Þjóðviljinn - 30.03.1968, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.03.1968, Blaðsíða 3
Laogairdjagur 30. maarz 1988 — ÞJÓÐVILJTNN — RfI>A J Ferðamálaráð um Lönd og Leiðir S’ramliald af 1. síðu. auðvitað um grun að ræða, en ektoi vissu, en tilefnið væri hins vegar nægilegt til þessara að- gerða. Vegna þeirra ferðamanna er- lendra sem Lönd og Leiðir eiga wn á hingað til lands í sumar, saigði Lúðvfk, að lögð yrði á það áherzla að þeir fengju þá fyrir- greiðslu er þeim bæri, þrátt fyr- ir lokunina. > Meðal verkefna er Lönd og Leiðir hafa annazt eru kynnis- ferðir fyrir viðdvalargesti Loft- leiða. Að þvi er Sigurður Magn- ússon fulltrúi Loftdeiða sagði Þjóðviljanum í gær, hefur flug- félagið gripið til þess ráðs að annast ferðimar sjálft og hafa engir erfiðlleikar skapazt af lok- uninni. Kvað hann Loftleiðir hatfa keypt þessa þjónustu frá upphafi ai Löndum og Leiðum, sem hefðu hatft frábærum leið- sögumönnum á að skipa, hætfum btflstjórum og góðum bflum, og hefðu nú LotftleáðSr samið milli- liðalaust við þetta sama fólk, svo fyrirgreiðsla við dvailargesti væri sú sama og verið hefði. Útskýring Ferðamálaráðs. Fréttatilkynning sem Ferðá- málaráð sendi frá sér í gær- kvöld er svohljóðandi: „Fyrir nokkru tóku Ferða- málaráði að berast kvartanir um vanskil ferðaskrifstoíunnar Lönd og Leiðir hér f borg við er- lenda aðila. Ferðamálaráð ræddi þetta nokkrum sinnum við Ingólf Blöndal, forstjóra umræddrar ferðaskrifstofu, og var honum þess vegna fy'Llilega (kunnugt um þær áhyggjur, er ráðið hatfði atf rekstri ferðaskrifstofu hans. Þar sem ráðið taldi að traust á ís- lenzkum ferðaskrifstofum myndi skert og fslenzk ferðamál verða fyrir tjóni ef ráðstafanir væru ekki gerðar til að stöðva þá öf- ugþróun er orðið hafði, .þá lét Ferðamálaráð samgöngumála- ráðuneytið fylgjast með málinu. Var bæði rætt um þetta við ráðuneytið og bréf send og fund- argerðir, þar sem skýrt var frá þvi, er ráðið hafði fengið að vita um sk.uldamál ferðaiskrif- stotfunnar. Segir ráðið m.a. í bréfi, dags. 6. þ.m. til samgöngumálaráðu- neytisins: „Það er samdóma áiit Ferða- málaráðs að nbta beri nú öll til- tæk ráð til að koma i veg fyr- ir frekari skaða, en þegar er orð- inn vegna vanskila ferðaskrif- stotfunnar Lönd og Leiðir h.f.“. Að lokinni könnun á gögnum þeirn, er fyrir lágu, tók sam- göngumálaráðuneytið þá atfstöðu að svipta ferðaskrifstofuna leyfi til ferðaskrifstofureksturs“. Þjóðviljinn hafði samband við eiganda ferðaskrifstofunnar Lönd og leiðir, Ingólf Blöndal, í gær eftir að tilkynningin kom frá Ferðamálaráði og spurði hvað hann vildi um hana segja. Sagði hann að einmitt vegna þess ástands sem skapazt hefði og vegna tilmæla Ferðamálaráðs og samgöngumálaráðuneytisins hafi hann haft samband við alla sína skuldunauta og gæti hve- nær sem væri lagt fram gögn um að hann hefði gert samning um meira en helming allra sinna skulda til sex ára. Enda hefði enginm gert kröfur til fyrirtæk- isins um gjaldþrotauppgjör og ekkert slíkt vofað yfir. Upplýsingar þær sem Þjóð- viljinn hafði óstaðfestar um mál- ið eftir að tilkynning samgöngu- málaráðuneytisins barst um leyf- issviptingun-a sagði Ingólfur að væru alrangar. Eins og greini- lega var tekið fram í viðkom- andj frétt var ekkert staðhæft um sannleiksgildi þeirra og tek- ið fram að þær væru óstaðfest- air. Er blaðið fúst til að hafa það er sannara reynist í þessu máli, en það mun væntanlega koma í ljós bráðlega hvað rétt er. TTtifr’ sí' <ac: I