Þjóðviljinn - 16.02.1971, Side 1

Þjóðviljinn - 16.02.1971, Side 1
 Helsingfors sátfmálinn staSfestur Starfsemi Norðurlamda- ráðs á skjalfestan grund- völl í Helsingforssáttmál- anum. Hann hefur nú ver- ið til cndurskoðunar um nokkurt tímabil og á þess- ari mynd sést hvar for- sætisráðherrar Norðurlamd- anna fimm undirrita breytt- an sáttmála, sem tekur gildi er þjóðþingin hafa staðfest sáttmálann nýja. Á myndínni talið frá vimstri: Olof Palme, forsætisráðh. Svía, Per Borten, Noregi, Jóhann Hafstein, Athi Karjalainen Finnl. ogHilm- ar Baunsgaard, Danmörku. Að baki þeim má sjá Matt- hías Á. Mathiesen, fráfar- andi formann Norðurlanda- ráðs. Þriðjudagur 16. íebrúar 1971 — 36. árgangur — 38- tölublað. Feri frá Akureyri til Húsa víkur tók 10 klukkustundir Allar lengri Ieiðir um norðan- vert landið eru nú lokaðar vegna þrálátrar norðanáttar og snjó- komu. Áætlunarbíll með skíða- fólk frá Akureyri var 10 tíma á leiðinni til Húsavíkur í nótt, og komst ekki á leiðarenda, en hafnaði í skafli syðst í bænum. Sökum dimmviðris hafa og orð- ið tafir á flugsamgöngum norð- ur. Snjóað hefur látlaust norð- anlands síðan á 1 augard agsmorg- un, og jafnfr'amt hefur verið hvasst, 6-7 vindstig þ>annig ■ að snjóinn skefur í hengjur. Á jafn- sléttu er þó snjór víðast hvar aðeins tæ-pur metri á hæð, en allir fjallvegir hafa að sjálfsögðu lokazt. og sums staðar er vairt fært milli bæja. Spáð er áfram- haldandi snjókomu fram eftir degi í dag. Engir mjólkurflutningar haf'a verið til Húsavíkur nema frá Aðaldal, en gersamlega ófært hefur verið um önnur héruð í grenmdinni frá því á stunnudag. Snjóskriða féll á Tjömesi í gær. Á Ólafsíirðj eru allar götur ó- Þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn: Almennu umræðurnar voru í skugga Efnahagsbandalagsins hugmynd Baunsgaards um norrænt efnahagssamstarf með tilliti til aðildar að EBE hlaut dræmar undirtektir færar og í Hrísey nser snjór- inn víða gangandi manni upp að mitti. Ekki hefur hlotizt tjón af veðr- inu annars staðar en á Siglu- firði, en svo sem fyrr segir var skíðafólk frá Húsavik um 10 kluikikustundir að komast heim frá Akureyri með áætlunarbil, og þegar hyllti undir bæinn. ki. 5 í gærmorgun. festist bíllinn í skafli og skíðamennimir sem voru 12 talsins urðu að brjót- ast heim fótgangandi. Færð á Austurlandi hefur ver- ið með eindæmum góð í vetur, en er nú mjög farin að þyngjast, og helztu fjallvegir eru lokaðir. Reynt verður að opna vegina norðan lands og austan í dag. ef veður leyfir. Þá hafa orðið tafir á flugsamgöngum um og eftir helgina. Flugferðir til Sauðárkróks, ísafjarðar, Raufa.rhafnar og Þórshafnar féllu niður í gsex. □ Almennu umræðumar á þingi Norðurlanda- ráðs í Kaupmannahöfn mótuðust mjög af von- brigðum með afdrif Nordek-málsins og má segja að þessar umræður mestallar hafi staðið í skugga Efnahagsbandalags Evrópu, sagði Magnús Kjart- ansson ritstjóri, en hann er fulltrúi Alþýðu- bandalagsins á fundi Norðurlandaráðs. Hafði Magnús saimband við blaðið í gær frá Kaup- mannahöfn og greindi frá gangi mála á fund- inum það sem af er. AAagnús Kjartansson á þingi Norðurlandaráðs: Samstarf Norðurlanda gegn mengun hafs og ofveiði væri okkur styrkur ■ „Það yrði okkur fslendingum inikill styrkur á alþjóða- vettvangi ef Norðurlönd sameiginlega beittu sér fyrir að- gerðum til þess að koma í veg fyrir mengun og ofveiði og fyrir rétti strandríkja til þess að tryggja lífshagsmuni sína“. Þannig komst Magnús Kjartansson að orði í almenn- um umræðum á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn á laugardaginn, en þar gerði hann landhelgismál að um- talsefni. Eysteinn Jónsson, fulltrúi Framsóknarmanna í Norðurlandaráði, tók mjög eindregið undir þau s'jönarmið, sem komu fram í ræðu Magnúsar Kjartanssonar. Magnús Kjartansson komst svo aö ordi: „Síðasta þingi Norðurlanda- Samningafundur 1 GÆR HÓFST samningafundur í togaradeiiunni í Alþingis- húsinu í Reykjavjk. Hófst fundurinn kl. 16 og stóð fram eftir kvöldi. Samningafundur var með deiluaðilum á föstu- dag. BRATT HEFUR togaraverkfallið staðið í sex vikur Berast nú góðar aflafréttir frá útiendum togurum á veiðum undan Austurlandi á meðan togara- floti íslendinga liggur bund- inn í höfn viku eftir viku. I REYKJAVfK hafa 13 togarar stöðvast, 4 togarar í Hafnar- firði, 1 á Akrancsi og 4 tog- arar á