Þjóðviljinn - 08.11.1967, Síða 5

Þjóðviljinn - 08.11.1967, Síða 5
w Miðvikudagur S. nóvember 1967 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA g I I Álykfun floklcssf/órnar Sósíalistaflokksins um efnahagsmá! Aðeins unnt mei skipulögðum jtjóðarbúskap að tryggja örugga atvinnu og betri lífskjör Það hefur ótvírætt sýnt sig og sannazt, að skilgreiningin á þróun efnahagslífsins í stjórnmálaályktun síðasta flokksþings er rétt, og að þær aðvaranir, sem Sósíalista- flokkurinn, Alþýðubandalagið og Alþýðusamband íslands hafa látið frá sér fa,ra um þessi efni á undanförnum ár- um og um afleiðingar stjórn- arstefnunnar á öllum sviðum, hafa við full rök að styðjast. Sú stjórnarstefna, sem ein- kennzt hefur af óðaverðbólgu, „frjálsum" verðlagshækkun- um „frjálsurn“ innflutningi og „frjálsri" fjárfestingu, er nú að leiða t.il kreppu, byrj- andi atvinnuleysis og efna- hagshruns, sem fyrst og fremst á sér innlendar, heima- tilbúnar orsakir: eða er að draga saman segl- in og stöðvast. III. I. Frá því Í961 hefur allt verð- lag ' á íslandi tvöfaldazt án þess, að breyting hafi orðið á gengi krónunnar. Orsökin er stjómlaus, óheft verðlags- hækkun, framkvæmd fyrst og fremst af verzlunarvaldinu, sem • hefur með þessum aðferð- um gert allar kauphækkanir verkalýðs og annars launa- fólks gagnslitlar. Þessi óða- verðbólga hefur skapað sjáv- arútveginum vaxandi erfið- leika og er nú að valda stöðv- un í honum, sem engin hefði þurft að vera, ef hemill hefði verið hafður á verðlagshækk- ununum innanlands. Jafnframt hefur með hin- um taumlausa, „frjálsa" inn- flutningi og verðbólgunni innanlands verið vegið að rótum íslenzks iðnaðar, þann- ig að hvert iðnfyrirtækið á fætur öðru hefur stöðvazt Þá hefur hinum miklu þjóð- artekjum velgengnisáranna verið ráðstafað með miklu fyrirhyggjuleysi sökum stjórn- leysis á fjárfestingunni. Þjóð- arbúið mun hafa fjárfest t.d. síðasta ár, 196G, um 7000 miljónir króna. Það er hátt í tvöíöld sú upphæð, sem nýbyggingarráð hafði til um- , ráða 1944—’47 og notaði til að gerbylta tæknigrundvelli atvinnulífsins mcð yfirstjórn á fjárfestingunni samkvæmt fyrirfram gerðri áætlun. Og þótt hluti fjárfestingarinnar nú hafi verið notaður til nyt- samlegra hluta, svo sem til íþúðabygginga, skipakaupa og fleira, — þá er það staðreynd, að óhemju sóim hefur átt sér stað • með fjárfestingar- féð sakir stjórnleysisins, svo sem þegar stofnuð eru tvö eða fleiri fyrirtæki til að annast íyrir þjóðarbúið þau verkefni, sem eitt fyrirtæki gæti annað, eins og tvær um- búðaverksmiðjur og þrefalt olíudreifingakerfi. Sakir þess stjórnleysis, ringulreiðar og óðaverðbólgu, sem verið hefur höfuðinntak stjórnarstefnunnar, blasir sú kreppa við, sem er að hefj- ast, þegar verðlag erlendis á sumum fiskafurðum lækkar í stað þess að hækka í sífellu eins og nokkur undanfarin ár. Ríkisstjórnin reynir að hag- nýta þessar verðsveiflur og afleiðingarnar af eigin ó- stjóm til hatrammrar árás- ar á lífskjör almennings; árs- tekjur verkalýðs og annars launafólks stórlækka nú sök- um minnkandi yfirvinnu, verri atvinnumöguleika fyrir alla fjölskyldumeðlimi og byrjandi atvinnuleysis. Til- gangur ríkisstjómarinnar er að velta afleiðingum stjórnar- stefnu sinnar yfir á herðar alþýðu, en forða því íésýslu- valdi, sem hún þjónar, frá því, að völd þess og gróða- möguleikar vcrði skert. Að þcssu miðar ránshcr- ícrð sú, er ríkisstjórnin hóf gegn vcrkalýðssamtökunum með afnámi niðurgreiðslna á helztu nauðsynjum og með fulltingi frumvarps þess, er riftar júnísamkomulaginu, af- nemur ákvæðin um hækkun kaupgjalds samkvæmt visi- tölu o.s.