Þjóðviljinn - 27.02.1968, Blaðsíða 5
íviðjudagur 27. febrúar 1968 — Í»JÓÐVILJINN — SfÐA IJ
Cr nýja eldishúsinu.
Á kerbotninum er iðandi líf, sifelld hreyfing . , ,
Starfsemi Laxeldisstöðvarinnar í Kollafirði
•ySa
□ Fulltrúar á Búnaðar-
þingi, stjórn Búnaðarfé-
lags Islands, búnaðar-
málastjóri og fleiri gest-
Ir skoðuðu sl. fimmtudag
Laxefldissföð ríkisins í
Kollafirði í boði stöðvar-
innar. Að heimsókninni í
stöðina lokinni var gest-
um boðið í kaffi að Hlé-
garði, þar sem Þór Guð-
jónsson veiðimálastjóri
gaf upplýsingar um bygg-
ingu, stöðvarinnar, rekst-
ur hennar. og framtíðar-
verkefni og fer yfirlit
hans hér á eftir í stór-
um dráttum.
Fiskirækt ný grein íslenzks land"
búnaðar? — Fulltrúar Búnaðarþings
skoða stöðina af miklum áhuga
Árið 1961 keypti ríkisstjómin
jörðina Kollafjörð á Kjalarnesi
til þess að láta reisa á henrni
tilraunastöð fyrir klaki og eldi
laxfiska og hófust framkvæmd-
ir þá um haustið. Hafa þær
staðið síðam með hléuim. f eld-
isstöðinni eru nú 107 2 til 4
fenmetra flát fyrir eldi smá-
seiða, .43 eldistjamir af' mis-
munandi stærðum og 3 stórar
geymslutjarnir innan við sjáv-
arkambinn í Kollafirði. Alls er
flatarmál tjarnanna sem næst
7000 fermetrar. Auk þess er
klakútbúnaður í klakhúsi fyrir
nálægt 3 miljónir hrogna.
Kostnaður við kaup á jörð-
Nokkirir fulltníanna skoða klakhúsið. — (Myndfrr: vh).
ínni Kollafirði og annarri að-
stöðu hefur verið um 3,5 milj.
króna og við framkvæmdir til
síðustu áramóta 13,4 miljónir
eða samtals 16,9 miljónir. Lax-
eldisstöðin hefur að verulegu
leyti verið byggð fyrir lánsfé,
og hefur þvi afborgana- og
vaxtabagginn verið þungur. —
Alls hafa verið greiddar 4.8
miljónir kr. í vexti og um Í0
miljónir í afborganir, rekstur
og viðháld stöðvar frá upphafi.
Tilgangurinn með tílrauna-
eldisstöðinni er m.a. að gera
tilraunir með klak og eldi lax-
fiska, reyma nýjar kskræktar-
aðgerðir, kenna umhirðu á ali-
fisfei vinina að fiskkynbótum,
hafa á boðstólum hrogn og ali-
fisk tíl þess að sleppa i veiði-
,vötn eða láta .qðrum eldisstöðv-
um í té og framleiða neyzlu-
fisk. Að þessum verkefnum og
fleirum hefur verið unnið fram
til þessa, og hefur nú þegar
verið aflað í stöðimni mikils-
verðrar reynslu um fiskeldi og
fiskrækt. Mikilvæg verkefni
fyrir fiskeldi hér á landi eru i
deiglunni eins og rannsóknir á
gildi innlendra fóðurtegunda í
samanburðd við erlent fóður, og
silungaeldi, en það þarf að
reyna við ólikar aðstæður í
því skyni að komast að raun
um hagkvæmustu leiðir við
það.
Á fjórum undanföfmum ár-
um hafa verið látin frá Lax-
eldisstöðinni í Kollafirðd 295
þúsund sumaralin laxaseiði og<*>
65 þúsund gönguseiði. Á síðast-
iiðnu ári fengu 8 aðilar surnar-
alin laxasedði frá stöðinni, þar
af þrjár eldisstöðvar og göngu-
seiðum frá stöðinini hefur ver-
ið sleppt í 26 ár víðsvegar um
landið. Á sama tíma hefur ver-
ið sleppt innan eldisstöðvarinn-
ar 37 þúsund gönguseiðum og
hafa 1375 laxar gengið upp í
stöðina úr sjó til þessa. Stærsti
lsxinn, sem gengið hefúr í
stöðina 94 cm. að lemgd
og sennilega um 15 til
16 pund að þyngd nýgeng-
inn. Aulc þess hefur bledkja
verið alin í stöðidni og hafa
bleikjuseiði verið seld út um
land til þess að sleppa i vötn,
og ennfremur lítílsháttar af
sjóbirtingi, en fyrir honum
lítill áhugi.
