Þjóðviljinn - 29.09.1970, Qupperneq 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVTLJUSrN — Þriðjudagiur 29. septetmiber 1970.
Otgefand!:
Framkv.stjóri:
Ritstjórar:
Fréttaritstjóri:
Ritstj.f ulitrúí:
Auglýsingastj.:
Útgáfufélag Þjóðviljans.
Eiður Bergmann.
tvar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Sigurður Guðmundsson
Sigurður V. Friðþjófsson
Svavar Gestsson.
Úlafur Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Slml 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Hæpin stefna
Jjeir doktorarnir Gylfi Þ. Gíslason og Jóhannes
Nordal hafa greint frá því að í sambandi við
fund alþjóðabankans í Kaupmannahöfn hafi þeir
fengið vilyrði fyrir dollaraláni, tæpum 400 miljón-
um króna til þess að leggja vegi á íslandi. Þetta
er ákvörðun sem vert er að vekja athygli á. Það
hefur hingað til verið meginstefna í f jármálastjóm
á íslandi að taka gjaldeyrislán til kaupa á fram-
leiðslutækjuim, til þess að efla atvinnugreinar sem
aftur gætu aukið gjaldeyri'stekjur landsmanna.
Innlendar þjónustuframkvæmdir hafa hins vegar
fyrst og fremst verið fjármagnaðar á innlendum
vettvangi. Þessi sfefna í lánamálum er tvímæla-
laust eðlileg.
það er vissulega mikilvægf að geft verði stórátak
í vegamálum á íslandi og varið verulegu fjár-
magni í að beita þeirri tækni sem skilar mestum
afköstuim. En auðvitað gat Seðlabankinn lánað og
útvegað þá fjánmuni sem til þess þarf. Að því er
gjaldeyri til slíkra framkvæmda varðar ættu að
vera hæg heimatökin að fá lán 1 gjaldeyrisvara-
sjóði þeim sem íslendingar eiga nú sjálfir og
stjórnarblöðin miklast einatt af. Sá gjaldeyrir er
ávaxtaður með lágmarksvöxtum, en af láninu hjá
alþjóðabankanum verða íslendingar að greiða
7,5% — þannig að ársvextimir einir verða í upp-
hafi nær 30 miljónir króna. Verður það að teljast
hæpin hagsýni og sýndarmennska að státa af
vaxtalágum gjaldeyrisvarasjóði á sama tírna og
nauðsynlegt er talið að taka dýr erlend lán [til
þjónustuframkvæmda.
^stæða er til þess að vekja á því athygli hver á-
hrif gjaldeyrislán til innlendra þjónustufram-
kvæmda geta haft í verðbólgu- og gengislækkiana-
þjóðfélagi eins og því íslenzka. Af því er þegar
reynsla í sambandi við Kefiavíkurveginn, en er-
lendar skuldbindingar hans vegna hækkuðu um
skeið sífellt í krónutölu þrátt fyrir allar afborgan-
ir. Verði sá háttur tekinn upp í sambandi við vega-
mál almennt að taka gjaldeyrislán til þeirra munu
áhrif verðbólgu og gengislækkana enn magnast í
efnahagskerfinu, og hefði þó fremur verið ástæða
itil að tryggja aukið aðhald að stjómarvöldum og
stofnunum þeirra en að opna gáttimar enn frekar.
JJaunar er þessi dollaralántaka einnig kynleg af
öðrum ástæðum. Á það hefur réttilega verið
lögð áherzla um skeið að íslendingar verði nú að
efla framleiðsluatvinnuvegi sína og hefja um-
fangsmikla iðnvæðingu. Til slíkra framkvæmda
þurfum við á miklu erlendu lánsfé að halda. En
þrátt fyrir öll fögru orðin bólar ekki á neinni á-
ætlun um þróun atvinnuveganna og stofnun nýrra
framleiðslugreina, hvað þá að falazt sé eftir lán-
um til slíkra framkvæmda. Naumast mun þó rík-
isstjómin ímynda sér að íslendingar geti lifað af
því til frambúðar að aka bílum um land sitt, jafn-
vel þóít vegimir verði góðir. — ibl
fslandsmótið 1. deild: Valur — ÍBK 2:1:
Valur vann á sjálfsmarki ÍBK
Og því verða Fram og ÍBK að leika aukaleik um 2. sætið
□ Leikur Vals og ÍBK átti að vera síðasti leikur
1. deildar í ár, en fyrir þá sök að Valur vann leik-
inn eru Fram og ÍBK jöfn í 2. sæ'ti með 16 stig
og verða að leika aukaleik, þar sem 2. sætið í
deildinni gefur rétt til þátttöku í Evrópukeppni
kaupstefnuborga. Það var sjálfsmark ÍBK, skorað
af Guðna Kjartanssyni, er varð þess valdandi
að Valur vann leikinn og aukaleiks er þörf.