írv. Og jæssi ránshcrferð er að- eins hin fyrsta af fleiri fyr- irhuguðum, — hin næsta kemur um nýár, er „aðstoða“ skal þann útveg, sem fésýslu- valdið og stjórnarstefna þess er að sliga. Vcrður þeirri herferð hagað eítir því, hvernig samningunum reiðir af í fyrstu atrennunni.: Það skiptir því öllu máli um lífskjör alþýðu á naastu árum og þróun atvinnulífs- ins, hvernig verkalýðs- og starfsmannahreyíingin, fagleg og pólitísk, bregzt við þessari fyrstu árás. Samtök launamanna þurfa að hrinda þessari árás á kaup og kjör, og samtímis þurfa öll pólitísk og fagleg samtök, hlynnt alþýðu, að einbeita afli sínu að því ijð hnekkja þeirri röngu stjórnarstefnu, er óförunum veldur, og knýja fram nýja í staðinn. í stað ákefjalausra verð- hækkana og álagningarfrelsis síðustu ára vcrða að koma ströng verðlagsákvæði og raunhæfar ráðstafanir stjóm- arvalda og almennings á öll- um sviðum til þcss að halda öllu verðlagi í skefjum. — Þar mcð væri á því sviði horfið frá stjórnarstefnu síð- ustu ára. í stað taumlauss innflutn- ings og hamslausrar gjaldeyr- iseyðslu" og fjárflótta, verður að koma á yfirstjóm ríkisins í utanríkisverzluninni, fram- kvæmdri með hag almennings og alþjóðar fyrir augum. sem miðar að því að varð- veita og tryggja fulla atvinnu innanlands, en vega ekki að rótum íslenzks iðnaðar í þágu erlendra auðhringa. — Þarmeð væri vissulega horfið frá núverandi stjómleysis- stefnu í viðskiptamálum. 1 stað skipulagslausrar og meira eða minna rangrar fjáríestingar vcrður að koma viturleg heildarstjórn á þjóð- arbúskapnum í alþjóðarþágu og fyrst og íremst á fjár- festingunni, eins og Sósíal- istaflokkurinn og Alþýðu- bandalagið hafa árum saman barizt fyrir og Alþýðusam- bandið stutt. — Þarmcð væri horfið frá einu skaðsamleg- asta atriði í núverandi stjóm- arstefnu, er }>egar hefur vald- ið þjóðarbúinu tjóni, er nem- ur hundruðum ef ekki þús- undum miljóna króna. Það þarf því eigi aðeins að verjast þeim árásum, sem nú eru gerðar á lífskjör al- mennings, heldur og að sækja á til þess að brottnema or- sakir erfiðleikanna, sem al- menningur og íslenzkt at- vinnulíf á við að striða; stjómarstefnuna sjálfa. + Verði þesari stjórnarstefnu framfylgt áfram, er afleið- ingin óumflýjanleg: versnandi lífskjör almennings og vax- andi atvinnuleysi, en hrömun íslenzks iðnaðar og sjávarút- vegs. Næstu stig í stjómar- stefnu fésýsluvaldsins yrðu enn aukin áhrif erlends auð- magns í íslenzku efnahags- lífi, innlimun íslands í Frí- verzlunarbandalagið og náin tengsl við Efnahagsbandalag- ið, en íslenzk yfirráð yfir at- vinnulífinu rénuðu í sífellu. Þetta jafngildir þróun efna- hagslífs á íslandi til nýlendu- hátta, þar sem erlent auð- magn hirðir þau gæði, er því finnst girnilegust, og atvinnu- líf á íslandi verður hluti af efnahagslegu stórveldi, m.