Um áramótin síðustu voru í
Laxeldisstöðinni um 200 þúsund
laxaseiði tæplega eins árs göm-
ul og nær 100 þúsund tæplega
tveggja og þriggja ára, flest
tveggja og þi-iggjá ára sedðin
munu ná göngustærð í vor.
Auk þess eru í stöðinni 2400
stórar bleikjur tveggja til fjög-
urra ára auk um hundrað- sjó-
birtinga. Síðastliðið haust var
aflað 1170 þús. laxahrogna úr
laxi, sem gekk upp í eldiisstöð-
ina s.l. sumar, en laxagangan í
stöðina var þá 610 laxar. Hálf
miljón hrogna var seld sjö að-
ilum, en mismunurinn eða 670
þúsund hrogn voru lögð inn í
klakhús stöðvarimnar. Auk þess
fengust 180 þúsund bleikjuhrogn
úr stofnfiski í( stöðinni og 6.500
s j ób irtingshrogn.
Laxeldisstöðin í Kollafirði
hefur haft tilætluð áhrif á upp-
byggingu fiskeldismála og fisk-
ræktar í landinu og mun gera
það í vaxandi mæld í framtíð-
inni. Hafa margir sótt þangað
fróðleik og margskonar fyrir-
greiðslu. Auk þess hefur kynn-
ing á þessum málum farið fram
á vegum Veiðimálastof nunarinn-
ar í tvo áratugi með viðtölum
og erindaflutningi og t.d. nú í
áratug með erindum ogkennslu
í Búnaðarskólanum á Hvann-
eyri. Þróun í eldismálum und-
amfarirt ár hefur sýnt, að rétt
stefina var tekin, þegar rikis-
stjómin ákvað að láta reisa
eigin tilraunaeldisstöð til efl-
ingar fis'keldis- og fiskræktar
í landinu, enda er nauðsynlegt
að leita hæfra leiða í fiskéldi
á kerfisbundinn hátt, þegar það
er tekið upp í nýju landi.
Það er ánægjulegt, hve áhugi
fer vaxandi á fiskeldi og fisk-
rækt í landimu, en þar sem fisk-
eldi er margþætt mál, sem
þarfnast kunnáttu og reynslu
þeirra, sem að þvi vinna, er
nauðsynlegt að þeir, sem ráð-
gera að hefja fiskeldi, geri sér
sem bezta greim fyrir hvað til
þarf óg vanda síðam mjög til
alls undirbúnings við að koma
upp eldisstöðvum. Um framlag
ríkisins til fiskeldis og fisk-
ræktar eru hugmyndir margra
heldur óljósar, sagði veiðimala-
stjóri að lokum, og fagnaði í
því sambandi ályktun sem
■ Búnaðarþing gerði s.l. ár um
að Veiðimálastofnuninni' yrði
veitt stóraukið starfsfé til að
sinna margháttuðum verkefn-
um á sviði rannsókna og leið-
beiningaþjónustu; að framlag
skv. gildandi lögum til sityrkt-
ar klak- og eldisstöðvum yrðu
veitt á hverjum tiima eftirþörf-
um og að stoflnlánadeild land-
búnaðarins verði éfld svo að
hún yrði hæf umaðgegna hlut?
verki símu um lánveitíngar til
fiskiræktarfrarnkvæmda og
fiskeldisstöðva.
Að lokinni raeðu veiðimiála-
stjóra tók formaður Búnaðar-
félagsins Þocsteinn Sigurðsson,
bóndi á Vatnsleysu til máls,
þakkaði boð Laxeldisstöðvar-
innar fyrir hönd gesta Qg
kvaðst álíta miiMa framtíð
fólgna í fiskræktimni. „Silungs^
tjörn á hverjum bæ“ væri það
sem koma skyldi, og ættu að
vera möguleikar á að fá fisk í
hverja á, læk og tjöm. Hims
vegar þyrfti að fá nýja lax-
veiðilöggjöf, sagði Þorsteinn,
þanmig að þeir sem byggju langt
uppi í landi við góðar laxár
þyrftu elcki að horfa upp á að
allur laxinm væri hirtur niðri
við ósa af nokkrum mönnuni'.
Félag
j ámiðnaðarmanna
AÐALFUNDUR
Félags jáxniðnaðarmaíma verður haldinn fimmtu-
daginn 29. febrúar 1968 kl. 8,30 e.h. í Félagsheimili
Kópavogs.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kjaramálin
3. Önnur mál.
Msetið vel og stundvíslega.
Ath.: Reikningar félagsins liggja frammi í skrif-
stofu þess að Skólavörðustíg 16, þtiðjudaginn 27.
febr. og miðvikudaginn 28. febr. kl.' 4 til 7 báða
Öagana.
Stjóm Félags jám* Snaðarmanna.
I
i