Þjóðviljinn - 11.10.1970, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVXLJINN — Sunniuidagiuir 11. oSctóber 1970.
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Sigurður Guðmundsson
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Verðbó/gustjórn
gtjómarblöðin, Morgunblaðið, Alþýðublaðið og
Vísir, viðurkenndu á vordögum í kaupdeilun-
um að nú væri eðlilegt að vinnandi fólk á íslandi
fengi verulegar kjarabætur. Að vísu kam sá vilji
ekki fram í samningunum við verkalýðsfélögin,
þar vaæ við að etja sama kolsvarta afturhaldið og
venjulega. Verkalýðsfélögin urðu eins og oftast
áður að beita valdi sínu eða hóta að því valdi yrði
beitt til þess að knýja fram þá samningia sem feng-
ust. En einnig eftir þá samninga kom fram í um-
mælum ráðherra og annarra áhrifamanna stjóm-
arflokkanna að hér hefði ekki verið samið um
kjör sem teljast mættu ofrausn, og raddir heyrð-
ust úr þeirra hópi um nauðsyn þess að aukning
kaupmáttarins héldist.
J^ú er aftur hafinn sami áróðurssöngurinn í
íhaldsblöðunum um launahækkanir og verð-
jryggingu launa sem orsök „verðbólgu“ og geng-
islækkana. Þetta er rakalaus áróður, verðbólgu-
þróunin er vegna óstjómar í landinu og stefnu
ríkisstjómarinnar. Ef nokkur alvara hefði fylgt
játningum ráðherra fyrr í sumar hefði ríkisstjórn-
in gert ráðstafanir til að hindra hinar skefjalausi1
verðhækkanir sem velt hefur verið yfir þjóðina
í þess stað hefur ríkisstjómin gefið verðhækkana-
bröskurum grænt ljós og sjálf stuðlað að miklum
hækkunum. í þessu máli eins og svo mörgum öðr-
um einkennist stjómarfarið af duglausri, uppgef-
inni stjóm, sem bíður þess eins að henni verði
velt. Með því að afstýra kosningum í haust hyggst
Alþýðuflokkurinn fresta uppkvaðningu dóms yfir
stjómarflokkunum til næsta sumars, en ráðleysi
þeirra og innbyrðis valdastreita í flokkunum er
slík að ekki er víst að þurfi að bíða loka kjörtíma-
bilsins.
Tryggingarnar gleymdust
^lþýðuflokkurinn hefur nú setið í íhaldsstjóm í
meir en áratug. Aðalforystumenn flokksins hafa
vart átt orð til að lýsa því hversu þetta stjórnar-
samstarf hafi verið ánægjulegt og hve miklu af
stefnumálum flokksins hafi fengizt framgengt í
samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn. Nú lýsir formað-
ur flokksins því yfir í Alþýðublaðinu í gær, að
aðalmál Alþýðuflokksins nú á síðasta þinginu eft-
ir áratugs samfellda valdasetu í íhaldsstjórn verði
allsherjarendurskoðun almannatrygginganna! Til
þess hefur Alþýðuflokki Gylfa Þ. Gíslasonar ekki
unnizt tími í áratugs íhaldsstjóm; en kannski á
að finna þar í vetur „ágreiningsmálið“ mikla sem
aftur kenni kjósendum að sjá mun á Alþýðu-
flokknum og íhaldinu. — s.
,Piltur ogstúlka 'afturásviBi
í SKÓLANUM,
HEIMA OG
í STARFINU
ÞURFA ALLIR
MARGA BIC
HLUTAVELTA
Kvennadeildar Slysavarnafélags íslands í Reykjavík verður í dag,
sunnudaginn 11. október í Iðnskólanum. — Opnað kl. 2 e.h., gengið
inn frá Vitastíg. — Glæsilegir vinnjLngar. — Fjölmennið.
N E F N D I N .
Afhending afsláttarkorta til félagsmanna og nýrra félagsmanna hefst á morgun,
12. október.
Kortin eru afhent í skrifstofu KRON og eru ókeypis.
Hver félagsmaður og nýr félagsmaður fær 3 kort, sem þýðir að hann fær 10%
afslátt í þrjú skipti.
Kortin gilda í öllu'm verzlunum KRON til 25. nóvember n.k. Hagkvæmast er að
sækja kortin sem fyrst.
