Þjóðviljinn - 03.04.1969, Qupperneq 2
2 SlÐA — WÖÐVILJINN — Kmmkidagur 3. apríl 1969.
Kvikmyndir um páskana
Austurbæjarbíó
Austu rbæj arbíó sýnir kvik-
myndina Hótel, um páskana.
Myndin er gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu eftir Arthur
Hailey, sern komdð hefur út í
íslénzkri þýðingu.
Með aðalhlutverkin fara Rod
Taylor og Catheriné Spaak.
Tónabíó
Hin fræga bandaríska gam-
anmynd ,,Hów to suceeed in
business without really trying“,
sem á íslenzku heitir Hvernig
komast má áfram án þess að
gera handarvik. er nú sýnd í
Tónabíói.
Er saigt að mynd þessi hafi
náð sömu vinsælldum á Broad-
way og My fair lady og South
Pacific.
Framleiðandi og leikstjóri er
David Swift og þeir sem fara
með staerstu hlutverkin í mynd-
inni eru Robert Morse, Michéle
Lee og Rudy Vaillee.
Stjörnubíó
Stigamaðurinn frá Kandaihar,
„hörkuspennandi og viðburðar-
rfk amerísk kvikmynd" er
páskamynd Stjömubíós. Gerist
myndán í Indlandi árið 1850.
Ronald Lewis, Oliver Reed og
Yvonne Romain leika aðallhlut-
verkin.
Nýja bíó
Nýja bíó sýnir amerísku
myndina Hetja á haettus'lóðum
(Deal in danger), mynd sem
gerist í Þýzkalandi á stríðsár-
unum. Myndin er gerð eftir
sjónvarpsleikriti, ,,BI1ue Light“.
Robert Goulet leikur aðalhiut-
verkið en auik hans fara með
stór hflutverk Christine Carere
og Donald Harron.
Laugarásbíó
Mayienlinig er nafnið á pásika-
mynd Laugarásbíós og eru leik-
arair í myndinni m.a. Ornar
Sharif, Ohaterine Deneuve, Ava
Gairdiner og James Mason.
Efni myndarinnar er sótt í
atburði er gerðust í Vínarborg
1888. Þá fundust Rúdolf, rikis-
arfi keisaradæmis Habsborgara,
Austurríkis-Ungverjailands, og
frilla hans Maria Vetsera. ung-
versk greifynja, skotin til bana
í veiðiskálanum í Mayetrling,
skammt frá Vínarborg. Veltu
menn lengi fyrir sér hvort þau
skötuihjú hefðu verið myrt eða
framið sjáffsmorð.
Leikstjóri er Bretinn Terr-
ence Young.
Athugasemd
frí Einari
iSindrn
1 gær barst Þjóðviljanum eft-
ibfarandi atlhugasemd frá Einari
Ásmundssyni í Sindra:
„Vegna fréttar í Þjóðviljan-
um í dag (2. apríl) um að 11
verkamönnum hafi verið vikiö
úr starfi f Straumsvík, viljum
við taka eftirfarandi fram:
Matar- og kaffihlé starijs-
manna okkar í kerskála er
samkvæmt samkomulagi við
fulltrúa allra starfsmannanna i
kerskála og gert samkvæmt ósk
þeirra þ.e. að þeir taki hálfa
kl.stund í mat, en hætta hálfri
kl.stund fyrr að kvöldi- Fonmað-
ur Sveinafélags jámsmiða ann-
aðist þetta samningsatriði.
Á fundi með hluitaðeigandi
verkalýðsleiðtogum þ. 6/2—69,
setti form. HÍífar í Halfnarfirði
fram kröfur um m.a. hækkað
kaup til starfsmanna við þjöpp-
un kol-massa (þ.e- stanf 11-
menninganna) og að þeir fengju
hlífðarföt og skó. Þessum kröf-
um var mætt af okkar hállfu.
Einnig hefur sá háttur verið
á, að þegar 11-menningamir
hafa lokið við þjöppun á eitt
ker, hafa þeir mátt hætta vinnu
þann dag. Ástæðan er sú að
þjöppun kolmaissains í hverju
einstöku keri verður að gera í
samfelldri vinnu, a. m. k- hvað
bbtn snertir.
