Þjóðviljinn - 28.09.1967, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 28.09.1967, Blaðsíða 3
 Búddatrúarmenn í Saigon mótmæla SAIGON- 27/9 —• Fimm hundruð munkar og nunnur af búddatrú munu fara í kröfugöngu í Saigon á morgun til að mótmæla ákvörðun ríkisst'jómarinnar að fá aðilum, sem skipta sér lítið af pólitfk, öll yfirráð yfir sameinuðu búdda- söfnuðunum í Suður-Vietnam. Þátttakendur í kröfugöngunni, sem hafa áður krafizt þess, að því verði lýst yfir að forseta- og þingkosningar hafi verið ó- gildar og séu marklausar. á- forma að afhenda þjóðhöfðingj- anum Nguyen Van Thieu mót- mælabréf. Thieu hershöfðingi sem „kos- inn“ var forseti fyrir skömmu viðurkenndi þessi nýju samtök búddatrúarmanna í júlí síðast- liðnum. Lögreglan í Saigon mun leyfa búddatrúarmönnunum að fara í kröfugönguna, en talsmaður lög- reglunnar bætti því við að sér- stakt aukalögreglulið verði hvatt út til að koma í veg fyrir hugs- anlegar óeirðir. Sá frambjóðandinn í forseta- kosningunum, sem fékk næst flest atkvæði, Truong Dinh Dzu, Forseti getur sent her- menn „hvert sem er” WASHINGTON 27/9 — Áfrýjun- ardómstóll bandaríska hersins hefur staðfest dómana yfir þrem óbreyttum hermönnum sem neit- uðu að fara til Vietnam. Dómstóllinn kvað Johnson for- seta hafa óskert vald til að senda bandariska hermenn hvert sem er f heiminum. F.yrir herrétti sögðu hermenn- irnir þrír að þcir hefðu neitað að fara til Vietnam á þeirri for- sendu, að þátttaka Bandarík.j- anna í stríðinu væri ólögleg og ósæmileg. svonefndur „friðarframbjóð- andi“ skýrði frá því í dag að hann hefði verið kvaddur á að- alstöðvar lögreglunnar í Saigon á morgun, til að svara ásökun- um um það, að hann hafi æru- meitt dómara nokkurn. Dzu er fimmtugur og lög- fræðingur að mennt1 og lýsti hann því yfir að hann mundi ekki hlýða þessari skipun. Dzu var nýlega dæmdur í níu ára fangelsi fyrir meinta fjár- glæfra. Og segir hann að ásök- unin um ærumeiðingar sé í sam- bandi við þau réttarhöld. Bandarískar sprengjuflugvélar gerðu í dag árásir á hverja ein- ustu brú í hafnarborginni Hai- phong í Norður-Vietnam, sagði talsmaður Bandaríkjamanna í •Saigon í dag. f annað skipti í sömu viku voru í dag gerðar loftárásir á mikilvægar brýr nærri miðborg- inni í Haiphong og jafnframt var ráðist að loftvarnarstæðum í borginni. f gær fóru Bandaríkjamenn i samtals 144 árásarferðir á N- Vietnam og hafa ekki farií fleiri á einum degi í þrjár vikur. Utanríkisráðherra Kanada, Paul Martin sagði í dag í ræðu á allsherjarþingi SÞ, að Kan- adamenn vildu gera sitt ítrasta til að koma á friðarumræðum í Vietnam og sagði hann að það væri enginn vafi á því, að fyrsta skrefið í þessa átt yrði að vera það, að Bandarikjamenn hættu loftárásum á Norður-Vietnam. Við gerum okkur ljósa þá erf- i iðleika sem eru á því að taka I upp slíka samvinnai, en við gerum okkur einnig ljóst að það er hætta á því að borgaraflokkarn- ir fái meirihluta á þingi eftir næstu kosningar. Það er hægt að koma í veg fyrir slík úrslit. segir Hermansson í bréfinu. Um mörg atriði erum við á öndverðum meiði um stefnu og störf. Við gagnrýnum oft hvor annan og frjálsri gagnrýni verð- ur náttúrlega að halda áfram þó við hefðum samvinnu í kosning- unum. Hvor flokkur verður að marka sína stefnu í kosningunum. En þrátt fyrir skoðanaágrein- ing höfum