Þjóðviljinn - 24.02.1968, Page 3
\
teasgan3ag*a SA feteóar 1968 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA J
w
I
fá liðsauka
SAIGON 23/2 — Mikill liðsauki var í dag sendur flugleið-
is til Bandarík'jamanna í hinni fornu höfuðborg Hue til
að ganga á milli bols og höfuðs á „Norður-Vietnömum“ sem
hafa haldið borgarvirkinu í 24 daga. í dag var enn barizt
í Saigon.
1 kvöld var skýrt frá ]>ví að
Bandaríkjamenn hefðu sótt svo
langt fram í Hue að þeir vaeru
aðeins í 600 metra fjarlægð frá
vesturvegg virkisins og væru
þeir að hrekja liðsauka Viet-
nama sem var á leið til virkisins
til baka.
Bandarískir landgönguliðar
hafa komizt inn fyrir virkisvegg-
ina en innan þeirra er barizt
um hvert hús og var skýrt frá
því að þeir væru rétt komnir að
hinni fomu keisarahöll innan
virkisins, en Vietnamar verjast
enn í höllinni, sem þeir tóku um
leið og þeir tóku allt borgar-
vigkið í stórsókn Vietnama sem
hófst í janúarlok.
Framhald á 7. síðu.
EfBandaríkin hætta
aðstoi fellur klíkan
Papandreou segir að andspyrnuhreyf-
ingin fari sívaxandi í Grikklandi
KAUPMANNAHÖFN 23/2 — Gríska andspymu-
hreyfingin vex stöðugt og falli ekki herklíkustjórn-
in innan skamms kemur til uppgjörs v4ð valdhafa,
sagði Andreas Papandreou fyrrverandi ráðherra á
blaðamanmafundi í Kaupmannahöfn í dag.
.... \'\'C-'Í"’'"''\'>N'^"""^\'"\\'''\';\\'^'^^<^'^\'í^ý''''\\;''...\\'\'\"''\"\'\'^\-^.""V>'"• ""'\"'''• ■■ ■*
Myndin er af deild úr þjóðfrelsishernum í S-Vietnam. Ekki er frá því skýrt hvar
að dæma gæti það víst verið hvar sem er.
i landinu hún er tekin, en eftir síðustu fréttum
Ef Bandaríkin hættu hemaðar-
aðstoð við herklíkuna og hættu
ásamt með öðrum vesturveldum
allri efnahagsaðstoð viðf klíkuna
mundi verða auðvelt að velta
henni úr sessi bráðlega og áh
mikilla fóma. En ef það gcrist
ekki með þessu móti má vænta
þess að þjóðin gerl uppréisn og
Finnskir hafn-
arverkanenn í
verkfalli
HELSINGFORS 23/2 — Vei-kfall
fmmskra hafnarverkamanna verð-
ur algert frá og með morgun-
deginum i öllum höfnunum þar
sem verkfallið stendur.
1 nýrri atkvæðagreiðslu í dag
meðal haínarverkamanna kom í
ljós að 67,5% þeirra vilja verk-
fall.
1 höfnunum sem um ræðir
liggja hundruð skipa, aðallega
flutnicngaskipa og verður allri
vinnu við þau hætt á morgun.
mörg mannslíf glatist, sagði
hann.
Fapandreou. sem ersonurfýrr-
veraindi forsætisráðherra Grikkja
taldi að næstir til að reyina að
koma klíkunni frá yrðu að lík-
indum lýðræðissinnaðir foringj-
ar í hemum.
Hið mddalega hernaðarein-
ræði kúgar grísku þjóðina og
notar pyndingar sem ekki er
hægt að líkja við neitt nema að-
ferðir Þjóöverja í seinni heims-
styrjöldinni, sagðd hann.
Papandreou lagði áherzlu á,
að það sem Norðurlönd gætu
fyrst og fremst iagt af mörkum
væri að halda fast við skýra
afstöðu BÍna gagnvart stjóminni,
viðurkenna ekki klíkuina og nota
áhrif sín í alþjóðlegum samtök-
um til að sannfæra vesturveldin
um að hætta verður allri aðstoð
við Grikki.