ö.o.: efnahagslegt sjálfstæði ís- lenzks þjóðarbúskapar færi veg allrar veraldar. Og þá væri grundvöllur pólitísks sjálfstæðis hruninn. Gegn þessari helstefnu í lífskjara- og sjálfstæðismál- um þjóðarinnar þarf Sósíal- istaflokkurinn og Alþýðu- bandalagið að setja sjálfstæð- isstefnu þá, sem þessir aðil- ar hafa barizt fyrir á undan- förnum áratugum: að íslandi sé stjórnað sem sjálfstæðri efnahagslcgri heild, án aðild- ar að Efnahagsbandálaginu og Fríverzlunarbandalaginu, með yfirstjórn ríkisins á utanrík- isverzlun, fjárfestingu og verðlagningu, framkvæmdri með hag almennings og þjóð- arheildar fyrir augum. Það ber því að íylkja Al- þýðusambandi íslands, verka- iýðs- og laun}>egasamtökun- um yfirleitt, um þessa stefnu, sem er hin eina, er tryggt getur örugga atvinnu og batn- andi líískjör, — og kappkosta að skapa samstarf við Fram- sóknarflokkinn og Alþýðu- flokkinn um framkvæmd slíkrar steínu, og reyna jafn- framt að vinna ábyrga at- vinnurekendur sjávarútvegs og innlends iðnaðar til sam- starfs um slíka vemdun ís- lenzks efnahagslífs og efl- ingu þess. \ \ * * * ! I ! ! I Stöðugir bar- dagar NLF og FLOSY ADEN 6/11 — Látlausir bardag- ar hafa staðið síðustu daga milli hinna andstæðu samtaka þjóð- emissinna í brezku nýlendunni Aden, NLF og FLOSY sem berj- ast um hvor eigi að ráða mestu þegar Bretar fara með her sinn úr nýlendunni síðar í þessum mánuði, eins og boðað hefur ver- ið. A.m.k. 100 menn hafa fallið og 300 særzt í þessum bræðra- vígum síðan þau hófust á föstu- daginn, segja Bretar. Leiðtogar NLF og FLOSY hafa hvatt fylg- ismenn sína til að slíðra sverðin, en þeir hafa virt þær áskoranir að vettugi. Bretar hafa að þessu sintai ekki komið nærri átökun- um, heldur látið málaliða sína í her Suður-Arabíu um það- Á göt- unum £ Othman-hverfi Adenborg- ar lágu, £ kvöld hvarvetna dauð-. ir og særðir og einnig i tveim- ur öðrum hverfum hefur verið stöðug skothrfð. 1 kvöld var skýrt frá þvi að FLOSY hefði hafnað tillögu NLF um að halda áfram £ Aden þeim viðræðum sem undanfarið hafa staðið yfir £ Kairó, jafnframt því sem þegar £ stað yrði lýst yfir vopnahléi milli þeirra. Og síðar barst sú frétt frá Aden að yfir- stjóm hers Suður-Arabfu hefði, sjálfsagt £ samráði við Breta, við- urkennt NLF sem einu samtökin sem gætu komið fram í nafni þjóðar Suður-Arabiu. 2 umferðarslys. í Kópavoginum Um tíuleytið f.h. á sunnudag varð harður árekstur í Kópa- vogi á mótum Meltraðar og Digranesvegar milli tveggja fólksbifreiða. Slasaðist ökumað- ur annarrar bifreiðarinnar á fæti og var fluttur á Slysa- varðstofuna. Annar harður á- rekstur varð í Kópavogi um há- degið í fyrrad., á Reykjanesbraut rétt norðan Hlíðarvegs, farþegi í öðrum bílnum skall á fram- rúðu og fékk þungt höfuðbögg og var einnig fluttur á Slysa- varðstofuna. Ný æf ingarstöð Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra »W'A\\\V.W.V.X.V, Hið nýja hús Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). A sl. ári ákvað stjórn »g fra.mkvæmdaráð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að hefja byggingu nýrrar æfingarstöðv- ar í stað stöðvarinnar að Sjatfn- argötu. JÆa&emrf&élagið befnr. JMi rekið í nær 12 ár. Borgarstjórn hcimilaði félagiuu að byggja stöðina að Háaleitisbraut 13 og er búsið nú orðið fokhelt og var baldið reisugildi sl. laugar- dagr fyrfr