Þjóðviljinn - 27.02.1968, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.02.1968, Blaðsíða 10
10 SIÐA — JyJÖ&vmJWK — Þin^tsdagör 2SK &&s&am S9G8. il SAKAMÁLASAGA 20 Maggia vissi strax að hann hafði lagt auðmýktina á hilluna. — Herra Aricson, hvar er Noreen Wilks? En hafi hann álitið að hann gæti kcanið Aricson á óvart óg fengið hann til að tala af sér, þá fóf hann villur vegar. — Mér þykir það leitt, Salt lækn- ir, en ég hef ekki minnstu hug- mynd um það. — Þér vitið hver hún er? —\ Já. — Eruð þér viss? — Já, já. Ég sá hana stundum með Derek Donnington. Er hún sjúklingur yðár? — Hún var það. Salt læknir skýrði frá heilsufari Noreenar og hvers vegna hann hefði á- hyggjur af henni. — Og sjáið þér til, herra Aricson, það hefur ekkert frétzt af henni síðan hún var í þessu samkvæmi yðar hinn 12. september. __ Það var ekki mitt sam- kvæmi, Salt læknir. Þér eigið við eitt af verksmiðjusam- kvæmunum í klúbbnum, er ekki svo? Sjáið þér til, ég er ekki ábyrgur fyrir þeim. Ég ætti reyndar að vera það — sem félagsmálafulltrúi — en Tommi Linsdale, sem hefur lengri starfsaldur en ég, vildi hafa þau á sinni könnu. Ef hann er fjarverandi — eins og hann var hinn 12. september — þá eru þau á vegum Jill Frinton, sem er honum til aðstoðar. En mér skilst að Noreen Wilks hafi ekki verið í þessu tiltekna sam- kvæmi. Hafið þér athugað það í klúbbnum? — Ég gerði það fyrr í kvöld. Hann sagði ekki fleira, þótt Aricson byggist sýnilega við því. Aricson neyddist til að segja eitthvað og mælti: — Jæja, þér hafið væntanlega komizt að því að hún var þar ekki það kvöld? — Nei, ég komst að því að hún hafði verið þar. < •Maggie sá hversu snjall mót- leikur þetta var. Hverju svo Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav 18, III. hæð (lyfta) Símí 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968. Eftir i. B. PRIESTLEY sem Aricson svaraði, yrði hann að segja skilið við kæruleysið. gerði sér upp þokkalega undr- un. — Ég spyr vegna þess að ég hringdi í Dews og hann sagð- ist skyldu athuga bókina ■— og svo sagði hann mér, að hún hefði ekki verið í samkvæm- inu — — Af hverju hringduð þér til hans? sagði Salt læknir blíð- lega. — Hví skyldi ég ekki hringja til hans? — Jú, sjáið þér til, herra Aricson. Þér eruð ekki ábyrgur fyrir þessum samkvæmum. Og þér berið væntanlega ekki á- byrgð á Noreen Wilks, eða hvað? — Auðvitað ekki. — Hvers vegna hringið þér þá allt í einu í Dews til að spyrja hvort hún hafi verið þar í samkvæmi/fyrir þrem vikum? Hafi Aricson fundið að hann stóð hallari fæti, þá sýndi hann þess. engin merki. En Maggie skildi að mennirnir tveir sótt- ust fast. — Það er ekkert óeðlilegt við það, Salt læknir, svaraði hann hljóðlega. — Þetta var sam- kvæmi hjá verksmiðjuklúbbn- um — og ég er reyndar félags- málafulltrúi Sameinuðu verk- smiðjanna. Auk þess er ég sam- vizkusamur. Gerið þér yður á- nægðan með þetta? —Ég er. hræddur um ekki — nei. Hinn 12. september fer stúlka — eða fer ekki — í sam- kvæmi. Hvar kemur félags- fulltrúinn þar við sögu? Aricson brosti kuldalega. — Nú eruð þér að reyna að þjarma að mér, Salt læknir, er ekki svo? Hann leit á Maggie, ef til vill til að fá dálítinn frest. — Er yður rflálið viðkomandi, ung- frú — hérna —? — Culworth — Maggie Cul- worth. Hún hikaði, en sá út und- an sér að Salt læknir kinkaði kolli. — Sjáið þér til, herra Aricson, við vitum ekki hvar faðir minn er niðurkominn — og það er ólíkt honum