Þjóðviljinn - 07.04.1970, Side 4

Þjóðviljinn - 07.04.1970, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 7. april 1970. ■F — málgagn Qtgefandl: Framkv.stióri: Ritstjórar: sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Otgáfufélag PjóSviljans. Eiður Bergmann. Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson. Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson. Auglýsingastj.: Oiafur lónsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmlðja: Skólavörðust 19. Simi 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuðí. — Lausasöluverð kr. 10.00. Verkin þeirra og yfirklóriB J>að tíðkast mjög þegar kosningar nálgast að valdamenn þjóðfélagsins efna til íburðarmikils veizlufagnaðar og er þá oft einhver ráðherra eða efnahagssérvitringur ríkisstjórnarinnar látinn halda ræðu um blessun stjómarfarsins og sífelldar framfarir í atvinnuvegum. Enn mun í minni hversu vel allt horfði í veizluræðum, vandlega birtum í fjölmiðlum þjóðarinnar, fyrir alþingis- kosningar 1967. Og allir muna sennilega enn hvemig fór rétt eftir þær kosningar. Nú er enn tekið að halda svipaðar ræður, og menn mega eiga von á því að allt verði á uppleið og ýmsar heldur vinsælar ráðstafanir gerðar af stjómar- völdum fram á sumar 1971, vegna nálægðar kosn- inga. Þ-að er rétt minnzt á það í framhjáhlaupi að raunar hafi ríkisstjórnin og flokkar hennar gert ýmsar „harðneskjulegar“ ráðstafanir á undanförn- uim ámm, en farið fljótt yfir sögu og vonazt til að öllu slíku sé gleymt. yarla má þó ætlast til að alþýðufólk á íslandi gleymi öllum þeim „harðneskjulegu“ vélgjorð- um samstjórnar Alþýðuflokksins og Sjálfstæð- irflokksins, né þakki sérstaklega. fyrir núverandi ástand með atvinnuleysi landlægt, þúsundir ananna flúnir úr landi, sumir alfamir til Ástralíu, aðrir til lengri eða skemmri vinnuleitar í nálæg- ari löndum; dýrtíðina æðandi og rænandi launum alþýðumanna og tryggingabótum aldraðs fólks og öryrkja, mæðra og bama. Samtímis því að Alþýðu- flokksmaður kemur í ræðustól á Alþingi og ját- ar að kaupmáttur tryggingabóta hafi minnkað frá 1967 um rúm 16%, samþykkir bæði hann og aðrir þingmenn og ráðherrar Alþýðuflokksins og Sjálf- stæðisflokksins að skamimta skuli öldmðum og öryrkjum 5,2% hækkun á tryggingabætur þeirra. ^nægjuhljóðið í ráðhermm og e'fnahagssérvitr- ingum þeirra er ekki sízt vegna þess að tekizt hefur að nota ríkisvaldið í sívaxandi mæli til þess að rýra raunvemleg kjör launþega og alþýðufólks á íslandi, lækka kaupmát’t þess kaups sem verka- lýðsfélögin hafa náð í kjarabaráttunni; að níðast á bótaþegum trygginganna. Það er verið að hæl- ast um afrek í stjórnarstörfum eins og það, að þingmenn og ráðherrar Alþýðuflokksins og Sjálf- stæðisflokksins sameinuðust um að misnota vald Alþingis til að stela 400 miljónum króna af sjó- mönnum á einu ári 1969, með því að samþykkja að skerða aflahlut sjómanna og afhenda útgerðar- mönnum þessar fjögurhundruð miljónir. Þannig launar Alþýðuflokkurinn sjómönnum sem hann þykist bera svo mjög fyrir brjósti þegar kosning- ar em rétt framundan. Og þannig notar Sjálfstæð- isflokkurinn vald sitt á Alþingi og 1 'ríkisstjórn, meirihlutavald auðvalds og braskara, af náð Al- þýðuflokksins. — s. þeas faer hver byrjandi t kennslutíma á golfvelli í sumar og annast Þorvaldur þá kennslu einnig. Jafnframt mun hann kynna golfreglur og golfsiði, sem telst mjög býðingarmikið að kunna Golfkennslan innanihúss fer fram í Suðurveri við Stigahlíð og geta beir sem óhúga hafa, haft samband beint við kennar- ann í síma 8-14-62 eftir hádegi. eða „Golfklúbb Reykjavíkur í síma 8-47-35. Eins ög kunngert hefur verið. verður haldin í sumar sérstök íþróttavika, sem Iþróttasamband Islands gengst fyrir. Dagana 5 til 11. júlí verður tekið á mótí þeim er vilja kynnast golfi. bæði á Laugardalsvellinum oP. eins á golfVellinum við Graif- arholt. Félagar úr „Golfiklúbb Reykiavíkur" munu verða þar til leiðbeiningar. Hugsanlegt er. að nokkrir erlendir