Þjóðviljinn - 29.11.1967, Side 1
Miðvikudagur 29. nóvember 1967 — 32. árgangur
— 271. tölublað.
Bazarínn á sunnudaginn
□ Kvenfélag sósíalissta heldur hinn Móttaka bazami'Una á laugardag kl.
árlega bazar sinn í Tjamargötu 20 n.k. 2—6 á sama stað og einnig fyrir há-
sunnudag, 3. desember, kl. 3 síðdegis. degi á sunnudag. — Bazamefnd.
Verðtrygging kaups afnumin
Afnám verðviSmiSunar kaups er óréttlátt. ósvífið og
óframkvœmanlegt. sagði B(örn Jónsson á Alþingi í gœr
□ Verðtrygging kaups hefur verið afnumin. Stjórnarflokkamir sam-
þykktu í gær sem lög frumvarpið um að nema úr lögum ákvæðin frá 1964
að greiða skuli bætur á kaup samkvæmt verðvísitölu.
□ Verkalýðshreyfingin er algerlega einhuga um þá skoðun að engin
efnahagsleg rök fyrirfinnist fyrir því að 15—16% almennar verðhækkan-
ir nú og á næstu mánuðum eigi með nokkrum rétti að lenda óbættar á
herðum láglaunafólksins í landinu, sagði Björn Jónsson, formaður Verka-
lýðsfélagsins Einingar og forseti Alþýðusambands Norðurlands á Alþingi í
í gær, þegar fjallað var um stjórnarfrumvarpið uim afnám verðtryggingar
á kaup.
„Allar fyrirætlanir ríkis-
Stjórnarinnar um slíkt munu
verða sér til skammar og
mistakast með öllu. Spum-
ingin í því sambandi er sú
ein hve fljótt ríkisstjórnin
og samtök atvinnurekenda
átta sig á því, hve vonlaus
barátta þeirra gegn verka-
lýðshreyfingunni er, þegar
um grundvallarhagsmuni
hennar er að ræða, grund-
vallarhagsmuni sem hún er
einhuga um að verja til hins
ýtrasta“.
Frumvarpið var afgreitt frá
neöri deild skömmu fyrir mið-
nætti á mánudagskvöld, og tekið
fyrir með afbrigðum í efri deild
i gser, og var þar ekki annað um
það raett af hálfu stjórnarliðsins
en stutt framsöguræða Bjarna
Benediktssonar og örstutt fram-
saga úr nefnd. Allar breytinga-
tillögur stjómarandstöðunnar
voru felldar og samþykkti stjóm-
arliðið, allir þingmenn Alþýðu-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins
þessa lagasetningu, sem forustu-
menn verkalýðshreyfingarinnar á
þingi og utan þings hafa stimpl-
að sem ósvífna árás á samtökin
og lífskjör íslenzkrar alþýðu —
gegn atkvæðum þingmanna Al-
þýðubandalagsins og Framsókn-
ar.
★ Einskis konar samningar
í ræðu sinni rifjaði Björnupp
aðdnaganda þessa kjaraskerðing-
arrnáls og lagði áherzlu á, að um
þau hefði ekkert samkomulag og
einskis konar samningar verið
gerðir af hálfu Alþýðusambands-
ins, miðstjórn Alþýðusamibands-
ins hafi staðið frammi fyrir
orðnum hlut og orðið að gera
ráðstafanir sínar í samræmi við
það. Því færi fjarri að ákvörðun-
in um aflýsingu verkfallanna 1.
desember beri að skoða sem
nokkurs konar undanhald frá
þeirri meginkröfu samtakanna
að kaupgjald hverju sinni þurfi
og eigi að miðast með samn-
ir.gsbundnum eða lögfestum
hætti við verðlag og verðlags-
breytirigar.
Það ætti að vera næsta auð-
skilið hverjum manni aðsamn-
ingar um kaup og kjör hafa
harla lítið gildi fyrir þá, sem
laun taka ef ekki er um slíkt
að ræða, og þá auðsæilega allra
sízt á tímum stórfelldra verð-
breytinga þeirra vara og þjón-
ustu, sem enginn fær umflúið að
gjalda fyrir með launum sínum.