1 Hann sagði að Konstantín
konungur bæri höfuðábyrgð á á-
standinu í Grikklamdi, því að
konungur hefði allár götur frá
15. júní 1965 þegar hann setti
stjórn Papandreous af verið
andstæður kosningum og lýð-
ræðislegum aðferðum við lausm
mála.
Sovézki herinn hélt 50 ára
afmæli sitt hátíhlegt í gær
Heimsvaldasinnár hafa tekið sér hlutverk alþjóða-
lögreglu og reyna að stöðva þjóðir á framfarabraut
MOSKVU 23/2 — Sovézki herinn heldur upp á 50
ára afmæli sitt í dag með ræðuhöldum, flugeldum,
hátíðafundum og kvikmyndasýningum fyrir börn,
en hersýning verður ekki. Hernaðarséndinefndir
frá öllum sósíalískum ríkjum nema Albaníu og
Kína eru komnar til Moskvu til að taka þátt í há-
tíðahöldunum. Á hátíðafundi í þinghöllinni í Kreml
sagði Andrei Gretsjko varnarmálaráðherra að Sov-
étríkin gætu farið í stríð hvort sem væri með eða
án kjarnorkuvopna, en lagði áherzlu á það, að
heknsvaldastefinan væri ekki pappírstígrisdýr.
að hefðu hætt sér út í vainuga-
verð hemaðarævintýri.
Hann sagði ad Bandaríkjamenn
ættu í óþverras'tríði í Vietnam,
æstu hina ísraelsku árásarseggi
upp og ykju viðsjár í heiminuim.
Við verðum að vera mjög vel
á verði þar sem heimsvaldasinn-
ar hafa tekið sér hlutverk al-
þjóðalögreglu og reyna að stöðva
einstákar þjóðir á framfaraledð
þeirra, . sagði Gretsjko.
Hann sagði að hættan á vopn-
uðum átökum í Evrópu hlyti að
vekja þungar áhyggjur. Hefnd-
arsinnamir í Bonn hafa þegar
sett upp mikinn her og nú reyna
þeir að fá aðgang að kjamorku-
vopnum, sagði hann.
Sovézki herinn getur látið til
sín taka undir öllum kringum-
fitæðum á láði, legi og lofti og
með eða án kjarnorkuvopria,
sagði vamarmálaráðherrann og
minnti á eldflaugamar, sem hann
kvað úrslitavopn.
Kínverska vamanmálaráðuneyt-
ið sendi í dag heillaóskaskéyti tii
sovézka hersins.
Giap
f bréfi sem Giap vamarmála-
ráðherra sendi Gretsjko marsk-
álki með heillaóskum í dag seg-
ir að'sóknaraðgerðdr þjóðfrelsis-
hersins hafi skapað algeriega
nýtt ástand í Suður-Vietnam.
Giap segir að vegna hjélpar
sósíalískra bræðraþjpða og með
stuðnimgi allra framfarasinna í
heimi „erum við vissir um að
\vietnamska þjóðin mun’ sigra“.
Hann sagði að ekkert væri
hættulegra en vanmeta óvininn
í þeirri trú að Sovétríkin væm
sterkari.
Hann varaði við hættu af vopn-
uðum átökum í Evrópu og réð-
ist harkalega á heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna.
Borgin var eyðilögð til að bjarga henni
„■Það varð nauð-
synlegt að leggja
borgina i / rústir
til að bjarga
henni“. Svona
tala hershöfðingj-
ar í leikr-itum cft-
ir Sliaw og til-
svörin vekja hlát-
ur. En nú stendur
þetta svart á
hvítu í blaði og
ekki í skemmti-
efninu. Maður
verður að lesa
þetta aftur og aft-
ur til að trúa
eigin augum.
Setningin er
ekki, úr lcikriti.
Hún er höfð eftir
ósviknum bandarískum majór eftir 36 sturnla orustu um vietnamska bæinn Ben Tre. Borgin var
lögð \ rúst. En bandaríski majórinn gat skýrí yfirmönnum sínum frá því að hún væri ekki lengur
í höndum skæruliða. Majórinn á áreiðanlega skilið að fá nokkur purpurahjörtu og silfurstjörnur
og hann liefur sýnt að, hægt er að lifa eftir hinu s ígilda kjörorði; Heldur dauður en rauður.