að hverfa að heiman án þess að gefa neina skýringu. Ég veit nú að hann kom til Birkden á mánudag til að spyrjast fyrir um Noreen Wilks. Og Salt læknir álítur að hann kunni að hafa spurzt fyrir í verksmiðjuklúbbnum á mánu- daginn, rét eins og við gerðum í kvöld — ég á við, spurzt fyrir um Noreen Wilks. —‘ Því miður, ungfrú Cul- worth, þá er mér þetta allt sam- an nýtt og framandi. Ég veit ekkert um föður yðar — eða neinn með nafninu Culworth — það get ég fullvissað yður um. Og Maggie hugsaði sem svo, að ef hann var ekki óþ tala af heil- um hug, þá var hann sannar- lega stórkostlegur leikari. — Ég trúi yður, sagði Salt læknir og tók aftur við stjóm. — En hvemig var ég að þjarma að yður? Hvaða samband er á rnilli Noreenar Wilks og sam- kvæmisins og félagsmálastarfs yðar? — Að mínu áliti — í sann- leika sagt — hreint ekkert. ■tA&'fríL aS þér fasrið allt í eirwi eftir allan þennan tíma að spyrjai Dews hvort hún hafi verið þama? — Vegna þess að ég vinn hjá Sir Arnold Donnington, sagði Axieson varfæmislega. — Hann er ímynd Sameinuðu verk- smiðjanna héma megin sunds- ins. Og ég verð að segja, að ég dái hann mjög. Hann er að mörgu leyti óvenjulegur stór- iðjuhöldur. Hann hugsar líka um almenna velferð, hefur á- huga á framgangi þessarar borgar og leggur sig fram. Hvað gerist, Salt læknir, þegar þér farið frá Birkden? — Ekki neitt. — Þér eruð of hógvær. En ef þér flyttuð Sir Arnold frá Birkden, þá myndi allt hrynja í rúst. — Mér hefur stundum dottið í hug að það væri ékki svo af- leit hugmynd. En þér eruð sem sé reiðubúinn til að gera hvað sem er fyrir Donnington, vegna þess að þér dáizt að hbnum — ha? — Vissulega dáist ég að hon- um, en ég vil líka halda atvinnu minnL Og hann getur verið kröfuharður. En nú er ég kom- inn í svo vel launað starf hjá S.V. að ég verð að halda í það og má ekki sleppa því. Þetta er ný tegund af harðstjórn, sem þér hafið ef til vill ekki kynnzt, Salt læknir. Harðstjórn hálaun. anna. Þú færg hærri laun en tíðkast á vinnumarkaðnum. Þú miðar neyzlu þín^ við launin. Þú verður að veita konu þinni og börnum allt það sem aug- lýsendur segja að þeim beri að veita. Og þú ert allt í einu bundinn á klafa. Og rólegur og skikkanlegur maður verður þannig smám saman harður og samvizkulaus. Salt læknir var að kveikja sér í pípu. — Ég skil. Mjög athygl- isvert, sagði hann og tottaði. — En hví eruð þér að segja mér þetta? — Ég hélt að þér vilduð vita hvar ég stend — — Eins konar aðvörun — humm? — Nei, nei, alls ekki. Ungfrú Gulworth, þér verðið að afsaka allt þetta — — O — mér finnst þetta skemmtilegt — — Það efa ég, en ég vona að þér trúið þvi, að ég viti alls ekki neitt ujn föður yðar. Jæja, hvert .vorum við komnir, Salt læknir? — Þér voruð að enda við að gefa mér aðvörun, sem þér sögðuð að væri ekki aðvörun. En hvers vegna eruð þér að hafa fyrir því að segja mér hver aðstaða yðar er? — Vegna þess að nú er mér ljóst að þér eruð skynsamur maður — ekki neinn ómerkileg. ur, hnýsinn auli — heldur skynsamur maður, sem hagar sér óskynsamlega. — Getur verið. En hvers vegna? — Þetta samkvæmi hinn 12. september var ekki nein venju- leg klúbbveizla — og til þess eru gildar ástæður. Það var þá nótt sem Derek Donnington varð fyrir voðaskoti þegar hann var áð hreinsa byssu. Gott og sýálfsmorg — en ef þér segið það á almanoafæri, þá er ekki von á góðu. Sir Arnold stendur auðvitað á bak við það. Eins og þér sjáið, þá er ég fullkom- lega