l>á sem unnið hafa að byggingunni og jaínframt áttu forráðaanenn félagsins við- tal við blaðamenn. Svavar Pálsson formaður fé- lagsins skýrði svo frá að nýja húsið væri um 4000 rúmmetr- ar og fer öll starfsemin þar fram á einni hæð sem er um 600 ferm. að flatarmáli. Er það mikill munur eða á Sjafn- argðtunni þar sem starfsemin fer fram á þrem hæðum. Búið er nú að leggja um 4 miljón- ir króna í bygginguna og bj4st Svavar við að fyrir aðrar fjór- ar miljónir meetti gera hana hæfa til notkunar. Hefur fé- lagið nýverið selt húsið að Sjofnnrgötu 14 fyrir 3.5 miilj. kr. og þarf það að verða á brott þaðan með alla starfsemi sína fyrir 1. okt. næsta ár, en gangi allt að óskum og fjár- skortur tefji ekíki framkvæmd- ir á þá að verahægtað flytja starfsemina í nýja húsið að Háaleitisbraut 13. Eins og áður segir hefur fé- lagið nú rekið æfingarstöðina að Sjafnargötu 14 í nær 12' ár eða síðan 1956, en hún var sett á fót eftir lömunarveikifiaraldur- inn er gekk hér haustið 1955 og fram á órið 1956 og fengu margir sjúklingar nauðsynlega eftirmeðferð í stöðinni. Keypti félagið Sjafnargötu 14, er áður var einbýlishús, seint á árinu 1955 og lét gera á húsinu nauð- synlegar breytingar. Var það allt gert á einum mánuði með að- stoð danska lömunarveikifé- lagsins. Var þó frá upphafi ljóst, að þama yrði aðeins um braðabirgðahúsnæði að ræða, enda húsið að mörgu leyti ó- hentugt til þessara nota. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur fengið lán úr Framhald á 7. síðu. Bathnintonsamband r Islands stofnsett Stofnþing Iíadmintonsam- bands íslands var háð í húsa- kynnum Í.S.t. sunnudaginn 5. nóv. 11 héraðssambönd voru stofnendur og sátu þingið 12 fulltrúar frá 9 héraðssambönd- um, auk þess mættu undirbún- ingsnefnd og framkvæmda- stjórn Í.S.Í. Forseti Í.S.Í., Gísli Halldórs- son, setti þingið með ræðu, þingforseti var kjörinn Kristján Benediktsson, Reykjavík, og annar }>ingforseti Jónas Gests-' sen, Grafarnesi. Þingritarar voru kjömi.r Þórður B. Sig- urðsson, Reykjavík og Pétur Sigurðsson, Sclfossi. Kristján Benjamínsson, for- maður undirbúningsnefndar, út- skýrði frumvarp að lögum fyrir hið nýja samband, sem samþykkt var mcð nokkrum breytingum og heitir samband- ið Badmintonsambanð fslands. skammstafað BSÍ. Stjórn var kjörin: Kristján Benjamínsson, formaður. Með- stjórnendur: Óskar Guðmunds- son, Ragnar Þorsteinsson, Orm- ar Skeggjason og Ragnar Ge- orgsson. í varastjóm voru kjömir: Birgir Hermannsson. Akureyri, Eyjólfur Bjamason, ísafirði, Hallgrímur Ámason, Akranesi. Endurskoðendur: Magnús Elíasson. Gunnar Fel- ixson. í badmintondómstól voru kjömir: Guðjón Einarsson, Þorgeir Ibsen, Guðmundur Yngvi Sigurðsson. Til vara: Einar Jónsson, Þorvaldur Ás- geirsson og Vagn' Ottósson. í þinglok voru margar hvatn- ingaræður haldnar. 20.000 nautgripum lógað í Bretlandi LONDON 6/11 — Meira en 20 þús. stórgripum hefur verið lóg- að vegna gin- og klaufaveikinn- ar í norðvesturhéruðum Mið- Englands. Faraldurinn virðist enn halda áfram að breiðast út. Ho Chi Minh forseti sæmdur Lenínorðunni MOSKVU 6/11 — Forseti Norð- ur-Vietnams, Ho Chi Minh, hef- ur verið sæmdur Lenínorðunni, æðsta heiðursmerki Sovétríkj- anna. I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.