Hörð átök á fundi 10 nkja—og utan STOKKHÓLMI 29/3 — Hörð átök urðu í dag á fundi f jár- j málaráðherra og seðlabankastjóra tíu auðugustu ríkja auð- ■ valdsiheimsins í Stokkhólmi. Fransiki fulltrúinn, Dehré ■ fjármálaráðherra. mun þar hafa staðið einn gegn hinum • níu. En einnig fyrir utan húsið þar sem fundurinn var j haldinn kom til átaka — milli lögreglu og stúdenta sem j mótmæltu stríði Bandaríkjanna í Vietnam. Debré hóf umræðumar á fund- inum í dag. Hann hélt því fram að það sem mestu máli ætti að skipta á fundinum væri allsherj- ar endunskoðun á hinu alþjóð- lega gjaldmiðdlskerfi, en ekki aðeins þau atriði sem varða „hina sérstöku ytfirdráttarheim- ild“. (Sjá nánar grein hér á síð- unni). Debré harmaði að fundarmenn skyldu ekki vera reiðubúnir til að ræða það sem hann teldn að mestu máli skipti, nefnilegn hlutverk gullsins í gjaldmiðils- kerfinu. Hin „sérstaka yfirdrátt- arheimild" gæti þá fyrst komið til framkvæmda þegar Banda- ríkin hefðu komið lagi á greiðslu- jöfnuð sinn. >á lagði Debré á- herzlu á að Frakikar áskildu sér rétt til að segja sig úr Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Sagt er að frönsku fulltrúam- ir hatfi í hyggju að leggja fyrir fundinn tillögu um að gullverðdð verði hækkað. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, Fowler, hélt þvi fram að greiðslujöfnuður þeirra væri að verða hagstæðari og von"r stæðu til þess að þingið í Wasihíng- ton myndi samþykkja frumvarp stjómarinnar um skattahækkan- ir. Efnahagsmálaráðherra Svía, Christer Wickman, var fundar- stjóri og haft var eftnr góðum heimildum að hann héfði af festu og einbeitni „reynt að hafa 'niirnlhald á hinum ráðherrun- n“. Átök fyrir utan Samtímis því sem ráðherramir og bankastjóramir rifust fyrir luktum dyrum, sló í hart fyrir utan fundarstaðinn milli lög- reglumanna og stúdenta sem mótmæltu stríði Bandarikjanna í Víetnam og báru spjöld með á- letrvroum sem þesisum: ,,Wick- man, kjölturakki dollarans“ „Engin lán framar til þjóðar- morða“. „USA frá Vietnam“ og „Vopnaaðstoð við ÞFF“. Frumvarpið um skuttogarana Framhald af 1. síðu. minnsta áhuga. Þó hefði með ‘til- komu nýs sjávarútvegsmálaráð- herra virzt breytt viðhorf, og hefði sá tilkynnt fyrir tveim árum þá ætlun ríkisstjómarinn- ar að leigja einn skuttogara ein- hvern tíma tii að afla reynslu! Sá skuttogari væri að vísu ekki kominn enn og því engin reynsla af honum fengizt. En í fyrra hefði ráðherrann skipað togara- netfnd, og kvaðst Gils ekki vita til að hún hefði enn afrekað ann- að en það sem Pétur minntist á, látið teikna einn togara og fal- ið sama m,anni að teikna annan. Meðan afrek nefndarinnar og ríkisstjóraarinnar á þessu sviði væru ekki meiri en þetta, væri þess full þöirf að samþykkja frumvarpið. og hvatti Gils til að svo yrði gert. Eggert G. Þorsteinsson talaði nokkur orð til að „undirstrika vilja sinn og ríkisstjóraarinna-r allra“ að vinna að endumýjun togaraflotans. Það væri eitthvað annað en málin gengju seint hjá þeim valinkunnu mönnum sem hann hefði skipað í toga-ranefnd- inia. Formaður Framsókn.arflokks- ins. Ólafur Jóhannesson, á sæti í sjávarútvegsnefnd efri deild- a-r, en hafðj ekki verið viðstadd- ur afgreiðslu málsins í nefnd- inni. í um-ræðunum lýsti hann yfir allt annarri afstöðu en Framsókn arþingm aðurinn Bj arn i Guðbjörasson, tók undir rök Gils um nauðsyn málsins og kvaðst greiða frumvarpinu at- kvæði. Samþykkt var ■ með 10 at- kvæðum gegn 7 tillagan um að vísa málinu til