hreinskilinn við yður. Einkasonur hans splundraði á sér höfðinu þessa nótt, svo að hann hefur sett lok yfir allt saman. Ég lái honum það ekki og þér ættuð ekki að gera það heldur. — Ég er ekki að lá neinum neitt, herra Aricson. Ég er að- eins að spyrja einnar spurning- ar. Hvað varð um Noreen Wilks? — Ég veit það ekki. Og ef satt skal segja, þá stendur mér á sama. Hvaða ráðstafanir sem Sir Arnold kann að hafa gert — trúlega til að koma henni burt í snatri — þá trúði hann mér ekki fyrir þeim. Ég skal játa að það er óvanalegt — það er í mínum verkahring að sjá um eitt og annað fyrir hann — en ég get ekki að þessu gert, þann- ig gekk þetta til. Og ég er reiðu- búinn að sverja það hvenær sem er, að ég veit ekki meira en þér um Noreen Wilks. Salt læknir beið andartak. — Gott og vel, ég trúi yður. Trúir þú honum Maggie? — Ég vil það helzt ekki — en ég er hrædd um að ég geri það samt. — Það var og. Þarna sjáið þér, herra Aricson. Við viljum helzt ekki trúa yður, en við gerum það víst samt. — Ég er feginn að hafa getað staðizt prófið. Jæja — og hann hreyfði sig til á þann hátt sem oft getur ýtt gestum uppúr stólunum. — Fyrirgefið — ef yður væri sama — þá langar mig til að bera fram eina'eða tvær spurn. ingar enn. Ég get illa hugsað mér að Donnington hafi beðið vin okkar Donald Dews að falsa gestabókina — — Nei, Salt læknir. Ég gerði það. — Mér datt það í hug. En hvers vegna? — Ég fékk fyrirmæli um að gera yður erfitt fyrir — — Ég veit það. En ég spyr samt hvers vegna. — Svona nú, maður minn. Það var eins og þolinmæði Aricsons væri allt í einu á þrotum. — Ég er búinn að útskýra hvað gerð- ist þetta kvöld. Síðan var sjálfs- morð piltsins þaggað niður og stungið undir stól. Og það sem Sir Arnold vill .sízt af öllu, er að maður eins og þér farið til lögreglunnar — og síðan um all- an bæ að spyrja spurninga. Og auðvitað er ég honum sammála. Engar spurningar — ekkert hneyksli. — Þér hafið misskilið mig, sagði Salt læknir og það var eins og hann byggi nú yfir ó- þrjótandi þolinmæði. — Ég veit að þér og Donpington eruð hræddir við hneyksli — þótt ég sé hvorki blaðamaður né lög- regla. En hvaða hneyksli er það, sem þér eruð svona hræddur við? — Spyrjið mig ekki um það. Ég hef sagt yður allt sem ég veit. Látíð ekki skemmdar kartöflur koma yðnr § vont skap. lYotíð COLMAIVS-kartöfluduft SKOTTA Það versta við það að vera trúlofuð er að stundum hitti ég annan strák sem ég vildi héldiuir veira trúlofuð ... ÚTSALA -- ÚTSALA Stórfelld verðlækkun á öllum vörum verzlunar- innar. — Notið þetta einstaka taekifæri og geiið fóð kaup. . AÐ SEUAST! VERZLUN GUÐNÝJAR Grettisgötu 45. Leikfélagshátíðin í Kópavogi 1968 ÁRSHÁTÍÐ Leikfélags Kópavogs verður haldin í Félagsiheimili Kópavogs lapgardaginn 2. marz kl. 19. — Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Styrktarfélagar velkomnjr meðan húsrúm ■leyfir. Upplýsingar í símum 40506 -r- 41934 — 40475. BÍLLINN ið við bíla ykkar sjálf Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga. BÍLAÞJÓNCSTAN Auðbrekku 53, Kópávogi — Sími 40145. Látið stilla bílinn Önnumst hjóla- ljósa- og mótorstillingu Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur. — Örugg þjónusta. BÍLASKOÐUN OG STILLING Skúlagötu 32. sími 13100 Hemlaviðqerðir • Rennum bremsuskálar. • Slípum bremsudælur. • Límum á bremsuborða. Hemlastilling hf. Súðarvogi 14 — Sími 30135. 4 i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.