Þjóðviljinn - 14.04.1971, Qupperneq 3
I
— SfTiA 3
M.s. Baldur
STYKKISHÓLMI — Sími <93)8120.
Fram'kvæ-m dast j óri: Lárus Guðmundsson, Stykkisbólmi.
Aígreiðsla í Reykjiavi'k: Skipaútgerð ríkisins, sími 1-76-50.
SUMARÁÆTLUN. JÚNÍ — SEPTEMBER
Stykkishólmur — Flatey — Brjánslækur
Stykkishólmur.
FÖSTUDAGA:
Á tímabilinu 2. júl'i til 10. september að báðum dögum
meðtöldum.
Frá Stykkishólmi kl. 11. — Frá Brjánslæk kl. 15.
Áætlaðjr komutími til Stykkishólms kl. 19.
LAUGARDAGA:
Á tímabiiinu 12. júní til 18. september að báðum dög-
um meðtöldum.
Frá Stykkishólmi kl. 14. — Frá Brjánslæk kl. 18.
Áaetlaður komutími til Styfckishólms M. 22.30.
MÁNUDAGA:
Frá Stykkishólmi kl. 13, eftir komu póstbifreiðarinnar
frá Reykjavík. — Áætlaður komutími til Stykkishólms
M. 20.30.
Viðkoma "er alltaf í Flatey, en ar geta farþegar dyalið í
um 3 tíma á meöan báturinn fer til Brjánslaakjar og til
baka aftur.
M.S. BAT.DUR flytur bila milli Brjánslækjar og Stykk-
ishólms. — Með því að ferðast og flytja bílinn með skip-
inu er hægt að kanna fagurt umihverfi, stytta sér leið
og spara akstur. — Trygginig á bílum er ekki innifal-
in í flutningsgjaldi. — Bílaflutniniga er nauðsynlegt að
panta með fyrirvara:
Frá Stykkishólmi: Hjá Láruai Guðmundssyni, Stykkis-
hólmi, sími (93)8120.
Frá Brjánslæk: Hjá Ragniari Guðmundssyni Brj ánslæk,
símstöð: Hagi. — Bílar þurfa að vera komnir kluikku-
tima fyrir brottför.
Veitingar: Um borð er selt kaffi, öl, heitar súpur o.fl.
Leiga: M.s. Baldur fæst Teigður á sunnudögum til sigl-
inga um fjörðinn.
Á tímabilinu okt. - des. / jan. - maí, eru póstferðirnar til
Brjánslækjar á laugardögum. Brottfiarartími frá Stykk-
ishólmi i þeim ferðum er M. 9 árdegis.
AÐRAR FERÐIR: M.s. Baldur fer tvær eða fleiri ferð-
ir í mánuði milti Reykjavikur og Breiðafjarðarhafna,
sem eru nánar auglýstar hverju sinni.
Útgerðin ber enga ábyrgft á farangri farþega.
Skákkeppni
stéttafélaganna í Reykjavík og Hafnarfirði
fer fram í Tónabæ mánudagaina 19. april — 26.
apríl og 3. maí kl. 20 - 24 alla dagana. \
Hver þátttökusveit sé skipuð 4 aðalmöninum og
2 til vara. Sex umferðir — Monrad — hver kepp-
andi fser 1 klst. á skák.
Þátttaka tilkynnist: Fulltrúaráði verklýðs-
félaganna, Þorsteini Péturssyni, síma 16438,
Taflfélagi Reykjavíkur, Hermanni Ragn-
arssyni, símn 20662.