Festing slíkra samninga til
lengri tíma og jafnvel skamms
tima er vitanlega hin mesta fá-
sin-na. Tilgangur allra kaup-
samninga launamanna er vitan-
lega sá og sá einn að tryggja a.
m.k. eitthvert lágmarks raungildi
og þelzt fullt raungildi þeirra
launa, sem um er samið. Stoðar
því í raun ekkert að semja um
óskertar fjárupphæðir launa, ef
allt leikur á lausu um það hvaða
gæði verða fyrir slíkar upphæð-
ir keypt, hvort heldur er til mat-
fanga, klasða, húsnæðis eðaann-
arra nauðþurfta.
Afnám verðviðmiðunar kaup-
gjalds jafngildir í raun
réttri því, að útiloka gerð
kaupgjaldssamninga nema þá
í hæsta lagi til örstutts tíma
í senn, og þó einkanlega á
verðbreytingatímum eins og
þeim, sem nú eru fram und-
an.
★ Afleiðingin harðari barátta.
Skapist slíkt ástand býður það
margháttuðum vandkvæðum
Bjöm Jónsson
heim og þó tveimur helztum: I
fyrsta lagi fullkominni óvissu á
vinnumarkaðinum jafnt fyrir
vinnuseljendur sem vinnukaup-
endur, þar sem enginn veit
stundinni lengur hvert kaup-
gjaldið verður. Er fulljóst að
öllu afkomuöryggi launafólks er
með slíku stefnt í algera tví-
sýnu og atvinnurekendur geta
heldur ekiki haft uppi neinar
fyrirætlanir um rekstur eða
framkvæmdir, sem á neinum ör-
uggum grundvelli verða reistar.
Framhald á 7. síðu.
16 ára stúlka kær-
ir árás og nauSgun
i Flugfargjöld tíl útlanda hækka um 32,6% \
□ í samibandi við gengisfellingu íslenzku krónunn-
ar hafa flugfargjöld til útlanda þegar hækkað um 32,6
prósent hjá báðum flugfélögunum. Þar er miðað við
bandarískan dal.
Þannig kostaði áður hjá
Flugfélagi íslands far á leið-
inni Reykjavík — London,
fram og til baka, kr. 7.276, en
kostar nú kr. 9.645,00 án sölu-
skatts, — á hinni vinsælu leið
Reykjavík — Glasgow, fram
og ta baka, kostaði það áð-
ur kr. 5.775,00i, en kostar nú
kr. 7.669,00 án söluskatts. Á
leiðinni Reykjavík — Kaup-
mannahöfn, fram og til baka,
kostaði far áður kr. 8.191,00
en kostar nú kr. 10.855,00 án
söluskatts. Söluskatturinn er
bætist ofan á þessar tölur er
7 %%.
Hvað kostar svo leiðin
Keflavíkurflugvöllur — New
York hjá Loftleiðum? Áður
kostaði fargjaldið kx. 9.491,00
en kostax nú um kr. 12.576,00
án söluskatts.
í öllum þessum tilfellum er
miðað við vetrarfargjöld, en
þau eru til muna lægri en
sumarfargjöld eins og marg-
ir kannast við.
Flugfargjöld innanlands
hafa ekki hækkað ennþá.
□ 16 ára gömul stúlka hér í borg hefur kært tvo Dani
fyrir líkamsárás og nauðgun. Átti þessi atburður sér stað
sl. fimmtudagskvöld í herbergi annars Danans vestur í
bæ. Hefur rannsóknarlögreglan nú málið til meðferðar og
sitja Danirnir í gæzluvarðhaldi.
Smjörlíki
hækkar um 15%
1 gærdag hækkaði smjör-
líki í verði um 15% í smá-
sölu. Áður kostaði kílóið kr.
30,00 í heildsölu og hækkar
nú í 35,00. 1 smásölu kost-
aði smjörkílóið áður kr.
