Þjóðviljinn - 25.02.1970, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — Í-JÖÐVTL.TTNN — Miðrvikuda:gur 25. febrúar 1970-
Handknattleikur:
íslandsmót yngrí fíokkanna
Um síðustu helgi fóru fram
margir Ieikir í Íslandsmóíi
yngri ■ flokkanna í handknatt-
Ieík. Að vanda var þar um
jafna og skemmtilega keppni
að ræða í flestum flokkum og
urðu úrslit þessi:
2. fl. kvenna.
Þrír leikir flóriu fraan.í 2. fl.
kvenna og í fyrsta leiknum
siigruðu Vals-stúlkumar IR með
miklum yfirburðum, eða 12:1.
Ármann sigraði Fyiki 7:4 og
Fram sigraði Víkáng 6:4.
3. fl. karla.
TVeir lei'kir fóru fram í 3.
±11. karla og sigraði IR Þrótt
6:3 í fyrri leiknum, en Ár-
mann og KR gerðu jafntefli 6:6
í b«m síðari.
1. fl. karla.
ÍR-ingar gáfu leikinn á móti
Þrótti í 1. fl. karla og virðist
eitthvað ekkj ; lagi með yngri
flokkana hjá þeim, því að beir
gáfu einnig leik í 2. f!l. karla á
mótá Þrótti. KR-ingar unnu
Ármann 13:9 í 1. flokki s.l-
sunnudag.
2. fl. karla.
Eins og áður segir gófu ÍR-
ingar leikinn á móti Þrótti í
þessum alduirsflokki, en það
eru Valur, Þróttur og Fram.
Mfl. kvenna.
Tveir leikir fóru fram í mfl.
kvenna og sigraði Valur þar
KR 16:8 og Ármann Breíðaiblik
7:6. Enn berjast Fram og Val-
ur uffl Islandsmeistaraítitilinn í
1. deild kvenna og sem stendur
eru þau jöfn að stigurn
fslandsmótið 2. deild:
jr
IR tryggir sér sigur
i Reykjavíkurriiii
Valur og Fram enn jöfn í m.fl. kvenna
Úr þessu fær ekkert komið
í veg fyrir sigur IR í Reykja-
víkurriðli Islandsmótsins í
handknatleik í 2. deild. Eftlr
sigurinn yfir Ármanni s.l.
sunnudag hafa iR-ingar orðið
6 stiga forustu og eru öruggir
um úrslitasætið gegn KA frá
Akureyri.
bezta mianni vísað af leikvelli
og á síðustu mínútunum tókst
ÍR-inigum að trygigja sér sigur-
inn 24:23.
Annar leikur fór einnig
fram s.l. sunnudaig, þá mætts"jt
Þróttur og Breiðaiblik. Þróttur
sigraði 21:17 eftir að hafa haft
yfir í leikhiléi 14:10. S.dór.
Sigur ÍR-inga yfir Ánmenn-'®’’
ingurn var þó aillls ekki jafn
auðveldur og búizt var við.
Sannasit sagna hékk hann á
bláþræði allt fram á síðustu
sekúndu leiksins. I leik'hléi
höfðu ÍR-ingar náð 4ra mairka
forustu, 15:11, og var það
mesti munuirinn í lei'knum. Ár-
menninigiuim tókst að jafna upp-
úr miðjum síðari hálfleik, 17:17,
en iR-ingar náðu forustunni
18:17 og aftur fengu Ármenn-
ingar tækifæri á að jafna þeg-
ar dæmt var vítafcast á IR, en
því miður fyrir Árrnann, mis-
tókst þeim vítið. En sagan var
ekki þar með öll, því að Ár-
menninguim tókst að jafna
20:20, en þá var einurn þeirra
Vetrarmót KRR:
Fram og Víkingur unnu
Vetrarmóti KRR var fram
haldið síðastliðinn sunnudag á
Melavellinum og mættust í
fyrri leiknum Fram og Þrótt-
ur, en í þeim síðari Víkingur
og Ármann.
Fram gekk heldur iiia í upp-
hafi leiksins gegn Þrótti, þivi
að þegar fyrri hálfleikur var
um það bil háifnaður höfðti
Þróttarar skorað 2 mörk, en
Fnam ekfcert- Síðan skeði það,
að baikvörður Þróttar skoraði
sjálfsimark og rétt fyrir léik- ^
lúé tókst Fram að jafna 2.2.
1 síðari hálEeik réðu Fram-
arar lögum og lofum í leiknum
og unnu verðslculdað 4:2.
