Þjóðviljinn - 24.02.1968, Side 10
Sex námshópar hefja störf í Reykjavík
Norræm sunwrháskólinn á Is-
landi / fyrs ta sinn í sunwr
□ Dagana 2. — 11. ágúst í sumar mun Norræni sumar-
háskólinn i fyrsta skipti halda mót sitt á íslandi, en hann
var stofnaður 1950 og hafa íslendingar tekið þátt 1 starfi
hans updanfarin ár. Eru væntanlegir til mótsins 190 er-
lendir þátttakendur auk íslenzkra, eh námshópar í 12 grein-
um munu starfa á vegum skólans.
□ íslandsdeild Norræna sumarháskójans hefur á næst-
unni starfsemi sex námshópa í Reykjavík í greinum sem
teknar verða til meðferðar á mótirm í sumar.
Frá þesisu var skýrt á fundi
sem stjóm Islandsdeildar Nor-
ræna sumarháskólans hélt með
blaðamönmum í gær, en þar var
einnig mættur framkvæmda-
stjóri sumarháskólans, _ Holger
Jensem hagfræðmgiur frá Dan-
mörku. Sögðu framkvæmdastjór-
inn og formaður íslandsdeildar,
Þór Vilhjálmsson prófessor, sem
jafnframt er fonmaður Norræna
sumarháskólans 'þetta árið, frá
starfsemi skólans. Hann. var
stofn'aður 1350 og starfar við há-
skóla og æðri menntastofmanir á
öllum Norðurlöndunum, en til-
gangurinn er að auka skilning á
undirstöðuatriðum vísindastarf-
semi, efla þekkingu á vandamál-
um sem eru sameiginleg tveim
eða fíeiri fræðigreinum og benda
á eihkenni á rannsóknaraðferð-
um hverrar vísindagrednar.
.Aðalþættir í starfsemi Nor-
ræna sumarháskólams eru náms-
hópastarf, sumarmót, starf vinnu-
hópa og útgáfustarfsemi.
Námshópastarfið fer fram á
vormisseri ár hvert og velur
stjóm skólans viðfangsefnin, sem
a þessu ári eru tólf/ Settir eru
á fót námshópar eftir því sem
aðstæður leyfa á hverjum stað
og starfa nú 105 námshópar í
19 borgum. Sex námshópar eru
í þann vegimn að taka tilstarfa
i Reykjavík á vegum íslands-
deildarinnar og eru verkefni
þeirra eftirfarandi:
Útskúfun (Entfremdung) í liú-
tíma þjóðfélagi. Stjómandi: dr.
Bjanii Guðnason prófessor, Há-
skóla lslands, sími 21330.
Líffræðileg stjórnunarkerfi. —
Stjómandi: dr. Jóhann Axelsson,
prófessor, Rannsóknarstofu í líf-
eðlisfræði, Háskóla Islands, sími
22766.
Alþjóðastofnanir og ríkjabanda-
lög. Stjómandi: Gaukur Jörunds-
son lektor, Háaleitisbraut 115,
simi 36766.
Samband rannsókna og at-
vinnulifs. Stjómendu-r: Úlfur
Sigurmundsson hagfræðingur,
Fellsmúla 10, sími 35116 og Þór-
ir Einarsson hagfræðingur, Iðn-
aðarmálastofnun ísla-nds, sími
81533.
Hugmyndakerfi og þjóðfélags-
skoðanir. Stjómandi: Bjami
Bragi Jónsson hagfræðingur,
Efnahagsstofnuninni. Laugaveg
13, sími 20502. ^ ■
Mat á skipulagi. Stjórnandi:
Geirharður Þorsteinsson arkitekt,
Laugarnesvegi 71, sími 81776.
öllum háskólaborgurum er
heimil þátttaka í starfsemi náms-
hópanna í Reykjavík, og emþeir,
sem áhuga hafa á þátttöku, beðn-
ír um að hafa hið fyrsta sam-
bsnd við stjómendur eða stjóm
íslandsdeildarinnar, en í henni
eiga sæti auk Þórs Vilhjálms-
sonar formanns, þeir Þorvaldur
S. Þorvaldsson arkitekt, ritari,
Bjarni Guðnason prófessor, Úlf-
ur Sigurmundsson hagfræðingur
og í varastjóm Ölafur Björnsson
prófessor, Þórir Einarsson hag-
fræðingur, Gaukur Jömndsson
lektor og Pétur Sigurjónsson for-
stöðumaður' Rannsóknastofnun-
‘ar iðnaðarircs.
