Þjóðviljinn - 03.04.1970, Síða 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVIÍtiJINiN — Fösiudaiguir 3. ajœíl 1970.
—- málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsls —
Útgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: EiSur Bergmann.
Ritstjórar: ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson.
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fuiltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Ólafur iónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: SkólavðrðusL 19. Siml 17500
(5 línur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Eining
gorgarstjórnarkosningamar í Reykjavík verða
mjög afdrifaríkar. Auðvitað skiptir það mjög
miklu máli hvernig sjálfum borgarmálunuim er
stjómað, að þar komi markviss félagsleg stefna
í stað stuðnings við gróðahyggju og brask. En hér
koma mörg fleiri atriði til. Yfirráð íhaldsins yfir
Reykjavík eru homsteinn undir gervöllu valda-
kerfi Sjálfstæðisflokksins, Qg þvi hljóta lands-
málin og afstaðan til núverandi ríkisstjórnar
að móta kosningabaráttuna að verulegu leyti.
Völdin í Reykjvík eru svo mikilvæg, að ef stjóm-
arflokkamir fá nú þann skell sem þeir verðskulda,
mun ríkisstjómin ekki standast stundinni leng-
ur; slík málalok myndu breyta sjálfri stjórnmóla-
þróuninni á íslandi. Þeir menn sem telja að nú-
verandi ríkisstjóm fylgi rangri og háskalegri
stefnu og sé þar að auki orðin duglaus og þreytt,
hafa í borgarstjómarkosningunum tækifæri til
þess að binda endi á feril hennar og blása nýju
lífi í stjómmálaþróunina á íslandi.
Af öllum þessum ástæðum hefði það verið mjög
árangursrík baráttuaðferð ef vinstrimenn og
launamenn í Reykjavík hefðu komið sér saman
um eitt sameiginlegt framboð, til dæmis fyrir til-
stilli verklýðsfélaganna, og háð þessa örlagaríku
baráttu af þeim þrótti sem eining getur tryggt. Al-
þýðubandalagið kannaði gaumgæfilega hver tök
væru á slíkri samvinnu, en því miður reyndist
hún ekki framkvæmanleg, m.a. vegna þess hve
mikil pólitísk sundrung er innan verklýðsfélag-
anna í Reykjavík. Engu að síður er hugmyndin
rétt', og vinstrimenn þurfa að hafa hana að leiðar-
Ijósi í öllum athöfnum sínum. í því sambandi er
vert að minna á að Alþýðubandalagið var einmitt
stofnað í þeim tilgangi að tryggja einingu launa-
manna í baráttu við atvinnurekendur og aftur-
haldsöfl; það var Alþýðusamband íslands sem átti
hugmyndina að stofnun Alþýðubandalagsins og
Alþýðubandalagið hefur alltaf haft náið samband
við samtök launafólks í öllum störfum sínum.
Starfsemi Alþýðubandalagsins hefur miðast við
það að þar væri svo hátt til lofts og vítt til veggja,
að allir einlægir vinstrimenn gætu tekið þátf í
stafi samtakanna, þótt þá greindi á um ýms mál,
enda hefur Alþýðubandalagið, þegar á hefur reynt,
verið eini málsvari launafólks í sveitarstjómum
og á alþingi.
gf menn fylgja hugmyndinni um einingu alþýð-
unnar í baráttunni fyrir bættum kjörum og
aukinni félagslegri stefnu í stjórnmálum verður
henni aðeins hrundið fram með því að efla Al-
þýðubandalagið. Það stoðar ekki að kjósa flokka
sem telja sig vinstrisinnaða í orði en bregðast ein-
att í verki þegar á reynir. Þaðan af síður stoðar að
elta lukkuriddara og ævintýramenn sem geta
fengið því einu áorkað í verki að eyðileggja at-
kvæði í þágu íhaldsins. — m.