ríkisstjórnarinn- ar. Barizt er meðfram I ■ ■ ■ aiiri ánni Jórdan m ■ ■ - ■ TELAVIV og AMMAN 29/3 — í dag var barizt í Jórdan- j dalnum og má segja að látlaus stórskotahríð hafi staðið j meðfram ánni Jórdan allri, eða á um 100 km. löngu svæði. j Sprengjurnar 23 snrengdar Ég mun ekki leyfa mannaferð- ir innan kilómetra fjarlægðar frá sprengjustað og hef óskað etftir því að fólk haldi sig í húsum. Sprengjuraar sjálfar eru lfkar ölflösku að stærð og eru hafðar fremst í eldflauginni, en megin- uppistaðan af , tflauginni er geymslurými fyrir eldsneyti í föstu formi og hægspringur það við notkun. ycrða þeir hlutar af flaugunum fluttir til Kefla- víkurflugvallar. Þá er ætlunin að tflytja flakið atf þotunnf'á trukk- um til Keflavíkurtfliúgvallar í dag. Ein eldflaiug er ennþá ófund- in og munum við ekki hverfa héðan fyrr en hún er fundin, sagði Benedikt að lokum. Nær klukkutíma tók að sprengja 23 sprengjur úr banda- rísku þotunni í Landssveiit -í gær- dag og hófust spreniginigar kl. 17 t>g voru þær sprengdar í fimm lotum. Myndaðist nokkur reyk- ur af þessum sprengimgum, sagðí Guðni, hreppstjóri í viðtalj við Þjóðviljann klukkan 18.00 í gær. Framhald af 10. síðu. Þá kom hér í dag Páll Sveins- son, landgræðslustjóri frá Sand- graeðslu ríkisins til þess að meta skemmdir á gróðri, en þotan hrapaði innan sandgræðslugirð- ingarmnar. Ég hafði tal af Páli og kvað hann tvær girðin-gar hafa spillzt á kafla og sviðinn gróður á tveim blettum vegna Plíubruna, — um þrjú hundruð fermetra svæði. Og ekki eru þeir búnir að firma eldflaugina ennþá, sagði Guðni. Kom hér kafari í morg- un. Þá hafi Þjóðviljinm tal af Beneditot Þórarinssyni, yfirlög- regluþjóni, fyrir austan í gærdag um fjögur leytið og kvað hann þá í miðjum undirbúningi að því að spreng ja sprengjumar og kvað. harnn fyllsta öryggis verda gsett. Við höfum tilkynnt fólki á ölí- um bæjum hér í grennd um væntanlegar spreng-mgar og öll umferð verður stöðvuð á nær- liggjamdi vegum. Jafnframt gerðu flugvéilar Israelsmanna loftárásir á stöðv- ar Jórdana austan árinnar, en Jórdanar segjast hafa skotið sjö þei rra niður. Að venju kenna hvorir öðr- um um upptökin. Israelsmenn segja að þeir hafi hafið end- urgjaldsáráisir eft’r að fjórir ísraelskir bændur og banda- rískur sjálfboðaliði biðu bana þegar jarðsprengja sprakk rétt við landamærin. Nokkrum klukkustundum síðar hófst stór- skotahríðin yfir Jórdanfljót frá báðum bökkum. Talsmaður Jórdana sagði í Amman í kvöld að Israelsmenn hefðu gert sprengjuárásir á 13 þéttbíl þorp í Jórdam. Loftárás hefði verið gerð á bæinn Kara- me.h sem Israelsmenn réðust á í innrás sinni yfir Jórdan 21. marz s. 1. Engar fréttir hafa borizt af því að stríðsaðilar hafi reynt að setja lið yfir ána Jórdan, en spurzt hefur að Israelsmenn dragi saman lið á vesturbakk- anum og óttast Jórdanar að ný innrás sé í aðsigi. Það vakti athygli þegar það var tilkynnt í dag að Grétske, \ yfirmaður sovézka hersins, myndi I fara til Kaíró á morgun. Talið | er víst að för hans þangað sé í | tengslum við óeirðirnar á vopna- hlésmörkum Israels og Jórdans. Franco-stjórnin óttaslegin vegna uppþota stúdentanna MADRID 29/3 — Spænska stjóm- in kom í dag saman á sérstakan ráðuneytisfund til að fjalla um ólguna við háskólanm í Madrid sem hefur ágerzt mieð hverjum degi. Háskólanuim var lokað í dag um óákveðinin tíma, eftir haröar viðureignir stúdenta og lögreglu- manna í gær. Ríkisstjómin til- kynnti í gærkvöld að hún myindi beita hörku til að bæla