Þjóðviljinn - 05.08.1970, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINK — Miðvikxidagur 5. ágúst 1070
- Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandl: Otgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiðu; Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Slgurður Guðmundsson
Fréttaritstjórl: Sigurður V. Frlðþjófsson
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Olafur Jónsson.
Ritstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500
(5 linur). — Askrlftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Morgunblaðið uppnæmt
J\|°rgunblaðið er óvenju uppnæmt undan'farna
daga vegna þess að Þjóðviljinn rifjaði upp að
gefnu tilefni nokkrar staðreyndir um tengsl mik-
ilsráðandi manna í Sjálfstæðisflokknum við naz-
istahreyfinguna í Þýzkalandi og innlendu nazista-
hreyfinguna, sem segja mátti að rynni inn í Sjálf-
stæðisflokkinn þegar ekki þótti hentugt lengur að
hafa sjálfstæða nazistahreyfingu hér á landi, og
minnti á að menn úr íslenzku nazistahreyfing-
unni eru enn hinir mestu áhrifamenn í Sjálfstæð-
isflokknum og hefur verið tyllt í há embætti í
þjóðfélaginu af þeim sa.n:a flokki. Minnt var einn-
ig á þann fábjánalega hátt sem Morgunblaðið hef-
ur iðkað allt frá rússnesku byltingunni að kalla
alltaf öðru hvoru stjórnmálaandstæðinga sína hér
á landi „kommúnista“, án alls tillits til þess hvort
hlutaðeigendur hefðu nokkurntíma komið nálægt
sósíalisma eða kommúnisma. Þessháttar áróðri,
sem var eitt aðalatriði þýzka nazistaáróðursins og
er enn í dag aðalatriði bandarísks auðvaldsáróðurs,
bregður Morgunblaðið óspart fyrir sig enn í dag,
hvort sem er um að ræða innlenda stjórnmálaand-
stæðinga eða þýðing á fréttaskeytum um bænda-
fólk í Kambódíu sem bandaríski herinn myrti, víst
án þess að hafa fyrir því að spyrja um stjórnmála-
skoðanir þess, (að minnsta kosti hafa meira að
segja bandarískir fréttamenn dregið í efa að
„kommúnisminn“ hafi verið búinn að gegnsýra
hvern mann ungan og gamlan í þorpum þeim sam
bandaríski herinn eyddi í morðárásum sínum inn
í þetta fátæka Asíuland). Þessar hugmyndir, að
halda eins og þýzkur nazisti og bandarískur áróð-
ursstjóri að hægt sé að afgreiða andstæðinga íhalds
og afturhalds innanlands og utan með því að kalla
þá „kommúnista" er of billegur og imbalegur á-
róður til þess að gangi í íslendinga, og þetta held-
ur áfram að setja vissan ómenningarsvip á Morg-
unblaðið, meðan það vex ekki upp úr þessum
dillum.
Jgins gegnir það furðu að jafn lífsreyhf blað og
Morgunblaðið skuli vera jafnviðkvaamt fyrir
því ef minnt er á fyrra nafn flokksins, íhaldsflokk-
ur, og taka að fjasa um nafnbreytingar annarra
flokka til að breiða yfir þau nafnaskipti. Þegar
stjómmálaflokkurinn, sem Morgunblaðið studdi og
stjómað var af sömu þjóðfélagsöflunum og nú ráða
Sjálfstæðisflokknum, tók sér nafnið íhaldsflokkur
var það gert af ráðnum hug, og vegna þess að flokk-
urinn átti þá um skamma hríð í forystu menn sem
ekki skömmuðust sín fyrir íhaldsnafnið né íhalds-
eðli flokksins. En 1929 þurfti fallegra nafn, hvern-
ig svo sem það æt’ti við flokkinn, og þá voru inn-
byrtar leifar lítils flokks sem hét Sjálfstæðisflokk-
ur og á einni nóttu ummyndaðist Thaldsflokkur
inn, sem bar nafn með rentu, í ..SiálMæðisflokk1'
í orði kveðnu. Síðan eru Morgunblaðinu nafnbre-'
ingar flokka viðkvæmt mál, og að vonum. — s.
Þegar misklíðarefni eru leyst
— farsællega og hávaðalaust
Brezka og íranska stjórnin
áttu nýlega hlut að sígildu
dæmi um lítt raett form frið-
arviðleitni innan Sameinuðu
þjóðanna, sem sé þegar þær
færðu sér í nyt „velviljaða lið-
semd“ U Þants framkvæmda-
stjóra.
Umræddar tvær ríkisstjómir
höfð’u um langt skeið verið á
öndverðum meiði um stöðu eyj-
arinnar Balrraín á Persaflóa.
I>essi misklíð var alvarlegur
tálmi allri viðleitni við að
skapa til frambúðar ró og ör-
yggi á svæðinu, og misheppnuð
tiiraun til að finna íriðsamlega
lausn á vandanum hef ði get- $>■
að haft mjöig alvarleg áhrif
á önnur alþjóðleg samskipti.
