Þjóðviljinn - 15.08.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.08.1970, Blaðsíða 1
HODVUIMN Laugardagur 15. ágúst 1970 — 35. árgangur — 182. tölublað. - 1 Þar stéð vagga Samvinnuhreyfíngarinnar Það var í stoíu gamla bæjarins að Þverá í Laxárdal sem fyrsta íslenzka kaupfélagið, Kaupfélag Þingeyinga, var stofnað árið 1882. Þennan bæ er nú verið að lajgfæra og mun hann framvegis verða í vörzlu Þjóðminjasafnsins og opinn almenningi til sýnis, þegar viðgerð er lokið. Byrjað var á viðgerðunum fyrir tveim árum, að því er Þór Magnússon þjóðminjaivörður sagði blaðinu, og er gert við baðsitofuna, en nú er unnið við miðbæinn og er áfonmað að ljúka verlkinu í áíföngum eftir efnum og ástæðum, kannski von til að því verði lokið eftir u.þ.b. fimm ár. Bærinn var byggður fyrir miðja síðustu öld og er óvenju vél varðveittur, enda var búið í honum fram til ársins 1966, og vinna nú heimamenn á Þverá, þeir sem áður bjuggu í garnla bænum og bezt til þekkja, að viðgerðunum. Að Þverá er einnig merkileg steinkirkja, sem sézt til vinstri á myndinni, ein af elztu steinkirkjum á landinu, byggð 1878. Vegna tengsla Þverárbæjar við sögu Samvinnuhreyfinga-rinn- ar á Islandi hefa bæði Kaup- félag Þingeyinga, SlS og fleiri kaupfélög veitt styrki til uppbyggin garinnar. (Ljósm. Eyjólfur Ái'nason). $>- Síldarútvegsnefnd í deilu vii sjávarút- vegsmálarúiuneytii □ Þjóðviljanum barst í gær fréttatilkynming f.rá Síldar- útvegsnefnd þar sem nefndin lýsir m.a. algerri andstöðu sinni við undanþáguheimild þá, sem sjávarútvegsráðuneyt- ið gaf til síldveiða við Suður og Vesturland 11. þ.m. og gildir frá 16. þ.m. Telur nefndin að ekki eigi að leyfa neina síldveiði við Suður- og Vesturland fyrr en 15. september og skorar á ráðuneytið að fella undanþáguna úr gildi. Fréttatilkynning nefndarinnar fer í heild hér á eftir: „Á fundi, sam haldinn var í Síldarútvegsnefnd 4. þ.m., þeg- ar vitað var að álkveðnir að- ilar sæktu það flast, að veitt yrði undapþága frá gildandi síld- veiðibanni við Suður -og Vestur- land, sendi Sfldairútvegsnefnd, sjóvarútvegsráðuneyti'nu og haf- rannsóknastofnuninni svofellda á- sikorun: „Þair sem eiklki lítur út fyrir að nokkur sfld veiðist við Is- land í ár, nema kannsiki við Suður- og Vesturland samiþykk- ir Síldairútvegsneifnd að beina þeirri eindegnu áskorun til sijóv- aiútvegsráðuneytisins og haf- rannsóknarstoifinunaírinnar að eng- ar undan!þé.gur verði leyfðar til síldveiða við Suður- og Vestur- land fyrr en 15. sept. að veið- arnar verða ailmennt leytfðar". Þar sem vitað var að mjög skiptar sikoðanir voru á miállinu í Lamdsiamfoandi íslenzkra útvegs- manna oig innan stjómar þess og einnig að ákveðnir vísindamenn úr hópi þeirra, er mest og bezt hafá sitarfað að rannsóknum og friðunanmálum ísJenzka síldar- stofnsins voru því andvígir að veiðifoannið yrði rofið, taldd Síid- arútvegsnefnd, að ekki væru for- sendur ■ fiyrir uindanþá.guveiting- unni. Nú hefiur þessi undanþágu- Framhald á 9. síðu. Iðnstefna á Akur- evri 20.