Þjóðviljinn - 11.12.1969, Qupperneq 4
4 SfÐA — ÞJÓÐVHáJllNN — PtaimtadaigUir 11. desember 1969.
— málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag ÞjóSviljans.
Ritstjórar: ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Ólafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500
(5 línur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Þung ábyrgð hlutarþjófa
jyjorgunblaðið og Vísir, blöð Sjálfstæðisflokksins,
eru tekin að hóta sjómönnum illu vegna upp-
sagna sjómannasamninganna, það verði þeirra
sök ef atvinnuvegimir haldi ekki áfram á þeysi-
reið framfara, sem gengislækkanir ríkisstjórnar-
innar hafi búið þeim. Þetta eru að vísu skilorðs-
bundin viðbrögð íhaldsins og blaða þess í hver't
sinn sem verkalýðsfélög ympra á kjarabótum. Þó
eru hótanir og áróður Morgunblaðsins og Vísis í
garð sjómanna þeim mun ósvífnari þessu sinni en
venjulega að nú liggur alveg ljóst fyrir, svo eng-
inn getur um villzt, hverjir bera á því fulla ábyrgð
ef til sjómannaverkfalls kemur um áramótin.
^byrgðina bera tveir stjómarflokkar, ábyrgðina
bera þingmenn Sjálfstæðisflokksins og-Alþýðu-
flokksins. Á þinginu í fyrra gerðu þingmenn og
ráðherrar þessara tveggja flokka hina óþokkaleg-
ustu árás á sjómannshlutinn sem nokkru sinni hef-
ur verið gerð, ómerktu með löggjöf ákvæði úr
samningum allra sjómannafélaga 1 landinu; seild-
ust’ í vasa hvers sjómanns til að stela ríflegum
hluta af kaupi hans og afhentu ránsfenginn út-
gerðarmönnum. Með þessum ósvífna hætti höfðu
þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins
af sjómönnum stórar fjárfúlgur, sem þingmenn-
imir eru áreiðanlega ekki borgunarmenn fyrir; þó
mun árásin á sjómannshlutinn verða flokkum
þeirra dýr áður lýkur.
^jómannasaimtökin samþykktu einróma á ráð-
stefnu sinni í október að krefiast bess af Al-
þingi að þvingunarlögunum um sjómannshlutinn
yrði brey’tt, og tóku beinlínis fram í samþykkt
sinni og orðsendingu til Alþingis að eftir undir-
tektum þess gæti farið hvað gert yrði í samninga-
málum um áramótin. Seku flokkamir, en þeir ráða
meirihluta á Alþingi, hafa ekkert a-ðhafzt. Þing-
menn Alþýðubandalagsins lögðu hins vegar fram
í byrjun desember þingsályktunartillögu um skip-
un nefndar samningsaðila, sjómannafélaganna, úf-
gerðarmanna og ríkisstjómarinnar til að endur-
skoða þvingunarlögin, og fæli Alþingi nefndinni að
gera fyrir áramót itillögur um breytingar á þann
veg að ákvæði þeirra torveldi ekki samninga.
jþessu hefur ekki verið sinnf, stjómarflokkamir
hafa ráðið því að málið hefur enn ekki verið
tekið á dagskrá, orðsending sjómanna að engu
höfð. Andspænis þeim vinnubrögðum stjómar-
flokkanna hafa sjómenn nú á nýrri ráðsfefnu sl.
laugardag ákveðið að hefja beint samninga við
útgerðarmenn um stærri hlut og fleiri breytingar
á kjarasamningum. Það eru því þingmenn og ráð-
herrar Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins
sem nú neyða sjómenn til að berjast á nýjan leik
fyrir sjómannshlut sem áður hafði unnizt í harðri
baráttu, og er þung ábyrgð og lítilmótlegur mál-
staður þeirra alþingismanna og ráðherra sem þann-
ig beita valdi sínu og launa svo traust fólksins sem
sendi þá á þing. — s.
HVAÐ VERÐUR
UM
ÍSLÁND Í EFTA?
