Þjóðviljinn - 24.02.1968, Síða 8

Þjóðviljinn - 24.02.1968, Síða 8
I Ij SjDA — ÞJÓÐ'VTL.JtNN — Laugardagur 24. feteiar 1968. SAKAMALASAGA Eftir J. B. PRIESTLEY 18 komir með mér, Maggie. Ég vil að þér séuð hér eftir hjá Jill, Alan. Við Maggie komum ekki aftur hingað — það gæti eyði- lagt eitthvað. Ég býst ekki við að verða. lengi hjá Arigson, svo að ég fer með Maggie heim til mín. Ef þér verðið ekki kominn þangað klukkan ellefu, þá ek ég henni heim. Þér getið sagt Maggie allt sem hún þarf að vita — ég á við, það sem ég þarf að vita — í fyrramálið. Maggie, ef þú vilt síður koma með mér til Aricson, þá gæti ég skilið þig eftir í íbúðinni minni á leðinni þangað — v — Nei, ég vil koma með þér, s&gði hún ákveðin. — Þú manst að þú sagðir að faðdr mmn hefði spurzt fyrir í klúbbnum á -mánu- daginn. Auk þess kom hann til Birkden til að spyrja um Nor- een Wilks. — Þú kemur þá með mér. Ef hann er ekki heima, þá ek ég þér einfaldlega heim. Já. Alan?. — Það er ekki víst að Jill kæri sig um að ég verði hér eftir — — Við komumst brátt að því- — Ég vildi gjarnan tala við hana. En sem hugsanlegur V;n- ur. AJan talaði lágt og virtist hálffeiminn. — Og ekki sem einn úr Noreen Wilks rannsóknar- nefndinni. Ég held hún haf’ sagt yður allt sem hún vissi — og það var ekki auðvelt — og mun- ið það bæði tvö, að hingað til höfum við l’tið á þetta allt frá ykkar sjónarhomi. ekki henn- ar — — Ö — Alan — skilurðu ekki — —' Nei, Maggie. Salt læknir greip fram f í skvndí. — Alan hefur rétt fýrir sér — — Nú, jæja, sagði -Maggie lágt en með ofsa. — Það er eins gott að hann viti bað, að hún er ást- mey þessa manns sem er að hringja til hennar frá New York — Tommi eitthvað — Linsdale — — Og nú veit hánn það, er þsð ekki? sagði Alan. — En þú þarft ekki að vera svona skelfi- lega hörundssár, Magga. Þetta er ekki þér viðkomandi — — Það er það, ef þú — Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav 18. III. hæð (lyfta) Símj 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 83-968 — Hættu þessu. — Einn góðan veðurdag, sagði Jill sem virtist hafa náð sér aft- ur, — kemur að því að fólk þykist vera að hringja frá New York en er í rauninni f næsta herbergi. Ég er að reyna að segja ykkur hvað sambandið var gott — án þess að vera leiðin- leg. — Ó, Salt læknir, verðið þér að hringja í Aricson? — Já, ég má til- Ég vil kom- ast frá Birkden- eins fljótt og ég get. Og þess vegna vil ég halda mér við efnið. Hann sneri skíf- unni og hélt tólinu að eyranu. — Er þetta herra Aricson? Ég heiti Salt læknir — og mig lang- aði t’l að spyrja hvort ég mætti líta inn til yðar andartak....... Já, satt að segja er það áríðandi. Við skulum sjá — nei, ég ætti að geta verið kominn eftir tíu mfnútur. Þökk fyr’r. Hann leit á Jill og brosti. — Nú talaði ég næstúm sf mér. Ég ætlaði að fara að spyrja hvar hann ætti heima. — Því ekki það, fyrst þér ætl- ið að heimsækja hann? — Ef ég hefði fengið númerið hans úr símaskránni, þá hefði ég Ifka heimilisfangið fyrir aug- unum. Ef ég hefði spurt hann hvar hann ætti he;ma, þá hefði ég ekki notað símaskrá. heldur fengið númerið hans hjá ein- hverjum sem þekkti hann. Og bá hefði legið beint við að spyrja — hjá hverjum? — Þér eruð þá að reyna að halda mér utan vð þetta — bökk fvrir, læknir — Og bökk fyrir drykkinn, Jill. Tilbúin, Maggie? — Af hverju hel^urðu að hann hafi skibð okkur eftir ssman? sagði Jill þegar