Þjóðviljinn - 10.01.1969, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 10.01.1969, Blaðsíða 5
Fösfcujdagur 10. jamúar 1069 — ÞJÓÐVI'LJIÍNIN — SÍÐA g Rússar urðu fyrstir íþotu- kapphlaupi Sovézkti ílugvélasmiðimir sigruðu í fyrstu lotu kapphlaupsins um hljóðfráu þotumar; TU-144 varð fyrst þessara risa- stóru farþegaflugvéla sem fljúga hraðar en hljóðið til að komast á loft og ljúka fyrsta tilraunafluginu. Concorde-vélin frsega. sem brezkir og franskir fluigvéla- smiðir hafa í sameiningu unnið að, verð- ur ekki ferðbúin fyrr en eftir nokkra mánuði eða misseri; smíði hennar hefur seinkað verulega og framkvæmdaáætlam- ir á ýmsan hátt farið úr skorðum. Banda- ríkjamenn, sem einnig vinna að smíði hraðfleygra farþegaflugvéla, eru talsvert á eftir Rússum, Bretum og Frökkum í kapphlaupinu, en þess ber að gæta. að þær þotur s»em unnið er að í Bandaríkj- unum eru talsvert stærri en TU-144 hin sovézka og Concorde-vélin. TU-144 farþegaþotan, sem kennd er við hinn fyrsta sovézka flugvélasmið A. N. Túpóléf, fór í fyrstu ferðina, reynsluferð- ina, á gamlársdag. Farþegarými hennar er ekki ýkja stórt, hún getur flutt um 120 farþega í ferð, en meðalhraði á langleið- um er 2500 km á klukkustund. Meðal þeirra sem fylgdust með fyrstu flugferð TU-144 var A. N. Túpóléf, sem varð áttræður 10. nóvember sl. Hann hef- ur lagt á ráðin um smíði fjölmargra far- þegaflugvéla um dagana; nefna má sem dæmi TU-104, hina elztu í hópi farþega- flugvéla sem við Túpóléf eru kenndar, en sú flugvél var fyrsta þotan í heimi sem notuð var til farþegaflutninga á áætlun- 'árflúgleiðum. A. N. Túpóléf að lokinni velheppnaðri reynslu- ferð TU-144 í hópi flugmanna og fleiri sér- fræðinga er viðstaddir voru á gamlársdag. Hinn fraegi flugvélasmiður er með gleraugu til vinstri? á myndinni, flugstjórjnn Edvard Élian er lengst til vinstri á myndinni. — Til hliðar er mynd af TU-144 á flugi. TU-144 á brautarenda fyrir flugtak. Takið eftir „nefi“ þotunnar; það er sveigt niður á við í flugtaki og lendingu, en visar beint fram þegar þot- an er komin á loft og hefur náð fullum hraða. Þama er TU-144 komin á ferð og „nefið“ vísar beint fram á við. /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.