LAUNAHÆKKUN:
GENGISFELUNG
Það er augljóst að stjómarvöldin ætla að beita
gengisfellingum í enn ríkara tnæli en áður eftir
að gengið verður í EFTA. Er ætlun þeirra að beita
gengisskráningunni í stað þeinra tolla. sem felld-
ir verða niður. Greinargerð Guðmundar Magnús-
sonar prófessors er skýrt dæmi um þetta; þar er
hvað eftir annað. minnzt á gengisbreytingar sem
mikilvæga hagstjómaraðferð: „Það vill oft gleym-
ast, að mismunandi háir tollar þýða í rauninni
mismunandi gengi fyrir viðkomandi vömr. Séu
tollar feltdir niður, kemur eitt raunvemlegt gengi
til með að ráða, og það er eftir sem áður hægt að
veita atvinnuvegunum gengisvemd — eða rétt-
ara sagt, gengið verður að vera rétt skráð, svo að
atvinnuvegimir verði samikeppnisfærir. bæði
heima og erlendis. Það hlýtur einnig að vera svo
að þeim mun meiri þáttur atvinnulífsins, sem iðn-
aðurinn verður, því meir verður gengi íslenzku
krónunnar að miðast við afkomu hans. Það er því
útilokað að allur sá iðnaður. sem nú er tollvemd-
aður leggist í rúst“. (S. 74-75).
Og á öðmm stað segir prófessorinn: „Breytist
heimsmarkaðsverð á neyzlu- og fjárfestingarvör-
um, er einfaldast að þurrka út áhrifin á markmið-
in með því að breyta genginu. Sé gengið óhaggan-
legt (t.d. vegna alþjóðlegs samkomulags) má ná
sövnu niðurstöðu með því að þreyta tollum og út-
flutningsuppbótum. Með tilliti til EFTA-aðildar
hverfur síðari möguleikinn úr sögunni. Þess vegna
verður að breyta genginu, ef vinna á á móti áhrif_
um breytinga á heimsmarkaðsverði á hagþróun-
ina innanlands“. (S. 125) — Og á sömu síðu segir
Guðmundur Magmisson eftirfarandi sem er sér-
staklega athyglisvert fyrir launafólk — að nú ekki
sé minnzt á forseta og varaforseta Alþýðusam-
bandsins sem hafa gerzt sérstakir boðendur EFTA
úti u’m landsins byggð: „Genigið hefur stærst á-
hrifasvæði af hagstjómartækjum. Það reynir því
á það í líkaninu. Má beita því t.d. við launabreyt-
ingar eigi síður en breytingu á heimsmarkaðs-
verði, en í flestum tilfellum þarf þá að grípa jafn_
fra’mt til hliðarráðstafána til að tryggja að öll
markmiðin náist“.
Þessar tilvitnanir skýra sig sjálfiar en niðurstaða
þeirra er í stuttu máli sú: Enn oftar gengisfelling-
ar en verið hefur, hvort sem er til þess að vinna á
móti breytingum á heimsmarkaðsverði eða launa-
hækkunum innanlands. Er þetta ekki lærdóms-
ríkt fyrir íslenzkt launafólk og stöðu þess innan
Fríverzlunarbandalagsins?
Nýr höfundur:
Skáldsagan: Og
naiar skapast
Komin er á bókamarkaðinn
skáldsaga eftir nýjan böfund,
Martein frá Vogatungu, og nefn-
ist hún „Og maöur skapast " Út-
gefandi er Ægisútgáfan í Rvík-
Um bókina segir betta í
kynningu á kápu:
„Ekki er - ólíklegt að betur
verði tefcið eftir þessari bók nú
en verið hefði fyrir nokkrum
árum. Eftir langt árabil hefur
bölvun atvinnuleysisins nóð að
þokast um allt land og margur
ungur maður spyr með hrolli í
hug og krepptan hnefa: Hvem-
ig voru atvinnuleysisárin eftir
1930? Hvemig barðust atvinnu-
leysinigjar? Hvemig höfðu þeir
í sig og á? Hvað gerðist svo þeg-
ar fjölmennur innrásarher
streymdi inn í lamdið 1940 og
næstu árin?