-25. ágóst Samband íslenzkra samvinnu- félaga og Kaupfélag Eyfirðinga efna til iðnstefnu á Akureyri, dagana 20. til 25. ágúst n.k. Hér er um að ræða sölu- og kynn- ingarsýnimgu á framleiðsluvörum verksmiðja Samfoandsins og K.E.A. Þetta verður 8. iðnstefna samvinnufélaganna, sem haldin er á Akureyri. Ríkisstjórnin heimilar smíði á 6 skuttogurum — 2 á Akureyri - hinir verSi smiSaSir i Póllandi og áSpáni □ í gær barst Þjóðviljanum fréttatilkynning frá sjávarútvegsráðuneytinu þar sem segir, að ríkisstjórnin hafi heimilað samninga um smíði 6 skuttogiara, tveggja á Akureyri, tveggja í Póllandi og tveggja á Spáni, en eins og kunnugt er var smíði togara þess- ara boðin út í vor og hárust m.a. tilboð í smíðina frá aðilum á framantöldum stöðum. Var Slippstöðin á Akureyri eini innlendi að- ilinn sem sendi tilboð. □ Fréttatilkynning ríkisstjórnarinnar í heild er svohljóðandi: „Ríkisstjórnin samiþykkti a fundi sínum í dag, að heimila samninganefnd um togarakaup Gunnar Thor. úr Hæstarétti í stjórnmúlabaráttuna á ný? Flest bendir til kosninga í haust, segir Vísir en Alþýðublaðið: Engin ákvörðun tekin um þingrof „Flest bendir til kosninga í haust“ sagði Vísir, annaö aðalmálgagn Sjálfstæðisflokks- ins, í aðalfyrirsögn á forsíðu í gær — og allt bendir til að nú sé að hefjast grimmur slagur í íhaldsliðinu vegna fyrirhugaðs prófkjöi-s sem hliðsjón verður höifð af við skipan framfooðslista. Enn er einkum unnið að tjaldafoaki og baráttan fyrir einstökum framfojóðendum undirfoúin og skipulögð. Þjóðviljinn hefur til dæmis fregnað að stuðn- ingsmenn Gunnars Thorodd- sens séu þegar komnir á kreik og famir að dreifa á- róðri honum til sityrktar með- al Sjálfstæðismanna, enda muni Gunnar hafa fallizt á að taka þátt í væntanlegu próf- kjöri um sæti ó framboðs- lista íhaldsins í Reykjavík. Gunnar Thöroddsen tók sem kunnugt er við emfoætti hæstaréttardómara um sið- ustu áramót, eftir nokkurra ára sendiherrastörf í Kaup- mannahöfn. Sem hæstaréttar- dórnari er Gunnar ekki kjör- gengur til Alþingis samtovæmt ákvæðum 34. greinar stjórn- arskrár íslenzka lýðveldisins. Taki hann sæti á framiboðs- lista Sjálfstæðisflokksins verð- ur hann að segja af sér dóm- araembætti, það fer ekiki á milli mála, en sú spuming hlýtur að vakna hvort þátt- taka Gunnars í prófkjöri vegna framboðs til alþingis muni ekki nú þegar leiða til brottfarar hans úr Hæsta- rétti. ★ Sem fyrr var sagt taldi Vísir í gær filest benda til þess, að efnt yrði til þing- kosninga nú í haust. 1 hinu síðdegisfolaðinu og stjómar- blaðinu, Alþýðublaðinu, kvað við annan tón: Þar var aðal- fyrirsögnin: „Engin ákvörðun að semja um smíði eins til tveggja skuttogara á Akúreyri, tveggja sikuttogara í Póllandi og tveggja á Spáni og mun ríkis- stjómin beita sér fyrir þeirri fyrirgreiðslu í sambandi við framangreindar skipasmíðar, sem gert er riáð fyrir í lögum nr. 40 11. maí 1970, um kaup á skuttogurum. Em þessi kaup til viðbótar nýgerðum samningum einkaaðila um kaup á tveimur skuttogurum, með sámskonar opinfoerri fyrirgreiðslu.