íran og Bretland höfðu fyrst
formlegt samband við fram-
kvæmdastjórann og hvöttu
hann síðan til að veita aðstoð
sína með því að senda persónu-
legan fulHtrúa sinn til Bahraín.
Verkefni fulltrúans var að
kanna óskir eyjarskeggja. Báð-
ar ríkisstjómir stigu það ó-
venjulega skref að lofa fyrir-
fram að fallast á úrskurð hans,
eftir að hann hefði verið yfir-
vegaður og samþykktur í Ör-
yggisráðinu.
Hinn 11. maí samþykkti Ör-
yggisráðið einróma úrskuæð
fulltrúans, sem var Vittorio
W. Guicciardi, þess efnis, „að
yfirgnæfandi meirihluti íbú-
anna á Bahraín æskir þess að
fá viðurkennda stöðu Babraíns
sem fullkomlega sjálfstæðs og
fullvaida ríkis, er hafi frelsi
til að taka ákvarðanir um sam-
bgnd sitt við önnur ríki“»
Það var í fyrsta skiþti, sem
verkefni af -■þessa * tagi ■ leiddi
til jákvæðrar niðurstöðu í
Öryggisráðinu. Fundur ráðsdns
var einnig óvenjulegur af ann-
arri ástæðu, sem sé þeirri að
viðburðurinn blés brezka
sendiherranum hjá Sameinuðu
þjóðunum, Caradon lávarði, í
brjóst þeirri snjöllu hugmynd
að ávarpa ráðið í bundnu máli.
Góðar fréttir eru engar
fréttir
Taka ber fram. að þetta
ágæta dæmi um siðmenni-
leg alþjóðasamskipti, sem
leystu Bahraín-deiluna, vakti
óendanlega miklu minni at-
hygli en hin síendurteknu
dæmj um ofbeldi og mannleg-
ar þjáningar sem eiga rætur
að rekja til þverúðarfullra og
hrottafenginna alþjóðlegra um-
gengnishátta. Með öðrum orð-
um: „Góðar fréttir eru engar
fréttir".
Og ekki ættu menn að van-
meta þá fyrirhöfn, sem lá að
baki hinni friðsamlegu lausn
á Persaflóa. Hún var árangur-
inn af nálega árlöngum látlitl-
um og erfiðum samningavið-
ræðum og samtölum milli
deiluaðila og framkvæmda-
stjórans og samverkiamanna
hans.
Hvattur til að bera
fram hótanir
Baíhraín-málið er ekki neitt
einangrað dæmi. „Velviljuð lið-
semd“ er verulegur hluti af
störfum framkvæmdastjórans
og samverkamanna hans. Hug-
takið „velviljuð liðsemd“ er
ekki notuð um verkefni sem
Allsherjarþingið eða Öryggis-
ráðið hafa með höndum, held-
ur einungís í tilvikum, þar
"em framkvæmdastjórinn hef-
•ir ekki neitt formlegt umboð
'-á einhverri af meginstofnun-
Sameinuðu þjóðanna.
Settar hafa verið upp nokkr-
ir almennar reglur um, hvenær .
beita slkiuld „veiviljaðri liðsemd.‘‘ ;
Verkefnið verður að vera i i
samræmi við grundvallarregl-
ur stofnskrár Sameinuðu þjóð-
anna. Fr amkvæmdastj órinn
verður einnig að vega og meta,
hvort íhlutun hans sé líkleg til
að stuðla að lausn, eða hvort
hún sé þvert á móti áhrifa-
laus eða jafnvel beinlínis sbað-
leg.
Komið hafa til dæmis upp
aðstæður, þar sem tiltekin rík-
isstjóm hefur hvatt fram-
kvæmdastjórann til að bera
fram aðvananir eða jafnvel hót-
anir við aðna ríkisstjóm eða
eiga þátt í að eitthvert ríki
sé fordæmt af almenningsálit-
inu í heiminum. Slíkurn til-
mælum er jafnan vísað á bug.
Þagmælska sjálfsagður
hlutur
Þegar framkvæmdastjórinn
hefur afráðið að leggja tii at-
lö'gu við tiltekið verkefni, verð-
ur hann að hafa í huga, að
vandamálin, sem honum er
ætlað að hjálpa til við að leysa,
enu nálegia alltaf nátengd virð-
ingu og áliti ríkis'Stjóma eða
annarra hlutaðeigandi aðila.
Þegar um ríkisstjómir er að
ræða, er pólitísk staða þeirra
heima fyrir einatt alvarleg
hindrun hugsanlegrar lausnar.
Þess vegna eru traust, gagn-
kvæm virðing og alger þaig-
mælska frumskilyrði jákvæðs
árangurs. Jafnframt er æski-
legt, að sem allra minnst sé
fjailað um málið á opinberum
vettvangi.
Það er því ekki ótitt, að
framkvæmdastj órinn sé sakiað-
ur um að virða að vettugi al-
þjóðlegt vandamál eða láta &ér
á sama standa um það, þó
hann sé einmitt að vinna að
lausn þess í kyrrþey.
(Frá S.Þ.).
