Þjóðviljinn - 29.09.1970, Page 4

Þjóðviljinn - 29.09.1970, Page 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVTLJUSrN — Þriðjudagiur 29. septetmiber 1970. Otgefand!: Framkv.stjóri: Ritstjórar: Fréttaritstjóri: Ritstj.f ulitrúí: Auglýsingastj.: Útgáfufélag Þjóðviljans. Eiður Bergmann. tvar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Sigurður V. Friðþjófsson Svavar Gestsson. Úlafur Jónsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Slml 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Hæpin stefna Jjeir doktorarnir Gylfi Þ. Gíslason og Jóhannes Nordal hafa greint frá því að í sambandi við fund alþjóðabankans í Kaupmannahöfn hafi þeir fengið vilyrði fyrir dollaraláni, tæpum 400 miljón- um króna til þess að leggja vegi á íslandi. Þetta er ákvörðun sem vert er að vekja athygli á. Það hefur hingað til verið meginstefna í f jármálastjóm á íslandi að taka gjaldeyrislán til kaupa á fram- leiðslutækjuim, til þess að efla atvinnugreinar sem aftur gætu aukið gjaldeyri'stekjur landsmanna. Innlendar þjónustuframkvæmdir hafa hins vegar fyrst og fremst verið fjármagnaðar á innlendum vettvangi. Þessi sfefna í lánamálum er tvímæla- laust eðlileg. það er vissulega mikilvægf að geft verði stórátak í vegamálum á íslandi og varið verulegu fjár- magni í að beita þeirri tækni sem skilar mestum afköstuim. En auðvitað gat Seðlabankinn lánað og útvegað þá fjánmuni sem til þess þarf. Að því er gjaldeyri til slíkra framkvæmda varðar ættu að vera hæg heimatökin að fá lán 1 gjaldeyrisvara- sjóði þeim sem íslendingar eiga nú sjálfir og stjórnarblöðin miklast einatt af. Sá gjaldeyrir er ávaxtaður með lágmarksvöxtum, en af láninu hjá alþjóðabankanum verða íslendingar að greiða 7,5% — þannig að ársvextimir einir verða í upp- hafi nær 30 miljónir króna. Verður það að teljast hæpin hagsýni og sýndarmennska að státa af vaxtalágum gjaldeyrisvarasjóði á sama tírna og nauðsynlegt er talið að taka dýr erlend lán [til þjónustuframkvæmda. ^stæða er til þess að vekja á því athygli hver á- hrif gjaldeyrislán til innlendra þjónustufram- kvæmda geta haft í verðbólgu- og gengislækkiana- þjóðfélagi eins og því íslenzka. Af því er þegar reynsla í sambandi við Kefiavíkurveginn, en er- lendar skuldbindingar hans vegna hækkuðu um skeið sífellt í krónutölu þrátt fyrir allar afborgan- ir. Verði sá háttur tekinn upp í sambandi við vega- mál almennt að taka gjaldeyrislán til þeirra munu áhrif verðbólgu og gengislækkana enn magnast í efnahagskerfinu, og hefði þó fremur verið ástæða itil að tryggja aukið aðhald að stjómarvöldum og stofnunum þeirra en að opna gáttimar enn frekar. JJaunar er þessi dollaralántaka einnig kynleg af öðrum ástæðum. Á það hefur réttilega verið lögð áherzla um skeið að íslendingar verði nú að efla framleiðsluatvinnuvegi sína og hefja um- fangsmikla iðnvæðingu. Til slíkra framkvæmda þurfum við á miklu erlendu lánsfé að halda. En þrátt fyrir öll fögru orðin bólar ekki á neinni á- ætlun um þróun atvinnuveganna og stofnun nýrra framleiðslugreina, hvað þá að falazt sé eftir lán- um til slíkra framkvæmda. Naumast mun þó rík- isstjómin ímynda sér að íslendingar geti lifað af því til frambúðar að aka bílum um land sitt, jafn- vel þóít vegimir verði góðir. — ibl fslandsmótið 1. deild: Valur — ÍBK 2:1: Valur vann á sjálfsmarki ÍBK Og því verða Fram og ÍBK að leika aukaleik um 2. sætið □ Leikur Vals og ÍBK átti að vera síðasti leikur 1. deildar í ár, en fyrir þá sök að Valur vann leik- inn eru Fram og ÍBK jöfn í 2. sæ'ti með 16 stig og verða að leika aukaleik, þar sem 2. sætið í deildinni gefur rétt til þátttöku í Evrópukeppni kaupstefnuborga. Það var sjálfsmark ÍBK, skorað af Guðna Kjartanssyni, er varð þess valdandi að Valur vann leikinn og aukaleiks er þörf. Leikur