Sumarmót Norræna háskólans
em haldin árlega. Flutti-r em
fyrirlestrar og "þátttakendur í
námshópum síðasta vetrar bera
saman bækur sinar. Mótið í
sumar verður'haldið í Reykjavik,
dagana 2.—11. ágúst, og er það
í fyrsta sinn sem það er haldið
hérlendis. Verða þar fluttir 5-6
fyrirlestrar, þar af tveir af Is-
len-dingum, prófessorunum Ólafi
Björnssyni og Bjama G-uðnasyni,
en námshópar munu s.tarfa í tólf
greinum. Þá verður reynt að
kynna þátttakendum íslenzka
menningu og náttúm landsins.
Búizt er við 190 erlendum þátt-
takendum og sagði Holger Jen-
sen að mikill áhugi rí'kti á mót-
inu hér og ferðinni til Islands.
Hef-ur Islandsdeild skólans fengið
styrki úr ríkissjóði og borgar-
sjóði Reykjavíkur til mótsins,
en vemlegur hluti kostnaðar er
greiddur úr sameiginlegum sjóði
skólans.
Vinnuhópar á vegum Norræna
sumarháskólans hafa ýmist það
hlutverk að athuga hugsanleg
verkefni námshópa eða vinna úr
niðurstöðum námshópa og ganga
frá þeim til birtingar í rita-
Laugardagur 24. febrúar 1968 — 33. árgangur — 46. tölublað.
Benóný vann Guðmund
«
Holger Jensen framkvænulastjóri
Norræna sumarháskólans á fundi
með blaðamönnum í gær.
•
flokki, sem sumarháskólinn gef-
>ur út á ensku 1 samvinnu við
Munkgaardsforlagið í Kaup-
mannahöfn. Auk þessa ritaflokks
gefur skólinn út tímaritið NORD-
ISK FORUM um háskóla- og
rannyiknamál í samvinnu við
Universitetsforlagið í Osló og
loks tímaritið „Information fra
Nordisk Sommeruniversitet“.
Framhald á 7. síðu.
Bragi er efstur í
úrslitakeppninni
3ja umferð í úrslitakeppninni
á Skákþingi Reykjavíkur var
tefld í fyrrakvöld og bar þar
markverðast til tíðinda, að Benó-
ný Benediktsson vann Guðmund
Sigurjónsson. Ömiur úrslit í
þessari umfcrð urðu þau, að
Lcifur Jóstcinsson vann Andrés
Fjcldsted, Bragi Kristjánsson
vann Gunnar Gunnarsson en
Jón Kristinsson og Björn Þor-
steinsson gerðu jafntefli.
Staðan eftir 3 umferðir er þá
H-cfags úfstilling hjá Herradeild P.Ó.
Fræðslusamkoma hjá Hiuu
ísl. náttúrufræðifélagi
Hið islenzka náttúrufræðifélag
heldur fræðslusamkomu í I.
kennslustofu Háskólans næst-
komandi mánudagskvöld kl. 20,30.
Þá fljfcur Sveinbjöm Björnsson
jarðeðlisfræðingur erindi:
„Um landrek, miðhafshryggi
og jarðfræði lslands“.
1 byrjun aldarinnar. setti Al-
freð Wegener fram - landreks-
kenninguna, en í henni er m.a.
gert ráð fyrir, að í eina tíð
hefðu meginlöndin sitt hvoru
megin Atlantshafsins verið ein
heild, en þau síðan brotnað upp
og færzt til. Kenning þessi hefur
verið mikið umdeild, en á síð-
Góufagnaðurinn
annað kvftld
Á morgun, sunnudaginn
25. febrúar, er konudagur-
inn og efnir þá Kvenfélag
sósíalista til góufagnaðar í
Tj^margötu 20. , Eru állir
sósíalistar óg velumnarar fé-
lagsins velkomnir á fagn-
aðinn.
Sem vera ber á fyrsta
góudegi verður gómsætur
íslenzkur matur á þorðum,
en borðhaldið hefst kl. 7.
