Þjóðviljinn - 17.11.1968, Blaðsíða 1
Sunnudagur 17. nóvember 1968 — 33. árgangur — 250. tölublað
Lifskjaraskeriingin mun orsaka algert
neyðárástand meðal alls jtorra verkafólks
Svohljóðandi tillaga kom fram
á fundi stjómar og trúnaðarráðs
Verkalýðsfélags Húsavíkur 11.
nóvember og var sajmiþykkt sam-
hljóða:
„Fundur í stjórn og trúnaðar-
ráði Verkalýðsfélaga Húsavíkur,
haldinn 11. nóv. 1968, mótmælir
harðlega þeirri gengisfellingu,
sem ríkisvaldið ákvað í dag.
Sú lífskjaraskerðing, sem hún
mun óhjákvæmilega hafa í för
með sér, er svo gífurieg, að hún
hlýtur að orsaka algert neyðar-
ástand meðal alls þorra verka-
fólks.
Er það álit fundarins að al-
þýðusamtökin séu nú knúin til
að snúast til varnar þegar i
stað‘‘.
Arnór.
4>
1000 byggingamenn missa atvinnu
fyrir 1. des.
Innbrot á skrifstofu Dagsbrúnar:
Myndirnar hér fyrir ofan cru teknar á skrifstofu Dagsbrúnar í gær-
riiorgun. Á myndinni til vinstri sjást verkfæri þau, sem innbrots-
þjófarnir skildu eftír á innbrotsstaðnum, m. a. rafmagnsborvél. Á
myndinni til hægri sést Guðmundur Erlendsson rannsóknarlögreglu-
maður virða fyrir sér vettvanginn, en fremst á myndinni sést skáp-
urinn og hurðin liggja á gólfinu. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Stolið var á annað
hundrað þús. kr.
□ I fyrrinótt var brotizt inn á skrifstofur Dagsbrúnar
og stolið þar peninigum á annað hundrað þúsund krónum.
Höfðu þessir peningar verið geymdir í rammbyggilegum
peningaskáp í afgreiðsluborði. Þó virðast þjófamir hafa skil-
ið eftir bankabækur og ávísanir — bæði útfylltar og óút-
fylltar. Var samt ekki búið að ganga úr skugga um það í gær.
□
□
□
□
□
Kunnugt er að Efnahagsstofnunin hefur lát-
ið gera könnun á væntanlegum samdrætti
við byggingarframkvæmdir og tekið þar mið
af Búrfellsvirkjun, Straumsvík, Breiðholti
og nokkrum fleiri verktakafyrirtækjum í
byggingarframkv. á Rvíkursvæðinu.
1. október unnu við þessar framkvæmdir
2592 menn og er gert ráð fyrir að fækka
þeim niður í 1623 menn 1. desember næst-
komandi. Þannig verða 969 menn búnir að
missa vinnuna hjá þessum verktökum í
byrjun desember og er ekki vitað til þess
að þessir menn hverfi að neinu á vinnu-
markaðnum.
Þetta eru geigvænlegar niðurstöður, þegar
haft er í huga að venjulega fer að dragast
saman vinna í desember, janúar og febrúar.
Er þannig geigvænlegt atvinnuleysi fyrir-
sjáanlegt hjá byggingarmönnum hér á R-
víkursvæðinu svo að ekki sé nú minnzt á
landsbyggðina.
Gengisfelling ríkisstjórnarinnar örvar ekki
Framhald á 9. síðu.
Verkamannafélagið Dags-
brún heldur félagsfund í dag
kl. 2 e.h. í Iðnó og verða þar
mjög þýðingarmikil mál á
dagskrá.
Fyrir fundinn verður lögð
tillaga um uppsögn kjara-
samninga við atvinnurekend-
ur og auk þess verður aðal-
mál fundarins að ræða efna-
hagsráðstafanir ríkisstjórnar-
innar og þá stórkostlegu lífs-
kjaraskerðingu sem þær hafa
í för með sér, svo og hvemig
verkalýðshreyfingin geti snú-
izt til varnar lífsafkomu fé-
laga sinna og tryggt þeim
mannsæmandi kjör í fram-
tíðinni. Þá verður og rætt um
félagsmál á fundinum.
Félagsmenn eru eindregið
hvattir til að fjölmenna á
fundinn og beðnir að sýna
skírteini við innganginn.
Almennur fundur á Akureyri í kvöld
í kvöldí heldur Alþýðubandalagið fund í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri. — Framsögumenn verða Ragnar Arnalds og Lúðvík Jósepsson.
Fundurinn hefst klukkan 8.30. — Frjálsar umræður.
Það var ljót aðkoma á skrif-
stofur Dag’sbrúnar í gaermorgun
og lágu pappírar og skjöl eins
og hráviði um allar skrifstofur
enda hafði skrifborðsskúffum
verið hvolft í leit að verðmæt-
um.
Við peningaskápinn höfðu
þjófamir skilið eftir ýmiskonar
verkfæri, sem þeir höfðu haft
meðfarðis eins og rammaginisbor,
tvo meitla, ásláttarhamar, jám-
sög, skrúfjám og stjönnubor úr
loftbor.
Fyrst virðast þjóflamiir bafa
rofið gat. á peningaskápinn að
ofan með rafmagnsbor og ætlað
að komast þá leið inn í skápinn
en vaxið það svo í augum. að
þeir hættu við hálfnað verk.
Þá virðast þeir hafa snúið sér
að því að saga lamimar á hurð
peningaskápsins í sundur og tek-
izt að glenna hurðina frá með
meitlum.
Síðan hafði verið auðveldur
eftirleikur að brjóta upp inngróp-
uð peningahólf og peningakassa
í skápnum, sagði rannsóknarlög-
reglan í gær. Guðmundur J. Guð-
Framhald á 9. síðu.
Sextán ára stúlku er saknað
í Hafnarfirði og augiýsti lög-
reglan þar eftir stúlkunni. —
Stúlkan hafði farið í fússi að
hciman frá sér á miðvikuóags-
morgun og hefur ekki komið
heim síðan. Hún hafði þó sézt
á miðvikudag og fimmtudag,
en síðan hefur ekki til hennar
spurzt.
ÚTIFUNDUR ASÍ í DAG KL. 1530
Eðvarð Sigurðsson
formaður Dagsbrúnar
□ Alþýðusamband íslands efnir til útifundar
í dag kl. 15.30 við Miðbæjarskólann um efnahags-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar og kjaraskerðingu al-
mennings.
Ræðumenn á fundinum verða:
Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, og
Jón Sigurðsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur.
Fundarstjóri verður Hannibal Valdimarsson og
mælir hann lokaorð.
Jón SiguTðsson
formaður Sjómannafélagslns
□ VERKAFÓLK OG LAUNÞEGAR
eru hvattir til að fjölmenna á fundinn
og sýna með því, að launastéttirnar eru
ákveðnar í að hrinda þessari stórfelld-
ustu árás sem gerð hefur verið á lífskjör
almennings í landinu og hika ekki við
að krefjast kauphækkana til þess að vega
upp á móti kjaraskerðingunni.