Þjóðviljinn - 12.10.1969, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 12.10.1969, Blaðsíða 4
q SÍDA — ÞJÓÐVILJINN — SunnudagUr 12. ofctðber 1969 — málgagn sósíalisma, verkalýSshreyflngar og þjóðfrelsis — Otgefandi: Otgáfufélag Þ|ó5vll|ans. Ritst|órar: Ivar H. Jónsson fáb.fc Magnús KJartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritst|órl: Sigurður V. Friðþ|ófsson. Auglýsingast|.: Ólafur Jónsson. Framkv.stlórl: Eiður Bergmann. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlð)a: Skólavðrðust 19. Slml 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 150,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Atvinnuleysi er giæpur 'JVö öflug verkalýðsfélög í Reykjavík, Verka- mannafélagið Dagsbrún og Trésmiðafélag Reykjavíkur hafa á fundum undanfarna daga minnt á atvinnuleysið og hættuna á erfiðum at- vinnuleysisvetri. Þetta er þörf áminning ekki sízt vegna þess að ráðherrarnir og íhaldsblöðin virðast ekki telja atvinnuleysið verulegt vandaimál lengur, hér sé allt á uppleið! Verkamannafélagið Dags- brún lýsti eindregnum stuðningi við þær kröfur til úrbóta í atvinnumálum sem ráðstefna verka- lýðsfélaganna í Reykjavík og Hafnarfirði sam- þykk'ti á fundum sínum í ágúst og september og afhentar voru ríkisstjórn og stjórnum sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu. Minnir Dagsbrún á þá staðreynd, að í allt sumar hefur verið hér viðvar- andi atvinnuleysi, og þótt lítillega hafi nú úr því dregið, eru horfur á að það margfaldist á næstu imánuðum, nema til komi sérstakar ráðstafanir því til hindrunar. Verkamannafélagið Dagsbrún ger- ir því þá kröfu 'til stjórnarvalda, að þegar í stað verði gerðar fullnægjandi fáðstafanir í atvinnu- og efnahagsmálum er dugi til að útrýma atvinnu- leysinu. Jafnframt heitir félagið á verkalýðsfé- lögin að fylgja eftir kröfum sínum með einhuga, vakandi baráttu gegn atvinnuleysi. - - I..: ■{.. ... 'J'résmiðafélag Reykjavíkur krefst aðgerða gegn atvinnuleysinu í ýtarlegri og rökstuddri fund- arályktun, og sýnir fram á að um meira er að tefla en atvinnuleysi í vetur; yfir byggingariðnaðinum vofir stórhætta vegna skipulagsleysis og óstjóm- ar í þjóðmálunum. Afleiðingar þess að íbúðabygg- ingar hafa hrunið niður síðustu árin eru stór- minnkaðar atvinnutekjur byggingarmanna, ár- visst atvinnuleysi og landflótti í stórum stíl. Tré- smiðafélagið lýsir einnig fyllsta stuðningi við kröfur verkalýðsfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og krefst þess að stjórnarvöld framkvæmi undan- bragðalaust og þegar í stað þær kröfur sem verka- lýðsfélögin gerðu til að afstýra atvinnuleysi á næstu vikum og mánuðum. í samþykkt Trésmiða- félagsins er lögð á það áherzla, að stórversnandi afkoma alls verkafólks og atvinnuleysi eigi rót sína í skipulagsleysi efnahagsmála og atvinnu- mála, sem geri framleiðsluatvinnuvegunum ó- kleift að starfa á heilbrigðum grundvelli. í álykt- un félagsins segir: „Það er því krafa fundarins að komið verði á heildarstjóm í atvinnu- og efnahags- málurn þjóðarinnar, byggðri á markvísri áætlana- gerð, sem miði að því að tryggja blómlegt efna- Kagslíf og fulla atvinnu öllum vinnufúsum hönd- um“. í byggingamálum krefst Trésmiðaféiagið þess, að í stað glundroða verði tekin upp fyrirfram skipulögð uppbygging íbúðarhúsnæðis og annarra byggingaframkvæmda, sem miðist við þörfina á hverjum tíma og hagkvæma nýtingu fjármagns sem tryggi byggingamönnum fulla atvinnu. „Atvinnuleysi er glæpur og atvinnulaus maður er þræll rangláts efnahagskerfis en ekki frjáls maður og sú ríkisstjórn sem ekki er fær um að 'tryggja þegnum þjóðfélagsins fulla atvinnu á að vfkja", segir í þessari merku samþykkt. — s. Ritstjóri: ÓLAFUR BJÖRNSSON Lí&ur að lokum Sovétmeistaramótsins ic Nú má segja að aðeins Ioka- spretturinn sé eftir á 37. skákþingi Sovétrík.janna- — Lokið er 20 umferðum af 23, en þótt aðeins séu þrjár um- ferðir eftir á enn um helm- ingur keppenda tölfræðileg- an möguleika á að ná í eitt af fjórum réttindasætum. ★ Líklegt verður að telja að einhver þeirra þriggja Smysl- ofs, Petrosjans eða Polúga- jefskís hljóti sovétmeistara- tignina að þessu sinni, þótt Geller, Savon og Holmof hafi einnig möguleika. Tal á aðeins tölfræðilega möguleika. Röð efstu manna hefur lítið breytzt frá því er við sögð- um frá i síðasta þætti. Tal tók nokkurn fjörkipp og hlaut 3 v. úr fjórum skák- um og fáum við að sjá tvær þeirra hér á eftir. Þrátt fyr- ir þessa sigra hefur honum ekki tekizt að komast í eitt af f jórum efstu sætunum og- má segja að möguleikar hans til að hreppa eitt af fjórum efstu sætunum séu aðeins fræðilcgir- ★ Hér kemur svo staðan eins og hún var að ' 20 umferð- um loknum: f þessari skák beitir and- stæðingur Tals, Lútíkof, Aljek- ínsvörn. Lútíkof velur sjald- gæfa leið í 3. leik sínum (3. - Rb6), algengasit er 3.-dó. Eftir allmikil uppskipti leggur Lixtík- of af stað með kóng sinn i 18. leik, er skemmst af að segja að þetta reynist hið mesta feigðarflan. Vinnur Tal peð þegar í 21. leik, Lútíkof gefur einnig g-peð sitt í von um mót- spil en allt kemur fyrir ekki. Tal vtndur drottning- unni sinni frá kóngsvæng yfir á drottningarvæng og peðin þar fall-a hvert aí öðru og að lokum sér Lútíkof sitt óvænna og gefst upp. Hvítt: Tal. Svart: Lútikof Aljekíns-vörn. 1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 Rb6 4. a4 a5 5. Bb5 c6 6. Bd3 d5 7. Bg5 g6 8. h4 h6 9. Be3 Bg7 10. Rd2 Ra6 11. c3 Be6 12. Rh3 Rc4 13. Dc2 Rxe3 14. fxe3 S5 15. hxg5 hxg5 16. 0—0—0 Bxh3 17. Hxh3 Hxh3 18. gxh3 Kd7 19. BxaÆ Hxa6 20. Df5f e6 21. Dxf7f De7 22. Dg6 Ha8 23. Hgi Hh8 24. Hxg5 Bh6 25. Hh5 Df8 26. Kc2 Bxei3 27. Hxh8 Dxh8 28. Df7f Kd8 29. Rb3 b6 30. Db7 Dh5 31. Dxböf Ke8 32. Dxc6f Kf8 33. Kbl Og svartur gafst upp, enda er staða hans algerlega vonlaus. I. -3. Smyslcxf, Petrcsjan og Poi- úgaje&kí 12 af 19 . 4- Geller 11% af .19. 5.-6. Savon og Hölmof 11 af 18. 7. Gipslis 11 af 20. 8 -9. Balashov og Stein 10% vinning úr 19 skákum. 10. Taiimanotf 10 af 18. II. Averkin 10 af ' 19. 12. Platonof 9 >/2 atf 18. 13. Liberson 9'/j atf 19. 14. Tal 9% atf 20. 15. SchuChovitzkij 9 af 18- 16. Lútíkof 8% atf 19. 17. I. Saizetf 8 a£ 19- 18. -19. Gufeld og Vasjúkof 7% vinning úr 18 skákum. 20- A. Saizef 7% a£ 19. 21. Purman 6V2 af 19. 22. Tukmakaf 6 af 19. 23. Kupreitschik 5% a£ 19- Svæðamótin Þeim Friðriki Ólatfssyni og Guðmundi Sigurjónss-yni, hefur gengið allvel í svæðamótunum v það sem af er, og vomandd ræt- ist sú ósk íslenzkra skákunn- enda að Friðrik komist áfram. 1 oidllisvæðaimótið. Engimn held ég sé svobjart- sýnn að halda að Guðniundur kom-ist áfram, enda mætti nán- ast telja það kratftaverk, slfka beirserki sem hann á í höggi við. Hins vetgar yrði það mjögá- nægjulegt etf honum tækist að standa sig það vel að hann hlyti það sem uppá vantar til að hljóta alþjóðlegan meistara- titil. Vonandi berast okkur S'kákir innan tíðar frá þessum mót- um. ★ A. Saizef, er varð í fyrsta til öðru sæti á skákþingi Sovét- ríkjanna í fyrra fær heldur betur að kenna á Tál í þessari skák. Eftir fremur rólegt af- brigði af franskri vörn, koma skyndilega upp miklar flækjur auðugar atf leikflétfcurnöguleik- um. Tal neytir þeirra færa sem gefast aí mikilli snilli, fómar manni og kóngur andstæðings- ins er berskjaldaður fyrir á- rásum á sínum upphiafsreit. Ef að svartur reynir að bjarga dirottningunni sinn; í 17. eða 18. leik gera hrókamiir út um skákina ásamt drottning- unni eins og lesendur geta sánnfært sig um, hér er ein leið t.d.: 17. -DdT. 18. Hfelf Kd8, 19. Df6t Be7, 20. Db6t ásamt 21. d6. f lokastöð- unni er ekki glæsilegt um að litast hjá svörtum, kóngurinn komiinn á vergang, biskupinn á hraikningi. Saizef leizt heldur ekki glæsilega á stöðuna, — fallegur sóknarsigur hjá Tal. Hvítt: Tal Svairt: A. Saizef. Frönsk vörn. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. Rgf3 Rc6 5. exd5 exd5 6. Bb5 De7f 7. Be2 Dc7 8. 0—0 cxd4 9. Rh3 Bd6 10. Rbxd4 a6 11. c4 Rf6 12. Bg5 Re4 13. cxd5 Rxd4 14. Dxd4 Rxg5 15. Dxg7 Rxf3f 16. Bxf3 Hf8 17. Hacl Bxh2f 18. Khl Dd6 19. g3 Bxg3 29. fxg3 Bf5 21. Hfelt Og Saizef gafst upp enda ófag- urt um að litast í herbúðum hans. Tal hefur teflt bessa skák í gömlum og góðum stil. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur Haustmót Taflfélags Reykja- víkur hófst fyrir skömmu cg er tveimur umferðum lokið. — Það sem einkum vekur athygii í samfbandi við haustmótið að þessu sinni er þátttaka Inga R. Jóhannssonar, en nokkur tími er n'ú liðdnn síðan hann tök síð- ást þátt í móti hér heiima, Vonandi boðar þátttalka Inga að þessu sinni að hann muni fara að taka atftiur virkan þátt í mótum hér heinua, en Ingi var fyrir nokkrum árum sá af okkar beztu skákmönnum er iðnastur var að taka þátt í mót- um. Má öllum ljóst vera að eikik- ert er eins góð ætfing fyrirhina yngri skákmenn okkar og að fa að tefla við sér sterkari og reyndari menn. Haustanótið er að þessu sinni ötfllugra en það hefúr verið í mörg ár. Ingi R. aftur með. í næsta þætti miunum við birta skákir frá Hausfcrhlótinu. RAUÐARARSTIG 31 Dag* viku* og mána&argiald o f f i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.