Leikur Vals og IBK varð,
eins og menn bjuiggust við fyr-
irfram, bœði skemmtilegur og
oft á tíðum vei leikinn. Valur
vann hluttoesti og einhverra
hluta vegna kaus fyrirliði Vals,
Sigurður Dagsson, að leifca gegn
allsterkum vindi í fyrri háilf-
leik. Það fcom svo í Ijós að það
háðd Valsmönnum lítið að leika
gegn vindinum og áttu þeir sízt
minna en ÍBK í fyrri hálfleik.
Lengi vel komst hvorugt liðið
í martotæikilfæri, en þó varð
leitourinn aldrei þóflkenndur,
heldur gekk boltinn hratt á
miili marka og margir fallegir
Síðasti leikur 2. deildar
Breiðablik vann ísfírðinga
■ Síðasti leikur 2. deildar fór fram á ísafirði sl. sunnudag og
Iéku þá sigurvegararnri í 2. deild Breiðalik gegn heimamönnum
og sigruðu 2:0. Leikur þessi hafði enga þýðingu vegna þess að
Breiðablik hafði fyrir löngu sigrað í deildinni og varð því ekki
til annars en að gera Breiðablik 30 þús. kr. fátækari vegna
ferðakostnaðar, en um leið var hann staðfesting á yfirburða sigri
þess í deildinni, glæsilegri en dæmi eru til áður. — Sdór.
FH gaf leikinn við Se/foss
■ SH og Selfoss áttu að leika í 2. deildarkeppninni um síðustu
helgi og var Það síðasti leikur beggja í deildinni. FH gerði það
glappaskot að gefa Ieikinn til að geta notað þá 2. aldursflokks
leikmenn, er leika með meistaraflokki, í bikarkeppni 2, flokks en
það var ekki hægt ef leikurinn við Selfoss hefði farið fram. FH
gerði þetta einnig vegna þess að Ieikurinn við Selfoss skipti
engu máli í 2. deildarkeppninni. Á sama tíma fara Breiðabliks-
menn til ísafjarðar og leika þar gegn heimamönnum leik, sem
engu máli skiptir, en kostar þó Breiðablik ekki undir 30 þúsund
kr. í fargjöld fyrir leikmennina. Eins fóru Skagamenn til Vest-
mannaeyja fyrir nokkru til að Ieika þar Ieik í 1. deild, sem engu
málj skipti. Svo á þessu sést að FH Ieikur þarna Ijótan leik. En
ekki nóg með það. í reglugerð KSÍ um landsmót eru ákvæði sem
segja til um að lið( sem gefur leik án óviðráðanlegra orsaka
getur átt á hættu að dæmd verði af því fengin stig í mótinu. Ef
Völsungar, sem vegna falls í 3. deild eiga hér hagsmuna að gæta,
kærðu þetta athæfi FH, er ekkj að vita nema stig FH í 2. deild
yrðu dæmd af félaginu og það féili x 3ju deild. Allavega er Ijóst
að þetta mál er ekki enn til lykta leitt, svo miklum úlfaþyt olli
þessi ákvörðun FH.
Bikarkeppni KSÍ:
Ármenningar unnu Hauka 1:0
■ Ármann og Haukar mættust í Hafnarfirði í Bikarkeppninni sl.
sunnudag og fóru Ieikar svo að Ármenningar unnu 1:0 0g Ieika
þeir því við sigurvegarana úr leik Breiðabliks og Selfoss um
hvort liðið kemst í aðalkeppnina. Leikur Selfoss og Breiðabliks
verður að öllum líkindum um næstu helgi.
KS vann Völsunga i bikarnum
■ KS frá Siglufirði vann Völsung sl. sunnudag 4:1 í bikarkeppn-
inni og fór leikurinn fram á Siglufirði. Koma þessi úrslit nokkuð
á óvart, þar sem KS er 3ju deildar lið en Völsxmgur hefur leikið
í 2. deiid í sumar. Með þessum sigri ávann KS sér rétt til að
leika við Þrótt frá Neskaupstað um hvort liðið fer í aðalkeppnina.
Sigurður Dagsson bjargaði oft mjög vel í leiknum gegn ÍBK.
hér sést hann sýna glæsileg tilþrif við markvörzlu.
samleikskaflar sáust. Sófcnarlot-
ur Vals voru hætfculegri en
sóknir IBK og einhvern veginn
fannst manni að mark lægi f
loftmu.
Fyrsta markið Iét þó standa
á sér og það var ekki fyrr en
á 20. mínútu að Ingibjöm AI-
bertsson skoraði stórglæsilegt
mark. Jóhanncs Eðvaldsson Iék
með boltann upp undir víta-
teig og gaf hann síðan til Ingi-
bjöms, sem Iék fallega á Guðna
Kjartansson og sendi boltann
síðan fram hjá Þorsteini mark-
verði, sem kom út á móti en
fékk ekki ráðið við skot Inga-
björns.
Síðan gerðist fátt markvert,
þar til á hinni stórhættulegu
mínútu hvers kappleiks á ls-
landi, 43. mínútunni, þá fékk
Jón Ölafur stungubolta innfyrir
Vals-vömina og það var ekki
að sökum að spyrja, boltinn lá
í netinu. Þctta var dæmigert
mark fyrir Jón Ölaf og maður
búinn að sjá markið fyrir
nokkru áður en hann skoraði
það og jafnaði þar með fyrir
lBK 1:1. Þannig var því staðan
í Ieikhléi.