niður all- an mótþróa stúdenta. Lögregluinini hafði áður verið gefin ótakmörk- uð heimild til að ráðast inn í há- skólann hvenær sem henni fynd- ist vera þörf á því. 1 gær hafði lögreglan ruðzt inn í byggiinigar tveggja háskóladeilda og rifið þar niður spjöld með á- letrunum gegn stríðinu í Viet- nam, jafnframt því sem gerð var leit í sikrifstofum stúdentafélags- ins. Hörðust urðu átökin fyrir utan bygíginigu lagadeildarinnar. Síðar í gærkvöld sió lögreglain hring umihverfis baindaríska sendiráðið í Madríd, þar sem bú- izt var við mótmælagöngum stúdenta gegn Vietnamstríðimi- Hátiðahöld í Tékkóslóvakíu vegna forsetakjörs í dag Er drottinvaldi dollarans að Ijúka? Fiskur iá undir steini PRAG 29/3 — Fánar Tékkóslóv- akíu og Sovétrí’kjanna blöfctu hvarvetna yfir húsum í Prag í da:g, daginn áður en kjör nýs forseta fer fram á þjóðþinginu. Það er aðeins éan frambjóðandi sem allir flokkar hafa komið sér saman um. Ludvik Svoboda • hensihöfðingi, sem var yfirmaður • tékkóslóvösku hersveitanna sem : börðust með sovézka hemum í j síðustu heimsstyrjöld. Þeir tveir- • þrír aðrir sem stungið hafði ver- ■ ið upp á gáfu skki koet ó sór. : Igær hófst í Stokkhólmi fundur fjármálaráðherra og seðlabankastjóra tíu auð- ugustu ríkja auðvaldsheims- ins, „tíu ríkja hópsins" svo- nefnda. Á fundinum eru fjár- málaráðherrar Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada, Japans, Belgíu-Lúxemborgar, Hol- lands, Ítalíu og seðlabanka- stjórar Vestur-Þýzkalands og Svíþjóðar. „Tiu ríkja hópn- um“ var komið á laggimar með samningum sem gerðir voru 1962 og giltu til fjög- urra ára. en voru síðan fram- lengdir um önnur fjögur ár. Tilgangurinn með stofnun „hópsins“ var sá að þessi tíu auðugu ríki skuldbyndu sig í sameinin.gu til að „koma í veg fyrir eða gera við veilur í hinu alþjóðlega gjaldmiðils- kerfi“ og það með þeim hætti að þau legðu samtals fram sex miljarða dollara sem sér- hvert þeirra mætti fá lán af til styrktar gjaldmiðli sínum, svo fremi sem algert sam- komulag ríkti um lánveiting- una. Tilgangurinn var þann- ig að reisa varnarmúr um það alþjóðlega gjaldmiðilskarfi auðvaldsheimsins sem komið var á skömmu fyrir lok heimsstyrjaldarinnar síðari og hafði dollarann og gullforða Bandaríkjanna að undirstöðu. Árið áður, 1961, hafði annar slíkur múr v„rið reistur, með stofnun „guUfélags" átta ríkja (10 ríkjanna mínus Svíþjóð og Japan). Sú stofnun kom í kjölfarið á guUkaupaæði haustið 1960 þegar gullúns- an komst upp í 4o doUara og útlit var fyrir að traust manna á dollarann myndi bíla og gjaldmiðilskerfið því riðlast. Það var því svipað ástatt þá í fjármálaheimi auð- valdsins og verið hefur und- anfama mánuði, nema hvað doUarinn stendur nú miklu verr að vígi. Gullforði Banda- ríkjanna hefur síðan rýmað um nærri þvi helming, greiðslujöfnuður þeirra hefur verið óhagstæður ár eftir ár, svo nemur miljörðum dollara á ári, skuldakröfur erlendra aðila á hendur bandarískum hafa nær tvöfaldazt og jafn- gilda nú nœrri þvi þreföld- um þeim gullforða sem eftir er í Fort Knox, kaupmáttur dollarans sem áður var all- stöðugur rýmaði um allt að 4 prósent á siðasta ári og ekkert útlit er fyrir að verð- bólgunni muni linna á nsest- unni. \ J amarmú rinn um doUar- ’ ann sem „guUfélagið" átti að vera er nú hruninn. Það var þegar komið skarð í hann með úrsögn Frakka og með ákvörðun seðlabankastjóranna í Washington um fyrri helgi að koma upp tvenns konar gullmarkaði hrundí hann al- veg. Það er því við heldur