Þjóðviljinn - 25.02.1970, Síða 1
B8S9S8
Miðvikudagur 25. íebrúar 1970 — 35. árgangur — 46. tölublað.
Söluskattur hækkar fram-
færsluvísitölu um 3,2 stig
• Sú hækkun á söluskatti
sem kemur til fram-
kvæmda um nsestu mán-
48 siSna
Akureyrar-
blaS
A sunnuðaginn, 1. marz,
gefur Þjóðviljinn út veg-
legt aukablað um Akureyri-
Blaðið er 48 síður og verð-
ur dreift í hvert hús í
kaupstaðnum. Guðrún Þ.
Egilson, blaðamaður Þjóð-
viljans, tók efni í Akureyr
arblaðið í ferð sinni nyrðra
fyrir nokkru og er hennar
vegurinn og vandinn af
efni Akureyrarblaðsins.
Þjóðviljinn væntir þess að
Iesendur hans um allt Iand
kunni vel að meta blaðið —
ekki þá sízt Akureyringar.
t blaðinu eru viðtöl við
á 3. tug manna og kvenna
á Akureyri. Flest hinna
Sítærri fyrirtælkja í bænuim
eru sótt heim, og má þar
m.a. nefna 1 iðnfyrirtæki
SlS, Lindu, Sana, Niður-
suðu K. Jónssonar h.f.,
Slippstöðina h-f. Útgerðar-
félag Akureyringa o.fl. Þá
sikýrir Jalkob Frímannsson
kaupfélagsistjóri frá hinni
miargþættu starfsemi KEA
á Akureyri.
Rætt er við sikólameist-
ara og nokkra nemendur
MA,, framkvæmdastjóra
Leikfólags Akureyrar, safn-
vörð Náttúrugripasafnsins
og formann Tónlistairfólaigs-
ins. Krisitján frá Djúpalæk
fer á kostuim í viðtali, sem
nefnist: „Ef þú gefur mér á
kjaftinn í dag, færðu sjálf
á hann á morgun“, Ingi-
mar Eydal söngkennari og
hljómsveitarstjóri fjallar
um dægurlagamúsik, ung-
lingavandamál o.fl. og
Stefán Bjarman leiðir (les-
a-ndann inn í Akureyri lið-
inna tíma.
Einnig er rætt við bæjar-
stjórann, Bjama Einarsison,
Jón Ingimarsson bæjarfull-
trúa Aiþýðubandalagsins
og þá er víðbai við frú
Soffíu Guðmundsdóttur
sem s/kipar efsta sæti á
lista floksins í n.k. bæjar-
stjórnarkosningum Rós-
berg G. Snædal skýrir frá
Fratmlhald á 3. siðu.
aðamót mun hækka vísi-‘::
tölu framfærslukostnaðar
u’m 3,2 stig. En hækkunin
verður meiri hjá lágtekju-
fólki sem hefur mun
þrengri neyzlu en vísi-
tölufj ölskyldan.
Hins vegar mun ætlun
ríkisstjórnarinnar sú að
þessi hækkun á fram-
færsluvísitölunni komi
ekki fram í kaupgjalds-
vísitölu, að því er Gvlfi
Þ. Gíslason viðskiptamála-
ráðherra og fleiri ráðherr-
ar hafa lýst yfir. Aðferð-
in til þess á að verða sú að
fella niður söluskatt á
soðningu og greiða niður
söluskattshækkun á smjöri
og kjöti. Þannig er á nýj-
an leik ætlunin að hefja
vísitölubrellur til þess að
koma í veg fyrir að launa-
fólk fái bætur fyrir verð-
hækkanir.
Alþingi kvatt
saman á mánudag
I gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
íorsætisráðuneytinu:
Forseti íslands hefur að til-
lögu forsætisráðherra kvatt Al-
þingi til framhaldsfundar mánu-
daginn 2. marz 1970 kl. 14.00.
Fyrirspurnir til Jóhannesar Nordals
vegna hótels við Suðurlandsbrautina
Eins og kunnugt er, er nú unnið að því að þreyta • flakinu
af bílahöll Kr. Kristjánssonar við Suðurlandsbraut í hótel.
Er vissulega þörf á því að bæta aðstöðuna hér í bænum
fyrir móttöku ferðamanna, en í sambandi við breytingar
húss þessa í hótel vakna nokkrar sérstakar spurningar,
sem vert er að leita svars við, m.a. 'með tilliti til þess að
þær gefa tilefni til þess að ætla að hér sé um að ræða
eina af aðferðum einkaframtaksins til þess að notfæra sér
aðstöðuna í banbakerfinu til þess að bjarga sér upp á sker.