við sameiginlegra hagsmuna að gæta í megindrátt um, bæði í baráttu launþega og í sænsku verkalýðssamtökunum Þessi sameiginlegu áhugamái enu þungvægari en það sem okk- ur greinir á um, segir Hermans- son. Fimmtudagirr 28. september 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA' J Krafa verjanda í Camiri: Málið verði tekið af herdómstólnum CAMIRIR, La Paz 27/9 — Hópur veinandi Indí- ánakvenna, sem kröfðust lífláts Debrays trufluðu í dag réttarhöldin í máli hins 27 ára gamla Frakka. Um 35 konur, sem svartklæddur maður fór fyrir, reyndu að troðast inn í dómssalinn, þar sem De- bray og fimm aðrir menn standa fyrir rétti á- kærðir fyrir að hafa aðstoðað skæruliða í Bolivíu. Hermansson hvet- ur til samstarfs STOKKHÓLMI 27/9 — C. H. Hermansson leiðtogi sænskra kommúnista hefur skrifað sænska Sósíaldemókrataflokkn- um og farið þess á leit að flokkurinn taki tillögu hans um samstarf flokkanna í kosningunum 1968 til athugunar. Myndin er af bandarískum flugmanni William Morgan Hardman, sem nýlega var skotinn niður yfir Norður-Vietnam. Norðurviet- namskur hermaður stendur vörð yfir honum við rústir af sjúkra- húsinu Hoan Kien í Hanoi sem félagar hans höfðu varpað sprengjum á. Atvinnulýðræði á rá í Danmörk KAUPMANNAHÖFN 27/9 — Danska alþýðusambandið vill nú láta framkvæma hugmyndir sínar um lýðræði á vinnustöðum með breytingum á kjarasamningunum, sem gerðir voru 1960. C. H. Hermansson formaður sænskra kommún- ista. Forseti alþýðusambandsins Thomas Nielsen, sagði að samn- ingum hefði ekki verið sagt upp og vildi sambandið freista þess að ná samningum á hálfu ári án þess. Ef alþýðusambandið hefur ekki náð sómasamlegum árangri 1. apríl næstkomandi verður samningum sagt upp með til- skildum hálfs árs fyrirvara. Thomas Nielsen skýrir frá því að alþjóðasambandið hafi ekki gert sér ófrávfkjanilegar hug- myndir um það hvernig kóma eigi á lýðræði á vinnustöðum. Um það munum við ræða við vinnuveitendur í friðd og ró, seg- I ir Nielsen. Markmið alþýðusambandsins er að skerða rétt vinnuveitenda til að stjórna og. skipa fyrir I verkum á vinnustað. | - Járn- og málmiðnaðarmanna- sambandið hefur lagt fram til- I lögu um það, að sett verði á í stofn framleiðsluráð í öllum fyr- irtækjum sem hafa fleiri en 25 manns í vinnu. Che Guevara fallinn? LA PAZ 27/9 — Franska fréttastofan AFP hefur það í dag eftir háttsettum heimildar- mönnum í La Paz, að Arnesto skæruliðaforingi „Chc“ Guevara hafi verið drepinn í bardaga í suðurhluta Bólivíu í gær. Síðastliðin tvö ár hafa oft bor- izt fregnir af því, að Guevara væri fyrir skæruliðum í ýmsum löndum Suður-Ameríku og mörg- um sinnum þykjast yfirvöld þar um slóðir hafa fellt hann. I þessu framleiðsluráði eiga fulltrúar eigenda, stjórnar og verkamanna að vera jafnréttháir. Konurnar hrópuðu slagorð og báru kröfuspjöld, þar sem m.a. þess var krafizt að þær fengju höfuð þeirra Debrays og Bustos, en hann er argentínskur málaiji og einn hinna ákærðu. Fyrr í dag hafði faðir De- brays, sem er þekktur lögfræð- ingur í París. Georges Debray, lýst því yfir að hann hætti við vörn sonar síns, þar sem her- dómstóllinn gerði honum svo erfitt fyrir, að hann gæti ekki tekið nokkurn raunhæfan þátt í vörninni. Debray er ákærður um upp- reisnarstarf, morð og vopnað rán í sambandi við skæruhem- að í suðausturhluta