Vals og IBK varð, eins og menn bjuiggust við fyr- irfram, bœði skemmtilegur og oft á tíðum vei leikinn. Valur vann hluttoesti og einhverra hluta vegna kaus fyrirliði Vals, Sigurður Dagsson, að leifca gegn allsterkum vindi í fyrri háilf- leik. Það fcom svo í Ijós að það háðd Valsmönnum lítið að leika gegn vindinum og áttu þeir sízt minna en ÍBK í fyrri hálfleik. Lengi vel komst hvorugt liðið í martotæikilfæri, en þó varð leitourinn aldrei þóflkenndur, heldur gekk boltinn hratt á miili marka og margir fallegir Síðasti leikur 2. deildar Breiðablik vann ísfírðinga ■ Síðasti leikur 2. deildar fór fram á ísafirði sl. sunnudag og Iéku þá sigurvegararnri í 2. deild Breiðalik gegn heimamönnum og sigruðu 2:0. Leikur þessi hafði enga þýðingu vegna þess að Breiðablik hafði fyrir löngu sigrað í deildinni og varð því ekki til annars en að gera Breiðablik 30 þús. kr. fátækari vegna ferðakostnaðar, en um leið var hann staðfesting á yfirburða sigri þess í deildinni, glæsilegri en dæmi eru til áður. — Sdór. FH gaf leikinn við Se/foss ■ SH og Selfoss áttu að leika í 2. deildarkeppninni um síðustu helgi og var Það síðasti leikur beggja í deildinni. FH gerði það glappaskot að gefa Ieikinn til að geta notað þá 2. aldursflokks leikmenn, er leika með meistaraflokki, í bikarkeppni 2, flokks en það var ekki hægt ef leikurinn við Selfoss hefði farið fram. FH gerði þetta einnig vegna þess að Ieikurinn við Selfoss skipti engu máli í 2. deildarkeppninni. Á sama tíma fara Breiðabliks- menn til ísafjarðar og leika þar gegn heimamönnum leik, sem engu máli skiptir, en kostar þó Breiðablik ekki undir 30 þúsund kr. í fargjöld fyrir leikmennina. Eins fóru Skagamenn til Vest- mannaeyja fyrir nokkru til að Ieika þar Ieik í 1. deild, sem engu málj skipti. Svo á þessu sést að FH Ieikur þarna Ijótan leik. En ekki nóg með það. í reglugerð KSÍ um landsmót eru ákvæði sem segja til um að lið( sem gefur leik án óviðráðanlegra orsaka getur átt á hættu að dæmd verði af því fengin stig í mótinu. Ef Völsungar, sem vegna falls í 3. deild eiga hér hagsmuna að gæta, kærðu þetta athæfi FH, er ekkj að vita nema stig FH í 2. deild yrðu dæmd af félaginu og það féili x 3ju deild. Allavega er Ijóst að þetta mál er ekki enn til lykta leitt, svo miklum úlfaþyt olli þessi ákvörðun FH. Bikarkeppni KSÍ: Ármenningar unnu Hauka 1:0 ■ Ármann og Haukar mættust í Hafnarfirði í Bikarkeppninni sl. sunnudag og fóru Ieikar svo að Ármenningar unnu 1:0 0g Ieika þeir því við sigurvegarana úr leik Breiðabliks og Selfoss um hvort liðið kemst í aðalkeppnina. Leikur Selfoss og Breiðabliks verður að öllum líkindum um næstu helgi. KS vann Völsunga i bikarnum ■ KS frá Siglufirði vann Völsung sl. sunnudag 4:1 í bikarkeppn- inni og fór leikurinn fram á Siglufirði. Koma þessi úrslit nokkuð á óvart, þar sem KS er 3ju deildar lið en Völsxmgur hefur leikið í 2. deiid í sumar. Með þessum sigri ávann KS sér rétt til að leika við Þrótt frá Neskaupstað um hvort liðið fer í aðalkeppnina. Sigurður Dagsson bjargaði oft mjög vel í leiknum gegn ÍBK. hér sést hann sýna glæsileg tilþrif við markvörzlu. samleikskaflar sáust. Sófcnarlot- ur Vals voru hætfculegri en sóknir IBK og einhvern veginn fannst manni að mark lægi f loftmu. Fyrsta markið Iét þó standa á sér og það var ekki fyrr en á 20. mínútu að Ingibjöm AI- bertsson skoraði stórglæsilegt mark. Jóhanncs Eðvaldsson Iék með boltann upp undir víta- teig og gaf hann síðan til Ingi- bjöms, sem Iék fallega á Guðna Kjartansson og sendi boltann síðan fram hjá Þorsteini mark- verði, sem kom út á móti en fékk ekki ráðið við skot Inga- björns. Síðan gerðist fátt markvert, þar til á hinni stórhættulegu mínútu hvers kappleiks á ls- landi, 43. mínútunni, þá fékk Jón Ölafur stungubolta innfyrir