Þjóðviljinn beinir því eftirfarandi spurningum til Jó-
hannesar Nordals, Seðlabankastjóra:
Hverjir „eiga“ nýja hótelið? Á ríkið einhvem
hlut í því?
Hefur Seðlabankinn látið fé í hótelið? Ef svo
er hve mikið, hver hefur heimilað þau fjár-
útlát og hversu mikið ætlar Seðlabankinn að
leggja fram?
Eins og kunnugt er hefur það mjög tíðkazt að undan-
fömu að ríkið hefur gripið inn í rekstur einkafyrirtækja,
þegar rekstur þeirra hefur borið upp á sker. Dæmin frá
Álafossi, Sana, Slippstöðinni sanna að þetta virðist vera
orðin algild regla. Enn er athyglisvert í þessu sambandi
að þau fyrirtæki sem keppa við þessi óskabörn ríkisstjóm-
arinnar láta sér í léttu rúmi liggja þó að ríkið styrki
keppinauta þeirra með fjárframlögum og mismuni þannig
fyrirtækjum í sömu giæin stórlega.
Aðalfundur Nl.f.í.K. / kvöld
Aðalfunduir Menningar- og
friðarsamtaka íslenzkra kvenna
verður haldinn í kvöld, miðviku-
dag, í Félagsheimili prentara að
Hverfisgötu 21. Fundurinn hefst
kl. 8.30.
Auk veniuleaira aðaifundar-
starfa les Margrét Jónsdóttir úr
Sálminum um blómið eftir Þór-
berg Þórðarson. Kaffiveitingar.
Félagskonur eru beðnar að at-
huga að fundurinn verður í
kvöld, miðvikudag, ekki fimmtu-
dag eins oe seslr í fundarboði.
SföSvasf
Sfálvik
vegna
efnisskorfs?
Allt útlit er nú fyrir að
skipasmíðastöðin Stálvik í
Garðahreppi verði senn að
stöðva starfscmi sína vegna
efnisskorts. Hefur skipa-
smíðastöðin tekið tvo yfir-
vinnutíma af mönnum sin-
um og auk þess mun fimm
mönnum hafa verið sagt
upp störfum af þessum á-
stæðum.
Stálvík hefur að undan-
förnu verið allumsvifamik-
il skipasmíðastöð og bundu
forráðamenn stöðvarinnar
miklar vonir við. að ný
lánatilhögun Fiskveiðasjóðs
breytti stöðu fyrirtækis-
ins mjög ’ til batnaðar. En
eins og kunnugf er var á-
kveðið fyrir nokkru — ekki
sízt vegna mikils þrýstings
frá verklýðsfélöE'unum —
að Fiskveiðasjóður hefði
50 milj. kr. til ráðstöfun-
ar í því skyni að lána
skipasmiíðastödvum \>egna
skipasmíða endia þótt kaup-
endur hafj ekki verið
tryggðir fyrirfram. eins og
reglan var áður.
Nú mun fyrirgreiðsla
Fiskveiðasjóðs hins vegar
hafa brugðizt — a.m.k.
þessari skipasmíðastöð. Er
það ákaílega alvarleg stað-
reynd, bæði með tilliti til
atvinnunnar og eins vegna
þess að skipasmíðastöðin
hefur nú i smíðum skip
sem tefzt ef ekki verður
leyst úr vandamálinu, auk
þess sem þegar liggja fyr-
ir pantanir um smíði á
skipum í Stálvík.
Brotizt inn
Brolizt var inn í Glaumbæ
rétt fyrir kl. 4 í fyrrinótt. Sást
til tveggja pilta, 17-18 ára, hvar
þeir skriðu inn um eldhúsglugg-
ann. Löigreglan gómaði pilta á
staðnum og gáfu þeir þá skýr-
ingu að þeir hefðu verið í leit
að áfenigi.
Eldur hjá Sindra
Nokkrar skenundir urðu er
kviknaði í Sindra-smiðjunni í
Borgartúni síðdegis í gær. Hús-
ið er á einni hæð; jámgrinda-
hús. Kviknaði í út firá járn-
herzlu og komst eldur j þakið.
Urðu slökkviliðsmenn að rifia
hluta af þakinu og gekk þá
slökkvistarfið firemiur fþótt fyr-
ir sig.
Andriki
á
■p • •• « •
/ lornmni
Skömmu eftir háðegi í
gaer er þessi mynd tekin
niður við Tjörn og sýnir
þar fuglaiífið hversdags.
Þá er minna af heimsókn-
um fólks með brauð handa
fuglunwm. Þarna hópuðust
fuglarnir tugum saman
til kmtunnar og
og teygðu sig eftir ætinu.
Var þar margan munninn
að metta og eiginlega stóð
ekki tjl að gefa svona
mrrguni fuglum brauð.