Sjómenn óska aiildar að
Lífeyrissjóði Vestf jaria"
Sunnudaginn 22. marz s.l.
efndi stjórn Alþýðusambands
Vestfjarða til ráðstefnu á Isa-
firði til stofnunar lífeyrissjóðs
á vegum aðildarfélaga sam-
bandsins og kjósa honum bráða-
birgðastjóm, eins og ráð er fyrir
gert í fyrirmj'nd að reglugerð
fyrir iífeyrissjóði stéttarfélag-
anna, en reglugerðartiliaga þessi
er nýiega komin frá nefnd AI-
þýðusambands Islands og
Vinnuveitendasambands Isiands,
sem samkvæmt samningunum
frá 19. maá 1969 hafði þetta
verkefni á höndum.
Aðildarfélög A.S.V. eru 15 og
hafa 9 þeirra ákveðið aðild að
sameiginlegum lifeyrissjóði.
Verkalýðsfélögin í Barða-
strandasýslu, Strandasýslu og
Bolungarvík hafa enn ekki tek-
ið ákvörðun um aðild að þéssum
sjóði eða öðrum, en vonandi
verður ekki langt að bíða af-
sitöðu þeirra.
Á fundinum á Isaifirði komu
fram eindregnar óskir um að
sjómenn á félagssvæðinu verði
aðilár að „Lífeyrissjóði Vest-
fjarða” (Tillaga um það nafn á
sjóðinn kom fram á fundinum).
Skipstjóra og stýrimannafélagið
Bylgjan, en félagssvæði þess er
Vestfirðir allir, svo og smærri
hópar iðnaðarmanna hafa sýnt
Herfileg mismun-
un í lánveitingum
Fiskveiðasjóðs
Lúðvík Jósepsson og Bjöm
Pálsson átöldu í fyrrad. á Alþingi
að lántalkendum hjá Fiskveiða-
sjóði á undanfömum árum hefði
verið herfilega mismunað á þann
hátt, að filestir hefðu fengið lán
með gengisákvæðum en , aðrir
hefðu sloppið við þau ákvaeði.
Lúðvík taldi það sérstakiega ein-
kennilegt, eÆ bankastjórar hefðu
tailið einkum ára til þess aðvedta
mönnum lán án gengisákvæða
snemma árs 1967, og þá einung-
is vissum aðilum.
Sjávarútvegsmállaráðherra,. Bgg-
ert G. Þorsteinsson svaraði fyr-
irspum firá Bimi < Pálssyni um
gengistryggingu iána í fyrir-
spumartíma sameinaðs þimgs. —
Mæltist Lúðvik til þess að öllum
alþingismönnum yrði send skýrsfa
ráðherrans um þetta mál, oglof-
aði Eggert því.
áhuga á að gerast aðilar að
sjóðnum, en til þess þarf að
gera smávægilegar breytingar á
reglugerð.
Eundurinn kaus tvo menn í
bráðabirgðastjóm af hálfu stétt-
arfélaganna, þá Björgvin Sig-
hvatssson og Pétur Sigurðsson
ísafirði, til vara Guðmund Frið-
geir Magnússon Þingeyri og
Eyjólf Bjamason Suðureyri.
Samþykkt var að beina þvi til
stéttarfélaganna sem að sjóðn-
um standa, að kjósa nú þegar
menn í fuUtrúaráð samkvæmt
ákvæðum reglugerðarinnar.
Fulltrúaráðið er æðsti stjómun-
ar-aðili ' sjóðsins ,og verður
fyrsta verkefni þess að ræða og
ganga frá reglugerð til endan-
< legrar samþykktar.
Einhugur ríkti um, að þetta
stórmál atvinnustéttanna megi
fara sem bezt úr hendi, almennt
álit fundarmanna var að grund-
völlur lífeyrissjóðsims verði bezt
tryggður með samstöðu sem
flestra og helzt allra aðildarfé-
laga A.S.V:
(Frá A.S.V.)
Styrkur til nema
úr strjálbýli-nu
Gyifi Þ. Gíslason menntamála-
ráðherra svaraði fyrirspum á
Alþingi í fyrrad. u mfyrirætil. rík-
isstjórnarinnar varðandi lOmilj-
ónir króna sem veittar voru á
fjárlögum til að jafna aðstöðu-
mun skólaneima í strjálbýlinu til
framhaHdsskólanáms.
