Þjóðviljinn - 29.09.1970, Qupperneq 5
/f Þriðjudagur 29. septetmber 1970 — ÞJÖÐVHjJINN — SlÐA EJ
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
IR vann fyrsta leik métsins
□ Reykjavíkurmeistaramótið í handknattleik
hófst sl. sunnudag og var fyrsti leikurinn í mfl.
milli ÍR, kandidatanna í 1. deild í ár og 2. deildar-
liðs Ármanns og sigruðu ÍR-ingar í tvísýnuim leik
16:15.
Bæði þessi leitour, senn og
aðrir leikir er fraim fóru þetta
fyrsta leiiklkivöld, báru þess
greinilega merki að handknatt-
ledkstímalbilið er að hefjast. í
leiknum ÍR—Ánmann kom geta
Ármanns-Iiðsins skemmtilega á
óvart, því að það veitti IR-
ingunum mjög harða keppni, en
iR-ingamir hafa undirbúið sdg
vel fyrir þetta keppnistímabil,
m. a. er lið þeirra nýkomið úr
keppnisför til Norðurlandanna.
Það er ednkium einn maður er
breytt hefur Ármanns-liðinu til
hins betra, en það er hinn gam-
alkunni leikmaður Hörður
Kristinsson og bar hann í
tvennum skilningi höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn liðs-
ins. Geta Ármenningar sannar-
lega gert sér góðar vtmir um
árangur í vetur.
Það leit þó lenigi vel út fyrir
að IR færi með stóran sigur af
hólmi, þvi að nokikrum sinnum
í fyrri hálfleik náði liðið 3ja
marka forskoti og í leiklhléi var
staðan 11:7 fyrir ÍR. En byrjun-
in á síðari hóMeik var mjög
góð hjá Ármenningunum og
áður en síðari hálfleikurinn var
hálfnaður hafði þeim tekizt að
jafna 13:13. En iR-ingamir
náðu aftur forustunni og þegar
flautan gall til merkið um
leikslok var staðan 16:15 IR-
ingum í vil.
ÍR-liðið virðist vel undirbúið
fyrir þetta mót og virðist lið
þeirra, sem svo lenigi hefur ver-
ið talið efnilegt, nú loks að
verða fullmótað. Sá leikmaður
sem allt snýst um í ÍR-liðinu
er hinn snjalli leikmaður Ásgeir
Elíasson, sem menn þekkja ef
til vdll betur sem landsliðsmaniv?
í knattspyrnu, en Ásgeir er
. jafn snjall handknattleiksmaður
sem knattspymumaður. Þá hef-
ur IR tvær afburða skyrttur,
þá Þórarinn Tyrfingsson og
landsliðsmanninn Ágúst Sva-
varsson.
Hjá Ármenningunum bar
Hörður Kristinssön af, eins og
áður segir, en því miður virðist,
sem liðinu hatfj ekki tekizt að
notfæra sér hæfiHeika hans sem.
skyldi.
Dómarar í þessum lei'k voru
Jón Friðsteinsson og Bjöm
Kristjánsson og dasmdu all vei,
einkum þó Björn. — S.dór.
Vals-liðið olli vonbrigðum
Náði aðeins jafntefli 10:10 gegn Víking
Ásgeir Elíasson, bezti leikmað-
ur ÍR og sá er allt spil Iiðsins
byggist á.
Sennilega var ekki neins foeð-
ið með jafn mikilli eftirvænt-
ingu þetta fyrsta leikkvöld
Reykjavíkurmótsins í hand-
knattleik eins og að sjá Vals-
liðið leika, bví að vitað var að
liðið hefur æft stanzlaust frá
því að Islandsmótinu lauk og
menn bjuggust við miklu af
Iiðinu. En sú von brást. Æfinga-
Iítið Víkingslið hafði i fullu tré
við Vais-liðið og jafnteflið 10:10
var sanngjöm úrsiit.
Ekkí er ótrúlegt að Vals-liðið
hafd ætlað sér um of í leikn-
um og þvi hafi hin harða mót-
spyrna, sem Víkimgamir veittu,
komið því nokkuð á óvart, en
Víkingamir léku vörnina atf
mikilli hörku, svo að stundum
keyrði um þverbak, en allt of
aí-
-llllKS OIOIul
I metr en hálfa öld hefur
HEMPELS
skipamálning haft forystuna á heimshöfunum
vægir dómiarar létu það
stkiptalaust.
Valsmennirnir höfðu lengst af
forustu, þó aldrei munaði miklu.