Woodstock hátíðin sýnd í
Rvík - og aiiir viija græða
Sýningar í einu kvikmynda-1 inni sem haldin var 1969 í
húsi Reykjavikur á listilega tek- Bandaríkjunum hafa veriö mjög
inni mynd frá Woodstock hátíð-1 f jölsóttar, en þær hófust rétt
Þörf sérstakrar sjúkrahif-
reiðar fyrir kransæðasjáka
I tillögn. sem hlaut einróma
samþykki á fundi Hjartasjúk-
dómafélags ísl. lækna nýverið
segir að brýna nauðsyn beri til
endurskipulagningar á flutning-
um og sjúkrahúsvistun sjúk-
linga með einkenni um bráða
kransæðastöflu. Kaus fundurinn
tvær nefndir til að vinna að
framgangi þessarar tillögu, sem
er í heild svohljóðandi:
„Fundiur í Hjarbasjúkdómafé-
lagi íslenxkra lækna,. haldinn 6.
apríl 1971 ályktar, að vinnajj
beri bráðan bug að því að end-
ursikipuileggja flutninga og j
sjúkrahúsyistum sjúklinga með
einíkenni um bráða kransæða-
stíflu í Reykjavik og nágrenni.
Haft verði að markimiði að sjúk-
lingar (þessir komiist með sem
minnstri töf til sérhæfðrar
rannsóknar og meðferðar. I
samræmi við reynslu annarra
þjóða telur fundurinn tímaibært
að tekin verði í notiku-n sér-
staklega útbúin sjúkrabifreid í
bessu skyni.
Fundurinn velkur atihygli á
nýjum viðlhorfum vegna fram-
fara í skurðaðgerðum við
kransæðasjúkdöma, og telur, að
Nv flugvél
til landsins
Ný fflugvél bættist í flugflota
Islendinga í gær, 2ja hreyfla
véT; Beaeheraft Super — E-18.
Eigandi hennar er nýtt fflug-
félag; Landfflug hf., en fram-
kvæmdasitjóri þess er Mairinó
Jóhannsson. Nýja vélin verður
notuð í leiigufflug .Vélinni var
fflogið til Islands frá Louisiana
í Bandaríkjunum. Hún var áður
í eigu bandarískra sjónvarps-
manna.
nauðsynlegt sé að hefja þegar
undirbúnin-g að silíkum skurð-
aðgerðum hér á landá“.
Hjartasjúkdömafélag ísQenakra
lækna var Stofnað 1968 og var
fyrsti fbrmaður þess próf. Sig-
urður Samúelsson. Núverandi
fonmaður er Snorri P. Snorra-
son, en aðrir stjórnanmenn eru
Magtnús Öláfsson’, 'gjál'dikeri' og
Nikuilás Sigfússon, ritari. Fé-
lagsmenn eru nú 35.
<$>=-
fyrir páska.
Mynd þessi segir frá þriggja
daiga hljómlistarhátíð sem hálf
miljón manna sóttu. Þótti mikl-
um tí'ðindum sæta að þama fór
allt friðsamlega fram þrátt fyrir
mannfjöldann. Þeir sem undir-
bjuggu hótíðina gerðu ráð fyrir
um 200.000 manns og fór þátt-
takan því lan-gt fram úr vonum
þeirra. Engu að siður varð stór-
tap á hátíðinni fjórhagslega, því
að þúsundum saman streymdu
menn yfir niðurfailnar girðing-
ar og voru miðasa'lar þar víðs-
fjarri. Forráðamenn hátíðarinn-
ar tóku tapinu með bros á vör,
því að eins og fram kemur i við-
tölum í myndinni. hafði unga
fólkið sannað að hægt er að halda
slíka hátíð í anda friðar og
bræðralags.
í myndinni koma fram þekkt-
ir hljómlistarmenn eins og Jimi
Hendrix, Country Joe, Joan
Baez, Arlie Guntrie, Santana og
Ten Years After. Tekur sýningin
rúfnár" þrjár' Klúkilaiisfundif, ;,bg
eru auk tónlistarfflutnings sýnd
viðtöl við gesti á hátíðinni og
íbraa í Woodstocfe, og viðbrögð
þeirna síðamefndiu við hátterm
unga fólksins og klaaðaburfh —
eða klæðleysi í sumum tilfellum.
Á undan sýningum í Austur-
bæjarbíói og í hléum er diskóteik
í anddyri hússins. Aðilar eins
og Kamabær og Simna nota
tækifærið og reyna að höfða til
unga fólksins með yöru sinni.