Nýr höfundur, Marteinn frá
Vogatungu svarar mörgum
þeim spumingum í athygJis-
verðri og rösklega skrifaðri
Framihald á 9- síðu.
Marteinn frá Vogatungu
Happdrætti Þjóðviljans 1969
Umboðsmenn útí á lundi
REYKJANESKJÖRDÆMl — Kópavogur: Hallvaröur Guð-
laugsson. Auðbrekku 21. Garðalireppur: Hallgrímur Sæ-
mundsson Goðatúni 10. Hafnarfjörður: Geir Gunnars-
son, Þúfubarði 2 og Erlendur Indriðason, Skúlaskeiði
18. Mosfellssveit: Runólfur Jónsison, Reýkjalundi.
Keflavík: Gestur Auðunsson. Birkiteig 18. Njarð-
víkur: Oddbergur Eiríksson, Gmndarvegi 17 A. Sand-
gerði: Hjörtur B. Helgason. Uppsalavegi 6. Gerða-
hreppur: Sigurður Hallmannsson. Hrauni.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI — Akranes: PáU Jóhannsson,
Skagabraut 26. Borgarnes: Halldór Brynjúlfsson, Borg-
arbraut 31. Stykkishólmur: Erlingur Viggósson. Grund-
arfjörður: Jóhann Ásmundsson, Kverná. Hellissandur:
Skúli Alexandersson. Ólafsvík: Elías Valgeirsson, raf-
veitustjóri. Dalasýsla: Sigurður Lárusson, Tjaldanesi.
Saurbæ.
VESTFJARÐAKJÖRDÆMI — ísafjörður: Halldór Ólafsson,
bókavörður. Sýgandafjörður: Þórarinn Brynjólfsson,
vélstjóri. Dýrafjörður: Guðmundur Friðgeir Magnúss.
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA — Siglufjörður:
Kolbeinn Friðbjarnairson. Bifreiðastöðinni. Sauðár-
krókur: Hulda Sigurbjömsdóttir, bæjarfuUtrúi. Skaga-
strönd: Friðjón Guðmundsson. Blönduós: Guðmundur
Theódórsson.
N ORÐURL AND SK J ÖRDÆMI EYSTRA — Ólafsfjörður:
Sæmundur Ólafsson, Ólafsvegi 2. Dalvík: Friðjón Krist-
insson. Akureyri: Jón Hafsteinn Jónsson, Þórunnar-
stræti 128. Húsavík: Snær Karlsson, Uppsalavegi 29.
Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, skólastjóri.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI — Fijótsdalshérað: Sveinn
Ámason. Egilsstöðum. Seyðisfjörður: Jóhann Svein-
björnsson, Brekkuvegi 4. Eskifjörður: Alfreð Guðna-
son. Neskaupstaður: Bjami Þórðarson, bæjarstjóri.
Reyðarfjörður: Bjöm Jónsson, baupfélaginu. Homa-
fjörður: Benedikt Þorsteinsson, Höfn.
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI — Selfoss: Þórmiundur Guð-
mundsson, Miðtuni 17. Hveragerði: Sigmundur Guð-
mundsson, Heiðmörk 58. Stokkseyri: Frímann Sigurðs-
son, Jaðri. Vestur-Skaftafellssýsla: Magnús Þórðarson.
Vík í Mýrdal. Vestmannaeyjar: Tryiggvi Gunnarsson,
Strembugöta 2. ,
jimiBairabi.
Heimilistækjuviðgerður
Gerum við allar tegundir heimilisitækja: KITCHEN
AID — HOBART — WESTINGHOUSE — NEFF.
Mótorvindirngar og raflagnir. — Sækjum sendum.
Fljót og góð þjónus-ta.
Rafvélaverkstæði Eyjólfs og Halldórs
Hrinigbraut 99. — Sími 25070.
RAZN0IMP0RT, M0SKVA
RUSSNESKI HJOLBARDINN ENDIST
Hala enzf 70.000 km akslur samkvamt
voHorðl atvlnnubllstfðra
Fæst h|á flesfum Hfðlbapðasölum A landinu
Hvepgi lægpa vepð
Isfmi 1-7373
TRADINC
co.