þau settust með drykki sína. — Heldur hann að þú getir háft eitthvað nýtilegt upp úr mér? Það er annars til- gangslaust, það er ekkert fleira. — Ég skalisegja þér nákvæm- lega hvað ég sagði við hann, þegar hann stakk upp á því að ég yrði eftir. Ég sagðist gjarnan vilja tala við þig — en aðeins sem hugsanlegur vinur, ekki einn úr þesss<ri rannsóknamefnd — og ég teldi vfst að þú hefðir sagt honum allt sem þú vissir. Ég sagfVi líka, að til þessa hefð- um við litið á allt frá þe;rra sjónarhorni. ekki þínu. — Alveg rétt. Þú ert þegar orðinn vinur — ekki aðeins hugs- anlegur. En segðu mér nú eitt. Er mér að förlast — ég á við í skarpskyggninni á kan-lmenn — eða blekkti hann þig líka? — Þér er ekki að förlast. Hann blekkti mig svo sannar- lega. Ég gát varla talað við hann þama í klúbbnum, mér fannst hann svo hræðilegur auli- Ekki svo að skilja að ég hafi ekki hitt menn af hans tagi fyrr. Ég var á ráðstefnu síðast liðið sumar, pg einn náunginn þar — frægur eðlisfræðingur — ráfaði um aillt og leit út eins og hálfviti, en strax og ég fór að tala við hann var ég alveg dolfallinn af hrifningu. — Margir af þeim karlmönn- um sem ég hef hitt upp á sfð- kasffð hafa reynt að gerai mig dolfallna — eirtkum og sér í lagi með handleggjunum — en þessi Salt læknir kom mér alveg á ó- vart. En nú erum við búin að tala nóg um hann. Og ef þú svo mikið sem minnist á Nor- een Wilks, • þá rek ég þig út. Talaðu um sjálfan þig. — Það er ekki spennandi um- ræðuefni, Jill. Ég er þrjátíu og þriggja ára, lektor í eðlisfræði- deild háskólans í Hemtonshire, ó- kvæntur, bý með móður minni og Maggie og föður mínum, þegar hann er ekki gufaður upp. >Utan vinnutímans hef ég aðal- lega áhuga á mölflugum. Og ekki hlæja — þær geta verið stór- kostlegar. Ég er ögn greindari en ég h't út fyrir að vera. en alls ekkert gáfnaljós. — Vinkona? — Engin í svipinn. Ég hef auð- vitað átt þær nokkrar- Það er blómlegt kynlíf í háskóianum. Allar þurfa að sanna hvað þær eru frjálslyndar. Meðal annarra orða, hver var stóri, rjóði og feitlagni maðurinn sem var með þér þegar þú komst í bókabúð- ina til hann pabba? — Maðurinn sem var að hringja t;l mín frá New York Tommi Linsdale. — Nú — sá. Ertu ástfangin af honum? — i Ef þér kemur það nokkuð við, Alan — þá er ég það ekki. En mér þykir dálítið vænt um hann. Hann er gervikarl — en það er ég auðvitað líka. Hann þyk’st vera harður í horn að taka,' ófyrirleitinn sölustjóri — í bandarískum stíl — og hamn hlýtur að standa sig vel í starf- inu, annars myndi Donnington sem fellur ekki við hann,. ekki hafa hann áfram og borga hon- um svona vel. En undir allri yf- irborðsmennskunni og hávaðan- um og glasabuldrinu, er hann svo eins og sautján ára piltungi og hálfhræddur, þegar hann er allsgáður. En hann var mér góð- ur, þegar ég hélt að góðmennska værí ekki lengur til. í rauninni á ég honum mikið að þakka — til að mynda allt betta glæsilega ytra borð sem hér er sýnt. Or láttu ekki sém þú sért ekki hrií- inn af þvf, vegna þess að þú ert bað. Alveg eins og þú varðst hrif;nn af útliti mínu þegar þú sást mig í búðinni ykkar. Ef ég hefði litið út eins Dg ég gerði rétt áður en ég kom til B;rkden. þá hefðirðu litið einu sinni á mig og farið síðsm að elta mölflugu- Já, — ég veit — ég skal spara þér ómak;ð — fallegu auvun mín, glæsilegt nefið og yndisleg- ur munnurinn — þú tókst auð- vitað strax effir því, gazt ekki gleymt því dögum saman, vik- um saman — — Mánuðum, sagði Alan. — Og þs'ð er alveg satt, ég gat ekki gleymt því. þótt ég myndi það kannski ekki nógu vel held- ur — — Og ég segí það aftur, blfð- mál! vinur, að ef ég hefði litið út eins og ég gerði rétt áður en ég kom til Birkden, þegar ég átti enga peninga til að eyða í útlitið, þá hefðirðu litið á mig einu sinni og gleymt mér fyrir næstu mölflugu — hvaða möl- flugu sem var. — Ég er ekki viss um .