Vfkingur og Ármann áttust
við í síðari leiknum. Lengi vel
leit út sem ledfcnuim ætlaði að
lykta með jafntefli, því að-eftir
jafnan fyrri hálfleik var stað-
an jöfn 0:0. Sama þráteflið átti
sér stað í síðari háMleikmlm,
þar til Kára Kaiaber tókst að
komast innfyrir vörn Ármenn-
inga, en rétt áður en hann
hugðist skjóta á markið va-r
hann truflaður af einum vam-
armanni Ármanns. Kára tókst
að gefa boltann til Eiríks Þor-
steinssonar miðherja Vikimigs,
sem skoraði viðstöðulaust. Þar
með hafa Framarar tekið for-
ustu í mótinu með 5 stig,
- Víkimgur og Þróttur hafa 4 stig,
Válur hefur 3 stig KR 2 en
Ármann fiefur ekfcert stig hlot-
ið. S.dór.
Holland v. Noreg
í handknattleik
ROTTERDAM 23/2 — Norska
landsliðið í handknattleik beið
i dag ósigur fyrir hollenzka lið-
inu í leik í Rotterdam með 11
mörkum gegn 12.
Stúdentastyrkur
tii A-Evrópu
OSLÓ 23/2 — Meðal fjárveit-
inga sem ákveðnar voru á fundi
menningarmálanefndar Norður-
landiaráðs í Osló í dag var 6.200
danskra króna fjárveiting til að
styrkja færeyskan og íslenzkan
stúdent til þátttoku í ferðalagi
stúdentanefndair af Norðurlönd-
um til Ungverjalands og Júgó-
slavíu þar sem nefndin mun
kynna sér stúdentasamtök og
æðri menntastofnanir.
Þrír sækja um
ferstöðumanns-
embættið
I gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandj frétt frá menntamála-
ráðuneytinu:
Umsóknarfresti um stöðu for-
stöðumanns Handritastofnunar
ísiands lauk 20. þ.m. Umsækj-
endur eru: Jónas Kristjánsson,
cand. mag., Ölafur Halldórsson,
cand. mag. og Stefán Karlsson,
mag. art., allir sérfræðingar við
Handritastofnunina.
Undir-
stöðuatriði
Oft hefur verið á það bent
hér í blaðinu að mlkið skortir
á að fréttastofa sjónvaxpsins
hafi sjálfstæð tök á frásögn-
um sínum af alþjóðlegum at-
burðum. Fréttastofan er ákaf-
lega háð erlenöum aðilum,
einkanlega brezkum og bandta-
rískum (þar á meðal upplýs-
ingaþjónustu bandaríska
sendlráðsins í Reykjavík),
bæði að því er varðar mynda-
efni og texta með myndunum.
Það var til að mynda átakan-
legt að þegar sjónvarpið birti
yfirlit um erlenda atburði
ársins 1969 um siðusitu ára-
mót voru þeir ekki séðir af
íslenzkum sjónairhóli, heldur
bandarískum, líkt og við vær-
um útkjálkasveit í hdnu vest-
urhieimskia stórveldi. Þetta ó-
sjálfstæði leiðir oft til þess
að fréttir um erlenda atburði
bafa mjög ómengaðan áróð-
urssvip. I frásögnum um
borgarastyrjöldina í Nígeríu
varð ísienzka sjónvarpjð til
að mynda mjög einhliða á-
róðursstofnun fyrir valda-
menn í Biafra, likt og l>eir
einir ættu við skelfingar að
stríða í hinni grimmilegu
styrjöld og hefðu frambæri-
legan málstað. Sama máli
gegnir um fréttir útvarpsins
af átökum Araba og Israels-
manna; þær gætu naumiast
verið hliðhollairi ísraels-
monnum þótt þær væru
samdar af áróðursisitofnunum
þeirra — ,og ef til vill eru
þær það. Svipuðu máli gegn-
ir oft um frásagnir af sfyrj-
öldinni í Suðaustur-Asíu. Að
undanförnu hefur sjónvarpið
(og raUnar hljóðvarpið einn-
ig) margsinnis greint frá þvi
að „hersveitir Norður-Víet-
nams“ hafi tekið Krukku-
sléttu f Laos með miklu á-
hlaupi. I Laos hefur sem
kunnugt er verið borgara-
styrjöld um langt skeið, og
það er þjóðfrelsishreyfing La-
os-manna, Pathet Lao sem nú
hefur Kruikkusléttu á sínu
valdi. Vafalaust hefur Path-
et Lao ágætt samband við
Norður-Víetnama og nýtur
aufcinnar aðstoðar frá þeim
í svipuðum mæli og Banda-
ríkjamenn magna íhlutun
sína í Laos, en það breytir
engu um þá staðreynd að
þjóðfrelsishreyfing Laos-
manna ber hita og þunga bar-
áttunnar. Kenningin um það
að í Laos séu ..hersveitir
Norður-Víetnams“ að verki er
afar gagnsæ áróðursréttlæt-
ing fyrir bandarískri ínnrás:
styrjöld Bandaríkjiamanna í
Suður-Víetnam hefur jafnan
verið rökstudd með svipuðum
áróðri. En það á ekki að
vera verkefni íslenzka sjón-
varpsins (né heldur hljóð-
varpsins) að bergmála áróð-
ur bandarískra hernaðarsinna.