Svaraöi ráðherrann þvi, að
upphæðinni yrði varið þannig að
nemendum í framlhaldsskólum
sem fjarri væru heimilum sín-
um og ekki hefðu fengið heima-
vist yrði veittur mánaðarlegur
styrkur, tvö hundruð nemendium
í gaignfræðaskólum 850 kr. á
mánuði í sjö mánuði, og 1050
nemenduim í menntaskólum,
kennaraskóa, tækniskódum o. fll.
1000 kr. í átta mánuði. 1 und-
irbúningi væri löggjöif um þetta
miál.
VIPPU - BÍtSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
- 210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smíðaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MiÐJAN
Síð'úmúja 12 - Sími 38220
úr og skartgripir
.. KDRNBfUS
JÚNSSON
skólavördustig 8
Skólastjórar og yfirkenn-
arar á fræðsíumóti í sumar
Þríðja fræðslu- og kynn-
ingarmót Skólastjórafélags Is-
lands, fyrir skólastjóra og yfir-
kennara í skólum skyldunáms-
stigsins, verð.ur haldið að Laug-
um í S-Þing„ dagana 19.-25. júní
í sumar.
Á þinginu verða fluttir fyrir-
lestrar og erindi um mörg helztu
mál, sem efst eru í hugum
skólamanna í dag. Inngangser-
indi mótsins flytur próf. Matt-
hías Jónasson; Nemandinn í
skóiakerfinu. Þá verða flutt er-
indi um starfsaðstæður og
starfshætti skólastjóra, skýrslu-
og áætlanagerð í skólum, mála-
kennslu í barnaskólum, skóla-
mál dreifbýlisins, endurmennt-
un kennara, bókasöfn og Ies-
stofur í skólum, skólasjónvarp,
eðiisfræðikennslu og sálfræði-
þjónustu.
Þá munu menntamálaráðherra
og skólastjóri kennaraskólans
sitja fyrír svörum um þau mál,
sem eru í brennidepli meðal
skólamanna í dag, ný lagafrum-
vörp, ný fræðsMög og reglu-
gerðir, nýjungar í skóiarrtálum,
Kennairasikólann og kennara-
menntunina
Margir kunnir skólamenn og
ræðumenn flytja fyrirlestra,
erindi og ræður á mótinu, og
eru meðal þeirra: Próf. Matthías
Jónasson, dr. Broddi Jóhannes-
son, dr. Gylfi Þ. Gíslason,
Benedikt Gunnarsson verkfræð-
ingur, Sigurður Þorkelsson full-
trúi, Hörður Bergmann dönsku-
kennari, Heimir Áskelsson
enskukennarí, Valgarður Har-
aldsson námsstjóri, Jóhann
Skaptason sýslumaður, Stefán
Ólafur Jónsson námsstjóri,<5>
Stefán Júlíusson bókafulltrúi,
Benedikt Gröndal alþm. for-
sitöðumaður fræðslumyndasafns
ríkisins og öm Helgason eðlis-
fræðingur. Auk þessara fyrirles-
, ara taka margir skólastjórar
meðal þátttakenda virkan þátt í
störfium þingslns.
Hinn 21. júní hlýða mótsgestir
á messu í Skútustaðakirkju, en
eftir messu þiggja mótsgestir
hádegisverðarþoð stjórnar kísil-
gúrverksmiðjunnar við Mývatn.
Síðar um daginn verður verk-
smiðjan skoðuð
Þriðjudaginn 23. júní verður
farið til Húsavíkur, mannvirki
sknðuð og síðdegiskaffi drukkið
í þoði þæjarstjómar Húsavíkur,
Þátttakendur munu gera sér
ýmislegt til gamans og skemmt-
unar meðan á mótinu stendur.
M.a. verður Þingcyingavaka og
flytur Jóhann Skaptason sýslu-
maður aðalræðu kvöldsins,
Jakobína Sigurðardóttir skáld-
kona les upp, Karlakór Reyk-
dæla syngur, þá verður píanó-
leikur og fjöldasönigur. Þá koma
fram hinir landskunnu hagyrð-
ingar þeirra Þingeyinga: Egill
Jónasson, Baldur Baldvinsson,
Páll H. Jónsson o.fl.