“ Sjóvarútvegsmálaráðuneytið, 14. ágúst 1970. Prammi veldur tveim skips- ströndum — og tveir færeyskir bátar strönduðu á ísafirði Isafirði, 14/8. — Innrásar- prammi, ættaður frá her- námsliðinu, sem nú er í eigu Marselíusar Bernharðssonar, hefur valdið allmiklum vand- ræðum hér undanfarið. Var pramminn inni í Djúpi, rétt utan við Arngerðareyri, og hefur verið notaður til að flytja jarðýtur og bíla. Upphaif óhappaíerils pramm- ans var sl. föstudag. Var þá verið að sækja 25 tonna jarð- ýtu frá Gunnari oig Ebenezer hf. Þar sem engin vél er lengur í prammanum * þurfti bát til að draga háhn hingað til Isaifjarðar og vaHdist vb. örn til fararinnar. Þar sem pramimn var er mikið út- grynni og strandaði örn við að ná prammamum út. Á laugardagskvöld var vb. Morgunstjarnan ftenginn till að ná Erni út Dg tókst það en þá strandaði Morgunstjarnan í staðinn. Á sunnudag kom svo Vík- ingur II. til að reyna að ná Mongumstjömunni á fltot en tókst það ekiki. Tók þá Öm prammann og lagði af stað með hann til ísafjarðar. Pramminn var farinn að leka fyrir nokfcru og þuríti alltaf að hafa benzíndæki í gangi um bca-ð í honum, er hann var í fllutningum. En á leið- inm tá’l Isafijarðar með ýtuna varð dælan benzínlaus. Þar sem Víkingur II. er sitærri bátur og gangmeiri en Öm var talið að öruggara væri að lóta hatnn draga pramm- ann, því að með þiví fiengist fljótairi ferð. Er pnamimirnn kom hingað var aðeins um 30 cm borð fyrir bám og sýnir það að lítið helflur skDrt á að hann sykfci. Varðskipið Óðinn náði svo Morgun- stjömunnni út á mánudags- kvöld. En eklká var þar með öll sagan úti með prammann, því Öm fiór með hann til Fljóta- víkur á Homströndum á þriðjudaginn til að saskja jeppa sem þar var. Var brasla á leiðinni og sökk pramminn endanlega á Fljótavík. Síðan hefur verið norðan- garður og er snjór niður í miðjar hlíðar. Er þetta með mestu snjógörðum sem hér hafa komið. Sl. nótt strönduðu svo tveir færeyskir bátar hér í inmsdiglingumni, er þeir fóru út hafnsögumannslausir. Eru þeir enn strandaðir, þegar þetta er sarnið, og snúa sinn í hvora áttina. Bátamir eru 300 tonna og heita þeir Kólumbus og Hans Ólívur Hoygárd. VDru þeir hér inni vegna veðurs — G.H. Hékk íglugganum i 6 métra hæð yfir götu í tiu mínútur Stendur hann upp úr sæti hæstaréttardómara? tekin um þingmf" Dg ummæl- in höfð eftir Gyllfa Þ. Gísla- syni ráðherra og formanni Alþýðuflokksins. Er ástæða til að vekja sérstaka athygli á þessari ólflku túlkun stjóm- arblaðamna á viðhorfunum. ísafirði, 14/8. — Það bar til hér í gærkvöld að róstur urðu á Kafifi Uppsölum. Var verið að ryðja salimn, er einn nóungi hljóp upp á 2. hæð hússins, en þar eru skrifstoflur Sjálfstæðis- flokksins og íbúð veitingamanns. Sparkaði maðurinn þar út rúðu Dg skreið út um gluggann og dinglaði þar hangandi á annarrri hendi í um 6 metra hæð yfir steinlagðri götumni. Sat hann og hélck í glugganum í um 10 mín- útur en sikreið þá inn tun hann aftur og labbaðj síðan út 'á götu þar sem hafði safnazt saman talsverður mannfjöldi til að horfa á atburð þennan. Það sem undarlegt þykir var að lög- reglan skipti sér ekki af mann- inum á meðan hann lék listir sínar í glugganum. Veitingamað- urinn sagðí fréttaritaranum, að hann mætti ekki hringja í lög- regluna nema tvisvar á dag og kæmi hún þess vegna yfirleitt ekki þótt hringt væri í hana. — G.H.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.