Þegar Valsmenn höfðu feng-
ið vindinn í bakið í síðari hálf-
leiknum sóttu þeir án aiQáts,
en þrátt fyrír það voru það
akki þeir sem skoruðu, heldur
var það landsliðsmiðvörðurinn
og fyrirliði IBK, Guðni Kjart-
ansson, sem skioraði sjálfsmark
á 5. mínútij síðari hálflleiks, er
hann hugðist senda Þorsteini
markverði böltann en Þorsteinn
var kominn af stað út úr mark-
inu, án þess að Guðni tæki
eftir þvi og því urðu þessi
leiðinda mistök milli þeirra.
Þrátt fyrir stanzlausa sókn
næstu 30 mínúturnar tókst Val
ekki að skora, þó oft munaði
ekkí nema hársbreidd. Á þess-
um tíma áttu Keflvíkingar ör-
fáar skyndi sóknir og voru þær
hver annarri hættulegri, en
það var sama sagan, þeim tókst
ekki að skora. Síðustu 10 mín-
útur leiksins drógu Valsmenn
sig í vöm og Keflvikingamir
sóttu siáft, án þess að ná að
skora þrátt fyrir nofckur opin
marktækilfæri.
Valur náði imieð þessum sigri
4.—5. sæti í 1. dieild með 14
stig ásamt KR og er það sann-
arlega mieira en lengi vel leit
út fyrir að liðdð næði, þvi að
fram í miðja síðari umferðina
var það í faMhætfcu, ýmist neðst
eða næst neðst í deildinni. En
svo afflt í einu var eins og
kviknaði á perunni t>g liðdð tók
að vinna hivem leikinn á fætur
öðrum og ekki nóg með það,
heldur sýndi það hvem af-
buröaleikinm á fætur öðrum, þó-
að 6:5 leikurinn gegn IBA væri
hápunkturinn og bezti 1. deild-
arleifcur sumarsins. Liðið sann- .
aði það svo í þessum leik, að
það er í hópi okkar beztu liða
í dag og til stórræða Hklegt
í komandi bikarkeppni. Lið
með menn eins og Jóhannes
Eðvaldsson, Sigurð Dagsson,
Heliga Björgvinsson og Ingibjöm
Albertsson er ekki á flæðiskeri
statt
Eitthvað meira en lítið er að
hjá iBK-liðinu nú uppá síð-
kastið, því eftir mjög góða
frammistöðu lengst af í íslands-
mótinu í sumar hefur liðið
tapað 3 síðustu leilkjum sínum
og verið langt frá sínu bezta.
Þó hafa engar mannabreytingar
átt sér stað í liðinu. Beztu
menn þess í leiknum s. 1. laiug-
ardag voru þeir Magnús Torfa-
son tg Einar Gunnarsson, svo
og Guðni Kjartansson, einkum
í síðari hálfleiknum þegar mest
mæddi á vöminni.
Dómari í leiknum var Ey-
steinn Gúðmundsson oig dæmdi
mjög vel, eins og hann gerir
raunar oftast. — S.dór.
Tvö léleg lið
Síðasti leikur fyrsta kvölds
Reykjavíkurmótsins var á milli
tveggja 2. deildarliða, Þróttar
og KR, og svo hörmulega léleg-
uir var þessi Ieikur, að húsið
tæmdist af áhorfendum meðan
á honum stóð. Þama voru á
ferðinni gersamlega æfingalaus
liö og handknattleikurinn, sem
þau léku samkvæmt því.
Þróttur mætti til leiks með
svo til algerlega nýtt lið og
vt>ru aðeins þrír menn í liðinu,
sem lóku með því í fyrra. Allir
hinir leikmennirnir eru ungir
og eflaust efnilegir leikmenn,
en um slíkt verður efcki sagt
fyrr en þeir hafa úthald til að
leika þær 2x20 mínútur, sem
leikir Reykjavíkurmótsins eru.
Það er sama sagan með KR-
liðið, það er æfingalaust og lék
hörmulega lélegan handknatt-
leik, en þó voru KR-ingar
skárri aðilinn og sigruðu 15:13
eftir að hafa haft jrfir 11:3 í
leikhléi og 15:5 um tíma í síð-
ari háMleik. Það mikið skárra
var úthald Þróttaranna, að í
síðari hálfleik skoruðu þeir 8
mörk í röð án þess að KR
tsekist að svara fyrir sig, enda
var þá allt KR-liðið að þrotum
komið. Engin afsökun er til
fyrir þessu æfingarleysi KR-
liðsins, því það hefur fullkomið
húsnæði til æfinga, en öðru
máli gegnir með Þrótt, sem
ekki hefur fengið inni fyrr en
nú fyrir stuttu og þvf var fyrir-
fram vitað að Þróttarliðið væri
æfinigarlaust. — S.dór.