Vals-vömina og það var ekki að sökum að spyrja, boltinn lá í netinu. Þctta var dæmigert mark fyrir Jón Ölaf og maður búinn að sjá markið fyrir nokkru áður en hann skoraði það og jafnaði þar með fyrir lBK 1:1. Þannig var því staðan í Ieikhléi. Þegar Valsmenn höfðu feng- ið vindinn í bakið í síðari hálf- leiknum sóttu þeir án aiQáts, en þrátt fyrír það voru það akki þeir sem skoruðu, heldur var það landsliðsmiðvörðurinn og fyrirliði IBK, Guðni Kjart- ansson, sem skioraði sjálfsmark á 5. mínútij síðari hálflleiks, er hann hugðist senda Þorsteini markverði böltann en Þorsteinn var kominn af stað út úr mark- inu, án þess að Guðni tæki eftir þvi og því urðu þessi leiðinda mistök milli þeirra. Þrátt fyrir stanzlausa sókn næstu 30 mínúturnar tókst Val ekki að skora, þó oft munaði ekkí nema hársbreidd. Á þess- um tíma áttu Keflvíkingar ör- fáar skyndi sóknir og voru þær hver annarri hættulegri, en það var sama sagan, þeim tókst ekki að skora. Síðustu 10 mín- útur leiksins drógu Valsmenn sig í vöm og Keflvikingamir sóttu siáft, án þess að ná að skora þrátt fyrir nofckur opin marktækilfæri. Valur náði imieð þessum sigri 4.—5. sæti í 1. dieild með 14 stig ásamt KR og er það sann- arlega mieira en lengi vel leit út fyrir að liðdð næði, þvi að fram í miðja síðari umferðina var það í faMhætfcu, ýmist neðst eða næst neðst í deildinni. En svo afflt í einu var eins og kviknaði á perunni t>g liðdð tók að vinna hivem leikinn á fætur öðrum og ekki nóg með það, heldur sýndi það hvem af- buröaleikinm á fætur öðrum, þó- að 6:5 leikurinn gegn IBA væri hápunkturinn og bezti 1. deild- arleifcur sumarsins. Liðið sann- . aði það svo í þessum leik, að það er í hópi okkar beztu liða í dag og til stórræða Hklegt í komandi bikarkeppni. Lið með menn eins og Jóhannes Eðvaldsson, Sigurð Dagsson, Heliga Björgvinsson og Ingibjöm Albertsson er ekki á flæðiskeri statt Eitthvað meira en lítið er að hjá iBK-liðinu nú uppá síð- kastið, því eftir mjög góða frammistöðu lengst af í íslands- mótinu í sumar hefur liðið tapað 3 síðustu leilkjum sínum og verið langt frá sínu bezta. Þó hafa engar mannabreytingar átt sér stað í liðinu. Beztu menn þess í leiknum s. 1. laiug- ardag voru þeir Magnús Torfa- son tg Einar Gunnarsson, svo og Guðni Kjartansson, einkum í síðari hálfleiknum þegar mest mæddi á vöminni. Dómari í leiknum var Ey- steinn Gúðmundsson oig dæmdi mjög vel, eins og hann gerir raunar oftast. — S.dór. Tvö léleg lið Síðasti leikur fyrsta kvölds Reykjavíkurmótsins var á milli tveggja 2. deildarliða, Þróttar og KR, og svo hörmulega léleg- uir var þessi Ieikur, að húsið tæmdist af áhorfendum meðan á honum stóð. Þama voru á ferðinni gersamlega æfingalaus liö og handknattleikurinn, sem þau léku samkvæmt því. Þróttur mætti til leiks með svo til algerlega nýtt lið og vt>ru aðeins þrír menn í liðinu, sem lóku með því í fyrra. Allir hinir leikmennirnir eru ungir og eflaust efnilegir leikmenn, en um slíkt verður efcki sagt fyrr en þeir hafa úthald til að leika þær 2x20 mínútur, sem leikir Reykjavíkurmótsins eru. Það er sama sagan með KR- liðið, það er æfingalaust og lék hörmulega lélegan handknatt- leik, en þó voru KR-ingar skárri aðilinn og sigruðu 15:13 eftir að hafa haft jrfir 11:3 í leikhléi og 15:5 um tíma í síð- ari háMleik. Það mikið skárra var úthald Þróttaranna, að í síðari hálfleik skoruðu þeir 8 mörk í röð án þess að KR tsekist að svara fyrir sig, enda var þá allt KR-liðið að þrotum komið. Engin afsökun er til fyrir þessu æfingarleysi KR- liðsins, því það hefur fullkomið húsnæði til æfinga, en öðru máli gegnir með Þrótt, sem ekki hefur fengið inni fyrr en nú fyrir stuttu og þvf var fyrir- fram vitað að Þróttarliðið væri æfinigarlaust. — S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.