37,00, en kostar nú kr.
42,50.
I gær var fundur hjá
verðlagsnefnd eins og í
fyrradag og má búast við
verðhækkanatilkynningum í
belg og biðu næstu daga.
1 Stúlkan sem hér á hhit að
máli hafði farið út með þrem
vinkonum sínum sl. fimmtudags-
kvöld. Hittu þær 19 ára gaml-
an danskan pilt og bauð hann
þeim með sér heim til kunn-
ingja síns, fjörutíu og tveggja
ára Dana, er býr í herbergi
vestur í bæ.
Skömmu eftir að þangað kom
fóru þrjár stúlknanna en ein
varð eftir hjá Dönunum. Segir
hún, að annar Dananna hafi bar-
ið sig, er hún ætlaði að búast
til brottferðar, og síðan hafi
pilturinn haft mök við hana
gegn vilja hennar.
Danski pilturinn hefur játað
við yfirheyrslu að hafa haft
mök við stúlkuna og einnig hafa
þeir félagar játað að hafa bar-
ið hana, er hún ætlaði brott
úr herberginu.
BSRB í verðlagsnefndina!
Frumvarpið um nýja verðlags-
nefnd var samþykkt samhljóða
úr efri deild í gær. Náðist þar
samkomulag í fjárhagsnefnd um
að BSRB tilnefndi einn fulltrúa
í nefndina en Alþýðusambandið
3 og var sú tillaga samþykkt. Á
mánudagskvöld FELLDI stjóm-
arliðið í neðri deild sams konar
tillögu, og i efri deild talaði
Gylfi Þ. Gíslason móti bví að
BSRB fengi þar fulltrúa-
Málið þurfti aftur fyrir neðri-
deild vegna þessarar breytingar
og var kvaddur saman fundur
þar í skyndi um sjö leytið í
gærkvöld og frumvarpið afgreitt
sem lög.
Hannibal Valdimarsson í útvarpsumræðum frá Alþingi um vantraustið:
Heiti á verkalýðsfélögin
að þau haldi vöku sinni
□ Hvort sem vantrauststillaga sú sem hér er
til umræðu verður felld eða samþykkt á háttvirtu
Alþingi þá er það sannfæring mín, að ríkisstjóm-
in hafi glatað trausti þjóðarinnar, alveg sérstak-
lega í atvinnumálum og efnahagsmálum, og beri
því lýðræðisleg skylda til að biðjast lausnar, sagði
Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusambands
íslands, í lok ræðu sinnar í útvarpsumræðunum í
gærkvöld, og bætti við: „Alþýðubandalagið ítelur
ríkisstjórnina margfaldlega hafa unnið sér til ó-
helgi og eigi því að segja af sér“.
Hannibal rakti fyrst afsakan-
ir ríkisstjórnarinnar fyrir geng-
islækkuninni og taldi þær hald-
lausar. „Gengisfelling krónunn-
af er bein viðurkenning ríkis-
stjórnarinnar á því að íslenzkir
útflutningsatvinnuvégir voru enn
einu sinnj komnir í þá kreppu
og sjálíheldu að hún kom ekki
auga á nein önnur úrræði til að
halda þeim gangandi en fella
gengi krónunnar um röskan
fjórðung þeim til bjargar. Enda
var það kunnugt að stöðvun
vofði yfir og hafði verið boðuð
um næstu áramót“. Það væri
hinn eini réttlætanlegi tilgangur
gengisfellingarinnar og að því
mundi verkalýðshreyfingin stuðla
að þeim tilgangi yrði náð.
★ Verkalýðsfélögin haldi
vöku sinnj
Nú hefði hins vegar kaup-
greiðsluvísitalan verið felld úr
Framhald á 3. síðu.
Kaffi hœkk-
ar um 9,5%
Kaffihækkun skall á í
gærdag og hækkar kílóið,
brennt og malað, úr kr.
84,00 f kr. 92,00 eða um
9,5%. — Kaffipakki 1/4
kg. hækkar úr kr. 21,00 í
kr. 23,00.