Frá því að gengið var frá
ofangreindum samningsatriðum
hefur ekkert annað komið fram,
sem bent gæti til óánægju frá
hendi starfsmarmanna þar . til
Framhald á 13. síðu
Ferðir strætisvagnanna
SKÍRDAGUR:
Ekið frá klukkan 10—24:00.
Á leiðum, sem ekið er á sunnu-
dágsmorgnum og eftir miðnaétti
á virkum dögum:
kl. 7:00-10:00 og ki. 24:00-01:00.
FÖSTÚDÁGURINN LANGI.
Ekið frá kl. 14—24:00.
Á þeim leiðum, sem ekið er á
sunnudagsmorgnum og eftir
miðnætti á virkum dögum: kl.
11:00-14:00 og kl. 24:00-01:00.
LAUGARDAGUR:
Ekið frá kl. 07:-17:30.
Á þeim leiðum, sem ekið er á
súnnudagsmorgnum og eftir
miðnætti á virkum dögum:
verííur ekið frá:
01:00.
klukkan 17:30-
PÁSKADAGUR:
Ekið frá klukkan 14:00-24:00.
Á þeim leiðum, sem ekið er á
sunnudagsmorgnum og eftir
miðnætti á virkum dögum: kl.
11:00-14:00 og klukkan 24:00-
01:00.
ANNAN I PÁSKUM:
Ekið frá klukkan 10:00-24:00. Á
þeim leiðum, sem ekið er á
sunnudagsmorgnum og eftir
miðnætti á virkum dögum: kl.
07:00-10:00 og klukkan 24::00-
01:00.
UPPLÝSINGAR í síma 12700.
Þögn
Styrmis
; Um ndkfcurra ára ‘skéið hef-
ur aðalmálgagn þéirra Hanni-
bals ValdimarsSónar og Bjöms
Jónssonar verið Morgunblaðið.
Þeir hafa haift sérstakan full-
trúa á ritstjórnarskrifstofum
blaðsins, Styrmi Gunnarsson,
og stundum hefur hann ekki
haft neitt annað að sýsla vik-
um saman en skrifa «m mál-
efni þeirra; yrði öll sú fram-
leiðsla tínd til myndi hún
fylla nokkrar vænar bækur.
Enginn leiðtogi Sjálfstæðis-
flokksins hefur notið þvílikrar
þjónustu; síðustu tvö árin hef-
ur Hannibal Valdimarsson
vérið nefndur mun oftar í
Morgunblaðinu og af meiri
virðingu en sjálfur Bjarni
formaður. Svo náin voru sam-
skipti Hannibals og Bjönns
við Styrmi, að hann gat dag-
lega skýrt frá hugrenningum
beirra og athöfnum. Meðan
þeir félagar sóttu enn fundi í
framtevæmdastjórn og þing-
flökki Alþýðubandalagsins
kom það aft fyrir að ákvarð-
anir slíkra fuinda voru næsta
dag raktar í Morgunblaðinu,
líkt og Styrmir hetfði setið
fundina sjálfur-
Á þetta er minnt sökum
þess að síðustu vikurnar hefur
Styrmir þagað gersamlega um
athafnir húsbænda sinna. Er
sú þögn þeim mun kynlegri
sem Hannibal og Bjöm hafa
að undanfömu átt um það
mjög nánar viðræður við
æðstu leiðtoga Framsóknar-
flokksins hvort þessir aðilar
ættu ekiki að taka upp ástir
samlyndra hjóna. Það hefur
verið fjörleg pólitísk frétta-
mennska að birta daglega í
Morgunblaðinu frásagnir aif
því sem gerzt hefði daginn
áður á ástafundum þessum, en
samt hafa viðbrögð Styrmis
verið alger þögn. Allir vita að
hann heldur enn óskertum
samböndum sínum við þá
Valdimarssyni, svo að þögn-
in hlýfur að stafa af þvi að
hann er svo vél vaninn kjöltu-
rakki að hann rekur ekki upp
bofs nema með leytfi hús-
bændanna.
