hér fram, ásamt hinni fyrri. Auðvitað hlýtur hann að bera fulla á- , byrgð á niðurstöðum, sem hann metur sem komnar væru af Sínaifjalli ofan. Við höfum aldrei haft neina löngun til að munnhöggvast við hr. formann landsprófs- nefndar. En þegar hann nú bætir gráu ofan á svart með því að staðhæfa, að, auk þess að við færum með staðlausar ákærur, eins og hann gerði í ,,athugasemd“ sinni, séum við „andstæðingar landsprófsnefnd- ar“ „fjandsköpumst við tölur", förum með „stóryrðaflaum" og sendum honum „persónuleg skeyti", sem séu „neðan við hans sjálfsvirðirrgu" að svara, þykir okkur ástæða til að fara um það nokkrum orðum, auk annars í hans þætti. Hver, sem hefur lesið skrif okkar getur séð, að það er til- hæfulaus uppspuni hans, að við séum „andstaíðingar lands- prófsnefndar". I bréfi okkar er sagt berum orðum, að sífelldir árekstrar hafi orðið við hr. landsprófsnefndarmann Ágúst Sigtirðsson, en enga aðra í nefndinni auk þess, sem við höfum deilt á vinnubrögð hr. Ágústs ein. Skyldu nú ekki fleiri en við, fara að ruglast í, hvað er í samræmi viðsjálfs- virðingu hr. formannsins? Við sjáum ekki betur en, að hafi nokkur „fjandskapast við tölur" sé það einmitt hr. for- maðurinn sjáilfur. Hann virðist aldrei geta sætt sig við að taka sínar eigin tölur „at face val- ue“, heldur er sífellt að bauka við umreikninga, samkvæmt „einkunnarvon", sem auðvitað er að mestu út i loftið. Að /Sjálfsögðu er reiðilaust af okk- ur, þótt hann stangist við þá staðreynd, að mismunur á 8,05 og 5,41 er 2,64. Þessu virðist hann ekki vilja trúa, heldur, að mismunurinn sé einhver önnur tala ótilgreind af honum þó. Á sama hátt er um, að mismunur á 7,16 og 6,50 sé , akki 0,66, heldur allt önnur tala. En það er a n n a ð, sem er ekki eins saklaust. Hr. for- maðurinn enduÚekur nú, að engu máli skipti um 0,03 í heildareinkunn, jafnvef seilzt nokkru lengra niður. Þetta hafi því ekki nein áforif á gengi nemenda. Að sjálfsögðu sáum við þeg- ar veilurnar í þessu, en vildum trúa, að hér væri talað eða skrifað í fljótfærni. Nú hefúr komið f Ijós, að svo er ekki. Þetta er bíræfnasta blekking- artilraunin, sem fram hefur komið í þessum furðulega málarekstri hans. Auðvitað er rétt, að þeir, sem þrátt fyrir allt komust á það mark, sem landspröfsnefnd hækkaði úr 1! 6,00, gjalda einskis í við að ná sínu marki. En hvað um hina, sem skorti þessa 0,03 eða hluta Drukknir ungiingar V ^ stálu langferðabílum Einni langferðabifreið Ólafs Ketilssonar var stolið frá Um- ferðarmiðstöðinni aðfaranótt laugardagsins. Tíu ungmenni, þar af sex stúlkur á aldrinum 16—17 ára, ætluðu út úr bæn- um og fannst þeim bíll sem þau voru í vera of lítill og á- kváðu að stela langferðabíl. Óku þau á bílnum austur fyr- ir fjall og rákust lögregluþjónar frá Selfossi á hópinn á Skeiða- vegi. Flestir unglinganna voru undir áhrifum áfengis, voru þau öll send aftur til Reykjavíkur nema ökumaðurinn. Tekið var blóðsýnishorn af honum og var hann síðan yfirheyrður af lög- reglunni á Selfossi á laugardag. Pilturinn hafði nýlega verið , sviptur ökuréttindum vegna ölv- unar við akstur. Öðrum langferðabíl var stol- ið frá Umferðarmiðstöðinni snemma á sunnudagsmorgun. Þar var á ferð 19 ára piltur, mun hann hafa farið inn um glugga á bílnum og ók af stað en lögreglumenn sem voru þar rétt hjá í eftirlitsferð, hand- sömuðu hann. úr þeim til að ná hinnl frels- andi hönd landsprófsnefndar? Æfcli það skipti þá engu máli? Hefur það engin áhrif á hag þ e i r r a og gengi? Það mætti svo að lokum vera íhugunarefni hvaða áhrif það hefur á „eintounnarvon"' nem- enda, í þessu og síðari prófum, sem kemur eðlilega tauga- spenntur í próf, að fá í upphafi prófsins að glíma við flaum af ókunnum orðum,, sem skipta öllu máli til að ná samhengi í þýðinguna, taka svo til við þýðingu, sem„ þó í lesnu sé, er mjög örðugt að koma á sæmi- legt mál, þurfa að lesa orðalist- ann í málið og geta sér til um, vegna ónógrar upplýsinga, hvort umskrifa eigi einstök orð eða setningar í heild. Síðan eftir þessa hrakhólagöngu að glíma við Tangan og þungan stíl. Tökum svo annan nemanda, sem fær kunnuglegt efni, þótt ólesið sé, í upphafi, þarf h'tið að glíma við ókunn orðj fær sæmilega þýðingu í lesnu og villulapsan orðalista. Mundi ekki vera verulegur aðstöðu- munur þessara nemenda við tilgátugreinina og stílgerðina og önnur ,,einkúnnarvon“? Horft á málið lika frá þessari hlið, má hver sem treystir sér til furða sig á okkar afstöðu og aðgerðum. En ætli formað- urinn halldi ekki enn áfram að villast í sinni blindgötu í þrúg- andi þönkum um sín þýðdngar- mifclu ábyrgðarstörf? Óskar Magnússon frá Tungunesi. Oddur A. Sigurjónsson. «>- Bólstruð húsgögn SEL Á VERKSTÆÐISVERÐI: Sófasett, Svefn- bekki. — Tek klæðningar. Bólstrunin, Baldursgötu 8. é

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.