Skemmtileg tilþrif Polugajevskís
í eftirfarandi skéik, sem
tefld var í 8. umferð undan-
keppni Olympíuskákxnótsins í
Siegen, sýnir Polugajevski 4.
borðsmaður sovézku sveitarinn-
ar skemmtileg tilþrif. Andstæð-
ingur hans, Yabra frá Domíní-
kanska lýðveldinu má sin lít-
ils í þeim átökum.Yabra flýtir
fyrir úrslitunum með því að
drepa á e5 í 20 leik, því þar
verður bisfcup svarts mjög vitnk-
ur. Hvítur á eikkert svar við
21. leik svarts — Hxd8. Leiki
hann 22. Dxd8—Df2t 23. Khl—
Dxg3 og mát verður ekki varið.
Hvítt: Yabra
Svart: Polugajevskí
Kóngsindversk vöm
1. d4 Rf6
2. Rf3 g6
3. c4 Bg7
4. gz 0-0
5. Bg2 d6
6. 0-0 Rbd7
7. Rc3 e5
8. dxe5 dxe5
9. Dc2 c6
10 Hdl De7
11. e4 Re8
12. Bg5 f6
13. Be3 f5
14. Dd2 Rb6
15. Bg5 Df7
16 b3 f4
17. Bd8 h6
18. h3? fxg3
19. fxg3 Bxh3!
20. Rxe5? Bxe5
21. Bxh3 Hxd8!
Og hvítur gafst upp.
Norðmaðurinn Johannes
leik vegna 20. Rd5t ásamt 21.
Db6t. Drepi svartur riddarann
á d5 í 21. ledfc þá 22. Ddt
ásamt Bb6t. Drepi svartur hins
vegar ekki riddarann þá fellur
svarta drottningin eftir 22. Rc7t.
Hvítt: Camilleri
Svart: Johannessen
Spánskur ieikur
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 b5
5. Bb3 Ra5
6. Rxe5 Rxb3
7. axb3 Dg5
8. Rf3 Dxg2
9. Hgl Dh3
10. Hg3 De6
11. d3 Bb7
12. Rc3 0-0-0
13. Be3 g6
14. Rd4 De8
15. Ha2 c6
16. Dal Kc7
17. Hxa6! Bxa6
18 Dxa6 Hc8
19. Rdxb5t! Kd8
20. Db6t Ke7
21. Rd5t!
Og svartur gatfst upp.
fékk slaeman skéll í 8. umf.
undanúrslitanna. Andstseðingur
hans, Möltubúinn Camilleri
teflir af miklum krafti og sig-
urvilja. Svartur má að sjálf-
sögðu ekki drepa á b5 í 19.
Á stolnum bí!
ölvaður unglingur ók um bæ-
inn í fyrrinótt, réttindalaus á
stolnum bfl. Hafði hann stolið
bílnum í Þingholtunum rétt upp
úr ki. 2 en var stöðvaður af lög-
reglunni um hálftíma síðar í
Vonarstræti. Bifreiðin skemmdist
ekki. Piltur þessi er 16 ára gam-
alL
Sýningar á „Pilti og stúlku“
urðu alls 27 í Þjóðleikhúsinu á
s. 1. leifcári og var aðsókn að
leiknúm góð, eins ög jafnan,
þegar þetta vinsæla alþýðuleik-
rit hefur verið sett á svið, en
þetta er í þriðja skiptið, sem
leikurinn er sýndur á leiksviði
í Reykjavík.
Um miðja viku, miðvikudag-
inn 14. okt. hefjast sýningar
aftur í Þjóðleikhúsiruu á „Pilti
og stúlfcu“. Hluitverkaskipan er
óbreytt frá því sem var á s. 1.
leikári. Leikstjóri er Klemenz
Jónsson, en Carl Billich er
hljómsveitarstjóri. Um 45manns
taka þátt í sýnángunni.
★
Mynddn er af mæðgiunum £
Tungu, en þær eru leiknar af
Margréti Guðmundsdóttur og
Guðbjörgu Þorbjamardóttur.
AUGLYSIR
»o
10% afsldttarkort
SKÁKIN
Ritstjórar:
Bragi Kristjánsson og
Ólafur Björnsson