ömurlegar aðstæður sem tí- menningamir setjast á rök- stóla í Stokkhólmi. Þó eru ekki nema sjö mánuðir síðan að útlitið virtist vera miklu bjartara. Þá. 28. ágúst sl„ bafði tímenningunum loksins eftir fimm ára þjark tekizt á fundi í London að koma sér saman um endurbætur á hinu alþjóðlega gjaldmiðilskeirfi sem áttu að tryggja í senn að gj aldmiðilsskortur yrði ekki til að dragia úr alþjóðavið- skiptum og að forðagjaldmiðl- amir, dollari og steriingspund, yrðu varðir áföllum, samtímis því að ekki væri hróflað við sjálfri undirstöðu kerfisins, drottinvaldi doUarans. Sam- komulag tímenniniganna var lagt fyrir ársþing Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF) ag Heimsbankans í Rio de Jan- eiro í september og var þar samþykkt einróma af fuUtrú- um 107 aðildarríkja. Of langt mál væri að rekja þetta sam- komulag en meginatriði þess var að aðildarríki IMF skyldu fá svokallaða „sórstaka yf- irdráttarheimild" (special drawing rights) úr sjóðnum. Fjárveitingar úr sjóðnum sem fengnar væru samkvæmt þess- ari heimild skyldu ekki aftur- kræfar, nema viðkomandi ríki hefði notað meira en 70 prósent af heimildinni innan fimm ára. Þá skyldu þær greiðast aftur. f hinnj „sér- stöku yfirdráttarheimild" fólst að búinn var til vísir að al- þjóðlegum gjaldmiðli sem að- eins væri nothæfur til jöfn- unar á reikningum á milli ríkja — eða seðlabanka. — hann var „fundið fé“ sem ekki hafði annað á bak við sig en gagnkvæmt traust að- ildarríkja IMF. En samtímis þessu var ætlunin að doUari og sterlingspund héldu áfram að gegna hlutverki sínu sem forðagjaldmiðlar. Það var því um málamiðlun að ræða og kom mörgum á óvart að de Gaulle Frakklandsforseti. sem margsinnis hafði ítrekað þá skoðun sína að kollvarpa yrði hinu alþjóðlega gjaldmiðils- kerfi. afnema forréttindi hinma „engilsaxnesku" gjaldmiðla og taka upp gullfót. skyldi láta fulltrúa sína fallasf á hana. En það lá fiskur undir stedni. í fyrsta lagi hafði engin . á- kvörðun verið tekin um það í Rio hvenær hið nýja, endur- bætta kerfi gengj í gildi. Ó- lokið var að ganga frá ýms- um framkvæmdaatriðum og bíða varð endanlegrar f uUgUd- ingar aðildarríkjanna á sam- komulaginu. En í öðru lagi hafði verið svo búið um hnút- ana atf Frakka hálfu að yfir- dráttarheimildina mætti ekki nota nema þvi aðeins að 85 prósent af vegnum atkvæðum í IMF samþykktu það og EBE- ríkin fengu samanlagt sextán prósent atkvæða. Samkomu- lagið er því óvirkt nema með samþykki EBE-ríkjanna, og reynslan hefur margsinnis sýnt að bandamenn Frakka í EBE neyðast til að fylgja þeim þegar á reynir, hversu ófúsir til þess sem þeir kunna að vera. T-jær vonir sem tengdar voru *■ við samkomulagið frá London og Rio („Nýja kerfið þýðir þvi að hættunni á alls- herjax skortá gjaldmiðilsforða hefur verið bægt frá um ó- fyrirsjáanlegan tima“ —„New Statesman” 29. sept.) hafa al- gerlega bruigðizt, svo að hætt- an sem „NS“ talaði um hefur aldrei verið meiri en nú. Fumdi ttfmeniningainna í Stokk- hólmi þessa dagana var ætlað að ganga frá framtovæmdaat- riðum varðandi hið nýjatoerfi, en nú eru allar horfur á að De- bré, fjánmálaráðheirra Frkaka, miuni í þess stað krefjast þess að kvödd verði saman ál- þjóðaráðstetfna um gjaldeyris- málin. Og eniginn getur gengið þess dulinn að fyrir Frökkum mun vaka það eitt með slfkri ráðstetfnu að binda í eitt Skipti fyrir öll enda á drott- invald dollarans í fjármálum auðvaldsheitmsins. — ás i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.