Boliviu. Debray lögfræðingur sendi út yfirlýsingu í dag, þar sem hann segir að þrátt fyrir það að hann fengi leyfi til að aðstoða við vörn sonar síns, hefði hann ekki fengið leyfi til að hitta hann síðan á fimmtudaginn var. í yfirlýsingunni segir hann, að samkvæmt bolivískum lögum hafi verjandi rétt til þess að ráðgast við skjólstæðing sinn hvenær sem hann telji þörf krefja. Bólivískir verjendur þeirra Bustos og Debrays skutu málinu í dag til hæstaréttar hersins í La Paz með kröfu um það að herrétturinn í Camiri verði -lýst- ur óhæfur til að dæma í þessu máli. Verjandi Bustos segir að skjól- stæðingur sinn hafj ekki gert sig sekan um neitt hernaðaraf- brot og héraðið, sem hann var handtekinn í hafi ekki verið lýst hemaðarsvæði fyrr en eft- ir að Bustos hafði verið tekinn höndum. Af þessu væri augljóst að að- eins borgaralegur dómstóU gæti afgreitt málið gegn honum. Verj- andi Debrays tók í sama streng. Verjandi Debrays mótmælti þvi, sem hann kallaði einstætt athæfi, að hermenn í áheyrenda-, sal höfðu látið í Ijós langvar- andi fögnuð eftir það að á- kærandinn hafði lesið upp á- kæruna í réttinum í gær, án þess að dómsforseti reyndi nokk- uð að hemja þá. Stúdentar í Indónesíu setja ríkisstjórninni tvo kostí DJAKARTA 27/9 — Indónesískir stúdentar sem gengu fram fyrir skjöldu í baráttunni, sem lauk með því að Su- karno forseti var settur af fyrir sex mánuðum, kröfðust þess í dag, að ríkisstjórnin sem nú situr verði að segja af sér, ef hún geti ekki komið í veg fyrir verðhækkanir á hrísgrjónum. Cosmas Batubara leiðtogi stúd entasamtakanna Kami, sagði í ræðu á fundi fyrir utan stjóm- arráðið í Djakarta í dag, að rík- isstjórnin verði að fara frá ef hrísgrjónin lækki ekki í verði. Margir þátttakendur í kröfu- göngu sem farin var á fundarstað ruddust inn í stjómarráðið. Ríkisstjórn Súkamds stjómaði efnahagslífinu án þess að taka tillit til munns fólksins og maga, sagði Batubara. Efnahagsmálaráðherra Indó- nesíu, Hamengku Buwono, skýrði fundarmönnum frá því, að slæm veðrátta hefði valdið því, að hrísgrjónauppskeran í landinu varð tuttugu prósent minni í ár en í fyrra. «>- Síldveiðarnar Framhald af 1. síðu. Krossanes 5.023 Húsavfk Í.7R9 Raufarhöfn - 34.807 Þórshöfn 1.627 Vopnafjörður 11.968 Seyðisfjörður 51.283 (auk þess frá erl. skipi). (60) Neskaupstaður 19.751 Eskifjörður 8.518 (auk þess frá erl. skipi) (262) Reyðarfjörður 2.141 Fáskrúðsfjörður 1.015 Stöðvarfjörður , 1.135 Breiðdalsvík 394 Djúpivogur 461 Færeyjar 2.675 Hjaltlandseyjar 1.584 Þýzkaland 2.199 POLARPANE TOKIO 29/9 — Japanska sam- göngumálaráðuneytið birti í dag áætlun um það að stækka höfn- ina í Tokio þannig að hún verði stærsta höfn í heimi árið 1975. MARS TRADIIMG OOI LAUGAVEG 103 SIMI 17373 Regnfatnaður Alls konar regn- fatnaður fæst í VOPNA Aðalstræti 16 —eða Langholtsvegi 108. Sími 30830. • \ Stór bókamarkaður Stór málverka- og bókamarkaður Klapparstíg 11. Týsgötu 3. Vér bjóðum yður á stóran máfverka- mynda- og bókamarkað. — Fjölbreytt úrval og mjög lágt verð á mál- verkum og bókum eftir íslenzka og erlenda höfunda. — Notið þetta einstæða tækifæri. — Þér fáið mikið fyrir fáar krónur. K03VEÐ — SKODIÐ — KAUiPEE). SJÓN ER SÖGU RÍKARI. BÓKAMARKAÐURINN, Klapparstíg II. MÁLVERKASALAN, Týsgötu 3 — Sími 17602.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.