Að
prútta um prísa
En það er víðar kynleg þögn
um þessar viðræður; Tíminn
hefur ekki enn sagt frá þvi að
þær fari fram. Aðalmálgagn
Framsóknarflokksins virðist
lita svo á að það koimx óbreytt-
um Framsóknarmönnum ekki
við, þótt Ölafur Jóhannesson
og Hannibal Valdimarsson séu
að semja um það hvernig eigi
að bjóða fram í öllum kjör-
dæmum landsins, hvaða Fram-
sóknarmönnum eigi að kasta
fyrir borð og hvaða Hannibal-
istum eigi að geía lífsvon í
staðinn. Verketfni Framsókn-
armanna á auðsjáanlega að
vera það eitt að hlýðnast því
sem klikur í Reykjavík ákveða.
Að undanförnu hefur al-
menningur að vonum gagnrýnt
það harð'lega að stjórnmála-
ákvarðanir fara að mjög
óverulegu leyti fram fyrir opn-
um tjöldum, að áhrif óbreyttra
flokksmanna fá ekki að kom-
ast að. Leiðtogar Framisóknar-
flokksins, svo sem Eysteinn
Jónsson, hafa í orði tekið und-
ir þessa gagnrýni. En i raun
hefur ekkert breytzt; hinir
ætfðu stjórnmálamenn hatfa
ekkert lært og engu gleymt;
þeir halda enn sem fyrr að
þjóðmálabarátta sé í þvl fólg-
in að prútta um prísa á mark-
aðstorgi hinna pólitísiku gleði-
fcvenna.
Hár-
rétt mat
Hitt vekiur hins vegar enga
furðu þótt ekki sé á þessar
viðraeður minnzt ‘ í litla viku-
blaðinu með stóra nafninu,
Nýju landi — frjálsri þjóð.
Blaðið telur auðsjáanlega að
þeir Bjöm og Hannibal séu
ekki lengur flulltrúar neinna
aðila í þjóðfélaginu; þeir þurfi
ekki að stahda nokkrum
manni reikningsskap athafna
sinna frekar en Jón Jónsson
þegar hann kaupir sér í nefið.
Og auðvitað er þetta hárrétt
mat hjá syni Hannibals.
— AustrL
ililiag
.
t)r myndinni í Tónabíói,
Nú eru síðustu forvöð að sjú Koppalogn
Hér á myndinni eru Steindór Hjörleifsson sem Lási fjosamadur og Bor&ar Gardarsspn s,em :bítill-
inn Mikki.
• I daig, skírdag, hefur Leik-
félag Reykjavíkur allra síöustu
sýningu á einþáttungum Jónas-
ar Árnasonar, í Koppalognd.
Koppalogindð var f rumsýnt
um jólin í fyrra og reyndiist
vinsælasita viöfangsefni síðasta
leikárs og var sýnt þá 53 sinn-
um, síðan í leikför úti á landi.
Sýningarniar á Koppalogni eru
nú saimtals orðnar 77.
Ásamt HaHdóri Laxness og
Jökli Jakobssyni heíúr Jónasi
Arnasyni tekizt að vekja at-
hygli umheimsins á því, að á-
stæða sé til að fyflgjast með því
sem skrifað er fyrir leiksvið á
fsllandi. Nú í vor á að flytja
í sænska útvarpið Táp og fjör,
annan einiþáttunginn í Koppa-
logni, og kornið heifiur til tals
að sýna þá báða í Dyflinni í
haust.
Sýningar Leikfélagsins um
pásikana verða annars sem hér
segdr:
Á skírdag, eins og áður seg-
ir, síðustu forvöð að sjá Koppa-
lognið og Maður og kona á
annan í póskum. f gærkvöld
var skemmtunin Þegar iwfmi ■
var ung endurtekin í Austur- barnaópera etftir Þorkel Sigur-
bæjarbíói til ágóða fyrir Bi- bjömsson., Barnamúsíkskólinn
afrasöfnuhina, óg á annan í og Leikfélagið standa =að þeirri
páskum verður frumsýnd ný sýmámgu í samedningu-. - -:
SOLÖ-eldavélar
Framleiði SÓLÓ-eidavélar af mörgum stærðum og
gerðum. — Einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi.
sumarbústaði og báta. a
Varahlutaþjónusta.
Viljum sérstaklega benda á nýja gerð einhólfa elda-
véla fyrir smærri báta og litla sumarbústaði
ELDAVÉLAVERKSTÆÐI
JÓHANNS FR.
KRISTJANSSONAJR h.f.
Kleppsvegi 62 — Sími\33069.