-það, sagði Alan. — Hvar varstu áð- ur en þú komst hingað? — I stórborginni, vinur — já, London. Og ég hafði lent í einu af þessum ástarævintýrum — einu af þessum, stórkostlegu, ógnþrungnu sem hirða ljómann af ungu stúlkunum — — Rétt eins og Maggie — — Það kemur mér ekki á ó- vart, fyrst þú nefnir það — — Hennar ævintýri tók þrjú ár. Hann vsr kvæntur — — Ég hef ekki einu sinni þá afsökun. Minn var það ekki — og gætti þess vandlega að fJækia sér ekki f neitt slíkt. Og mér lá mikið á að gefa hpnum allt sem ég hafði upp á að bjóða. Og þegar einhver* sérstakur karl- maður hefur áhuga á slíku, J?á finnst viðkomand’ stúlku hún vera dýrleg og dásamleg..Og beg- ar hannVnissir áhugann, fer hún að velta fyrir sér hvað hún haldi e’ginlega að hún hafi uppá að bjóða. Þessí þrjótur hirti það allt saman — geisp- aði — fór sína leið. Það tók svo sem tvö ár, en þetta er ssgan svóna nokkurn veginn. — Hvað svt>? — Undanhaldið af austurvíg- stöðvunum og í herbergiskytru í W^st Hampstead með eggja- hræru og kjökr', gini og aspir- íni. Svo var það að stelpa sem sagði mér frá Tomma Linsd&le og Sameinuðu verksmiðjunum — hún hafði farið út með honum eitt kvöldið — svo að ég eyddi sparifénu í dragt, hatt, skó og ýmislegt til yndisauka, kom hingað með níu pund í veskinu, sem var aleiga mín, og heimtaði að fá . að tala við Tomma- Ég fékk vinnu í sölude;ldinni ,o.g varð fljótlega til margra hluta nytsamleg. Ég stóð fyrir sam- kvæmum þar sem eiginkbnur og dætur fengu ekki aðgang. Svo voru það samkvæmin í klúbbn- um — fámennari samkvæmi hérna — * — Á Linsdale bessa íbúð" — Nei. Framfaras.ióðurinn í Birkden á þessar íbúðir, og Sameinuðu verksmiðjumar hafa stjórn hans með höndum. Og ef ég brýt eitthvað af mér, þá fæ ég að sigla minn sjó. — Kannski væri betra að þú sigld;r þinn sjó — — Vertu ekki með þessa vit- leysu. '— Finnst þér gott að sofa hjá Linsdale? — Æ — þegiðu. — Og hvað um þessar stúlkur sem þú dubbar upp í samkvæm- in? SKOTTA Cabinet MAIVSTON-rósabón gefnr þægilegan ilm í stofuna Ef þú hefðir tímt að selja hasarblöðin þín værum við núna að borða glæsilega máltíð á finum veitingastað. ÚTSALA ~ ÚTSALA Stórfelld verðlækrkun á öllum vörum verzlunar- innar. — Notið þetta einstaka tækifæri og gerið góð kaup. ALLT Á AÐ SELJAST! VERZLUN GUÐNYJAR Grettisgötu 45 ' Utsa/a — Kjarakaup Úlpur — Kuldajakkar — Peysur — Buxur Hvítar fermingarskyrtur — Skyrtupeysur og margt fleira. r __ O. L. Laugavegi 71 Sími 20171. Gerið við bíla ykkar sjálf Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga. BÍLAÞJÓNUSTAN Auðbrekku 53, Kópavogi — Sími 40145. Látið sfilla bílinn Önnumst hjóla- ljósa- og mótorstillingu Skiptum um kerti. platínur. ljósasamlokur. — Örugg þjónusta. BÍLASKOÐUN OG STILLJNG Skúlagötu 32. sími 13100 1 Hemlaviðgerðir • Rennum bremsuskálar. • Slípum bremsudælur. • Límum á bremsuborða. Hemlastilling hf. Súðarvogi 14 - Sími 30135.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.