Lokahóf mótsins hefst með
kvöldverðarboði menntamála-
ráðherra dr. Gylfa Þ.: Gíslasonar
og flytur hann ávarp, en aðal-
ræðu kvöldsins flytut'dr. Broddi
Jóhannesson skólastjóri. Þá
verður einnig hiljóðfæraleikur,
upplestur, einsönigur, gamanvís-
ur, fjöldasöngur og dans.
Skóiastjórafélag Islands
10 ára
S.í. verður 10 ára 12. júni í
sumar ,og verður afmælisins
minnzt á mótinu á kvöldvöku
laugardaginn 20. júní
Undanfarin tíu ár hefur fé-
lagið unnið að fræðslu- og
kynningu meðal félagsmanna.
Það er og hagsmunafélaig skóla-
stjóra oig yfirkennara, en féilag-
ar, sem eru um 140 talsins víðs
veigar um iamd, eru aðafllega
skólasitjórar barna-og unglinga-
skóla, skyldunámsstigsins, en
samkvæmt lögum félagsins geta
skólastjórar annarra skóla einn-
ig verið félagar, ef þeir vilja, og
mót félagsins eru öllum skóla-
stjórum opin meðan húsrúm
leyfir.
S.í. hefiur staðið fyrir þrem
fræðslu- og kynningarmótum,
að Laugum S.-Þing. 1963, að
Laugavatni 1966 og að Laugum
nú í sumar 1970. Félagið hefur
tekið upp samvinnu við sænsk
og norsk skóla- og kennarasam-
tök pg efndi til fyrsta námskeiðs
isl. skólastjóra í Svíþjóð í sam-
vinnu við akadamíuna og lýð-
háskólann í Kungálv vorið 1969.
Þá retour félagið smnarbúðir
fyrir félagsmenn og fjölskyldur
þeirra við Þingvallavatn og að
Laugum f S-Þing. Félagið gefur
út Skólastjórann, fjölritað til-
kynningablað, en hann kemur
úf prentaður í tilefni imþtsinsnaAi
Laugum og 10 ára afmæli fé-
lagsins.
öllum félagsmönnum, skóla-
stjórum, yfirkennurum, náms-’~
stjórum og mötoum þeirra er
heimil þátttaka í Laugamótinu,
svo og öðrurn skólastjórum,
meðan húsrúm leyfir. Þátttöku-
eyðublöð hafa verið send öllum
félagsmönnum. Aðrir geta feng-
ið þau hjá formanni. Þátttöku
þarf að tilkynna sem fyrst og
skriiflega og senda til S.l. póst-
hólf 2, Hafnarfirði.
Alls hafa um 80 manns boð-
að komu sína til Lauga.
Kennurum og öðru áhugafólki
á svæðinu umhverfis Laugar er
heimilt að hlýða á einstök er-
indi, sem flutt verða é mótinu.
Stjóm Skólastjórafélags Is-
lands skipa: Hans Jörgensen R-
vik, form., Vilbergur Júlíusson,
Garðahreppi, ritari, Páll Guð-
mundsson Seltjarnamesi gjald-
keri og meðstjómendur Gunnar
Guðmundsson og Óli Kr. Jóns-
son Kópavogi.
ÚTB0Ð
Landsvirkjun heur ákveðið að bjóða út
eftirgreind tvö verk við Þórisvatnsmiðlun:
1. Vatnsfellsveita: Skurðgröftur um ein
miljón rúmmetnar, er ljúka skal á þessu
ári.
2. Stíflugerð við Þórisós um 600 þús. rúm-
metrar, er ljúka skal á næsta ári.
Útboðsgögn fyrir hvort verk verða afhent
á skrifstofu Landsvirkjunar, Suðurlands-
braut 14, Reykjavík, frá og með föstudeg-
inum 3. apríl n.k.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu Landsvirkj-
unar þriðjudaginn 5. maí n.k., kl. 14,00
Reykjavík, 23. marz 1970
LANDSVIRKJUN.