Bandaríkin 'hafa þegar beðið ósigur í Vietnam. Að þurfa að eyðileggja þáer borgir sem á að vernda.
Að eyðileggja til að bjarga. Iætta er ósigur og þai að avki smánarlegur ósignr. — (Information).
í stuttri setningarræðu sagði'
aðalritari kommúnistaflokksins,
Leonid Brésnef að bandaríska
heimsvaldastefinan væri nú helzta
stoð afturhalds og stríðsstefnu.
Hann sagði að hefndarsinnar í
V-Þýzkalandi reyni að klófesta
kjamorkiuvopn og hafi áætlamir
á prjónunum um breytingar á
Evrópukortinu.
Gretsjko marskálkur flutti yf-
irlit yfir sigra sovézká hersdms
í borgarastyrjöldimni og heims-
styrjöldinni síðari.
Það voru mikil fagnaðarlæti
í salnum er harnn mefndi for-
ingja sem Klimenf Vorosjilov og
Georgí Zjukov og þau jukust er
hann ræddi um herstjóm Josefs
Stalíns.
Gretsjko ■ réðist harkalega gegn
Baindarxkjunum, sem hann sagði
Tillaga um herkvaðn-
ingu allt að250.00
WASHJNGTON 23/2 — Bandaríska varnarmála-
ráðuneytið hefur áþveðið að kveða 48.000 manns
til herþjónustu í apríl. 4000 eiga að gegna her-
skyldu í landgönguliðasveitum flotans, en þær
skipa að mestu leyti atvinnuhermenn.
Hinir 44.000 eiga að fara i
ýmsar deildir landhersins.
Það er ástandið í Vietnam
sem hefur gert það nauðsynlegt
að framkvæma þessa fjölmenn-
ustu herkvaðningu sem gerð hef-
ur verið síðam í október 1966.
Sjónvarpsstjarnan er ekki
stödd í sovézka sendiráðinu
LONDON 23/2 — Brezkur dóm-
ari lýsti því yfir í dag, að sá
sem hafi hina frægu sjónvarps-
stjörnu, hvíta köttinn Arthur i
haldi eigi það á ’.iætiu að verða
ákærður fyrir virðingarleysi við
réttinn.
Fyrirtækið Spillers Pet Food
Company krcfst þess að fáArth-
ur áftur, en hann hefur verið
stjaman í sjónvarpsauglýsimgum
félagsins um kattafæðu.
Eigandi Arthurs, leikarinn Ton-
ey Mannimg hafði tekið köttinn
og neitað að láta hanm koma
fram í sjónvarpinu eftir árekst-
ur við fyrirtækið.
Hann hélt því fram að hann
hefði komið Arthur fyrir í sov-
ézka sendiráðinu, • þar sem hamm
hefði fengið pólitískt vistarleyfi,
en sendiráðið hefur neitað þessu.
1 réttinum f dag var Manning
skipað af afhenda köttinm aft-
ur og var lýst yfir að Spillei-s
Pet Food Compamy hefði rétttil
að nota Arthur í sjónvarpsaug-
lýsingar sínar, en kröfum fé-
lagsims um að Mamning yrði
stungið í tugtihús var vísað frá.
Vamarmálaráðuneytið skýrði
enn fremur frá því að 41.000
manns verði kvaddir í herinn í
marz, en það er 2000 fleira en
áður var sagt.
1 janúar klædduist 34.000 nýlið-
ar einkennisbúningum og í fe-
brúar 23.000. Og allt fram á síð-
ustu daga hefur það verið talið
nægjanlegt að kalla 40.000 manns
í herinm í apríl.
Vamarmálaráðumeytið hefur
skýrt frá því að himir 48.000,
sem koma í herinn í apríl muni
fylla þá tölu hermanna sem tal-
ið er nauðsynlegt að hafa und-
ir vopnum.
Góðar heimildir eru hafðar
fyrir þvi að vamanmálaráð hafi
gert áætlanir um herkvaðningu
40 tál 50 þúsund manna og sé
vamarmálaráðherrann McNam-
ara að athuga þessar áætlanir
og um leið 10 aðrar tillögur sem
hafa verið lagðar fram vegma á-
standsins í Vietmam.
Hinar mismunandi tillögur
gera ráð fyrir aukningu í hem-
Framhald á 7. síðu.
i