Undir borðum verður tek-
• ið lagið, en auk þess mun
Jónas Ámason alþingismað-
ur skemmta með upplestri
og nemendur úr Tónskóla
Sigursveins D. Kristinsson-
ar leilka á hljóðfæri. Þá
verða sýndar falenzkar lit-
skuggamyndir.
ustu árum hafa jarðeðlisfræðileg-
ar rannsóknir skotið ýrnsum
nýjum stoðum undir hana. Eink-
um hafa rannsóknir á botni út-
hafanna og neðansjávarhryggj-
unum, serrr liggja um þau endi-
löng beint athyglinni að land-
reki á nýjan leik. Að margra á-
liti er Island einmitt stærsta
svæði miöhafshryggjanna, sem
ofansjávar er. Af þessum sök-
um hefur athygli þeirra, sem
fást víð rannsóknir á landreki og
miðhafshryggjum beinzt að fs-
landi. I erindínu mun Sveinbjöm
Bjömsson fjalla um landreks-
kenningar og miðhafshryggi og
þá vitneskju, sem lesa má af
jarðfræðilegri gerð íslands um
myndunarhætti hryggjanna.
(Frá Hinu falenzka náttúru
fræðifélagi).
Herradeild P. & Ö. hefur um^
^essar mundir útstillingar í
•jlý gluggum sínum sem miuna á
•;ý H-daginn 26. maí í vor. Mynd-
in sýnir glugga verzlunarinn-
ý ar að Laugavegi 95, og það
■fr fer víst ekki framhjá neinum
•ír sem skoðar í gluggann hvenær
☆ H-dagurinn er. Höfiuindur út-
☆ stillingarinnar er Birgitt Lút-
■jír hersson, og er áreiðanlegt að
■& fleiri verzlanir eiga eftir að
☆ feta í fótspor P. & Ó. og
■jir minna á umferðarbreytinguna
■jír í útstillingagluggum sinum.
þessi: 1. Bragi 2%, 2.—3. Jón 1%
og biðskák við Guðmiund og
Bjöm iVz og biðskák við Gunm-
ar. 4. Benóný 1 og biðskák við
Gunnar, 5.—6. Andrés og Leifur
1. 7. Guðimmdur Vz og biðskák
yið Jón_, 8. Gunriar 0 og 2 bið-
skákir við Bjöm og sBenóný.
Biðskákimar verða tefldar á
morgun, sunnudag, og þá verð-
ur sömuleiðis tefld 4. umferð í
Boðsmóti TR.
3ja umferð í Boðsmótinu var
tefld í' fyrrakvöld og urðu úrslit
þessd: Jóhanin Sigurjónsson vann
Karl Þcrledfsson, Haukur Angan-
týsson vann Gylfa Magnússon,
Sigurgeir Gíslason vann Rubek
Rebeksen, Ölafur Einarsson vann
Guðmund Þórarinsson, Jóhann
Þórir vann Sigurð Herlufsen, 'Jón
Þór vann Sigurð Kristjánsson,
Benedikt Halldórsson vann
Tryggva Arason, en jafntefli
gerðu þeir. Þórir Ölafsson og
Hermann Ragnarsson.
Að þremur umferðum loknum
eru Jóhann Sigurjónsson og
Haukur Angantýsson efstir með
3 vinninga, en Jóhann Þórir er
þriðji með 2% vinning.
Liðsfundur ÆF
Verkalýðsmálanefnd Æ.F. efn-
ir til liðsfundar um verkalýðs-
mál, sunnudaginn 25. febrúar kl.
4 í Tjarnargötu 20 (uppi). Skor-
að er á alia Fylkingarfélaga sem
eru meðlimir í aðildarfélögum
A.S.Í. að mæta.
Keppni lokið í
2. flokki A
Nýlega er lokið keppni í 2.
flokki A á Skákþingi Reykja-
víkur. Úrslit urðu þau, að Ragn-
ar Þ. Ragnarsson sigraði, hlaut
8!/2 vinning í 12 skákum. í 2.
til 4. sæti urðu Hafsteinn Bland-
on, Magnús Gylfason og Þórhall-
ur Ólafsson með 714 vinning. -
Skólaútvarpið i annað sinn
Á næstunni verður efnt til
skólaútvarps um umferðarmál
fyrir böm og unglinga á skóla-
skyldualdri. Er það í annað sinn
sem útvarpað verður umferðar-
fræðslu beint til nemenda í
kennslustundum. Að þessu sinni
verður skólaútvarpið með breyttu
sniði og mismunandi efni tekið
fyrir, eftir því hvaða aldursflokk-
um er ætlað að njóta umferðar-
fræðslunnar. Eins og áður, þá
stendur starfsnefnd um umferð-
arfræðslu í skólum fyrir skóla-
útvarpinu, en Guðbjartur Gunn-
arsson kewnari annast allan
undirbúning að útsendingum.
Mánudaginn 26. febrúar verða
útsendingar fyrir böm á aldrin-
um 7—9 ára klukkan 10,45 og
14,00.