Akurcyri. ráðs í Reykjavílk lauk með bjart- sýnum viðhorfium. Ráðið skoraðd á ríkisstjómir Norðurlanda að gera samning um efnahagssam- vinnu, og allir væntti ,þess að samningurinn yrði fljótlega und- irritaður. Því miður reyndist þessi bjartsýni ótímabær; þegar á reyndi varð Nordek-samning- urinn ekki að veruileika, og hann hefur nú verið lagður til hliðar — aö minnsta kosti í bili. Ein afleiðing þess er að tvö Norður- landa, Danmörk og Noregur, hafa sótt um flullla aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu. í stað þeirrar samvinnu sem við gerð- um okkur vonir um fyrir ári, blasir nú við hætta á efnalhags- legri sundrung. Ef við þá stað- reynd að þrjú Norðurianda eru í AtlanzJhafsbandalaginu en tvö óháð bætist að tvö ríki Norður- landa verði aðilar að Elfnahags- bandalaginu en þrjú standa utan þess, fer norrænni samivinnu að verða skorinn þröngur stakkur. Ég er í hópi þeirra sem vona að svo fari ekki. Ekki ástæða til uppgjafar En þótt horfurnar sóu þannig mun verri en þær virtust vera í fyrra er síður en svo ástasða til uppgjafar; öllu heldur ber að reyna að eifla norræna sam- vinnu á öllum þeim sviðum þar sem unnt er að koma henni við. Ástæða er til að fagna því að á þessu þingi verða ræddar til- lögur um tvo nýja norræna samniinga, á sviði menningar- mála og samgöngumála. Ég tel báða þessa samninga mikilvæga. Og á sama hátt teldi ég það miklu máli skipta að Norður- lönd treysti samstöðu sína á fleiri sviðum, einnig þegar um er að ræða viðfangsetffii sem aðedns skipta meginmáli fyrir hluta Norðurlanda. Alþjóðlegt vandamál 1 þessu samþandi hef ég til- tekið vandamál í huga, ástandið í Norður-Atlanzhafi, sjónum umhverfis fsland, Mengun hafs- ins, sem sums staðar ógnar Fratmlhald á 9. síðu. Það kom fram á fiundinum i almennum umræðum mjög vax- andi andúð á aðildarumsóknum Dana og Norðmanna að EBE. Þegar forsætisráðherra Dana, Baunsgaard, sagði í ræðu á laugardag, að ef til vill mætti taka upp að nýju viðræður um norrænan efnahagsmálasamning eða samstarf á þeim sviðum, sem tæki tillit til hugsanlegirar að- ildar einhverra Norðurlanda- þjóða að Efnáhagsbandalaginu. Kom strax fram mikil andstaða við þessa hugmynd danska for- sætisráðherrans, m. a. frá Olof Palme forsætisráðherra Svfa. Sagði hann að með þessu móti væri verið að opna leið til þess að smeygja einhverjum Norðurlandaþjóðum inn í Efna- hagsþandalagið á gi-undvelli nor- ræns samstarfs. En það hefur einnig komið fram að andstaðan við aðild að EBE er mjög vaxandi í Noregi og Danmórku. Þannig kom fram skýr andstaða við Efnahaigs- bandalagið i ræðu, sem Engan, norskur stórþingsmaður floikks- bróðir Bortens, forsætisráðhen-a, flutti í almennum umræðum á Framihald á 9. siðu. Flytja söngwa úr gluntunum á árshátíð ABR Þessir þremenningar úr Blandaða oktettinum flytja söngva úr Glxmt- unum á Árshátíðinni. Standandi: Sigurður Þórðarson (glunten) og Gunnar Guttormsson (magistem) Við píanóið; Friðrik Guðni Þórleifsson. Fylkingin Evr- um Starfshópur um Austur ópu. Opinn starfshópur Neista heldur fund í kvöld kL 20,30 að Laugavegi 53 A. Á þeim fundi verður jafnframt opnaður starfshópur um Austur-Evrópu á vegum fræðslunefndar. \Allt í óvissu um olíu- og bensínhækkun \ Þjóðviljinn leitaði í gaer upplýsdnga, bæði hjá . við- skiptaráðuneytinu og olíufé- lögunum. um það hvaða á- hrif sarnninigamir sem gerðir voru um helgina í Teheran milli olíufram- leiðslulandanna og olíuíé- laganna myndu hafa hér á landi, en samkvæmt því hæfekair verð á hráolíu um 20% nú þegar. Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisistjóri og Vil- hjalmuir Jónsson, forstjóri Olíufélagsins, sögðu báðir, að enn værj ekki hægit að segj,a neitt um það, hvaöa áhrif þetta myndi bafa á benzín og olíuverð hér á landi. Samkvæmt samningi okkar við Sovétríkin er kiaupverðið miðað við heimsmarkaðsverð á óliu og er fairið eftir verðskrán- ingunni í Aruiba hverju sinni, Sögðu þeir jafnframt báðir, a@ ljóst væri, að samningarnir í Teheran myndu leiða af sér hækk- un á hei msmark a ðsverðd, hins vegiar kynnj að kioma þar á móti einhver lækkun á flutningsgjöldum, en of snemmt værj að spá neinu um það hver heildairniður- staðan yrði og hvenær eða hve mikið olíuverðið kynni að hækka vegna þessara nýju samninga. i <

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.