Þjóðviljinn - 13.06.1971, Page 4
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Otgetandls Otgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.atjórt: Eiður Bergmann.
Bltstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnúe Kjartansson.
Sigurður GuSmundsson.
Rltetj.fulltrúl: Svavar Gestsson.
Fréttastjórti SlgurSur V. FrtSþjófssoa
Auglýslngastjórl: Helmtr Inglmareeon
Rltstjóm, afgrelSela, auglýslngar, prentsmiSja: SkólavðrSusL 19. Siml 17500
(5 linur). — AskrlftarverS kr. 195.00 é mánuSL — LausBsðluverð kr. 12.00.
Þrír kostír
I>rír valkostir blasa við þjóðinni í dag. Menn
geta kosið yfir sig óbreytt stjómarfar, sem
markast m.a. af lítilli landhelgi, vaxandi misrétti,
hrollvekjunni í haust og 20 erlendum álbræðsl-
um á næstu árum. Leiðtogar Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks hafa ekki farið neitt dult með það
að þeir vilja halda samstjóm sinni áfram, þrátt fyr-
ir sívaxandi gagnkvæman leiða, og þeir sem vilja
slíkt s'tjórnarfar kjósa annanhvom þessara 'flokka.
Raunar lögðu þessir flokkar á ráðin um vara-
skeifur; Styrmir Gunnarsson hefur greint frá því
í Stefni að framboð Hannibalista hafi verið hugs-
að sem einskonar baktrygging fyrir viðreisnar-
stjómina, enda var Hannibal svo bráðlá'tur að
hann bauðst til þess að leggja flokk sinn niður
fyrir kosningar og bjóða sig fraim á vegum Al-
þýðuflokksins. En þessi öryggisráðstöfun stjóm-
arflokkanna snerist upp í enn fráleífera skop
en gamansemi núllista, og bjóða hvorirtveggju
upp á það ei'tt að eyðileggjá atkvæði.
^nnar valkosturinn er sá að hægri armur Fram-
sóknar taki við af Alþýðuflokknum og myndi
nýja helmingaskiptastjóm með Sjálfstæðis-
flokknum. Reynslan sýnir að slík samvinna ýtir
undir íhaldssömustu og þröngsýnus'tu öfl beggja
flokka, og að ekkert stjómarfar er erfiðara iauna-
mönnum, framtaksminna og leiðinlegra. Hvílir
sérstök ábyrgð á vinstrimönnuim innan Fram-
sóknarflokksins að vara .leiðtoga sína við slíkri
samvinnu í kosningunum í dag, á sama hát'f og
kjósendur Alþýðuflokksins vöruðu forustumenn
sína við í borgarstjórnarkosningunum í fyrra. Eng-
inn kostur væri verri fyrir raunverulega vinstri-
menn í Framsóknarflokknum en samstjórn Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks.
jþriðji valkosturinn er sá að efla Alþýðubandá-
lagið til mikilla muna. Slík úrslit gætu stuðl-
að að raunverulegum umiskip'tum í íslenzkuim
stjómmálum og rifið þau út af lokaðri braut
hinna lágkúrulegustu hrossakaupa. Stórefling Al-
þýðubandalagsins mundi hafa mjög mikil áhrif
á ásfandið innan annarra flokka og kalla fram
innan þeirra þjóðfélagsöfl sem að undanfömu hafa
mátt sín lítils. Þetta gerðist þegar nýsköpunar-
stjómin var mynduð eftir s'tórsigur sósíalista 1942.
Þetta gerðist einnig þegár vinstrisíjórnin var
mynduð eftir sigur Alþýðubandalagsins 1956.
Slíka þróun er erfitt að sjá fyrir, en augljóst er
að því aðeins getur orðið raunveruleg breyting á
pólifísku andrúmslofti á íslandi að Alþýðubanda-
lagið nái mjög uim'talsverðum árangri í dag. Þeir
sem vilja endurnýjun og aukinn þró'tt í íslenzka
stjórnmálastarfsemi geta aðeins náð því marki
með því að ganga í dag til liðs við lista Alþýðu-
bandalagsins, G-listann. — m.
Gáfu Styrktarfélaginu tæki
Nýlega afhenti forseti Kiwanisklúbbsins Heklu í Reykjavík Styrkt-
arfélagi lamaðra og fatlaðra lækningatæki (ULTRATERM 608/
20450) með titheyrandi útbúnaði. Myndin var tekín vfð bað tæki-
færi og sjást á henni nokkrir gefenda og stjórnarmanna Styrkt-
arfélagsins.
Cæsar og Hannibal
í sólslkiTLÍnu sigldi í sitrand,
sjófuglunum bjó það grand,
út var dreginn, aftur söklk,
enga hlaut hann Cæsiar þökk.
Er að sökkva annað „skip“,
óiánsfleyta lek se’m hrip,
eftir strönd og straumabál,
í stjómmálianna Víkurál.
Síðan geyma sagan sfcal
Cæsar bæði og Hannibal,
Vestfirðingum verða þeir
vel í minni báðir tveir.
Útbob
Tilboð óskast 1 að byggja skrifstofu- og
vörugeymsluhús fyrir hlutafélagið Heild,
við Klettagarða í Reykjavík.
Útfooðsgaigna skal vitja í teiknistofunni
Laugarásvegi 71 frá og með 16/6 1971 gegn
5000 kr. skilatryggingu.
MUNIÐ
KOSNINGAHANDBÓK
FJÖLVÍS
Kiósið rétt!
1x2 svefnsófinn hefur fjaðrandi bak og
er því sérlega þægilegur í sæti.
1x2 er eins manns svefnsófi; br. 75 sm.
1x2 er einnig fullkominn 2ja manna
svefnsófi; br. 120 sm.
1x2 hentar jafn vel í stbfuna, svefn-
herbergið og sumarbústaðinn,
1x2 er svefnsófi fyrir alla.
SVEFN BEKKJA
Höfðatúni 2 (Sögin). — Sími: 15581
Orkustofnun
óskar eftir að taika á leigu nýlega jeppá.
Upplýsingar í síana 17400.
ÍSLfiKRA HLJÓIISTARMAiA
útvegar ybur hljóðfœraleikara
og hjómsveitir við hverskonar tœkifœri
línsamlegast liringið i 202SS milli kl. 14-17
Tilboð óskast í byggxngarframkvæmdir
fyrir Rafmagnsveitur ríkisins við Langa-
vatnsmiðlun hjá Mjólká í Arnarfirði.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
gegn 5.000,00 króna skilktryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað 5. júlí
næstkomandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BOfiGARTÚNI 7 SÍMI 10140