Um miðjan fyrri hálfleik var
jafnt 5:5 en í leikihléi hafði
Valur forustu 7:6 I byrjun sáð-
ari hálfleiks komst Valur í 8:6
en síðan jafnaði Víkingur 8:8
og rétt fyrir leikslok náðu V£k-
ingar loks forustunni 10:9, en
_.g, á síðustu mínútu jafnaði Berg-
ur Guðnason fyrir Val úr víta-
kasti og lokastaðan varð eins
og áður segir 10:10.
Það var engu líkara en að
Vals-liðið feeri úr sambandi
þegak’ Víkingamir tóku svo
hraustlega, sem raun bar vitni,
á móti þeim í vöminni og fór
leibur liðsins þanniig úr skorð-
um, að standa í stympingum
við Víkingana á miðjunni í
stað þess að dredfa spilinu og
reyna þannig að opna vömina.
Þessi miðjutroðningur Vals-
manna auðveldaði að sjálfsögðu
Víkingum vamarleikinn.
Sama má segja um Víkings-
liðið og IR-Iiðið, það hefur ver-
ið talið efnilegt um nokfcurt
skeið, en má nú heita fullmótað
lið og þegar það hefur náð
fullri æfingu verður það mjög
gött lið, sem ekki ætti að þurfa
að sitanda í tfallbaráttu í vetur.
Bezti maður þess í leiknutm
var Guðjón Magnússon, sem er
að verða ein af stórskyttunum
okkar.
Dómarar í þessum leik voru
þedr Jón Friðsteinsson og
Kristófer Magnússon og dæmdu
illa og af algeru áhugaleysi
fyrdr verkiefninu. — S.dór.
Yfir 50 ár eru liðin, siðan J. C. Hempel i Kaupmanna-
höfn hóf framleiðslu á skipamálningu. — HEMPEL's
skipamálningin er nú framleidd i 19 verksmiðjum og
seld úr birgðastöðvum við 185 hafnir um allan heim.
HEMPEL's MARINE PAINTS rekur umfangsmikla rann-
sókna- og tilraunastarfsemi, ekki aðeins f Kaupmanna-
höfn, heldur einnig f Bandarikjunum, Svlþjóð, Eng-
landi og viðar. Þar er stöðugt unnið að endurbótum
málningarinnar.
Miklar kröfur eru gerðar til skipamálningar, sérstak-
lega af flokkunarfélögunum. Stærstu flokkunarfélögin,
eins og t. d. Lloyd’s, Norsk Veritas, Germanische
Lloyd’s o. fl. hafa öll viðurkennt hinar ýmsu tegundir
HEMPEL's skipamálningar.
Slippfélagið í Reykjavik h.f. hefur einkaleyfi til fram-
leiðslu á HEMPEL's skipamálningu hérlendis. Það fær
þvi nýjar formúlur og upplýsingar um endurbætur send-
ar frá aðalstöðvum HEMPEL’s jafnótt og þær eru gefn-
ar út.
Þannig tryggir Slippfélagið sér — og ySur, beztu fáan-
legu vöru á hverjum tlma.
Framleiðandi á íslandi:
S/ippfélagið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi - Símar 33433 og 33414
Getraunaurslit
Lcikir SS. september 1070 i X THHH
Bumley — Wolves z 2 - 3
Chelsea — Ipswich- ^ . i 2 - /
Everton — Crystal P. ! 3 - I
HuddersHd—West Ham X / - /
Man. Utd. — Blackpool X l - /
Newcastle — Coventry X 0 - 0
Notth. For. — Lecds X 0 - o
South’pton — Liverpool 1 é - 0
Stoke — Arsenal 1 S o
Tottenham — Man. City l 2 - 0
W3A — Deiby i Z - /
Middleshro — Q.PJL I 6 - 2
úr og skartgripir
KDRNELÍUS
iÓNSSON
skólavördustlg 8
Hörður Kristinsson er Iiklegur til að breyta ÁrmaJtns-liðinu mjög
tíl hins betra og var hann bezti maður liðsins í leáknum gegn ÍR.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Framkvæmdastjóri
óskast. Æskilegt er að uimsækjandi hafi:
1. Hiáskólamenntun.
2. Hæfileika til að geta unnið sjálfstætt.
3. Reynslu í félagsmálum.
4. Áhuga á stjórnun.
Umsóknir er tilgreini menntun, fyrri s'törf
og aðrar persónulegar upplýsingar sendist
Stjórnunarfélagi íslands, Skipholti 37,
Reykjavík, fyrir 15. okt. næstkomandi.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðar-
mál.
Byggingarfélag verkamanna
Reykjavík.
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn í Tjarnarbúð
(Oddféllowhúsinu), uppi, laugardaginn 3.
október 1970, kl. 3 síðdegis.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsstjómin.
I
I