afreksmenn í golfi komi til landsins í til- efni íþrót.tavikunnar og munu þeir, ef af þessu verður. keppa við beztu kylfinga landisins. Meistaramót íslands f golfi. I verður að þessu sinni háð á Hvaleyrarvelli við Haflnarfjörð og Hólmsvelli í Leiru, en það eru hvorttveggja ágætir vellir, Akureyringar eru um þessar mundir með nýjan gólfvell í lagningu, en talið var að hann yrði ekki að fullu tilbúinn fyr- ir íslandsmótið í sumar. Þorvaldur Ásgeirsson fylgist með og gefur góð ráð. Fyrsti íslenzki atvinnugolf leikarinn kennir hjá G. R. Á Reykjavíkursvæðinu eru nú þrír golfklúbbar og jafnmargir golfvöllur „Golfklúbbs Reykja- víkur“ í Grafarholti, 18 holu völlur, sem raunar er enn í byggingu. Áhugi á golfi virðist fara Judó-sambsnd stofnað í haust Framkvæmdastjóm ISÍ hefur ákveöið að beita sér fyrirstofn- uin sérsambands um judo á hausti komandi. Þessi ákvörðun er tekin með hiliðsjón aif vax- andi áhuga fyrir þessari íþrótt í landinu. Hefur framkvæmda- stjóm skrifað héraðssamþönd- um ISÍ og tilkynnt þeim þessa ákvöröun sína, svo og að þau er viidu verða stofnaðilar að fyrirhuguðu sérsambandi um judo tilkynni aðild sína eigi síðar en 1. júní n.k. I Lokastaða í NM I ■ ■ I : ■ Lokastaðan í Norður- ■ landameistaramóti ung- ■ linga í handknattleik varð : sem hér segir: • Islands 4 4 0 0 60:48 8 ■ Svíþjóð 4 3 0 1 51:41 6 j Finnland 4 1 0 3 47:46 2 j Noregur 4 1 0 3 42:46 2 j Danmörk 4 1 0 3 46:65 2 : stórum vaxandi hjá fólki á öll- um aldri og hafa aldrei jafn- margir verið að byrja í golfi og einmitt nú. Frá áramótum hafa 53 nýir félagar gengið í „Golfklúbb Reykjavfkur" og annar jafn stór hópur heifur hlotið nokkra kennslu og mun megnið af bví fólki ganga í „G.R“ eða aðra klúbba á svæðinp. Þegar aðstreymi nýliða var orðið með þessum hætti, varð ljós þörfin á golfkenhara. Vilji menn ná einhverjum tökum á golfíþróttinni, er nauðsyniegt að læra undirstöðuatriðin rétt og jafnvel þrautþjálfaðir kylfingar bregða sér til kennara öðru hvoru til að láta hann komast fyrir rætumar á ýmis konar skekkjum. Með tímanum getur girip og staða breyzt án þess að menn taki sjálfir eftir því og þá kemur þar að, að þeir hætta að geta skotið beint eða missa með ðörum hætti tök- in á leíknum. Allt slíkt á glögg- ur kennari að geta lagfært. Af þesspm ástæðum er nauð- syn, að hver gólfklúbbur hafi ráð á kennara og stundum hafa verið fengnir hingað erlendir atvinnumenn til leiðbeininga. En ekki sízt vegna íjölda nýrra félaga var þetta orðin nauðsyn hjá „Golfklúbb Reykjavíkur" og því var það, að ráðinn var Þor- valdur Ásgeirsson fyrrum Is- landsmeistari í golfi og fyrsti atvinnumaðurihn í þessari í- þrótt. Hann hefur nú starfaðhjá „GR“ síðan í ágúst s.l„ og hef- ur tími hams verið mjög ásettur. Vegna breyttrar og bættrar aðstöðu, að þessu leyti, tók „Golfklúbbur Reykjavíkur“ þá ákvörðun að gefa öllum nýjum félögum 5 kennslustundir í golfi. Þar af eru 3 tímar innan- húss. Þar er nemandinn látinn slá í niet og honum kennd grundvallaratriði grips, stöðu, sveiflu og kylfunotkunar. Auk — (Frá G.R.) Getraunaúrslit LeiJcir 4- opríí 1970 1 X 2 Arscnal — Wcst Ham. 2 - / / Chclsca — Tottcnham / - ö / Covcntry — Stoko 0 - 3 2 Derby Wolvcs z - O / Ipswicli — Southampton 2 - 0 / Lccds — Burnlcy 2 - /- / Livcrpool — Crystal P. 'Ot r/ L P t Mancb, C. — Sundcrland 0 - / 2 Ncwcastlo — Man. Utd. s / / Sheffield Wcd. —- Evcrton, o / .11 W. Bromw. — Nott’m E. 4 - O / Blackbura — Huddcrsf. o - 2 2 Sængurfatnaður HVÍTTTR og MISLITUR LÖK KODDAVER GÆSADÚNSSÆNGUR /EÐARDÖNSSÆNGUR iðifi SKOLAVÖiœUSTlG 21 <S>- Frímerki — Frímerki Hefi úrval af notuðum og ónotuðum ís- lenzkum frímerkjum, útgáfudaga o.m.fl. Einnig erlend frímerki í úrvali. MATTHÍAS GUÐMUNDSS0N Grettisgötu 45. Málarafélag Reykjavíkur Aðalfundur félagsins verður haldinn að Fréy.iu- götu 27 þriðjud. 14 apríl lfl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Uppsögn samninga 3. Önnur mál. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.