í fréttamyndum frá Laos
hefur sjónvarþið raunar sýnt
hvemig fólk hefur verið flutt
burt frá Krukfcusléttu með
bandarískum flutningavélum
og í því sambandi hefur verið
talað um „flótta“ og „björg-
unarstarfsemi“; ekkj hefur þó
þurft sérstaklega glögg-
skyggnan áhorfanda til þess
að gera sár grein fyrir því að
þar hefur a.m.k. að nokkru
leyti verið um viðurstyggileiga
nauðungarflutninga að ræða;
fólk var með harðri hendi
rekið upp í flugvélamar.
Þeir fréttamenn sjónvarps-
jns sem fjalla um erlenda at-
burði geta vafalaust fært rok
fyrír því að aðstaða þeirra sé
érfið; þeír séu of liðfáir til
þess að taikia upp sjálfstæð
vínnubrögð og fréttasambön d-
in allt of takmörkuð UI þess
að hœgt sé að fá nægilegt
yfirlit, veljia ög bafna. En þá
þarf að bæta úr þessu é-
standi, ráða fleira fólk og
tryggja víðtækari frétta-
tengsl. Það er undirsföðuiat-
riði í sfarfsemi sjónvarpsins
að erlendar fréttir séu al-
hliða og málefnalegar, svo að
almenningur geti myndað
sér sjálfstæðar skoðanir en
sé ekki látinn sæta áróðri og
heilaþvotti. — Austri.
W
Félag
jámiðnaðarmanna
ADALFUNDUR
verður haldinn lauigardaginn 28. febrúar 1970 kl. 14,00
í Iðnó niðri.
DAGSKRÁ;
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um kjör heiðursfélaga.
3. Reglugerðir styrktarsjóða.
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvislega.
Ath.: Reikningar félagsins liggja frámmi í skrifstöf-
unni fimmtud. 26. febr. og föstud. 27. febr. kl. 4 til 7.
Tekið verður á móti dvalarpöntunum í
Orlofshúsum félagsins í Ölfusborgum
fná 1. marz n.k.
Stjóm Félags jámiðnaðarmanna.
Augiýsing
um útboi
Alþýðusamband Austurlands óskar hérméð éftir
tilboðum í að byggja 7 sumarhús í landi Einars-
staða í Eyjólfssitaðaskógi á Völlum.
Utboðs- og vinnulýsingar ásamt tilheyrandi teikn-
ingum verða afhentar gegn 2000,00 kr. skilatrygg-
ingu á skirifstofu sambandsins, Egilsbraut 1, -Nes-
kaupstað, og hjá Þorvaldi Kristmundssyni, arki-
tekt„ Skipholti 35, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu Alþýðusam-
bands Austurlands miðvikud. 18. marz n.k. kl. 17
og ber að skila þeim þangað fyrir þann tíma.
Neskaupstað 25, febr. 1970.
Alþýðusamband Austurlands.
AÐVÖRUN
um stöðvun atvinnurekstrar vegna van-
skila á söluskatti.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heipn-
ild í lö'gum nr. 10. 22. marz 1960, verður atvinnu-
rekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem
enn skulda söluskatt 4. ársfjórðungs 1969 svo og
sölus'katt fynri ára, stöðvaður, þáæ til þau hafa
gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem
vilja komast hjá stöðvun. verða að gera full skil
nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn j Reykjavík,
24. febrúar 1970.
SIGURJÓN SIGURÐSSON.
Kefíavik — Suðurnes
Klæðum og gerum við bólstruð húsgögn,
einnig bílsæti og bátadýnur. Fljót og vönd-
uð vinna. — Úrval af áklæðum og öðrum
efnum.
Kynnið yður verð á húsgögnum frá okkur.
BÓLSTURGERÐ SUÐURNESJA,
Sóltúni 4 - Sími 1484 - Keflavík.