Þriðjudaginn 27. febrúar verða
útsendingar á sömu tímum fyrir
10—12 ára böm. Búið er að
senda vinnublöð í skólana, sem
ætlazt er til, að bömin hafi hjá
sér á meðan þau hlusta á út-
sendinguna.
★
Skólaútvarp fyrir gagnfræða-
skóla verður svo föstudaginn 1.
marz'lklukkan 10,45 og 14,00.
Sami háttur verður hafður á
nú og þegar skólaútvarpið var
í desember, að kennarar og nem-
endur þurfa í sameiningu að út-
vega sér útvarpsviðtæki til að
hafa í skólastofunum.
Varfti doktorsrit-
gerð við Sorbonne
PARÍS 18/2. — Þann 5. febrúar sl. varði frú Giséle Jónsson
doktorsritgerð í vfsindum við Svartaskóla. Fór varnarat-
höfnin fram um morguninn og var margt erlendra og ís-
lenzkra manna viðstatt.
Frú Giséle. sem er frönsk-
ættuð, er gift Sigurði Jónssyni,
sem einnig er doktor í jurtalíf-
fræði frá Sorbonne, en hann
starfar nú að rannsóknum í Par-
ís, meðal annars að verkefnum
i sambandi við landnám lífs við
Surtsey.
Frú Giséle Jónsson hefur um
árabil unnið að doktorsritgerð
sinni umdir stjórn prófessors
Plantefols, meðlims í frönsku
vísindaakademíunni. Ritgerð
hennar nefnist: Études sur l’ont-
ogenése normale et tératolagique
chez quelques Stapelias. Er
hér um að ræða mikið verk og
liggja umfangsmiklar rannsókn-
ír að baki þess bæði á sviði
frumu- og vefjafræði. Ritgerðin
fjallar að mestu um afbrigði-
legan og óafbrigðilegan vaxtar-
máta hjá himum svokallaða
stjömukaktusi, en þessar plöntur
eru merkilegar að þvi leyti, að
þær hafa sérstaka tilhneigingu
til vanslíapnaðar, sem í sumu
minnir á krabbamcinsmyndun.
Var tilgamgur rannsóknanna að-
allega fólgimn í því að bera sam-‘
an eðlilegan og óeðlilegan vöxt
og komast að þeim lögmálum,
sem honum stjórira.
Plöntur þessar eru ættaðar
frá’ Suður-Afríku og teljast sjald-
gæfar hér á meginlandinu, en
þannig stendur á, að töluvert af
þessum jurtum er ræktað í gróð-
urhúsum á Islandi, þar sem þess-
ar plöntur eru hafðar semskraut-
jui-tir. Þrátt fyrir suðrænan upp-
runa þeirra vill því svoskemmti-
lega til, að meginefniviður þess-
ara rannsókna er af kalda Fróni
kominn.
Fóru andmælendur lofsamleg-
um orðum um verkið og þær
nýjuingar, sem þar koma fram
og töldu athuganir þessar opna
merkilegt rannsóknasvið. Hlaut
frúin æðstu viðurkenningu sem
Svartiskóli 'veitir fyrir doktors-
ritgerðir, „trés honorable“.
Þau doktorshjón starfa nú
bæði hjá Rannsóknastofwun
franska ríkisins að líffræðirann-
sóknum. Aðspurð að því, hvað
þau hygðust fyrir i náinni fram-
tíð, kvaðst Sigurður Jónsson bú-
ast við því að geta haft aðstöðu
hcima til að halda áfram að
mininsta kosti Surtseyjarrann-
sóknum sínum í suimar. Frúin
hefur mikinn hug á því að at-
huga _ falenzka gQldingaihnappa,
Giséle Jónsson
en þeir teljást til sérstaks stofns,
sem er mjög merkilegur fyrir
hennar rannsóknarsvið.
Á Islandi eru vissulega mörg
óunnin rannsóknarverkefni. Enda
þótt vaxandi skilningur sé nú
fyrir gildi undirstöðurannsókna á
öllum sviðum, erum við enn
langt frá því marki að nýta til
hlítar þá fáu vísindamenn sem
við eigum kost á, og ekki sízt
þá, sem aflað hafa sér alþjóða-
viðurkenningar. Stórt átak er þvi
enn að gera til þess að skapa fa-
lenzkum vísimdamönnum eðlileg
starfsskilyrði heima fyrir, og
koma þannig í veg fyrir að þeir
neyðist til að eyða starfskröftutn
sínum erlendis. — HSÁ.
<3