Táningar vom þarna í mikrlum
meirihluta. Þó mátti sjá eitthvað
af eldra fólki og höfðu roskin
hjón við orð að þau væru þama
stödd til að verða ung í annað
sinn
Kvikmyndahúsið leigði bátal-
arakerfi sérstaklega fyrir sýn-
ingar á Woodstock. Ekki eru lík-
ur til að hérlendir aðilar tapi
fjárbagsJega á sýningu myndar-
innar fremur en erlendir þar
sem myndin hefur verið sýnd.
Miðinn kostar 125 krónur og er
þá innifalið stæði i anddyrinu
meðan hljómlist er flutt af plöt-
um fyrir sýningu! í hléi á einni
sýningunni laumuðust nokkrir
piltar inn, án aðgöngumiða. og
settust í tröppur áhorfendasal-
arins. Var umsvifalaust gripið
í hnakkadrambið á þeim og
þeim ffleygt út af starfsmianni
hússins — og þótti ekki ailveg
í stil við Woodstoek hátiðina —
þar sem 300.000 manns fengu
ókeypis aðgang — og jafnvel
ókeypis mat. þegar fólkið kornst
ekki burtu á tilskildum tíma
vegna umférðaröngþveitis.
SKIPAUTGtRÐ RIKISINS
MS. HEKLA
fer austur um land í hrinigferð
fyrri part næstu viku. Vöru-
móttaka í diag, á morgun og. á
föstudag til Homafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdalsvikur,
Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarð-
ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Borgarfjarðar. Vopnafjarðar,
' Þórshafnar, RjatífafíffifhWJ
Húsavikur, Akrareyrar og Siglu-
fjaröar.
Góður afli
fyrir norðan
Sauðárkróki 13/4 — Góður affli
hefur verid hjá togbátum fiyrir
Norðunlandi undanfairna da.ga. I
gær iandaði Hegranesið 115 tonn-
uem hér eftir 4ra sólairlhriniga úti-
vist. Helmiragur þess afla fékkst
síðasta sólarhringinn.
Á morgun er von á Dran.gey
með á 2 hundrað tonna aiffla.
Er gert róð fyrir að vinna í
frystihúsinu verði fram á kvöld
ailla næstu viku.
AÐALFUNDIR
deilda KRON verða haldnir sem hér segir:
1. og- 2. deild: fimmtudaginn 15. apríl í fundarsal SÍS í Sambandshús-
inu við Sölvhólsgötu, 4. hæð. Gengið inn úr porti frá Ingólfsstræti.
3. og 4. deild: þriðjudaginn 20. apríl í fundarsal Afurðasölu SÍS,
Kirkjusandi við Laugarnesveg.
5. deild: mánudaginn 19. apríl á skrifstofu KRON, Laugavegi 91, 4.
hæð. Gengið inn um bakdyr DOMUS.
6. deild: mánudaginn 19. apríl í Félagsheimilinu, Kópavogi, neðri sal.
Dagskrá fundanna er skv. félagslögum.
Allir fundimir hefjast kl. 20,30.
Deildaskipting KRON:
1. deild: Seltjamames og Vesfcurbær surman Hringbraiufcar að Flugvallarbraut.
2. deild: Vesturbær norðan Hringbrautar og Miðibær að Rauðarárstíg.
3. deild: Norð-au&turbær frá Rauðarárstíg. norðan Laugavegar og Suðurlands-
braufcar að Elliðaárvogi.
4. deild: Suð-austurbær frá Rauðarárstíg sunnan Laugavegar og Suðurlands-
brautar ausfcur að Grensásvegi og suður að mörkum Kópavogs.
5. deild: Austurbær, austan Grensásvegar og sunnan Suðurlandsbrautar að mörk-
um Kópavogs, einnig Árbæjar- og Breiðholts'hverfi, svo og félagsmenn,
sem búsettir eru utan Reykjavíkur, Kópavogs og Seltjamamess.
6. deild: Kópavogur.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis
i