Theódór Skúlason
læknir
í dag verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavik útför
Theódórs Skúlasonar læknis,
sem lézt í Ban dspítalanum hinn
27. fyrra mánaðar, á 63. aid-
ursári.
Theódór Skúlason fæddist á
Borðeyri 28. febrúar 1908, sonur
Skúla Jónssonar kaupfélags-
stj'óra á Blönduósi og Eiínar
Theódórsdóttur. Hann varð
stúdent frá Menntaskóflamium í
Reykjavík 1928 og lauk kandí-
datsprófi í læknisfraeði-frá Há- ..
skóla Islands 1936. Var síðan
við framihaldsnám og störf á
sjúkrahúsum í Danmörfcu 1936
—1940 og fór auk þess oft
námsferðir utan síðar. Sérfræð-
ingur í lyfllækningum var
Theódór frá 1940 og var stairf-
andi læknir í Reykjavík upp
frá því, og jafnframí aðstoðar-
læknir á rannsóknarstofiu pnóf.
Jóns Steffensens 1941—42 og
1946. Hann starfaði við lyf-
læknisdeild Landspítaílans sem
aðstoðarlæknir 1942—1945, deild-
arlæknir 1954—58 og aðstoðar-
yfiriæknir frá 1959.
Theódór Skúlason var í stj«5rn
Læknafélaigs Reykjavfkur 1942—
44 og flormaður þess 1946—47.
Hann varð fonmaður Félags lyf-
lækna á íslandi 1961 og fonmað-
ur Félags sérfræðinga í Reykja-
vfk 1962 og hefur verið í stjórn
Hjairta- og æðasjúkdómavamar-
féfiags Reykjavíkur frá 1964.
Við læknadeild Háskóilans hef-
ur Theódór kennt lyfilæknis-
fnæði 1956, 1960—61, sem aiuka-
kennairi 1957—59 og dósent síð-
an 1959. Eftir hann liggur fjöldi
greina um læknisfræðileg eflni
í innlemdum og eriendum
iæknatímarituim, ednkum um
blóð-, hjarta- og kransæðasjúk-
dóma.
Theódór Skúlason var tví-
kvæntur. Fymi kona hans var
Guðlín Ingiriður Jónsdóttir en
eftirlifandi kona Rósa Mar-
gnét Steingrílmsdlóttir.
— Kveðja frá læknanemum —
Minningarorð nemenda um
kennara sína eru jafnan öðr-
um minningargreinum mæröar-
fyllri, enda oftast rituð af
ímyndaðri skyldurækni. Skrif
sem þessi kæmu því edgi frá
okkar hendi, nema um væri að
ræða mann á borð við Theódór
Skúlason, Við fráfall hans sjá-
um við á bak okkar bezta og
virtasta kennara í síðasta hfluta.
Við sjóum á bak þeim manni,
sem öllum öðrum fremur reyndi
að örva okkur til rökréttrar
hugsunar við sjúkrabeð, reyndi
að gera alla cikkar uitanbókar-
þekkingu hagnýta og var okk-
ur um leiö ímynd góðs læknis.
Theódór var óHatur við að
kenna læknanemum, jafnt inn-
an veggja kennslustofunnar sem
utan, og eigum við, sem nut-
um hans ágætu handleiðslu,
erfitt með að hugsa okkur
kennslu í lyflœfcnisfræði áin
Theódórs Skúlasonar.
Theódór starfaði mikið að 1
málefnum læknadeildar, eink-
um að framtíðarskipulagningu f-
læknakennsiu. Þeir læknanem-
ar, er kynntust honum á þedm
vettvangi, fundu vinsemd hans
og skilning á mólefnum sínum.
Byggðist afstaða hans í hverju
máli ávallt á rökréttri hugsun,
og komiust enigir fordómar þar
að. Reyndist hann læknanem-
um ósjaildan hinn skelegg-
asti máJsivari.
Theódór Skúlason var þeim
marahkostum búinn, að hann a-
vann sér traust og virðingu
dkkar umfram w mðra
kennara.
Við söknum hans.
Eiginkonu og börnuifn, ýCd^ni
víð samúð.
úr og skartgripir
JflORNBÍUS
JÚNSSON
tig 8
Dönskukennari ósknst
að Gagnfræðaskóla Garðahrepps. Skólinn er ein-
setinn og kennsluaðstæður mjög góðar.
Upplýsingar gefur skólastjórinn Gunnlaugur Sig-
urðsson í síma 42694 og formaður skólanefndar
séra Bragi Friðriksson, sími 42829.
Skólanefnd.
Útboð — Mó/un
Framkvæmdanefnd byggingiaráætlunar, Lágmúla 9
Heykjavík, óskar eftir tilboðum í málun fjölbýlis-
húsanna: Þórufell 2-20, Yrsufell 1-3 og Yrsufell
5-15, Reykjavík.
í húsum þessu’m eru 180 íbúðir og er óskað eftir til-
boðum í málun þeirra bæði að utan og innian, og
skal vinna verkið á tímabilinu 20. ágúst 1970 til 1.
júlí 1971.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Lág-
múla 9 gegn 2000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri mánudag-
!nn 17. ágúst næstkomandi kl. 16.
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar.