Þjóðviljinn - 12.07.1970, Blaðsíða 6
0 SfÐA — ÞvTÖÐVXLJINN — Sunnuda.gur 12. júlí 1970.
Veitingaskdlinn
Ferstiklu
Sími 93-2111
Tognar úr Japönum:
MeSalhæðin hefur aukiit um
12 sentimetra á sL 15 árum
Bjóðum ferða’fólki ávallt þessa heitu rétti:
Hamborgara — Kjúklinga — Svínakótelettur
— Franskar kartöflur o. fl.
Höfum einnig á boðstólum:
Kaffi — ís — Mjólk — Tóbak og ýmsar
ferðavörur. — Ennfremur benzín og olíur.
Ferðafólk athugið: Leigjum út sal fyrir allt
að 100 til 150 manns, allar veitingar á
staðnum. — Vinsamlegast pantið tímanlega.
Veiðileyfi seld.
LEGGJUM ÁHERZLU Á FLJÓTA OG
GÓÐA AFGREIÐSLU.
FERSTIKLA
RÍKISÚTVARPIÐ
Skúlagö.tu 4 — Reykjavík.
Áuglýsingasímar:
22274 og 22275
Fréttir á ensku kl. 18.00 aila daga
Grillaðir kjúklingar, ásamt fjölda annarra heitra og kaldra rétta.
Smurt brauð og snittur og einnig hinar vinsælu nestissamlokur,
afgreiddar allan daginn.
KJÖRBARINN
Lækjargötu 8. — Sími 10340.
BÍLAVIÐTÆKI
^ LOFTNET
^ HÁTALARAR
DEYFIÞÉTTAR
ísett og frágengið
ALLT FYRSTA FLOKKS
Útvarps- og sjónvarpsverkstæðið
HLJ0MUR Skipholti 9
Sími 10278.
Til eru margar aðferðir til að
maela framfarir í tilteknu landi
— hlutfallsleg aukning brúttó-
þjóðarframleiðslu, fjölgun bíla,
talsíma og sjónvarpsviðtækja
á hverja 100.000 íbúa o. s. frv.
í aprílhefti málgagns Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
fWHO), „World Heaith“. sem
er helgað Japan, er fjallað um
læknisfræðilegar og félagslegar
framfarir í landinu, og koma
þar m.a. fram eftirtalin atriði:
Á 15 árum hefur meðalhæð
15 ára unglinga í Japan aukizt
um 12 sentímetra og meðal-
þungi um 9 kíló.
Japan er eina Asíulandið
sem hefur útrýmt sóttkvíunar-
sjúkdómum eins og t.d. drep-
sótt, taugaveiki og bólusótt.
Fjöldi mýraköldutilfella er
kominn niður í lágmark.
Ásókn berkla sem á árunum
eftir seinnj heimsstyrjöld ollu
mannsláti í Japan fjórðu hverja
mínútu, hefur minnkað að því
marki, að á þessu sviði stenzt
landið samjöfnuð við þróuðustu
lönd heims.
Dánartalan af völdum hjarta-
Flugstöð í Tanzaníu
Framkvæmdir eru hafnar við
byggingu nýrrar alþjóðlegrar
flugstöðvar í Sanya Juu i norð-
urhluta Tanzaníu. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdum vérði
að fullu lokið 1972.
sjúkdóma er meðal þeirra
lægstu í heiminum. Meðalald-
urinp er ,nú 69 ár fyrir karl-
menp og 74 ár fyrir konur, en
var 47 og 50 ár rétt fyrir seinni
heimsstyrjöldina. Hinn tak-
markaðj fjöldi hjartasjúkdóma
á sennilega rætur að rekja til
mataræðis í Japan, en þar er
undirstöðufæðan fiskur. hrís-
grjón og grænmeti.
Tíðni sjálfsmorða, sem var
mjög há á árunum 1953 til
1957, einkum meðal æskufólks,
minnkar óðfluga. Hin mikla
tíðni á fyrrnefndu tímabili er
skýrð með aðlögunarerfiðleik-
unum eftir styrjöldina, þegar
margir týndu trúnni á hin
gömlu lífsform.
J afnvel gróf ofbeldisafbrot
eru i rénun. Tala morða jókst
ört frá 1955, þegar hún var 861,
fram til 1955, þegar hún var
3.356, en síðan lækkaði hún
niður í 2.225 morð árið 1967,
sem er síðasta, árið sem öruggar
skýrslur eru til um enn sem
komið er.
En það eru ekki eintómir
ljósir fletir á myndinni af Jap-
> an samtíðarinnar. Magakrabbi
er nú algengastj sjúkdómurinn
og veldur dauða flestra Japana
á aldrinum 35—54 ára. Þetta
er skýrt á þann veg, að Japanir
salti mat sinn óhóflega. Japanir
eru sennilega mestu saltneyt-
endur í viðri veröld. Hin öra og
umfangsmikla þéttbýlisþróun
hefur haft í för með sér betri
lífskjör en einnig þrengsli,
streitu og stórfellda .aukningu
dauðaslysa i umferðinni.
Borgir Japans með' mengað
loff og gifurlega mannmergð
geta gefið mörgum löndum
hugmynd um, hvernig þeirra
eigin framtíð kynni :■ að verða.
Að lesa um Japan er eins og
að lesa dagblað morgundags-
ins, segir í „World Health".
(S.Þ.)
Verjum gróður,
verndum land
® Varúð á vegum er nauð-
synleg. Varúð utan vega er ekki
síður áríðandi. Spillum ekki
gróðri eða jarðvegi með öku-
tækjum okkar. Berum farang-
urinn heldur nokkrum metrum
lengra. Það er líka gott fyrir
heilsuna. Njótum landsins, en
níðum það ek:ki. Verjum gróð-
ur, verndum land.
© Þegar við njótum lífsins úti
í náttúrunni. þá gleymum því
ekki, að bömin okkar vildu
gjaman erfa þessi hlunnindi.
Skiljum náttúruna eftir eins
góða og þegar við tókum við
henni, og helzt betri. Það verð-
ur að vera nóg til handa börn-
unum. Verjum gróður, verndum
land.
LAXVEIÐILEYFI
í Mýrarkvísl og Reykjakvísl í Reykjahvérfi í
S-Þing., eru fáanleg frá 10. júlí til 10. sépt.
A
SILUNGSVEIÐILEYFI
i Kringluvatni, Kringlugérðisá Og Géitárfellsá
í Reykjahverfj í Suður-Þing. eru éinnig fáan-
leg á sama tíma.
DVALARAÐSTAÐA
er fyrir hendi fyrir veiðimenn og gesti þeirra
í félagsheimilinu í Réykjahverfi, sem er skamrnt
frá hverasvæðunum.
VEIÐILEYFl ERU FÁANLEG HJÁ:
Ferðaskrifstofu Akureyrar, Akureyri,
sími 1-14-75 á Akureyri.
Áma Þorbjörnssyni, lögfr. Sauðárkróki,
sími 5160 á Sauðárkróki.
Kristjáni öskarssyni, yfirvélstjóra
í Fiskiðjuverinu á Húsavík.
.Takóbi V. Hafsteín, lögfr. Reykjavík.
á mánudögum og föstudögum milli kl. 16.30
til 18.30. Símar: 2-56-55. 3-24-14 eða 1-13-25.
j'
I